Morgunblaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 1
28 SÍÐUR
7. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Breska freigátan Leander F-109 siglir á fullri ferð með stjðrnborðshlið að bakborðsskut Þórs fyrir austan land í gær, en örskoti síðar skali
freigátan á skut Þðrs eins og sjá má á baksíðumynd. Ganghraði Leander er liðlega 30 mílur en Þórs liðlega 15.
Vil koma sem fyrst
— sagði Josef Luns framkvaemdastjóri Atlantshafebanda-
lagsins í símtali við Morgunblaðið í gærkvöldi —
Kvaðst ræða við NATO-ráðið á mánudag um mábð
— ÉG ER vitanlega fús að koma til íslands sem fyrst,
sagði Joseph Luns, framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins í gærkvöldi, þegar Morgunblaðið náði sam-
bandi við hann, þar sem hann var staddur f París.
— En ég verð að ráðfæra mig
við Atlantshafsráðið og því næst
er að athuga hvort og hvenær af
ferðinni gæti orðið. Við munum
ræða þetta á mánudaginn, svo að
það ætti að vera ljóst á þriðju-
dag, hver niðurstaðan verður.
‘ — Viljið þér tjá yður um núver-
andi ástand og getið þér sagt um
hvort þér eruð bjartsýnn á að
lausn náist?
— A þessari stundu er mjög
erfitt að vera bjartsýnn, sagði
Luns, en ég mun að sjálfsögðu
gera allt sem í mínu valdi stend-
ur. Allir eru sammála um að
ástandið nú sé ákaflega alvarlegt.
Luns kvaðst aðspurður ekki
hafa heyrt um síðustu atburðina á
Islandsmiðum og er honum var
frá sagt, kvaðst hann harma þenn-
an atburð meira en orð fengju
lýst.
— Teljið þér að Atlantshafs-
bandalagið muni reyna að beita
áhrifum sinum til lausnar mál-
inu?
— Eins og kunnugt er hefur
Atlantshafsbandalagið ekki vald
til að neyða tvær sjálfstæðar þjóð-
ir — þótt aðildarríki séu að Atl-
antshafsbandalaginu — til eins
eða neins. En við getum vissulega
gefið holl ráð. Ég hef ekkert vald
til að grípa í taumana, en ég get
reynt að miðla málum eftir beztu
getu eins og ég gerði síðast.
Aðspurður um hvort hann væri
hlynntur málstað íslendinga
sagði Luns:
Framhald á bls. 13
Engir erlendir
gestir við út-
för Chou En-lai
Peking 9. jan. Reuter.
KÍNVERJAR tilkynntu í kvöld
að þeir myndu ekki bjóða nein-
um erlendum þjóðarleiðtogum
að koma og vera við útför Chou
En-lais forsætisráðherra. Sagði
i fréttatilkynningu um málið
að hinztu virðingu myndu
Framhald á bls. 13
Talsmaður utanríkisráðuneytisins í Washington:
Bandaríkin fús til að veita
aðstoð í fiskveiðideilunni
Bandarfska stjórnin hefur áhyggjur af deilu Islend-
inga og Breta og vonar því að hún verði skjótt til lykta
leidd, sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins f viðtali við Mbl. í gær. Hann sagði að þar sem þessi
deila varðaði tslendinga og Breta teldi bandarfska
stjórnin að þeir ættu að geta leyst hana sín í milli en
væri fús að veita þá aðstoð sem hún gæti.
Josef Luns
Talsmaðurinn sagði að hann
hefði verið spurður á blaða-
mannafundi um deilu íslendinga
og Breta, hvort Bandaríkin
mundu dragast inn i deiluna eða
bjóðast til að miðla málum, og
svarað því til, að eins og áður
hefði verið lýst yfir af banda-
riskri hálfu ættu Bandaríkin vin-
samleg samskipti bæði við Island
og Bretland, að löndin væru
bandamenn Bandaríkjanna og
það væri von bandarísku stjórnar-
innar að þau gætu leyst deiluna
skjótt og friðsamlega.
Hann var einnig að því spurður
hvort Bandarikjamenn hefðu lagt
fram eitthvert ákveðið tilboð til
að stuðla að lausn deilunnar og
sagði að hann gæti ekki gengið
lengra en í fyrra svari sinu. Hins
vegar væri augljóst að Banda-
ríkjamenn væru reiðubúnir og
mundu fúslega leggja fram þá að-
stoð, sem þeir gætu veitt, en hann
Framhald á bls. 13