Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1976 Ófríða konungsdóttirin sér. Hana vildu þeir fá að sjá, en Ófríð sagði að enginn fengi það, nema konung- urinn, ef hann kæmi sjálfur. Og svo hélt hún áfram þeysireiðinni á geithafrinum, svo glumdi í þilfarinu. Þegar menn konungs komu aftur heim og skýrðu honum frá því, sem fyrir þá hafði borið á skipinu, vildi hann strax sjá hvernig þar væri, sérstaklega þó þessa sem riði á hafrinum. Þegar hann kom, leiddi Ófríð systur sina fram, og hún var svo væn og fögur, að konungurinn varð þegar hrifinn af henni, um leið og hann sá hana. Hann tók þær nú báðar með sér til hallar sinnar, og vildi fá yngri systur- ina fyrir drottningu, en Ófríð sagði nei, hana gæti ekki konungur fengið, nema hún sjálf fengi son hans fyrir mann. Það kærði konungssonur sig nú ekki beinlínis um, því honum fannst Ófríð ekkert til- takanlega glæsileg ásýndum, en svo lengi talaði konungurinn faðir hans og allt fólkið í höllinni um fyrir honum, að hann lét undan, og lofaði að hann skyldi taka Ófríð sér fyrir konu, en nauðugur gerði hann þetta og stúrinn var hann. Síðan var búið til brúðkaups og dregið að bestu matföng og ölföng og skyldi ekk ert skorta, og þegar allt var til reiðu, var lagt af stað til kirkjunnar, en konungs- syninum fannst þetta verða erfiðasta kirkjuferð, sem hann hafði farið nokk- urn tíma á æfinni. Fyrst ók konungurinn faðir hans með brúði sína. Hún var svo fögur og yndisleg, að allt fólk nam staðar meðfram veginum og'horfði á hana eins lengi og það sá til hennar. Á eftir reið svo konungssonurinn við hliðina á Ófríði, hún kannske á hafrinum með sleifina í krumlunni og á svip konungssonar virtist frekar að hann væri að fara til jarðarfar- ar en til brúðkaups, svo sorgmæddur var hann ásýndum og mælti ekki orð frá vörum. „Hvers vegna segir þú ekki neitt?“ spurði Ófríð, þegar þau höfðu farið nokkra leið. ,,Hvað ætti ég að segja?“ spurði kon- ungssonur. „Þú gætir þó spurt hvers vegna ég ríði á þessum ljóta geithafri," sagði Ófríð. „Af hverju ríðurðu á svona ljótum geithafri?“ spurði konungssonur. „Er þetta ljótur geithafur? Nei, þetta er besti gæðingur, sem hefir sést í þrem þjóðlöndum," svaraði Ófríð og um leið varð hafurinn að hnarreistum gæðingi, hinum fallegasta, sem konungssonur hafði séð á æfi sinni. Svo héldu þau áfram, en konungssonur var enn stúrinn og ómögulegti að toga út úr honum nokkurt orð. Svo spurði Ófríð hann aftur hvers vegna hann segði ekki neitt, en þegar hann svaraði, að hann vissi ekkert hvað hann ætti að tala um, sagði hún: „Þú getur spurt mig að því hvers vegna ég hafi þessa ljótu sleif í hendinni.“ „Hvers vegna hefirðu þessa ljótu sleif í hendinni?“ spurði konungssonur. „Er ég með ljóta sleif?“ spurði Ófríð, og um leið og hún sleppti orðinu, sá konungssonur að hún var með forkunn- arfagran blævæng úr skýru silfri. „Þetta er fegursti blævængur sem nokkur brúð- ur getur borið,“ sagði Ófríð. Enn riðu þau nokkurn spöl, og enn var konungssonur jafn þögull og áður. En þá spurði Ófríð aftur, hvers vegna hann segði ekkert, og er hann kvaðst ekkert hafa aó segja, sagði hún, að hann gæti þó alltaf spurt að því, hvers vegna hún hefði þessa ljótu gráu hettu á höfðinu. „Af hverju ertu með þessa ljótu gráu hettu á höfðinu?“ spurði hann. vtte MOR0(Jk KAfc/nu Mamma! Eg er farin frá honum Snúlla. — Þessi Björn kann enga mannasiði. 1 hvert skipti, sem ég mæti honum, snýr hann sér við, þegar hann er kominn framhjá og horfir á eftir mér. — Hvernig veiztu það? Nýgift kona: — Elsku Karl minn, vertu ekki svona áhvggjufullur, segðu mér heldur hvað það er. Mundu, að nú herðu áhvggjurnar ekki lengur einn, við gerum það sameiginlega. — Jæja góða mín, við erum nýhúin að fá hréf frá stúlku, sem hótar að stefna okkur fvrir heitrof. X — Ég hafði einu sinni dverg hjá mér f vinnu. Hann var svo Iftill, að þegar hann fékk Ifk- þorn á tærnar hélt hann að hann væri með höfuðverk. Meö kveöju frö hvftum gesti Jóhanna Kristjóns 16 um við Prewettesbæinn. Það er heppilegt fyrir okkur að jarðveg- urinn þar er næstum þvf gegnsósa af húsdýraáburði. — Oj bara, sagði Burden um lcið og hann rétti sig upp. — Þetta er nú millahverfi í lagi, bætti hann við og horfði f kringum sig, þegar þeir höfðu vafið sýni inn f hreinan klút og lokuðu dvrunum á eftir sér. — Já, ekki laust við það, sagði Wexford. — Komdu, ég tek bílinn og við keyrum þangað aftur. Mig langar til að rabba fáein orð við hann Prewett aftur. Sfðan þurf- um við að tala við bfósfjórann. Ef þér viljið skjóta þessum Ivkli inn til Inge, eða hvað það nú var sem hún hét blessuð kindin. Svo getið þér farið heim. Ég æfla sjálfur að segja eitt orð við Inge litlu á morgun. — Hvenær ætlið þér dð tala aft- ur við frú Missal? — Ef mér skjátlast ekki, kem- ur hún til mfn áður en ég kemst til að fara tíl hennar, sagði Wex- ford. 5. KAFLI. Camb lögregluþjónn sat og var að tala í sfmann, þegar Wexford kom á stöðina morguninn eftir. Hann lagði höndina yfir tólið og sagði: Það er kona sem vill íala við vður. Hún heitir frú Missal. Hún er búin að hringja þrisvar sinn- um. — Hvað vill hún? — Hún segist þurfa að fala við vður um eftthvað mjög svo árfðandi má, sagði Camb og bætti vandræðalega við: — Hún sagði að þér ættuð að koma til hennar tafarlaust. — Jæja, sagði hún það. Skilið til hennar næst þegar hún hringir að vilji hún tala við mig geti hún komið hingað. Hann opnaði dyrnar inn á skrif- stofu sfna og bætfi sfðan við. — Þér getið Ifka sagt henni að ég fari aftur klukkan hálftíu. Þegar hann hafði opnað gluggana og lagað til á skrif- hnrðinu sfnu, rak hann höfuðið út um dyrnar og bað um að einhver færði sér tebolla. — Hvar er Martin? — Ilann er enn á The Olive and Dove. — Ja, nú er mér öllum lokið! Ileldur hann að hann eigi að dvelja þar allt sumarlevfið. Hringið til hans og segið honum að hann megi fara heim. Þetta var fagur morgunn, og júní lofaði góðu. Frá skrifborðinu sínu sá Wexford garðana f Burv Street og blómakassana við Mid- land Bank. Vorblómin voru öll að fölna og sumarblómin ekki sprungin út enn. Camb lögreglu- maður kom með teið og með hon- um var einnig frú Helen Missal. — Þökk fvrir. Viljið þér koma með aukabolla. Helen Missal hafði greitt hárið upp og skilið sólgleraugun eftir heima. Hún var klædd f hvfta blússu og pils og virtist virðuleg og settleg f fasi og Wexford velti þvf fvrir sér, hvort hún hefði einnig ákveðið að vera þekkilegri f framkomu en kvöldið áður. — Eg er hrædd um ég hafi hegðað mér afskaplega kjána- lega, sagði hún f trúnaðartón. Wexford tók nýja pappfrsörk upp úr skúffunni og fór að skrifa í óðaönn. Hann gat ekki látið sér detta neitt gáfulegt f hug en vegna þess hann vissi að hún sá ekki hvað hann skrifaði þaðan sem hún var, skrifaði hann hvað eftir annað: — Missal Parsons. Missal Parsons. — Ég skal segja vður að ég sagði vður ekki allan sannleik- ann. — Einmitt? sagði Wexford. — Þar með er ekki sagt ég hafi logið. Ég sleppti bara dálitlu sem engu máli skiptir. — Einmitt það já, sagði Wex- ford. — Sannleikurinn er sá að ég var ekki ein f bíóinu. Ég var með vini mfnum — karlmanni. Hún brosti undirfurðulega til hans. — Það er auðvitað ekkert ósið- legt við það, en þér vitið hvað eiginmenn geta verið tiltektar- samir. — Ég ætti að vita það. Ég er einn f þeirra hópi, sagði Wexford. — Nú, og þegar ég kom heim fann ég sem sagt ekki varalitinn og ég held ég ha.. misst hann f hflnum hans vinar mfns. Ö, er þetta te handa mér. En elskulegt af yður. Það var barið að dyrum og Burden kom inn. — Frú Missal var að segja mér frá ferðinni f kvikmyndahúsið á míðvikudagskvöldíð, sagði Wex- ford og hélt áfram að skrifa f óðaönn. — Góð mynd, ekki satt frú Missal? Þvf miður varð ég að fara í miðjum klfðum. Burden leit f kríngum sig eftir tebolla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.