Morgunblaðið - 05.02.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1976
29
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar í slma 10-100
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Bílstjóri
í ófærö
„Ég hefi til þessa haldið að ég
væri góður bílstjóri,“ skrifar „Bíl-
stjóri“, sem „klæðist kjól við há-
tíðleg tækifæri“, eins og bréfrit-
ari orðar það, „svona rétt til þess
að gefa kynið til kynna". og Bréf-
ritari heldur áfram:
„En þessi skoðun mín hefur
beðið nokkurn hnekki þessa síð-
ustu og verstu daga. Allir vita,
hvernig ökufærið hefur verið á
götum borgarinnar, djúp hjólför,
fjallháir hryggir og skorningar
alls staðar. Og hvernig sem á því
stendur hef ég fest bilinn æ ofan í
æ í þessiím skorum. Mér er óljúft
að viðurkenna að það hafi verið
fyrir klaufaskap. En hvað með
það, eigið álit á bilstjórahæfileik-
um mínum hefur farið dyinandi.
Ég tala nú ekki um eftir að ég lét
setja keðjur undir bilinn — og
sama sagan endurtók sig.“
0 Hjálpsemi
náungans
„En þetta var nú ekki tilefni
þess, að ég skrifa þér, heldur
hitt, að álit mitt á náunganum
hefur vaxið um allmörg vísitölu-
stig. í hvert skipti, sem ég lenti i
þessum raunum, voru komnir
einn eða fleiri mér til aðstoðar.
Þegar kraftarnir nægðu ekki til
þess að ýta mér upp úr ófærunni,
var gjarnan setzt á rökstóla um,
hvernig heppilegast væri að losa
bílinn. Og þótt sitt sýndist hverj-
um, skildu þessar hjálparhellur
aldrei við mig fyrr en ég gat
haldið áfram þar sem næsti skorn-
ingur beið i leyni.
Mér til huggunar sá ég á ferð-
um mínum um borgina að ég var
ekki ein um að festa bíl. En aldrei
sá ég nokkurn einn og yfirgefinn
bjástra við að losa bílinn sinn,
hjálparhellurnar virtust á hverju
strái. Mikið skelfing er það þægi-
leg tilfinning að finna að maður
stendur ekki einn, ef eitthvað
bjátar á. Kærar þakkir til ykkar
allra.“
0 Hvar eigum
við að vera?
Gréta Steingrimsdóttir og
Linda Valbergsdóttir skrifa:
„Við erum hér nokkrir krakkar
á aldrinum 16—18 ára. Okkur
langar til að mótmæla þvi fólki,
sem hefur verið að skrifa greinar
í blaðið og látið óánægju sina i
ljós með að unglingar undir tvi-
tugu komist stundum inn á vín-
veitingastaði. Það er ofur eðlilegt
að þessi hópur (16—20) reyni að
komast inn á slika staði, þvi eng-
inn skemmtistaður er til fyrir
þennan aldurshóp.
Auðvitað er hægt að fara á
sveitaböll, en þangað er langt að
fara og dýrt að kaupa sig inn. Þvi
ekki vaxa peningarnir á trjánum.
Hér í borg er að visu einn staður,
þar sem aldurstakmark er 15 ár.
Það er Tónabær. En þar er líka
hægt að kvarta undan því að
krakkar sem eru ekki orðnir 15
ára, komist inn. Og ekki von að
við getum samræmzt aldurshópn-
um 13—15 ára.
Væri ekki betra að leyfa ungl-
ingunum að skemmta sér með
fullorðna fólkinu? Eða er það
kannski hegðun þess, sem við
megum ekki sjá? Eitt er víst, að
fullorðna fólkið er ekki fyrir-
mynd. Margir þeir, sem komast
ekki inn, hanga þá bara fyrir utan
skemmtistaðinn og drekka þar. Er
það eitthvað betra? Eigum við
ekki að skemmta okkur? Væri
ekki hægt að hafa einn af þessum
mörgu skemmtistöðum fyrir ald-
urinn 16—20 ára? Svo spyrjum
við að lokum: Hvar eigum við að
vera?“
% Meiri vétrar-
íþróttir
Níu ára drengur, sem fer mikið
á skiði, bað Velvakanda að koma á
framfæri þeirri ósk við Sjónvarp-
ið að íþróttaþættirnir þar yrðu
lengri. Hann kvartaði undan því
að vetrariþróttum væri gerð of
lítil skil. Á þessum árstima ætti
að sýna miklu fleiri skiðamyndir,
sagði hann.
Velvakandi getur vel fallizt á
það. Ætli nú fari ekki að berast
vetraríþróttamyndir í rikum mæli
af vetrarólympíuleikunum i Aust-
urríki. Og þangað hafa streymt
bæði fréttamenn blaða og sjón-
varpstökumenn hvaðan æva að úr
heiminum.
0 Miðborg
gott nafn
Einn af viðskiptavinum Velvak-
anda hringdi og ræddi nafn á nýja
miðbæinn. Við áttum Miðbæ, þeg-
ar Reykjavik var bær, sagði hann.
Því ekki að eiga Miðborg, þegar
'Reykjavik er orðin borg. Nafnió
Miðborg er einfalt og liggur beint
við sem heiti á nýja miðbæinn í
Kringlumýrinni.
% Rall en ekki
rallý
Þá talaði hann um heiti, sem nú
sést oft i blöðum og heyrist i
útvarpi. Það ér rallý, bílarallý og
snjósleðarallý, sem er útlent orð
og óþarfi. Þetta má bara islenzka
og kalla islenzka orðinu rall.
Þér megið hafa myndina ef þér
haldið hún geti komið yður að
sagni.
Wexford stakk myndinni f vas-
ann með það fvrir augum að
athuga hana nánar síðar, þótt
hann efaði stðrlega að það yrði
honum nokkur hjálp úr þessu.
Þegar hann fylgdi ungfrú Clarke
fram rakst hann á Martin sem var
að koma frá þvf að -hitta verzl-
unarstjðrann f kjörbúðinni. Þar
hafði komið f ljðs að ekki var
fylgst nákvæmiega með þvf
hversu margar regnhettur úr
plasti hefðu verið seldar í vik-
unni, aðeins heildartalan eftir
hvern mánuð.
Wexfnrd sendi Martin af stað
til Flagford tii að tala við
eina bekkjarsysturina enn,
Janet Tipping. Þvf næst hringdi
hann heim til Drurys. Burden
svaraði f sfmann. Þeir höfðu ekki
fundið neitt f húsinu. Frú Drury
var hjá systur sinni f Hastings, en
systirin hafði engan síma.
— Martin verður að fara
þangað, sagði Wexford. —Ég get
ekki misst yður þangað. — Hvað
sagði Spellman.
— Þeir lokuðu á mfnútunni
klukkan hálf sex á þriðju-
HÖGNI HREKKVISI
©1976 , -
McNaught Synd., Inc.
,Jæja, þá er þessu lokið. Þetta var það.“
STJÓRNUN ARFÉLAG ÍSL.ANDS
Er reksturinn í lagi?
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði í frumatrið
um rekstrarhagfræði dagana 9. — 13. febrúar
Námskeiðið stendur yfir mánud. 9. febrúar kl
14.00:19.00, þriðjudaginn 10. febrúar kl
15.30—19.00, miðvikudaginn 11. febrúar og föstu
daginn 13. febrúar kl. 14:00—19:00.
Á námskeiðinu verður þátttakendum
gefin innsýn í undirstöðuatriði
rekstrarhagfræðinnar, sem fjallar
um, hvernig nota megi framleiðslu-
tækin á sem hagkvæmastan hált.
Gerð verður grein fyrir kostnaðar-
hugtökum, eftirspurn og þáttum,
sem hafa áhrif á hana. Sérstaklega
er sýnt, hvernig finna má hagkvæm-
ast verð og magn við mismunandi
skilyrði.
Leiðbeinandi er Brynjðlfur Sigurðsson dósent.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST í SÍMA 82930.
ð
lcefood
ISLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4—6, Hafnarfirði.
o .
Eigum
fyrirliggjandi:
REYKTAN LAX
GRAVLAX
REYKTA SÍLD
REYKTA ÝSU
REYKTANLUNDA
HÖRPUFISK
k
Tökum lax í reykingu
og útbúum gravlax. T
Kaupum einnig frosinn lax til reykingar.
Sendum t póstkröfu
VAKÚM PAKKAÐ EF ÓSKAÐ ER.
íslenzk matvæli
Sími 51455
i
Stór-
QTSALA
Handkl*®1 ^r^ Kjólaefni
purrkur 165- metravara.
KarlmannaskYrtur kr-
Karlmannasokkar r kr
K.enundirkjðlar lir" -r'
Undirföt 190.— stk.
og margt fleira
Allt selt fyrir ótrúlega lágt verð
Cgill Sacobsen
Austurstræti 9
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al (iI.YSINGA-
SÍMINN ER:
22480