Morgunblaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1976 7 Frumatvinnu- vegir okkar f Staksteinum blaðsins ! gær er m.a. fjallað um hlut iðnaðarins ! atvinnu- sköpun okkar og þá stað- reynd að á komandi árum og áratugum verður hann að taka við lang stærstum hluta þess vinnuafls, sem til fellur I stækkandi þjóð- félagi. Aukin framleiðni og verðmætasköpun ! sjávarútvegi og land- búnaði hefur að vtsu verið — og verður áfram, ef rétt er á málum haldið — mjög mikil, en tæknifram- farir valda þv! að sam- hliða framleiðniaukningu þurfa þessar atvinnu- greinar slminnkandi vinnuafl. Árleg fjölgun vinnandi manna ! þjóð- félaginu fer þvl ekki nema að smáum hluta til þessara frumatvinnuvega. Árið 1769 voru íslend- ingar taldir 46.200 manns, 21.129 karlar og 25.072 konur. Þá var skipastóll landsmanna talinn þessi: 2 tólf- æringar, 20 teinæringar, 386 áttæringar, 310 sexæringar, 223 fimm- manna-för, 278 fjögurra- manna-för, 41 þriggja- manna-för, 604 tveggja- manna-för og 5 eins- manns-för. Á þessa báta þurfti þá 9.652 menn. Ekki fer mikið fyrir þess- um skipastól I samanburði við fiskveiðiflota okkar ! dag. Hann þarfnast þó nær helmingi færri sjómanna en þá var. vegna tækniþróunar síðustu áratuga. Innan við 6% þjóðarinnar eða um 5.000 manns stunda fisk- veiðar ! dag sem aðalat- vinnu. Þessi hópur skilar hins vegar þv! sjávarfangi á landi. sem er meginund- irstaðan I verðmætasköp- un þjóðarbúsins. Fram undir siðustu aldamót var landbúnaður höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar, sem hún sótti atvinnu stna og framfæri nær ein- vörðungu til. Nú stundar aðeins um 10% hennar landbúnaðarstörf. Verð- mætasköpun í landbúnaði er hins vegar meiri nú en hún hefur nokkru sinni verið I þjóðarsögunni. Landbúnaður og sjávar- útvegur leggja iðnaðinum til verðmæt hráefni og kalla á umfangsmikinn þjónustuiðnað. Hins vegar er fyrirsjáanlegt að iðnaður og þjónustustörf ýmiss konar þurfa að mæta mestum hluta þeirrar vinnuafls- aukningar sem verður með þjóðinni á næstu ár- um og áratugum. Þess vegna þarf að leggja miklu meiri áherzlu á at- vinnuuppbyggingu I iðnaði en verið hefur um nokkurt árabil. Auðlindir vatnsfalla og jarðvarma færa okkur I hendur þá orku sem gerir enn frekari iðnvæðingu þjóðarinnar vel mögulega. Orkunýting — vatnsafl og jarðvarmi Frá þvi núverandi rtkis- stjórn tók við völdum hefur verið lögð megin- áherzla á nýtingu innlendra orkugjafa ! opinberum framkvæmd- um. Hitaveita Reykjavikur hefur um áratuga skeið haft forystu um jarð- varmanýtingu. Það er þvi I beinu framhaldi af fyrra frumkvæði að hún leiðir hitaveituframkvæmdir ! nágrannabyggðum sinum: Mosfellssveit, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Hitaveita er og langt komin i Siglufirði og hita- veita Suðurnesja ! sjón- máli. Ekki skiptir minna máli að vlðtækari hita- veiturannsóknir hafa farið fram. víðs vegar um land, á sl. ári en nokkru sinni fyrr, sem kunna að færa fjölda byggðarlaga jarð- varmahitun á næstu ár- um. Þessar hitaveitufram- kvæmdir spara ekki aðeins þjóðinni dýrmætan gjaldeyri frá olluinn- flutningi, heldur lækka framfærslukostnað heim- ilanna mjög verulega. Svipaða sögu er að segja ! raforkumálum. i framhaldi af Búrfells- virkjun (sem álverið gerði mögulega) var ráðist ! Sigölduvirkjun (m.a. vegna járnblendiverk- smiðju) og undirbúningur virkjunar við Hrauneyja- foss er á lokastigi. Laxár- virkjun hefur hafið raf- orkuframleiðslu eystra, heimildarlög hafa verið samþykkt um Bessastaða- árvirkjun og vfðtækar undirbúningsrannsóknir standa yfir þar. Viðbótar- virkjun Mjólkár á Vest- fjörðum hefur margfaldað raforkuframleiðslu þar. Á Norðurlandi er unnið að jarðguf uvirkjun I Kröflu og stefnt að stórvirkjun I Blöndu, samhliða þvi sem tenging raforkusvæða á suður- og norðurlandi er vel á veg komin. Stefnt er og að þv! að samtenging verði við Vestfirði og Austfirði. sem eykur mjög á raforkuöryggi. Slik tenging landshluta með dreifðum raforkuverum sem vlðast á landinu er og ein meginundirstaða framtiðariðnvæðingar þjóðarinnar, ekki einungis hér á suðvesturkjálk- anum, heldur ! öllum landshlutum. iilcðöur á morgun DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11 árd. Séra Óskar J. Þorláksson dómprófastur. Messa kl. 2 síðd. Séra Þórir Stephensen. Barna- samkoma kl. 10.30 árd. í Vestur- bæjarskólanum við Öldugötu. Séra Þórir Stephensen. NESKIRKJA. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 siðd. Séra Guðmundur Óskar Ólafs- son. LAUGARNESKIRKJA. Messa kl. 2 síðd. Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Séra Garðar Svavars- son. FRlKIRKJAN 1 REYKJAVÍK. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. SELTJARNARNESSÓKN. Guðþjónusta kl. 11 árd. f félags- heimilinu. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. HJALPRÆÐISHERINN. Helg- unarsamkoma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2 siðd. Hjálpræðissamkoma kl. 8.30 siðd. Kapt. Daniel Óskarsson. Brig. Óskar Jónsson stjórnar og heldur ræðu. BREIÐHOLTSPRESTAKALL. Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd. í Breiðholtsskóla. Messa kl. 2 síðd. I Breiðholtsskóla. Séra Lárus Halldórsson. Arbæjarprestakall. Barnasamkoma i Arbæjarskóla kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Guðmundur Þor- steinsson. DÓMKIRKJA KRIST KON- UNGS. Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 siðd. HATEIGSKIRKJA. Messa kl 11 árd. Athugið breyttan tíma. Séra Jón Þorvarðsson. Síðdegis- messa kh 5 síðd. Séra Arn- grímur Jónsson. HALLGRtMSKIRKJA. Messa kl. 11 árd. Séra Karl Sigur- björnsson. Fjölskyldumessa kl. 2 siðd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Guðþjónusta kl. 3.30 síðd. Séra Jón Dalbú Hróbjarts- son skólaprestur. Kirkjukaffi eftir messu á vegum Kristilegra skólasamtaka og Kristilegs stúdentafélags. LANGHOLTSPRESTAKALL. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Séra Árelíus Níelsson. Guðþjónusta kl. 2 sfðd. Ræðu- efni: Er Kristur aðeins barna- snuð? Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Óskastundin kl. 4 síðd. Sig. Haukur. Sóknar- nefndin. KIRKJA ÓHAÐA safnaðarins. Messa kl. 2 siðd. Séra Emil Björnsson. BUSTAÐAKIRKJA. Barnasam- koma kl. 11 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Ólafur Skúla- son. GRENSASKIRKJA. Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Guð- þjónusta kl. 2 síðd. Altaris- ganga. Séra Halldór S. Gröndal. ASPRESTAKALL. Barnasam- koma kl. 11 árd. í Laugarásbíói. Skátamessa að Norðurbrún 1 klukkan 2 síðd. Séra Grímur Grímsson. FELLA- OG HOLASOKN. Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjartarson. KARSNESPRESTAKALL. Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Messa í Kópavogs- kirkju kl. 11 árd. Séra Árni Pálsson. DIGRANESPRESTAKALL. Barnasamkoma i Vighólaskóla kl. 11 árd. Guðþjónusta i Kópa- vogskirkju kl. 2 siðd. Foreldrar fermingarbarna eru beðnir að koma. Séra Þorbergur Kristjánsson. GARÐASÓKN. Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson. HAFNARFJARÐARKIRKJA. Barnasamkoma kl. 11 árd. Séra Bragi Benediktsson. Messa kl. 2 síðd. SéraGarðar Þorsteinsson. FRlKIRKJAN 1 HAFNAR- FIRÐI. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Safnaðarprestur. KEFLAVlKURKIRKJA. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA. Barna- samkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 siðd. Séra Björn Jónsson. Dansskóli Hermanns Ragnars 'O hO C rö Q Dansskóli Hermanns Ragnars o o ho Kennsla hefst í Tónabæ í dag Ósótt skírteini afhent í Tónabæ í dag frá kl. 2-5. Nemendur sem voru fyrir áramðt mæta á sama tfma og var: o aj o o c 70 öj Crq O Oj Nánari upplýsingar í síma 36141 ^ Dansskóli Hermanns Ragnars *SS Crow — Anaglypta f 9 ©Ð'i’m mwgr&w® i Veggfóður, sem þér málið eftir eigin smekk, eða látið standa ómálað Mörg stórfalleg mynstur, sem geta gefið herberginu yðar gjörbreyttan svip. Með þessu veggfóðri má klæða jafnt loft og veggi og þér ráðið algerlega í hvaða litum. Og stærsti kosturinn við CROWN — ANAGLYPTA er auðvitað verðið. FERMETERINN KOSTAR AÐEINS 200 KR. Vorum að taka fram fyrstu sendingu af CROWN — ANAGLYPTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.