Morgunblaðið - 09.01.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1976
13
Jóhann Gunnar Benedikts-
son tannlœknir sextugur
Vinur minn og frændi, Jóhann
Gunnar Benediktsson tannlæknir
á Akureyri er sextugur í dag.
Hann er fæddur á Húsavík,
Norður-Þingeyingur og Þing-
eyingur í ættir fram. Foreldrar
hans voru sæmdarhjónin Margrét
Ásmundsdóttir bónda á
Auðbjargarstöðum í Kelduhverfi
Jónssonar væn kona og atorku-
söm sat m.a. lengi f stjórn Kven-
félags Húsavikur, og Benedikt
Björnsson skólastjóri. Hann var
fæddur á Bangastöðum. Faðir
hans var sonur Magnúsar Gott-
skálkssonar á Fjöllum og í móður-
ætt af Víkingavatnskyni, niðji
Sveins á Hallbjarnarstöðum.
Benedikt var brautryðjandi og
lífið og sálin í skólamálum
Húsvíkinga um langt skeið, skóla-
stjóri Barnaskólans og rak fyrsta
unglingaskólann þar sem einka-
skóla um hríð. Hann skrifaði
ágæta íslenzka málfræði og þótti
frábær kennari, sérstaklega í
íslenzku og sögu ekki sfzt tslands-
sögu. Minnast gamlir nemendur
þeirra stunda með hlýju og var
Fer Katla
Jarðskjálftarnir miklu norður í
Kelduhverfi hafa sett hroll að
mönnum, eigi aðeins þar nyrðra, .
heldur er nú uggur í mönnum um
land allt. Það er að vísu ekki ný
bóla, að jarðskjálftar verði í
Kelduhverfi, en ekki fara sögur
af þvf að þeir hafi nokkru sinni
staðið jafn lengi og nú.
í Kelduhverfi eru engar eld-
stöðvar og aðeins óverulegur jarð-
hiti á stöku stað. En sunnan við
heiðarlöndin eru fornar eldstöðv-
ar, eins ogt.d. Þeistareykjabunga,
sem einhverntíma hefir ausið úr
sér firna miklu hrauni, sem flóð
hefir yfir meginhluta heiðarinn-
ar. En þetta hefir gerzt fyrir
þúsundum ára, því að hraun þetta
er einhver gróðursælasti staður á
öllu landinu, allt vaxið skógi og
þroskamiklum gróðri, og víða er
djúpur jarðvegur.
Þetta land ber önnur merki elds
umbrota, þvf að það er allt
sprungið sundur og hrikalegar
gjár eru þar víða hlið við hlið og
hafa stefnu frá suðvestri til norð-
austurs. Þarna hafa og stórar
spildur lands sigið niður um
marga metra. Gjárnar má rekja
inn á öræfi og enginn veit hve
langt inn f landið sprungurnar
muni ná. Jarðskjálftar þarna
stafa aðallega af missigi, þegar
rimur milli gjánna lyftast eða
lækka. En átökin, sem valda slíku
missigi, geta verið langt f burtu.
Árið 1755 urðu miklir jarð-
skjálftar á Tjörnesi og f Keldu-
hverfi. Þá hrundu 13 bæir til
grunna í grennd við Húsavík. Þar
á meðal var prestsetrið Húsavík
og kirkjan þar hrundi líka. Þetta
skeði 11. september, og sprakk
jörð þá víða, en stórskriður féllu
úr fjöllum og bjarghrun mikið.
Rak svo hver jarðskjálftalcippur-
inn annan fram undir mánaða-
mót. Þeirra varð ekki vart f
Mývatnssveit.
Hinn 17. október tók svo Katla
að gjósa og stóð það gos fram f
ágúst árið eftir. Engin önnur elds-
umbrot urðu nærri jarðskjálfta-
svæðinu um þær mundir. Sumum
kom því til hugar, að umrót í
iðrum jarðar undir Kötlu mundu
hafa valdið jarðskjálftunum.
— Húsfriðun
Framhald af bls. 8
verið hefur svo að viðhalda megi
sem bezt þessum þætti íslenzkrar
menningarsögu.
Þótt friðun mannvirkja eins og
náttúrufriðun eigi sér ekki langa
sögu hér á landi, eru þetta
málefni, sem nú fara sigurför um
allan heim. Verndun umhverfis-
ins er einhver háværasta krafa
okkar tíma. Kjörorð Húsfriðunar-
ráðstefnunnar á Islandi 1975 voru
fólgin í ljóðlínum Einars Bene-
diktssonar.
„Það fagra, sem var, skal ei
lastað og lýtt,
en lyft upp í framför,
hafið og prýtt.
Að fornu skal hyggja, ef
frumlegt skal byggja,
án fræðslu þess liðna sést ei,
hvað er nýtt.“
Benedikt þó ekki samur maður
síðustu árin vegna sjóndepru sem
ágerðist. Hann var vinsæll og
naut trausts; var í hreppsnefnd
um aldarfjórðung og lengst af
oddviti.
Benedikt var ágætur
smásagnahöfundur og skrifaði
undir dulnefninu Björn austræni.
Eftir hann komu út: Milli fjalls og
fjöru 1910 og Andvörp 1922. Auk
þess þýddi hann Eitur eftir
Kielland 1903 og mun vera eini
Islendingurinn sem ráðizt hefur í
það þrekvirki að snúa verkum
þess skáldjöfurs yfir á íslenzka
tungu.
Heimili þeirra Benedikts og
Margrétar var þekkt að rausn og
gestrisni og þótti fjörmikið, enda
barnahópurinn stór: tvær systur,
Ragnheiður Hrefna, nú látin, og
Sólveig Kristbjörg kennari, fv.
skólastj. við Kvennaskólann á
Blönduósi, og bræður fimm: Ás-
björn, nú látinn, Jóhann Gunnar,
Ölafur útsölustjóri ÁTVR á Akur-
eyri, Sigurður nú látinn, síðast
að gjósa?
Sé þessi tilgáta rétt, þá mætti
jafnvel búast við Kötlugosi nú.
Katla gaus seinast 1918, en nú
„hefir hún haft yfir“, að því er
jarðfræðingar segja. Þeir voru
farnir að búast við gosi þar fyrir
8—10 árum. Hefir verið fylgst
með henni allan þennan tíma, í
þeirri von, að hún geri boð á
undan gosinu, svo að unnt reynist
að afstýra stórslysum.
Það er engin fjarstæða að elds-
umbrot í iðrum Kötlu geti valdið
jarðskjálftunum fyrir norðan,
þótt langt sé á milli. Á þetta er
drepið hér — til þess að hvetja
menn til að hafa vakandi auga á
Kötlu nú á næstunni. . A
— Matvælavopn
Framhald af bls. 14
búnaðarmála, ef koma á
aukinni hagkvæmni til leiðar.
En breytingar á samyrkju-
kerfinu, sem er ein af undir-
stöðum sovétkerfisins í heild,
verða að vera liður f víðtækari
áætlun um efnahagslegar og
pólitískar umbætur, sem valda-
mennirnir í Kreml óttast eins
og pestina.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 11
undurtæra málfar höfundar
þessarar bókar næði að spegla
hverja hugarhræringu, allt frá
tignustu hrifni til hinnar kát-
broslegustu kímni. Hrifni
Björns á náttúrunni íýsir sér á
fjölmörgum síðum þessarar
bókar. Ég læt svo þessu
greinarkorni lokið með alvöru-
þrunginni áminningu hans til
landa sinna — og kfmnisögu,
sem ég tel að eigi fáa sína líka.
Björn segir í lok stórbrotinnar
lýsingar á Grábrókarhrauni:
„Undur Grábrókarhrauns
eru ekki eingöngu fólgin í
kynjamyndum. Mjög víða eru
fagrir hraunbollar og smáflatir
alsettar fögrum skrautblómum.
En ferðamaður, gakk þú var-
lega og prúðmannlega um þessa
unaðsreiti. Jarðvegurinn er
þarna eins og víða á íslandi
ákaflega viðkvæmur og þolir
ekki mikla umferð. Og það get-
ur eyðilagzt á einum degi, sem
aldirnar hafa skapað."
Svo er það kímnisagan. Björn
hefur hana eftir Kristófer Jóns-
syni, bónda á Hamri í Borgar-
hreppi. Sagan er svona:
Einu sinni var Kristófer
staddur á bæ í Norðurárdal.
Gerði þá þrumuveður mikið, og
var fólk hálfhrætt og kvíðið. Þá
sagði Kristófer: „Einu sinni var
ég staddur í húsi í Reykjavík.
Þá gerði þrumuveður miklu
meira en þetta. Einhver hafði í
ógáti skilið útidyrahurðina eft-
ir opna, svo að þruman komst
inn og alla leið inn f stofu. Þar
ætlaði hún allt að brjóta og
bramla. Þá opnaði ég glugga og
rak hana út. Hún varð fegin að
sleppa."
Gunnar eru mjög samhent og
samrýnd og eiga óvenju fallegt
heimili, sem ber vitni um lista-
smekk þeirra. Þar er ávallt opið
hús, mjög gestkvæmt og nætur-
gestir stundum margir.
Margrét dóttir þeirra er gift
Arnari Einarssyni kennara og
eiga þau tvö börn, Jóhann Gunnar
og Ernu Margréti. Auk þess hafa
Halldóra og Jóhann Gunnar að
mestu alið upp Ásgeir Sverrisson,
systurson Halldóru, nú í M.A., og
Ingimar Jóhannsson fiskeldis-
fræðingur ólst að einhverju leyti
upp á heimili þeirra.
Ég get ekki slegið svo botninn í
þessa afmæliskveðju til vinar
míns og frænda, að ég láti undir
höfuð leggjast að þakka þeim
hjónum báðum margvíslegan per-
sónulegan stuðning og óskylduga
ræktarsemi á liðnum árum. I
huga mínum verða þau ætið með-
al þeirra, sem bjóða af sér beztan
þokka, þeirra, sem ég hef kynnzt.
Halldór Blöndal.
að þau felldu hugi saman ein
þeirra systra, Halldóra, og hann,
og hélt hún til móts við hann til
Svíþjóðar, eftir að hann hafði far-
ið utan til tannlæknanáms, og
giftust þau þar. Jóhann Gunnar
varð svo kandídat frá Háskóla Is-
lands 1951 og fluttist til Akureyr-
ar. Vann hann fvrst hjá Kurt
Sonnenfeld, rak um hríð tann-
læknastofu með Baldvin Ring-
sted, en hefur lengst af rekið
sjálfstæða tannlæknastofu á
Akureyri.
Jóhann Gunnar er ríkum eðlis-
kostum búinn. Hann er vinmarg-
ur og vinfastur, félagslyndur og
hefur yndi af útiveru, mikill lax-
veiðimaður. I glöðum hóp er hann
hrókur alls fagnaðar, hefur sér-
stakan og hárfínan húmor og get-
ur brugðið fyrir sig eftirhermu.
Hann er alvörumaður og má ekkl
vamm sitt vita. Hann er vinsæll
og góður tannlæknir og þykir
sanngjarn í verðlagningu.
Þau hjón Halldóra og Jóhann
forstjóri Osta- og smjörsölunnar í
Reykjavfk, og Guðmundur ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneyt-
inu. Einkum þótti þess mega
vænta af þeim bræðrum f
uppvextinum að þeir kysu frekar
að vera þar nærri sem við tíðind-
um mátti búast eða saklaust spé
var haft í frammi.
Jóhann Gunnar var stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1938 Hann var óráðinn í, hvert
framhaldið skyldi verða; lagði
fyrst stund á læknisfræði en síðar
viðskiptafræði i Háskóla Islands
um skeið, en sú fræðigrein átti
ekki við hans lunderni. Þá brá
hann sér norður á Iand til Þórs-
hafnar og réðst til Karls Hjálm-
arssonar og kaupfélagsins þar.
Um þær mundir var hús þeirra
hjóna Oddnýjar Árnadóttur og
Ingimars Baldvinssonar eitt
mesta rausnarheimili þar um
slóðir og vfðfrægt fyrir margar og
glæsilegar heimasætur. Það átti
fyrir Jóhanni Gunnari að liggja,