Morgunblaðið - 09.01.1976, Page 15

Morgunblaðið - 09.01.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1976 15 sem nú er, en gerf ráð fyrir bvggingu á flugstöð (neðarlega til hægri) vestan öskjuhlíðar, aðstöðu fyrir Landhelgisgæslu milli brautanna (neðarlega á miðri mvnd) og aðstöðu fvrir einkaflugvólar (ofar og norðan austur-vesturbrautar), þar sem Flugfélag Islands hefur nú afgreiðslu. Sýnd er möguleg lenging á tveimur brautum, en stutta brautin mundi þá stvttast í hinn endann. A kortinu sést Hlfðarfótarvegur vestan öskjuhlfðar og breytt lega Hringbrautar, sem ekki hefur enn verið endanlega ákveðin. Staða Reykjavíkurfliig- vallar óbreytt til ársins 1995 ALYKTUN skipulagsnefndar Reykjavfkurborgar, þar sem lagt er til að staða Revkjavfkur- flugvallar í skipulagi borgar- innar verði f meginatriðum óbreytt út næsta aðalskipulags- tfmabil, sem lýkur 1995, verður væntanlega afgreidd f borgar- ráði f dag og sfðan á borgar- stjórnarfundi 15. janúar. 1 ályktuninni telur skipulags- nefnd ekki raunhæft að ákvarða legu nýrrar flugbraut- ar I stað núverandi austur- vestur-brautar, en flugmála- stjórn hafði faríð fram á að gerð yrði ný austur- vestur-braut, sem yrði skekkt frá þvf sem nú er. Þróunar- stofnun og skipulagsnefnd hafa lengi unnið að athugun á fram- tfð flugvallarins f borginni og er þetta niðurstaðan. Er reiknað með að innanlands- flugið haldi áfram að vera rek- ið frá Reykjavíkurflugvelli á skipulagstfmabilinu fram til 1995 og leyft að bvggja nauð- synlega flugstöð á svæðinu vestan Öskjuhlfðar, norðan Nauthólsvfkur og sunnan Flug- turnsins. Alyktun skipulagsnefndar var lögð fram í borgarráði 30. des, en hún hafði verið sam- þykkt á fundi skipulagsnefndar 22. desember, þegar fjallað var um skipulag Reykjavíkurflug- vallar vegna endurskoðunar aðalskipulags borgarinnar. 1 greinargerð og ályktun frá Ólafi B. Thors, Garðari Halldórssyni og Magnúsi Jens- syni, sem samþykkt var, segir: „Eitt megin verkefni Reykja- víkur, svo sem vikið verður að í texta með aðalskipulagi, er að vera miðstöð samgangna lands- ins. Að því er flug varðar er Reykjavíkurflugvöllur miðstöð innanlandsflugs. A það ber að leggja áherzlu, að millilanda- flug verði hér eftir sem hingað til rekið frá Keflavíkurflug- velli, enda hefur sú ráðstöfun dregið verulega úr ónæði því, sem flugvöllurinn veldur í borginni. Skipulagsnefnd telur, að það séu hagsmunir Reykja- víkur að halda flugvelli innan borgarlandsins og þeir hags- munir vegi meir en ókostir, sem fylgja daglegri flugvallarstarf- semi. Jafnframt vekur skipu- Iagsnefnd athygli á, að ekki virðist unnt að álíta, að önnur staðsetning flugvallar i eða við borgarlandið sé raunhæf að svo stöddu. Kannanir á stöðum fyrir nýjan flugvöll í stað Reykjavíkurflugvallar hafa aðallega beinst að Álftanesi og Kapelluhrauni. Flugvöllur á Álftanesi var með ráðherraúr- skurði dæmdur úr leik á sínum tíma, og rannsókn Leifs Magnússonar á flugvallarmögu- leikum í Kapelluhrauni frá 1970, sýnir 4—11% Iélegri nýtingu miðað við veðurfar þar en á Réykjavíkurflugvelli. Ekki hafa verið gerðar nákvæmar rannsóknir á öðrum tillögum að flugvallarstæðum. Umræður í skipulagsnefnd hafa því einskorðast við skipu- lag Reykjavikurflugvallar við Skerjafjörð, sem innanlands- flugvöll fyrir höfuðborgarsvæð- ið, út næsta aðalskipulagstima- bil eða næstu 20 ár. Knýjandi þörf er fyrir nánari skipulagsákvörðun varðandi Reykjavikurflugvöll og afstöðu. hans til nærliggjandi svæða en tekin var við samþykkt og stað- festingu gildandi aðalskipu- lags. Fyrir því eru þessar ástæður helztar: 1. Hætta á auknu misræmi milli flugvallarins og byggðar í næsta nágrenni hans. 1 þvi sam- bandi er hér endurritaður b- kafli á síðu 6 i greinargerð Flugmálastjórnar frá 9. des. s.l.: „Flugmálastjórn ítrekar þá skoðun, að frá öryggissjónar- miði er ávallt æskilegt að byggð verði sem fjærst flugbrautar- endum, enda hafa tillögur um framtíðarskipulag Reykja- víkurflugvallar að verulegu leyti tekið mið af þessu sjónar- miði. I reglugerð, er heil- brigðisráðherra gaf út 8. febr. 1972, segir I gr. 204,3: „Bannað er að byggja íbúðarhús í nágrenni flugvalla í aðflugs- stefnu flugbrauta." Við fram- kvæmd þessa ákvæðis þarf að sjálfsögðu að meta aðstæður og þörf hverju sinni, svo og að skilgreina nánar orðin „nágrenni" og „aðflugsstefnu". Hins vegar telur flugmála- stjórn ekki æskilega þá ætlun heilbrigðisyfirvalda að byggja hluta stærsta sjúkrahúss lands- ins undir aðflugs og brottflugs- fleti flugbrautar 07/25 aðeins 440 m frá fyrirhuguðum lendingarþröskuldi.“ Sýnt er, að auk þeirrar aðalskipulags- ákvæða, sem nú er stefnt að, er brýn þörf á ítarlegu og vel sam- ræmdu deiliskipulagi og skil- málum, þar sem kveðið er á um uppbygginguna. 2. Aðkallandi uppbygging á flugvellinum, svo að hann geti gegnt hlutverki sinu, sem aðal- flugvöllur i innanlandsflug- vallakerfi landsins. Vandi skipulagsnefndar er ekki hvað sist í því fólgin að taka afstöðu til hinna ýmsu til- lagna að nýrri flugbraut í stað núverandi austur-vestur flug- brautar 14/32 og vega og meta kosti þeirra og galla frá öryggissjónarmiði og skipulags- legu, bæði að þvi er varðar hagsmuni flugsins og hagsmuni borgarinnar. Við úrlausn þessa vandamáls er jafnframt tekið tillit til framkvæmdaáætlunar Flugmálastjórnar um úrbætur á vellinum, svo og líklegs fjár- magns á skipulagstímanum. Ennfremur er haft í huga, að hugsanlegt er að forsendur geti á þessu tímabili breyst, jafnvel að því er varðar staðsetningu vallarins. Markmið skipulagsnefndar er að Reykjavíkurflugvöllur verði þannig úr garði gerður, að hann, á hverjum tíma, uppfylli sem bezt öryggissjónarmið og hlutverk sitt sem innanlands- flugvöllur höfuðborgarsvæðis- ins. A. Alvktun skipulags- nefndar. 1.0 Með vísan í 4.0 lið með- fylgjandi greinargerðar, telur skipulagsnefnd ekki raunhæft að ákvarða legu nýrrar flug- brautar í stað núverandi austur-vestur-flugbrautar 14/32, en mun á aðalskipulags- tímabilinu taka afstöðu til erinda Flugmálastjórnar um endurbætur á flugbrautum Reykjavíkurflugvallar og hugsanlega lengingu þeirra, ef slík berst, enda telur nefndin æskilegt að létta á umferð um braut 02/20. Jafnframt vill nefndin halda opnum mögu- leikum á nýrri austur- vestur-braut (fjörubraut) ef slík braut yrði síðar talin nauð- synleg. Því ályktar skipulagsnefnd að staða Reykjavikurflugvallar i skipulagi borgarinnar verði i megin atriðum óbreytt út aðal- skipulagstímabilið, sem lýkur 1995. 1.01 Gætt verði þess, að mannvirkjagerð utan flugvalla- svæðisins, skerði ekki frekar en komið er nýtingarhæfni flug- brautar 07/25 og alls ekki öryggissvæði flugbrautar 02/20. 1.02 Staðsetning flugskýla og flugstöðvabyggingar, er miðuð við ákvæði 1. og 2. gr. þessarar ályktunar og sýnd á uppdrætti þróunarstofnunar, merktum nr. 2. desember 1975. 2.0 Skipulagsnefnd felur embætti borgarverkfræðings að gera tillögu að deiliskipulagi og skilmálum fyrir flugvallar- svæðið samkvæmt framan- sögðu. I sliku skipulagi komi skýrt fram hæð mannvirkja utan sem innan flugvallar- svæðisins með tiliiti til hindrunarflata flugbrauta og flugstefnu. Alyktun þessarar bókunar samþykkt með þrem ákvæðum gegn engu.“ Helgi Hjálmarsson sendi bréflega inn sérbókun, þar sem hann kvaðst greiða atkvæði með skekktri flugbraut og borgarverkfræðingur lét bóka að hann teldi þessa tillögu um flugbrautir siðri en tillöguna sem flugráð hefur mælt með. Aiþýðubandalagsmennirnir Sigurður Harðarson og Þor- björn Broddason lýstu yfir I sinni bókun að þeir teldu að engar breytingar beri að heimila á legu núverandi flug- brauta, né byggingu nýrra, enda verði stefnt að því að skipulagstimabilinu að flug- völlurinn verði lagður niður á núverandi stað undir lok skipu- lagstímabilsins. Og Guðmundur G. Þórarinssyni sýndist i sinni bókun að nauðsynlegt mundi reynast á skipulagstimabilinu að breyta flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli til að auka öryggi og kvaðst þá telja skekkta braut æskilegri en svo- nefnda fjörubraut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.