Morgunblaðið - 10.01.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1976
21
félk í
fréttum
+ Bretar ætla að kalla heim
sendiherra sinn I Chile.
Ákvörðun um það var tekin á
grundvelli skýrslu, sem breski
læknirinn dr. Sheila Cassidy
lagði fram eftir heimkomu sina
til Bretlands fyrir skömmu.
Hún starfaði á heilsugæslustöð
f Chile en var tekin föst og höfð
í haldi hjá chilenskum yfir-
völdum I tvo mánuði. 1 skýrslu
hennar kemur fram að I fanga-
vistinni sætti hún pyndingum
af hálfu chilensku öryggis-
lögreglunnar, sem sakaði hana
um að hafa aðstoðað andófs-
hópa vinstrimanna 1 Chile.
„Þeir afklæddu mig og festu
rafmagnsþræði við lfkama
minn,“ segir breski læknirinn.
„Sfðan var rafmagni hleypt á
og mér gert skiljanlegt að hald-
ið yrði áfram þar til ég hrópaði
nafnið á leiðtoga skæruliðanna.
Ég gerði þeim ljóst að ég væri
breskur rfkisborgari og
pyndingarnar gætu haft póli-
tfskar afleiðingar. Lögreglu-
mennirnir svöruðu þvf einu að
það kæmi þeim ekkert við, al-
menningsálitið f heiminum
gæti ekki versnað frá þvf sem
væri, hvað þá áhrærði.“
Þegar dr. Sheila kom heim til
Lundúna eftir að chilensk yfir-
völd höfðu látið hana lausa, átti
hún fund með embættismanni
úr utanríkisráðuneytinu og gaf
hann þá yfirlýsingu að Bret-
land myndi eigi aðeins kalla
Dr. Sheila við heimkomuna, laus úr prfsundinni f chilenskum
pyndingaklefum.
heim sendiherra sinn f Chile,
Reginald Seconde, heldur yrðu
einnig send opinber mótmæli
til Chile-stjórnar og málið kært
fyrir mannréttindanefnd Sam-
einuðu þjóðanna.
Britt Ekland og Rod Stewart
Peter Sellers og Lou Adler.
+ BRITT Ekland, hin 33ja ára
gamla sænska kvikmyndaleik-
kona, ætlar ákveðið að giftast f
þriðja sinn, f von um að nú hafi
hún fundið hinn „eina rétta“.
Sá er enginn annar en skoski
popparinn Rod Stewart. Þau
hafa verið óaðskiljanleg f
a.m.k. níu mánuði. Britt er f
óða önn að búa þeim heimili f
Hollywood, og væntanlega
verður það ekkert slor, þvf að
hún hefur nógan tfma. Brúð-
fyrri eiginmenn hennar voru þeir
kaupið verður ekki fyrr en f
maf. Henni finnst sá árstfmi
svo rómantískur. Og Rod er
eins og margir landar hans —
ólæknandi knattspyrnu-
unnandi, og vill ekki fyrir
nokkurn mun missa af lands-
leiknum milli skota og eng-
lendinga sem háður verður f
aprfl á Hampden Park í Glas-
gow. Hann segir: „Ég get ekki
hugsað mér að breiða yfir mig
hjónasængina fyrr en leikur-
inn er um garð genginn."
+ Nú er hafið sparnaðarár. Á
árinu 1976 eiga allir að spara:
einstaklingar, fjölskyldur,
fyrirtæki, sveitarfélög og þó
einkum og sér í lagi rfkið. Þvf
þótti okkur hæfa að birta þessa
glöðu mynd. Hún sýnir einn af
hörðustu postulum dana f rfkis-
sparnaði, Mogens Glistrup,
ásamt (að því er við gizkuðum
á) kjölsvfni dönsku þjóðarskút-
unnar. Það hefur greinilega
valið honum þakkarorð f
gamansömum dúr — á danska
vfsu— fyrir ötula baráttu hans,
þvf þingmaðurinn er ekkert að
spara brosið.
LIV Ullmann hefur verið kosin
besta kvikmyndaleikkona árs-
ins vegna framlags sfns til
mvndaflokksins „Þættir úr
hjónabandi“ eftir Ingmar
Bergman. Eru það vestur-
þýzkir og franskir kvikmvnda-
gagnrýendur sem heiðrað hafa
hana með slfku kjöri. Liv
Ullmann leikur einnig annað
aðalhlutverkið f næstu Berg-
mans-mynd, „Augliti til aug-
Iitis“. Og mótleikarinn er sá
sami og f mvndaflokknum,
Erland Josephson.
B'O'BB & B'O
V/S/Q'? 6*
'GMU hJO ™
MÁLASKÓLI 26908
^ Danska, enska, þýzka, franska, spænska
0 ítalska og íslenzka fyrir útlendinga
0 Innritun daglega.
£ Kennsla hefst 1 2. jan.
0 Skólinn er til húsa að Miðstræti 7.
£ Miðstræti er miðsvæðis.
0 Síðasti innritunardagur.
L26908—HALLDORS
Aætlun Akraborgar
Frá Akranesi kl. 8.30, 1 3.30 og 17.
Frá Reykjavík kl. 1 0, 1 5.30 og 1 8.30.
Réttur áskilnn til breytinga ef þörf krefur.
Sími afgreiðslu í Reykjavík 1 6420 og á Akra-
nesi 2275.
A fgreiðslan
Flosnámskeið
Fínflos, grófflos byrja aftur 12. janúar. Nem-
endur sem eiga pantaðan tíma hafið samband
sem fyrst. Tekið á móti innritun fyrir nýja
nemendur í HANDAVINNUBÚÐINNI Lauga-
vegi 63. Hægt að fá allar gerðir af myndum.
Góbelinteppið
ff
Ranke"
(Ride, Ride, Ranke) komið. Pantanir óskast
sóttar sem fyrst.
Handavinnubúðin
Laugavegi 63
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur
Stykkishólmi
heldur almennan félagsfund i Lionshúsinu
sunnudaginn 11. janúar 1976 kl. 4 s.d.
Rædd verða héraðsmál og þjóðmál. Frum
mælandi Friðjón Þórðarson. alþingismaður.
Stjórnin
Dönsk skrifborð fyrir skrifstofur og heimili.
Opið til kl. 4 alla laugardaga á
Smiðjuvegi 6.