Morgunblaðið - 10.01.1976, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.01.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1976 19 Minning: Heimir Sigurðsson frá Tjörn, í Aðaldal maður frá Sjólyst í Eyjum og fyrri kona hans Hjörtrós Hannes- dóttir Jónssonar lóðs á Miðhús- um, sem var frægasti formaður í Vestmannaeyjum á tímum ára- skipanna; formaður með áttæringinn Gideon í 37 vertíðir og hafnsögumaður Eyjannna í yf- ir 40 ár. Martin var því Vest- mannaeyingur í ættir fram og að honum stóðu styrkir stofnar. Móður sína missti Martin ungur, en siðari kona Tómasar föður hans var Sigríður Magnús- dóttir, formaður Slysavarna- deildarinnar Eykyndils um árabil og landskunn fyrir ötula baráttu sina fyrir slysavörnum. Með þeim Martini var gagnkvæm virðing og mat hann Sigríði mikils. Tómas í Höfn var alla tíð um svifamikill útvegs- og fram kvæmdamaður í Vestmanna eyjum og frá 1930 umboðsmaðui erlendra og innlendra skipafélagt og skipaafgreiðslumaður. Störf um Tómasar fylgdu miklar annir Heimilið i Höfn var mannmargt og yfir því var reisn og líf eins og venjan var á heimilum útvegs- manna í Vestmannaeyjum fyrr á tíð. Martin átti tvo albræður: Hannes fyrrverandi skipstjóra búsettan i Reykjavík og Jóhannes bankafulltrúa í Vestmannaeyjum, hálfsystkini hans voru: Rósa lyfjafræðingur, Gerður húsfreyja og Guðjón deildarstjóri, öll búsett í Reykjavík og Bragi í Vest- mannaeyjum. Martin Tómasson varð fljótlega þátttakandi í öllum þeim störfum, er til féllu á stóru heimili, en auk annars hafði Tómas i Höfn all- mikinn búrekstur og sat hálfa Miðhúsajörðina, sem átti hlunnindi í Elliðaey og fleiri út- eyjum Vestmannaeyja. Martin var alla ævi'kenndur við æsku- heimili sitt og af öllum þekktur undir nafninu Malli í Höfn. Skammt fyrir vestan Miðhús og Höfn vestast í Miðhúsatúni, sunnan við hið forna virki Skanzinn, reisti Martin siðan myndarlegt einbýlishús og bjó hann þar með fjölskyldu sinni alla tíð fram að eldgosi. 1 endaðan marz 1973 fór allt þetta svæði undir hraun og logandi eimyrju. Umhverfið þarna var sérstætt og fagurt. Örskammt til norðurs reis síbreytilegur Heimaklettur, ljósbrúnn og settur ótal myndum f sumarbreyskjunni, en í vetrar- stormum dökkur og tröllaukinn. Steinkast frá Miðhúsum og Höfn voru Urðirnar, og var útsýni þarna út á Flóann, til austur- eyjanna og Eyjafjalla eitt hið feg- ursta í Eyjum hvort sem var á vetri eða sumri. Þetta var sterkt umhverfi og landslag og margt fólk, sem þarna var fætt og udp- alið var af þvi mótað og bundið. Malli í Höfn var einn þeirra. Hann var alla tíð tengdur Vest- mannaeyjum sterkum böndum og hafði frá blautu barnsbeini fylgzt með viðgangi þeirra og vexti eða f rúmlega hálfa öld. Þetta mótaði viðhorf hans til manna og málefna. Hann vildi ávallt fyrst og fremst hag og heill Vestmannaeyja. Svo samgróinn var Malli í Höfn hinum sögu- frægu slóðum Eyjanna, sem svæð- ið umhverfis Garðinn og Skanz- inn voru, að við fráfall hans finnst mér sem enn hafi verið höggið í sama knérunn, þó að allt þetta svæði sé nú kaffært og hulið hrauni og muni verða héðan í frá. Eldgosið hafði sem á aðra Vestmannaeyinga mikil áhrif á — Framtíðar- horfur Framhald af bls. 11 að halda áfram að tryggja örvggi Búrfellsvirkjunar með uppistöðu- lóni við Hrauneyjarfoss? Hafa stórbrúin á Þjórsá, sem byggð var 1973—1974 og vegamannvirkin inn að Hraunevjarfelli lokið hlut- verki sfnu? Ég held að þessum spurningum þurfi ekki að svara. Ef Islendingar hafa efni á þvf, að nýta ekki aðstöðu þá sem fyrir hendi er við Hrauneyjarfoss er Sigölduvirkjun lýkur þá er þjóðin ekki á flæðiskeri stödd. Akvörðun um að virkja á þessum stað leysir vanda Rangæinga í atvinnumál- um næstu árin. Orkuna frá virkjuninni má sfðan nota til að leysa þann vanda til frambúðar. Hellu, áraftiót ’75/’76. Malla og konu hans. Það brá fyrir sorg og dapurleika í augum hans eftir það sem á dundi. Ég held að hugur Malla í Höfn hafi sem fleiri ættmenna hans staðið til sjómennsku. Á unglings- árum stundaði hann sjó og reri eina vetrarvertfð. Honum fannst þetta góður skóli og minntist þess æ síðan með ánægju. Vettvangur hans var enda alla tíð í beinu sambandi við sjósókn og siglingar. Eftir nám í Laugar- vatnsskóla hlaut hann menntun á viðskiptasviði og lauk prófi frá Verzlunarskólanum í Kaup- mannahöfn nítján ára að aldri, árið 1934. Strax árið eftir hóf hann störf við fyrirtæki föður síns. A yngri árum var Malli í Höfn ágætur knattspyrnumaður og alla tfð einn af traustustu velunnur- um knattspyrnufélagsins Týs. Hann var félagslyndur, en þó hlé- drægur; vegna meðfæddra mann- kosta valdist hann til forystu og mannaforráða og lét þá að sér kveða. Hann var formaður Týs frá 1940 til 1948 og á fjörutíu ára afmæli félagsins, árið 1961 var hann kjörinn heiðursfélagi. Á sviði atvinnumála varð Martin Tómasson fljótt i forystu- sveit. Við fráfall föður síns tók hann alveg við fyrirtækinu Tómas M. Guðjónsson. Var hann umboðsmaður olíufélagsins Skeljungs, Sameinaða gufuskipa- félagsins og Bergenska. Ræðis- maður Dana í Vestmannaeyjum var Martin frá 1959. Vegna þessara starfa sinna var hann alltaf í nánu sambandi við skip- stjórnarmenn hinna ýmsu kaup- skipa, sem komu til Vestmanna- eyja og vissi um allt, er sneri að Vestmannaeyjahöfn. Hafnar- máiin í Eyjum voru alltaf hans hjartans mál. Martin var einn af aðalhluthöf- um Isfélags Vestmannaeyja og átti sinn þátt í þróttmikilli og myndarlegri uppbyggingu fyrir- tækisins, sem hefur verið Vest- mannaeyingum til farsældar. Sat hann í stjórn ísfélagsins sam- fleytt frá því árið 1958. I stjórn Bátaábyrgðarfélags og Lifrarsam- lags Vestmannaeyja var hann i fjöldamörg ár, en var formaður þessara merku félagssamtaka hin síðari ár. Af þessari upptalningu má sjá, að Martin Tómasson markaði víða spor í sögu Eyjanna með virkri og lifandi þátttöku á hinum ýmsu sviðum. Hann var maður, sem setti svip á bæinn og atvinnulifið. Malli í Höfn fylgdist alltaf mjög vel með öllu, sem gerðist við Vest- mannaeyj-ahöfn; hann var árrisull og fór venjulega snemma morguns á bryggjurnar eða á fisk- vigtarnar til að leita frétta frá sjónum. Þeir feðgar og fjölskylda ráku í áratugi myndarlega útgerð þátanna Lagarfoss og Sjöstjörnu, sem löngum voru undir skip- stjórn mikilla aflamanna og iðu- lega aflahæstu bátar í Eyjaflotan- um. Viðskipti olíufélagsins Skeljungs í Vestmannaeyjum jukust verulega i höndum Malla og hin síðari ár hefur verið um- fangsmikill rekstur i sambandi við olíusöluna til skipa og ein- staklinga. í þeim viðskiptum sýndi Malli viðskiptavinum og starfsmönnum einstaka lipurð og liðlegheit. Menn áttu þar hauk i horni, ef vantaði olíu á tankann og harnað hafði á dalnum. Líf Malla í Höfn var alla tfð þrungið umsvifum og starfi. Fyrir áeggjan samborgara sinna tók Martin í allmörg ár þátt f opinberum málum kaupstaðar- ins. Hann var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 1962 til 1966 og síðan aðalfulltrúi tvö kjörtímabil frá 1966 til 1974. Síðara kjörtímabilið sat hann oft- ast í bæjarráði auk hinna ýmsu nefnda. Ég kynntist Malla í Höfn einkum hin síðari ár, bæði á fund- um bæjarstjórnar og í félögunum Akóges og Rotary í Vestmanna- eyjum, en þar var hann forseti 1962—63. Hann var alla jafna til- lögugóður og okkur hinum óreyndari traustur og ráðhollur. Ég mat hann þeim mun meira sem ég kynntist honum betur. Af andstæðingum sínum í stjórnmál- um var hann ekki síður mikils metinn og hlaut iðulega þakkir þeirra og allra fyrir réttsýni og sanngirni. Hann var mannasættir og vildi helzt gott úr öllu gera; þó gat hann verið skapheitur og hug- mikill var hann ávallt; hjartað hlýtt. Bernskufélagar Malla og leik- félagar hittust við hátíðleg tima- mót einu sinni til tvisvar á ári á skrifstofunni i Kúða hjá Malla. Þetta voru fagnaðarfundir og við sem yngri vorum og fengum að fljóta með nutum samvista þeirra félaga og glöddumst á góðri stundu. Einlægni bræðranna frá Höfn, Malla og Didda, gerði þessa fundi minnisstæða og þeir verða ljúf minning. I einkalífi sínu var Martin Tómasson mikill hamingjumaður. Hann átti góða konu, fagurt og kyrrlátt heimili og sá öll börn sín komast til manns. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni Bertu Gisladóttur, sem fædd er og uppalin í Eyjum, 27. janúar 1940 og var hjónaband þeirra ástríkt. Þau eignuðust þrjú börn: Eyjólf skrifstofustjóra ísfélags Vest- mannaeyja, sem kvæntur er Sig- ríði Jakobsdóttur; Rósu, sem gift er Ársæli Lárussyni rafvirkja- meistara og eru þau búsett í Reykjavík og Emiliu efnaverk- fræðing, sérfræðing á Rannsókna- stofnun Fiskiðnaðarins; hennar maður er Sigurður Skarphéðins- son verkfræðingur frá Akureyri. Malli unni mjög fjölskyldu sinni og barnabörnum. Hans síðasta verk áður en hann var lagður inn á sjúkrahús á gamlárs- dag var að gleðja þau fyrir síðasta Framhald á bls. 13 Okkur veiðifélagana setti hljóða þegar við fengum hel- fregnina að norðan, að Heimir á Tjörn væri látinn. Ekki það að lát hans hafi komið okkur svo mjög á óvart, við vissum að hjartað hafði verið búið að angra hann um ára- bil, en það var einhvern veginn þannig með Heimi, að það var eins víst að hann væri fyrir norðan þegar við komum i vikuna okkar og að áin væri á sínum stað. Það verður því ekki það sama fyrir okkur vini hans að koma á bakka Laxár í framtíðinni og hitta Heimi ekki, hressan og kátan, uppfullan af sögum og góðum ráðum og hundskömmum þegar honum fannst lærisveinarnir ekki hafa tekið nógu vel eftir. Ég minnist þess að á sl. hausti í vertíðarlok sátum við saman á Laxatanga í stórkostlegu veðri og kvöldi var farið að halla. Við vor- um að ræða um fegurð árinnar og þá sérstöku tilfinningu, sem gagn- tekur þá menn sem hafa lært að þekkja hana. Enginn maður á jarðríki átti við hana nánari kynni né var fúsari að miðla þekkingu sinni en Heimir og hann sagði þá: ,,Ég á þá ósk heitasta að fá að deyja á bakkan- um með lax á færi.“ Ekki varð honum að þeirri ósk sinni, en hann var ekki langt frá bökkum hennar er sláttumaðurinn mikli kom á vettvang skömmu eftir að klukkurnar höfðu hringt nýja árið inn. Heimir fæddist í Garði f Aðaldal 1. ágúst 1907 og var því 68 ára er hann lézt. Hann var sonur hjón anna Sigurðar Baldvinssonar bónda í Garði og konu hans Berg- Ijótar Benediktsdóttur frá Auðn- um í Laxárdal. Heimir bjó alla sína tíð á bökkum Laxár og var 14 ára gamall er hann dró sinn fyrsta lax og þegar yfir lauk voru þeir orðnir mörg þúsund og margir stórir. Hann sagði frá því i viðtali í Mbl. fyrir nokkrum árum, er hann var spurður um stærstu laxa sfna, að hann teldi að þeir væru um 20 talsins frá 28—35 pund, allir veiddir á flugu. Tvo 35 punda laxa fékk hann á land, báðir voru vigtaðir sólarhring seinna. Hann háði einnig margan hildi við rosaskepnur, sem allir vita aðeruíLaxáenenginn hefur náð að landa og eitt sinn sagði Heimir mér á eftirfarandi hátt frá stærsta laxinum, sem hann setti í um æfina: „Það var á mínum sokkabandsárum, er ég bjó til mínar flugur sjálfur. Ég hafði búið til eina litla sem ég kallaði Surtlu. Hún var búin til úr hrafnsfjöður og vafin um Iegginn með silfurpappfr úr Capstan- hylki, sem var brezkt tóbak. Með þessa flugu fór ég niður í Syðsteyjarkvísl og byrjaði að kasta. Það líður ekki á löngu áður en lax tekur á bólakafi. Hann fer sér ósköp hægt í byrjun, en ég finn að þarna er stórlax á ferðinni. Hann tekur sfðan á rás og syndir upp ána, alveg upp á Dýjaveitur. Ég var þá ekki farinn að sjá hann. Þar snýr hann við og syndir niður á staðinn, þar sem hann tók og leggst þar bókstaf- lega á punktinn og haggaðist ekki. Ég reyndi að toga í-hann en hifaði honum ekki. En allt i einu fýkur í kauða og hann tekur þessa ofsaroku og endar hana með því að þurrka sig upp úr ánni. Þá brá mér voðalega þvi að ég hélt ekki að svona skepnur væru til í ánni. Hann stökk aftur neðst við Syðst- ey og þá féllust mér algerlega hendur og ég get fullvissað þig um að hann hefur ekki verið minni en Grimseyjariaxinn (4914 pund blóðgaður). Ég réð ekkert við laxinn, en var að vona að hann m.vndi fara niður með Króke.v og Hrútey, þar sem ég ætti meiri möguleika. En því var ekki fyrir að fara, hann tók strikið niður með austurlandinu og þar skildi með okkur, ég hafði stöngina en hann fluguna. Svipuðum laxi lenti ég einu sinni i á Fossflúð f Laxamýrarlandi og þeim fiski hefði ég náð ef maður hefði verið með mér.“ Nú mun Heimir aðeins renna hsndan móðunnar miklu en sé þar lax að hafa sem raunar hlýtur að vera, mun Heimir reynast þar slyngastur veiðimanna í stórum hópi vina hans og lærisveina sem farnir eru á undan. Fyrir hönd okkar félaganna föður míns, Orra og Vigfúsar þakka ég samfylgd- ina, vináttuna og tilsögnina og við kveðjum gamlan vin með söknuði. Heimir verður jarðsunginn frá Árneskirkju kl. 14.00 í dag. Ingvi Hrafn Jónsson Nánar skal söguþráðurinn ekki rakinn, en öll er þessi saga ævintýri líkust. Höfundur ritsins, Hjörtur Pálsson, hefur unnið sitt verk ljómandi vel. Hann leiðir fram ýmsar áður óþekktar heimildir, þannig að nú liggur allt miklu ljósara fyrir en áður. Enn eru þó ýmis vandamál, sem bíða fullnaðarúrlausnar. Höfundur vinnur úr heimildunum af mik- illi natni og ályktanir hans eru allar skemmtilegar og að þvi er virðist rökréttar. Frásögn hans er öll mjög lipur, skrifuð á kjarngóðri íslenzku. Tilvitnanir til heimilda eru traustar og i bókarlok eru heimilda- og nafnaskrár. Allmargar myndir prýða bókina og sömuleiðis uppdrættir. Er þetta allt til prýði. Bókinni fylgir einnig út- Iráttur á ensku, þýddur af Jó- nanni S. Hannessyni. Sem fyrr segir er þétta fjórða bindið í ritröðinni Studia Historica. Er gleðilegt til þess að vita, að ekkert lát virðist ætla að verða á útgáfunni og enn ánægjulegra er, að allur frágangur bókanna batnar með hverju ári. Þetta er bók, sem hiklaust er hægt að mæla með við hvern sem er. Magnús Jónsson skólastjóri: Varnarliðið vinni sín störf VARÐANDI landhelgisdeilu englendinga og íslendinga hefur ríkt sú skoðun, að það væri ekki eðlilegt að varnarliðið aðstoðaði íslendinga við að verja landhelg- ina, og það væri óeðlilegt að gera þá kröfu á hendur bandaríkja- mönnum að þeir taki að sér að verja landhelgi sem þeir viður- kenna ekki sjálfir. En eins og kunnugt er viðurkenna banda- ríkjamenn hvorki 200 né 50 mílna landhelgi. Nú er svo komið að erlent stór- veldi hefur sent flota til íslands, ekki aðeins til að hindra töku landhelgisbrjóta heldur líka til árása á íslensk skip. íslensk fiski-, flutninga- og rannsóknaskip eru elt uppi af breskum árásarskipum og slendurteknar eru tilraunir breskra flotadeilda til að sigla niður íslensk varðskip. Hér er þvi málið komið á annað stig en það að íslenskt varðskip sé hindrað við töku á breskum togara. Bretar hafa þvi hefið ársárstríð og alþjóðasiglingareglur eru þver- brotnar. Itrekuð mótmæli gegn þessari framkomu hafa verið bor- in fram við bresk stjórnarvöld svo að breska stjórnin værí búin að stöðva þessar aðfarir ef þær væru ekki samkvæmt hennar vilja, en hún stöðvar þær ekki heldur læt- ur herða árásirnar. Það verður því ekki annað séð en að breska stjórnin sendi breska sjóherinn til islandsstranda beinlínis til þess að reyna að slasa og drepa islenska löggæslumenn og til þess að laska og sökkva íslenskum varðskipum. Við íslendingar höfum gert varnarsamning við banda- ríkjamenn sem við skiljum þannig að amerískur her dvelji hér i landinu islendingum til varnar. Hvaða vörn á varnarliðið að veita, ef það á ekkert að skipta sér af því að erlendur sjóher sest að landinu með slikum ófriði og, yfirgangi að islensk skip geta ekki siglt óhult meðfram strönd- um landsins og jafnvel upp við rauða Iandssteina, samanber Seyðisfjarðarmálið, án eftirlits erlendra herskipa og stöðugar árásir eru gerðar á íslensku varð- skipin. Er ekki kominn tími til að islenska ríkisstjórnin óski eftir að varnarliðið vinni sín verk. Það er ekki óskað eftir að Bandaríkin annist íslenska landhelgisgæzlu, það munu islendingar gera sjálf- ir, en ætlast verður til að banda- ríski flotinn haldi uppi þeirri lög- gæslu að við strendur landsins geti öll islensk skip siglt sam- kvæmt alþjóðasiglingareglum i friði og óáreitt. — Alaskaför Framhald af bls. 15 lambið grá. Ymsir helztu for- ystumenn íslendinga vestra hrifust af hugmyndinni og sama er að segja um ýmsa Bandarfkjamenn, en Banda- ríkjastjórn var um þessar mundir í hálfgerðum vandræð- um með Alaska, sem nýlega hafðr verið keypt af Rússum fyrir gjafverð. Svo fór að lok- um, að Jón Ölafsson var sendur við þriðja mann á bandarísku herskipi í könnunarferð til Alaska, en ekkert varð þó úr flutningum íslendinga þangað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.