Morgunblaðið - 09.01.1976, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1976
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Fulltrúastarf
Útflutningsstofnun í miðborginni óskar
eftir að ráða fulltrúa til starfa nú þegar.
Umsækjandi þarf að hafa góða menntun,
rita og tala vel ensku og a.m.k. eitt
Norðurlandamál auk íslenzku. Starfs-
reynsla æskileg. Góð launakjör. Hand-
skrifaðar umsóknir merktar „Fulltrúastarf
3697" þurfa að berast Morgunblaðinu
sem fyrst.
Ritari
Útflutningsstofnun í miðborginni, óskar
að ráða ritara sem fyrst. Góð mála- og
vélritunarkunnátta nauðsynleg. Góð
launakjör. Handskrifaðar umsóknir,
ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf og meðmæli ef til eru,
sendist Mbl. sem fyrst. merktar: „Ritari"
2230
Málmsteypimaður
Landssmiðjan óskar eftir að ráða málm-
steypimann.
Upplýsingar á skrifstofunni, sími 20680.
Lagerstörf —
Afgreiðslustörf
Stórt iðnfyrirtæki í fataframreiðslu hér í
borg óskar að ráða duglegan og lagtækan
mann til lager- og afgreiðslustarfa. Þarf
að vera reglusamur og geta unnið sjálf-
stætt Framtíðarstarf með góðum launum
fyrir réttan mann. Tilboð sendist Mbl.
fyrir fimmtudaginn 15. þ.m. merkt:
Lagerstörf 2539.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Staða t||
bókasafnsfræðings
við Borgarbókasafn Reykjavíkur er laus til
umsóknar. Gert er ráð fyrir, að aðalverk-
efnið verði að sjá um talbókasafnið og
heimsendingaþjónustu Borgarbókasafns
við fatlaða, „Bókin heim". Launakjör fara
eftir samningum við starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar. Skriflegar umsóknir
ásamt uppl. um aldur, menntun og fyrri
störf sendist borgarbókaverði fyrir 30.
janúar n.k.
Atvinna óskast
Stúlka á 19. ári óskar eftir góðri atvinnu,
sem fyrst. Margt kemur til greina. Vin-
samlega hringið í síma 53205.
Gjaldkerastarf
við heildverslun, við miðbæinn, er laust
til umsóknar. Lysthafendur sendi blaðinu
umsóknir, með upplýsingum um aldur,
fyrri störf og fleira, merkt „ábyggileg".
3689.
Minna en fullur starfstími kemur til
greina.
Ráðningartími strax eða í síðasta lagi 1.
marz 1976.
Starfstúlkur
vantar strax. Uppl. milli kl. 5 — 6 e.h.
Skrínan h.f., Skólavördustíg 12.
Skrifstofustarf
Starfsmaður óskast hálfan daginn til al-
mennra skrifstofustarfa. Þar á meðal við
afgreiðslu tollskjala. Starfsreynsla nauð-
synleg.
Umsóknir sendist Mbl. merkt: „SVDK-
3698"
Röskur maður
Viljum ráða nú þegar röskan mann til
aðstoðar á vörubíl.
/. Brynjólfsson og Kvaran,
Hafnarstræti 9.
Bankastörf
Banki óskar að ráða starfsfólk til af-
greiðslu- og gjaldkerastarfa. Umsóknir,
sem greina aldur, menntun og fyrri störf
sendist Morgunblaðinu fyrir 15. þessa
mánaðar merkt „Banki—2233."
Járniðnaðarmenn
óskast
Viljum ráða nú þegar nokkra vélvirkja
rennismið, og menn vana járniðnaðar-
störfum.
Vélsmiðja Ú/. O/sen,
' Ytri-Njarðvík,
símar 1222 og 1 722.
VANTAR ÞIG VINNU (nj
VANTAR ÞIG FÓLK í
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Heildsöluverð á
kjúklingum
er 61 0 kr per kg.
Fé/ag kjúklingaframleiðenda.
Esra S. Pétursson, læknir
hefur flutt stofu sína á milli hæða í Domus
Medica.
Nýi síminn þar er: 26290.
Sérgreinar: Sálgreining; sál- og geðlækn-
ingar.
Að gefnu tilefni
tilkynnist hér með að endurskoðunarskrif-
stofa mín er að
Grettisgötu 16, Reykja-
vík. sími 27811.
Þórarinn Þ. Jónsson,
löggiltur endurskoðandi.
bátar — skip
Fiskiskip til sölu
1 60 lesta byggt 1 964 með nýjum vélum
1 50 lesta byggt 1 967
1 90 lesta byggt i Noregi mjög gott togskip
29 lesta eikarbátur byggður á Akureyri 1973 með öllum
nýjustu siglingar- og fiskileitartækjum útbúinn á linu, tog og
netaveiðar
Höfum kaupanda að góðum 1 0—20 lesta báti.
F/SKISKIP
Austurstræti 14, 3 hæð,
sími22475 heimasími 13742.
til sölu
Skúr til sölu og niðurrifs
Til sölu og niðurrifs er um 100 fm.
bárujárns skúr. Skúrinn er staðsettur við
suðurhlið Hótel Esju. Tilboð sendist til
innkaupadeildar Flugleiða, Bændahöll,
sem gefur nánari uppl.
Flugleiðir
kennsla
Innritun í námsfl. Reykja-
víkur
fer fram sem hér segir:
í Laugalækjarskóla, fimmtudaginn 8. og
föstudaginn 9. jan. kl. 20—22.
í Fellahelli, mánudaginn 12. jan. kl.
13.30 til 15.
í Breiðholtsskóla, mánudaginn 12. jan.
kl. 20 til 21.
í Árbæjarskóla, þriðjudaginn 13. jan. kl.
1 9.30 til 21.
Stundaskrá liggur frammi á Fræðsluskrif-
stofunni og við innritun.
Kennslugjald greiðist við innritun.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl AICLYSIR IM ALLT LAM) ÞF.GAR
ÞL' ALGLYSIR I MORGLNBLAÐINL