Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1976 26 Heistararair otí að aka og njlið- arair nnnn þriðia leikinn í röð Að öllum líkindum hafa Víkingar misst af möguleikanum á að verja Islandsmeistara- titilinn í handknattleik er þeir töpuðu með fjórum mörkum fyrir Þrótti í fyrrakvöld. Leiknum lauk með 28:24 sigri Þróttar og stendur liðið eftir þennan sigur mun betur i baráttunni fyrir tilveru sinni í 1. deildinni. Sigur Þróttar var fyllilega verðskuldaður í þessum leik og hefur liðið nú unnið 3 síðustu leiki sína. Að loknum mjög jöfnum fyrri hálfleik tóku nýliðarnir íslands- meistarana í kennslustund á köflum í seinni hálfleiknum og munurinn i lokin hefði getað orðið meiri en raun varð á því Þróttarar leiddu mest með átta mörkum, en Vikingar náðu að minnka þann mun fyrir lokin. Herði Sigmarssyni tekst að stöðva Pálma Pálmason I hraðaupphlaupi I leiknum I fyrrakvöld. Aðeins „tætarinn” sterknr í tætingslegn Hankaliði og Fram vann verðsknldað ÞAÐ LIÐ sem mest kom á óvart i upphafi íslandsmótsins, Haukarnir, og lagði hvern andstæðinginn öðrum sterkari að velli, hefur nú tapað dýrmætum stigum i siðustu leikjum sínum. Það mörgum að liðið verður varla Íslandsmeistari úr þessu, þó svo að öll nótt sé ekki úti enn fyrir Haukana. í fyrrakvöld máttu Haukarnir lúta i lægra haldi fyrir Frömurum og virðist lið Framara koma sterkt til leiks á þessu nýbyrjaða ári. Valur stendur nú mjög vel að vigi í 1. deildinni og töp Víkings og Hauka eru Valsmönnum án efa mjög kærkomnir. Það var greinilegt í þessum leik að Þróttararnir hafa nýtt hið langa hlé frá keppninni í 1 deild mun betur en Víkingarnir. Þeir voru friskari á flestum sviðum og leikmenn liðsins jafnbetri, þó svo að leikmenn eins og Friðrik Friðriksson og Bjarni Jónsson hafi að visu komið sterkastir frá þessari viður- eign Þeir leikmenn Víkings, sem verið hafa sterkastir í vetur — Páll og Viggó t d — voru langt frá sínu bezta og aðrir leikmenn liðsins náðu ekki að bæta getuleysi þeirra upp Þá vantaði Sigurgeir Sigurðsson í mark Víkings í þessum leik og var þar sannarlega skarð fyrir skildi því markverðir Víkings vörðu varla nokkurn skapaðan hlut í leiknum. Þróttarar voru lagnir við að skora mörk úr hornum að þessu sinni og eigi sjaldnar en 9 sinnum flugu leikmenn Þróttar inn úr hornunum og ýmist skoruðu eða fengu vítakast Þennan leka gátu Víkingar ekki komið í veg fyrir og hefði það þó ekki átt að vera svo ýkja erfitt. Auk Bjarna og Friðriks áttu þeir mjög góðan leik í sókninni Björn Vilhjálmsson, Konráð Jónsson og Gunnar Gunnarsson — leikmenn sem ekki oft hafa verið á vörum þeirra, sem fjallað hafa um handknattleik í vetur, en sýndu í þessum leik að Þrótt- ur er að ná upp allsterku liði, sem ekki byggir lengur á einum eða tveimur mönnum. Fyrri hálfleikur þessa leiks var mjög jafn Munurinn aldrei meiri en 2 mörk, fyrst Vikingum í vil, en undir lok hálf- leiksins seig lið Þróttar fram úr og hafði éins marks forystu 1 1 1 0 í hléi. í seinni hálfleik bjuggust margir við því að Víkingarnir myndu reka af sér slyðruorðið og ná öruggri forystu. En margt fer öðru vísi en ætlað er og eftir að leikið hafði verið í 1 5 mínútur í seinni hálfleiknum var Þróttur kominn með 5 marka forystu, 20:1 5, og sigur- inn var tryggður. Hafði það komið Víkingunum að litlu liði að taka Bjarna Jónsson úr umferð, því einmitt meðan Víkingarnir gerðu það náði Þróttur þessari forystu Varnarleikur liðanna var vægast sagt lélegur í þessum síðari hálfleik, eins og sést á því að alls er þá skorað 31 mark, eða meira en eitt mark á mínútu. Friðrik Friðriksson skoraði flest mörk allra í þessum leik eða 10 talsins, mörg þeirra með gullfallegum skotum, önnur eftir hraðaupphlaup, þar sem Friðrik er jafnan fyrstur fram á völlinn. Bjarni Jónsson var drjúgur mjög í leiknum og lét það ekki aftra sér að þessu sinni þó hann gengi ekki heill til skógar, en hann meiddist í fyrri lands- leiknum gegn Rússum á dögunum. Konráðs, Gunnars og Björns er þegar getið, en ekki er hægt að segja að nokkur leikmaður Þróttar hafi leikið þennan leik illa Viggó Sigurðsson og Páll Björgvins- Framhald á bls. 19 Hannes Leifsson og Stefán „tætari” Jónsson voru áberandi beztu menn liða sinna að þessu sinni. Hannes heppnari með skot sin en áður, óragur og stöðugt ógnandi Stefán lék nú sinn annan leik með meistaraflokki Hauka á keppnistimabilinu og stóð sig mjög vel, skoraði falleg mörk og sýndi það einstaklingsframtak sem fær fólk til að hafa gaman að handknattleiknum — auk þess sem það hélt Haukum á floti í lok leiksins. Það hafði mikið að segja fyrir Hauk- ana í þessum leik að einn sterkasti hlekkurinn í keðjunni, markvörðurinn Gunnar Einarsson, gat ekki leikið þennan leik. Ungu mennirnir sem stóðu í markinu í stað hans fylltu engan veginn skarðið Gunnar mun þó væntanlega leika með Haukum í næsta leik. í marki Fram var markvarzlan reyndar ekkert betri. Guðjóni gekk illa í fyrri hálfleiknum og Jóni ekki skár f þeim síðari. Það var svo ekki fyrr en talsvert var liðið á seinni hálfleikinn að Guðjón kom aftur í markið og varði þá mjög vel — reyndar nær allt nema skot Stefáns Jónssonar. Leikurinn var í járnum allan fyrri hálfleikinn og munaði aðeins einu marki í leikhléi, staðan var 10:9 Fram í vil. í seinni hálfleiknum dró ekki sund- ur með liðunum fyrst í stað og breytti það engu þó tveimur Frömurum væri vikið af velli á sömu mínútunni. Hauk- arnir nýttu sér ekki mannamuninn og skoruðu liðin sitt markið hvort á með- an Baráttan var í algleymingi í þessum leik og minnkaði reyndar ekkert þó Fram hefði náð fjögurra marka forystu 19:15, þegar 4 mlnútur voru eftir. Haukarnir börðust áfram, en vonin um stig var úti og Fram vann þennan leik nokkuð verðskuldað 20:1 8 Framararnir hafa greinilega notað hléið frá keppni vel og eru í góðri æfingu. Hannes hefur t.a.m. ekki leikið betur í vetur og heldur ekki Andrés Bridde, sem skoraði dýrmæt mörk í leiknum. Hörður Sigmarsson lék þennan leik með skurð á enni og þorði greinilega ekki að beita sér enda gengu Framar- arnir vel í hann. Þá var Elías langt frá sínu bezta — að undanskildum upp- hafsminútunum —áij Á meðfylgjandi mynd FriBþjófs liggur FriSrik Friðriksson hinn snjalli leik maður Þróttar i gólfinu. en i lokin voru það þó Vikingarnir sem lágu. Minnkandi áhugi — MANNSKAPURINN hefur slakað á, það hefur ekki verið mætt nægilega vel á æfingar að undanförnu og þeir sem hafa mætt hafa ekki tekið nægilega vel á að mínu mati. Þetta sagði Karl Benediktsson þjálfari Vík- inga að loknum leik þeirra við Þrótt í fyrrakvöld. Karl var að því spurður hvort þetta tap gerði möguleika Víkinga á sigri í mótinu að engu. — Að sjálfsögðu er von okkar orðin veik, en það er ekkert útilokað. Möguleikar Vals aukast alltaf, því auk þess að hafa gengið vel í fyrri umferð- inni, þá virðast helztu keppi- nautar þeirra missa stig gegn veikari liðunum. — Annars vil ég að eitt komi fram í sambandi við leik Vík- ings og Þróttar. Það er að lið Þróttar er orðið mjög öflugt og leikmenn þess eru í góðri æfingu. Sóknarleikur okkar gegn þeim var í raun ágætur, vörnin sæmileg, en markvarzl- an léleg, sagði Karl að Iokum, en þess má geta að Sigurgeir Sigurðsson, sem átti góða leiki með Víkingi í lok fyrri umferð- arinnar, hefur ekki æft síðan komið var heim frá Þýzkalandi eftir seinni leikinn við Gumm- ersbaeh. LIÐ ÞRÓTTAR: Marteinn Árnason 2, Konráð Jónsson 2, Trausti Þorgrímsson 3, Gunnar Gunnarsson 2, Halldór Bragason 1, Úlfar Hróarsson 1, Bjarni Jónsson 3, Erling Sigurðsson 2, Jóhann Frfmannsson 1, Friðrik Friðríksson 4, Björn Vilhjálmsson 3, Kristján Sigmundsson 2. LIÐ VlKINGS: Rósmundur Jónsson 1, Þorsteinn Jóhannesson 1, Erlendur Hermannsson 3, Magnús Guðmundsson 1, Páll Björg- vinsson 2, Þorbergur Aðalsteinsson 2, Sigfús Guðmundsson 1, Stefán Halldórsson 2, Jón Sigurðsson 1, Viggó Sigurðsson 2, Skarphéðinn Óskarsson 1, Ólafur Jónsson 1. LIÐ FRAM: Guðjón Erlendsson 3, Andrés Bridde 3, Árni Sverris- son 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Gústaf Björnsson 1, Pétur Jóhannsson 3, Arnar Guðlaugsson 2, Guðmundur Þorbjörnsson 1, Jón Árni Rúnarsson 2, Pálmi Pálmason 2, Hannes Leifsson 4, Jón Sigurðsson 1 LIÐ HAUKA: Ólafur Torfason 1, Svavar Geirsson 2, Þorgeir Haraldsson 2, Arnór Guðmundsson 2, Ingimar Haraldsson 2, Ólafur Ólafsson 2, Stefán Jónsson 3, Guðmundur Haraldsson 1, Sigurgeir Marteinsson 1, Hörður Sigmarsson 2, Elías Jónasson 2, Gunnlaugur Gunnlaugsson 1. I stuttu máli Víkingur Þróttur ÍSLANDSMÓTIÐ 1. deild, Laugardalshöll 7. janúar. Þróttur — Vfkingur 28:24 (11:10) 1 STUTTU MALI: 24. Viggó 8:8 25. 8:9 Fríðrik 26. 8:10 Friðrik 27. Vlggó 9:10 27. 9:11 Bjarni 30. Viggó 10:11 LEIKHLÉ 31. 10:12 Bjarni Framhald á bls. 19 MfN., VfKINCUR STADAN ÞRÓTTUR rium-nuuKUi 3. 0:1 Konráð 5. Sigfús 1:1 fslandsmótið 1. deild, Laugardalshöll 7. 6. 1:2 Trausti janúar. 7. Erlendur 2:2 Fram — Haukar 20:18 (10:9) 11. Stefán 3:2 MfN. FRAM STAÐAN HAUKAR 12. 3:3 Friðrik 2. 0:1 Elías 13. Erlendur 4:3 3. Hannes 1:1 14. 4:4 5. 1:2 Elfas 14. ólafur 5:4 6. 1:3 Sigurgeir 16. Viggó 6:4 7. Amar 2:3 17. 6:5 Trausti 11. Arni 3:3 20. 6:6 Bjarni 13. Sigurbergur 4:3 21. Páll 7:6 14. Pálmi (v) 5:3 22. 7:7 Gunnar 15. Arni 6:3 24. 7:8 Jóhann 16. 6:4 Hörður 17. 19. 20. Hannes 23- 25. Andrés 25. 6:5 Ingimar 6:6 Stefán 7:6 7:7 Hörður 8:7 8:8 Stefán Framhald á bls. 19 STAÐAN STAÐAN í 1. deildar keppni fslandsmótsins i handknattleik var þannig að fyrri umferðinni lokinni: Valur Haukar FH Fram 7 5 11 8 4 13 7 4 0 3 8 3 2 3 Vtkingur 8 4 0 4 Þróttur 8 3 14 Ármann Grótta 7 2 14 7 2 0 4 135:103 11 148:136 9 146:136 126:125 165:166 147:157 111:142 121:134 8 8 8 7 5 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.