Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1976 Húsfriðunarráðstefnan 1975: Þjóðareínkenni að finnast meira til um verk hugans en handanna *. J tt- . ' • - MERKUR AFANGI — sagði dr. Knstjan Kldjarn 1 avarpi smu íhúsafriðun Umhverfismálaráð Reykjavík- urborgar, Arkitektafélag Islands og Samband íslenzkra sveitarfé- laga gengust fyrir ráðstefnu um húsafriðun í Hátíðasal Háskóla ís- lands dagana 22. og 23. nóvember s.l. Ráðstefnan var haldin í sam- vinnu við Sögufélagið. Á ráðstefnunni voru haldin 14 ávörp og framsöguerindi, og á eft- ir hverju þeirra var gefinn kostur á spurningum til framsögumanns, auk þess sem almennar umræður fóru fram í lok ráðstefnunnar. Ráðstefnuna sátu nær hundrað þátttakendur víðs vegar af land- inu. Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri f Reykjavík, setti ráð- stefnuna, en síðan flutti dr. Krist- ján Eldjárn, forseti íslands, ávarp. Meðal framsögumanna voru tveir norrænir sérfræðingar á sviði húsafriðunar, Vibeke Fischer Thomsen, arkitekt frá Kaupmannahöfn og Einar Hedén, mælt, er í hærri metum en það, sem vel er gert. íslendingar dýrka orðsins list um aðra hluti fram, og hefur það ef til vill valdið nokkru sinnuleysi um aðra mikilvæga þætti menningararfsins, svo sem merkilega húsalist og híbýla- menningu þjóðarinnar. Húsa- menningin er þó einn hinn ná- komnasti lífsþáttur hvers einasta manns, svo sem eins og holdgró- inn, hið jarðneska skjól þjóðar- innar frá kyni til kyns og um leið svigrúm og vettvangur fyrir sköp- unarþörf og listgleði.“ Opna þurfi augu landsmanna fyrir því, að gamall húsakostur geti verið dýr- mætur menningararfur, sem skylt sé að hlúa að, eftir því sem efni standa til og föng séu á. Skynsamlegt sé að gera sér það ljóst, að hvorki einstök hús né bæjarhverfi verði nokkurn tíma vernduð án þess að það mæti and- spyrnu úr einhverri átt. Forseti íslands lauk máli sínu með því að I þriðja lagi var rætt um friðun með þeim hætti að flytja hús af fyrri stað í safn eins og gert hefur verið í nokkrum mæli í Reykjavík með flutningi húsa í Arbæjar- safn. Slík húsasöfnun var talin hafa takmarkað gildi og aðeins eiga við i vissum tilvikum, þegar um væri að ræða sérstæð hús, sem ekki hefðu notagildi á uppruna- legum stað eða ættu að geymast sem sýnishorn um gamlan húsbúnað almenningi til upplýs- ingar og fróðleiks. Ennfremur var talið nauðsyn- legt að taka tillit til eldri byggðar, þegar unnið er að skipulagi, þar sem byggð er fyrir. HtJSAFRIÐUN 1 HÖFÐUBORGINNI Á ráðstefnunni var sérstaklega gerð grein fyrir varðveizlugildi gamalla húsa í Reykjavík. Skýrt Stofnun húsafriðunarsjóðs snemma á þessu ári var talin merkur áfangi og verðugt spor f tilefni húsafriðunarársins. Við- gerð og varðveizla gamalla húsa er mjög kostnaðarsöm og lítt viðráðanleg húseigendum og einstökum sveitarfélögum. Stuðningur hins opinbera væri því æskilegur, til dæmis með niðurfellingu fasteignaskatts til sveitarfélags, sé vernduðu húsi vel við haldið. Talið var æskilegt að stofnaður yrði nýr lánaflokkur í húsnæðislánakerfinu til endur- bóta á húsnæði, sem talið er hafa varðveizlugildi. Talið var rétt að auka valdsvið húsafriðunar- nefndar, sem starfar samkvæmt þjóðminjalögunum frá 1969, og að auka starfsfé hennar. Þá kom fram, að friðun verði ekki aðeins bundin við einstök tiltekin hús, heldur geti einnig náð til húsa- raða eða bæjarhverfa, svo varðveita megi andblæ hinnar varðveittu byggðar í heild. Fram kom sú skoðun, að gera þyrfti þjóðminjalögin frá 1969 víð- tækari, láta þau ná til fleiri forn- minja, sem ástæða væri til að frið- lýsa, og að lögbjóða þurfi nákvæma skráningu allra slíkra minja. Lagt var til, að stofnuð yrðu f hverjum landshluta em- bætti byggðaminjavarða, sem önnuðust eftirlit með menningar- minjum, hver í sínum landshluta, en mestu varðaði þó, að hinn almenni borgari í landinu léti mál þetta meira til sín taka heldur en Framhald á bls. 13 28440 140 fm einbýlishús í Mosfellssveit. Verð 11,5 milljónir. Húseign við Þingholtsstræti verð 1 3 millj. 3ja herb. ibúð við Silfurteig verð 8 millj. 3ja herb. 70 fm ibúð við Lindargötu verð 4,3 millj. 5 herb. íbúð við Freyjugötu verð 9,5 millj. FASTEIGNASALAN BANKASTRÆTI 6 Hús og eignir sími 28440, kvöld- og helgarsimi 72525. Opið laugard. 2—5. Frá setningu húsafriðunarráðstefnunnar, sem Umhverfismálaráð Revkjavfkur, Arkitektafélagið og Samband sveitarfélaga efndi til undir kjörorðunum „Að fornu skal hvggja.“ arkitekt og borgarminjavörður í Stavanger. Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri f menntamála- ráðuneytinu, greindi frá aðdrag- anda þess, að Evrópuráðið helgaði árið 1975 húsafriðun. Þór Magn- ússon þjóðminjavörður gerði grein fyrir friðun húsa hér á landi; Björn Þorsteinsson sagn- fræðingur fjallaði um skráningu húsa og minja; Páll Líndal borg- arlögmaður um löggjöf um húsa- friðun og Nanna Hermannsson, forstöðumaður Árhæjarsafns, um stefnur í verndu- gamalla bygg- inga. Þorsteinn Gunnarsson arki- tekt gerði grein fyrir verndun húsa í Reykjavík; Jón Páll Hall- dórsson, formaður stjórnar Byggðasafns Vestfjarða, skýrði frá verndun gamalla húsa á ísa- firði, og Guðrún Jónsdóttir, for- maður Torfusamtakanna, skýrði frá starfi áhugamannasamtaka á þessu sviði. Hjörleifur Stefánsson arkitekt fjallaði um byggingar sem lestrarefni og Baldvin Hall- dórsson leikari sagði frá reynslu sinni af endurnýjun timburhúss. HALLAÐA HÍJSAGERÐARLIST Dr. Kristján Eldjárn, forseti Is- lands, sagði í ávarpi sínu, að við mat manna á menningarverðmæt- um Islendinga hefði til þessa ver- ið hallað á húsagerðarlist. „Það er íslenzkt þjóðareinkenni að láta sér finnast meira til um verk hug- ans en handanna," sagði dr. Krist- ján Eldjárn. „Það, sem vel er segja frá reynslu sinni í þessu efni: „Um öll þau hús, sem ég átti hlut að að taka á fornleifaskrá og gera við, gildir hið sama, að mót- bárur heyrðust, eftirtölur og jafn- vel andúð. En þegar búið var að gera við húsið brást það aldrei að allir urðu ánægðir og stundum mest þeir, sem áður löttu mest. Þessi reynsla sem einnig má kalla lögmál, segir býsna mikið, bæði um mannlegt eðli og um gildi hinna gömlu húsa.“ þrjArleiðir í HtJSAVERND A ráðstefnunni var gerður glöggur greinarmunur á þeim leiðum, sem til greina koma við verndun húsa: I fyrsta lagi friðun, sem staðfest er af ráðherra og þinglýst sem kvöð á hluteigandi húseign, sem þá má ekki breyta og ekki flytja úr stað né rífa nema með leyfi stjórnvalda. I öðru lagi varðveizla eða húsa- vernd, sem byggist á sameiginleg- um vilja yfirvalda og eigenda að halda húsi vel við í upprunalegu horfi samhliða eðlilegri nýtingu. Slík húsavernd ryður sér til rúms erlendis og með nánu samstarfi húsráðenda og yfirvalda mætti glæðra gömul hús lffi og gefa þeim verðugt hlutverk í samtíð og framtíð. Slfk samvinna var talin bezta leiðin til árangurs í þeirri viðleitni að gefa fortíðinni fram- tíð svo vitnað sé til kjörorða hús- friðunarárs Evrópuráðsins. var frá könnun, sem gerð var f höfuðborginni á árunum 1968—1970 og helztu niður- stöðum hennar. Könnun þessi fól í sér rannsókn á aldri húsa og ástandi, ásamt tillögugerð um varðveizlu. Fram kom, að höfund- ar þessarar könnunar töldu sig bundna af þeim ramma, sem aðal- skipulag Reykjavíkur 1962—1983 setti, m.a. að þvf er varðaði sam- göngukerfi við miðbæinn, þar á meðal í og við Grjótaþorpið. I könnun þessari voru sérstök svæði afmörkuðtilfriðunarog að lokum látið í té rökstutt mat á varðveizlugildi einstakra gatna og húsa. AIls var lagt til, að um 150 hús yrðu varðveitt á staðnum, 17 flutt í Arbæ en um 100 hús rannsökuð nánar. I framhaldi þessarar könnunar hefur húsa- friðunarnefnd friðlýst sex hús í Reykjavík: Alþingishúsið, Dómkirkjuna, stjórnarráðshúsið, Menntaskólann, Iþöku og Lands- bókasafnið, en frestað hefur verið að taka ákvörðun um önnur hús og svæði, svo sem norðurenda Tjarnarinnar, hegningarhúsið við Skólavörðustíg og Bernhöftstorf- una. Aðrir þættir könnunarinnar eru til meðferðar hjá skipulags- nefnd og byggingarnefnd til frekari úrvinnslu og ákvörðunar- töku. Samhliða þeirri vinnu, sem nú er hafin við endurskoðun aðal- skipulags Reykjavíkur var á ráð- stefnunni talið eðlilegt, að endur- skoðað verði mat á varðveizlugildi einstakra húsa og bæjarhverfa, og það samhæft almennri endur- skoðun aðalskipulagsins. Iðnaðarhúsnæði Strengjasteypuhús óreist um 1000 fm að stærð til sölu á kostnaðarverði. Góð kjör. Upplýsingar á skrifstofunni. Fasteignasalan Jjaugavegi 18^_ simi 17374 Sandgerði Til sölu glæsilegt íbúðarhús við Suðurgötu. Á efri hæð er 1 60 fm vönduð íbúð og 3ja herb. íbúð á neðri hæð 70 fm innréttaður bílskúr fyigir. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavík, simar 1263 og 2890. SÍMAR 21150 - 21370 Til sölu m.a.: Byggingarlóðir í Kópavogi og í Mosfellssveit. Upplýsingar á skrifstof unni. Á hornlóð í austurborginni Steinhús með 3ja herb. íbúð á 1. hæð og 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Ennfremur rishæð vinnupláss og bílskúr. Húsið er mikið endurbyggt og hentar til ibúðar og/eða atvinnurekstrar. Skammt frá Hótel Holt 4ra herb. íbúð á 2. hæð í steinhúsi um 106 fm. Mikið endurnýjuð. Ný eldhúsinnrétting. Ný teppi. Sérhita- veita. Góð lán. Laus strax. í austurbænum 3ja herb góð íbúð í steinhúsi við Bergþórugötu. Ibúðin er á 1. hæð (yfir kjallara) um 80 fm Ný teppi. Laus fljótlega. Góð kjör. Ennfremur góðar 3ja herb. íbúðir við Grettisgötu og Njálsgötu. Arbæjarhverfi góð 4ra herb. ibúð óskast. Skipti möguleg á 2ja herb. úrvals ibúð i hverfinu. Ennfremur óskast einbýlishús i Árbæjarhverfi. Kópavogur góð 4ra—5 herb. hæð óskast. Ennfremur gott raðhús eða einbýlishús NÝ SÖLUSKRÁ HEIMSEND. ALMENNA FASTEIGWASAIAN LAUGAVEGI 49 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.