Morgunblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JMorevinblabiÖ
FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1976
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHargunl>[abib
Ólafur Jóhannesson um yfirlýsingu Callaghans:
EINAR Agústsson utanrfkis-
ráðherra sagði í viðtali við
Mbl. í gærkvöldi að hann bygg-
ist við því að viðræður við
Breta vegna fiskveiðideil-
unnar myndu áður en langt
um liður hefjast og þá í
Reykjavík. Enn hefur þó
hvorki dagur né staður verið
ákveðinn.
Einar sagði að brezki sendi-
herrann hefði komið i gær í
utanrikisráðuneytið og rætt
við Pétur Thorsteinsson ráðu-
neytisstjóra. Lýsti sendiherr-
ann vilja Breta á að hefja við-
ræður.
Fullri löggæzlu haldið uppi á miðunum
Yiðræður
við Breta í
Reykjavík?
ALLT þróarrými í höfnum frá Raufarhöfn sudur um að
Hornafirði var í gær orðið yfirfullt. Samkvæmt upplýs-
ingum Gylfa Þórðarsonar, formanns loðnunefndar, fá
bátar sem veiddu loðnu í gær ekki löndun fyrr en á
föstudag og eiga því fyrir höndum tveggja sólarhringa
bið í höfnum. Þýðir þetta lólegra hráefni og lélegri
afkomu bátanna. Á loðnuvertíðinni í fyrra kom það afar
sjaldan fyrir að bátar þyrftu að bíða svo lengi í höfnum
og var það hinu afkastamikla hræðsluskipi Norglobal að
þakka, en sem kunnugt er verður skipið að öllum
líkindum ekki leigt hingað á þessa vertíð.
Þorskstofninn þann tfma. Bretar
yrðu að gera sér fulla grein fyrir
þessu og láta af óheppilegum
ögrunarorðum. Þá sagði dóms-
málaráðherra ennfremur, að allt
tal um, að vopnahlé hefði ríkt á
miðunum að undanförnu væri út
í hött. Fullri gæzlu hefði verið
haldið uppi utan einn dag, fyrsta
dag viðræðna forsætisráðherra í
London.
Loðnan hraðari í ferðum
Gylfi Þórðarson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að
heildaraflinn á vertíðinni hefði
þá verið orðinn um 85 þúsund
lestir eða 12 þusund lestum meiri
en á sama tima i fyrra. I ár veidd-
ist fyrsta loðnan 16. janúar en í
fyrra heldur fyrr. Fyrsta loðnu-
gangan er nú komin að Stokks-
nesi og nálgast óðfluga land. Ætti
hún að vera komin upp að land-
inu í þessari viku. í fyrra kom
fyrsta loðnugangan ekki að
Stokksnesi fyrr en 12. febrúar og
virðist loðnan þvi ganga mun
hraðar en i fyrra.
Færri bátar en í fyrra
Vitað er um 66 báta, sem fengið
hafa loðnuafla en á sama tíma í
fyrra var vitað um nær 90 báta
sem fengið höfðu einhvern afla
þannig að færri bátar virðast nú
stunda veiðarnar en i fyrra. Þó
bjóst Gylfi við því að bátunum
myndi fjölga á næstunni þegar
loðnufrysting hefst, en vitað er að
nokkrir minni bátar munu að-
eins veiða I frystingu. Aflahæsti
báturinn fram til þessa mun vera
Guðmundur RE með um 3800
lestir en fast á eftir fylgir Eld-
I ræðu á Alþingi í gær, gerði
Ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra að umtalsefni þá yfirlýs-
ingu James Callaghan, utanríkis-
ráðherra Breta, að brezki flotinn
mundi sjálfkrafa koma inn í is-
lenzka fiskveiðilögsögu, ef klippt
yrði á togvfra brezkra togara.
Sagði dómsmálaráðherra, sem er
æðsti yfirmaður Landhelgisgæzl-
borg GK með um 3600 lestir.
Aðrir bátar sem fengið hafa yfir
3000 lestir eru Gísli Árni RE með
3350 lestir og Börkur NK með
3000 lestir.
Ilefst loðnufrysting eftir helgi?
Að sögn Gylfa mun hrognainni-
hald loðnunnar nú vera um 8%
Framhald á bls. 18
Ólafur Jóhannesson
unnar, að haldið yrði uppi fullri
löggæzlu á miðunum með öllum
tiltækum ráðum. Yfirlýsing
Callaghans væri naumast hyggi-
leg né heppilegur undirbúningur
hugsanlegra viðræðna um sam-
komulag til skamms tíma. Ólafur
Jóhannesson sagði í ræðu sinni,
að slíkar viðræður gætu dregizt á
langinn og fráleitt væri að Bretar
fengju að ganga óhindraðir í
SAMKVÆMT spám Hagstofunn-
ar mun verðlagið hækka um
17,3% til fyrsta nóvember næst-
komandi og til þess að halda þeim
kaupmætti, sem var um áramót
þyrfti því að koma til veruleg
kauphækkun við samningana nú
— sagði Björn Jónsson, forseti
ASl, I samtali við Mbl. f gær og er
þá ekki gert ráð fyrir því f spánni,
að nokkur breyting verði á gengi
eða kaupi. Aðspurður um það,
hvort slfk kaupbreyting hefði
ekki verðbólguáhrif, svaraði
Björn: „Það er sýnilegt að hér
verður bullandi verðbólga, þótt
engin breyting verði á kaupi, þó
að allar kaupbreytingar hafi auð-
vitað einhver áhrif á verðiagið."
Björn Jónsson sagði, að ef
notaðar væru formúlur sérfræð-
inga, kæmi í ljós, hver verðbólgu-
áhrifin yrðu að þeirra mati, en
Björn tók fram, að ASI hefði ekki
tekið þá viðmiðun sem neitt full-
nægjandi atriði. Björn sagðist
engu vilja spá um framvindu
samningaumleitana á meðan
ekkert hefði heyrzt frá vinnuveit-
endum, sem enn hefðu ekki gert
verkalýðsforystunni neitt tilboð.
„Maður vonar það, að sá stutti
tími, sem til stefnu er nægi til
þess að ekki komi til verkfalla.
Löngum tíma hefur verið varið
illa og maður vonar að málin fari
eitthvað að skýrast.“
Aðilar, ASÍ, VSl og Vinnumála-
samband samvinnufélaganna
munu í dag eiga fund með forsæt-
isráðherra, þar sem búizt er við
viðbrögðum við þeim 15 atriðum
aðilanna, sem send voru ríkis-
stjórninni um aðgerðir til þess að
skapa grundvöll samninga. Að
þeim fundi loknum eða um
klukkan 16 í dag verður svo sátta-
fundur, að því er Torfi Hjartar-
son, sáttasemjari ríkisins, tjáði
Mbl. í gær. I gær var sáttafundur
með sjómönnum og útvegsmönn-
um, sem hafa boðað til vinnu-
stöðvunar þremur dögum fyrr en
ASl — eða 14. febrúar. Torfi kvað
samningaumleitanir ganga erfið-
lega, þar sem útvegsmenn Iitu svo
á að þeir aðilar, sem hefðu fasta
samninga fram í maí ættu að
halda þeim samningum áfram. Þá
vilja menn og breyta um kerfi á
grundvelli tillagna sjóðanefnd-
arinnar og er rætt um það, hvort
fara eigi að tillögum hennar eður
ei. Vilja sumir losna við sjóða-
kerfið og aðrir ekki. Sagði Torfi
Hjartarson að verið væri að
kanna hinar ýmsu leiðir í þessu
efni, en að öllum líkindum yrði að
bíða í nokkra daga unz málin
færu að skýrast.
Ólafur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands Is-
lands, sagði að forsætisráðherra
hefði boðað aðila samningaum-
leitananna á sinn fund í dag
verður þar væntanlega rætt um
atriðin 15. Önnur atriði, sem rætt
hefur verið um er þróun verðlags-
ins á árinu. Þá hefur verið að
störfum sérfræðinganefnd í líf-
eyrissjóðamálum. Nefndina skipa
Bjarni Þórðarson frá ríkisstjórn-
inni, Guðjón Hansen frá vinnu-
veitendum og Pétur Blöndal frá
Alþýðusambandinu. Þeir hafa
verið að vinna að eins konar val-
Frair.nald á bls. 18
Kyrrt á
miðunum
KYRRT var á miðum brezkra
togara austur af landinu i gær.
Alls voru 33 togarar að veiðum
á svæðinu frá Hvalbak að
Glettinganesi. Varðskip
stugguðu við togurunum og
skipuðu þeim að hffa og
hlýddu togararnir undantekn-
ingalaust. Nokkrir þráuðust
eitthvað við, en hlýddu, er
varðskip gerði sig líklegt til
aðgerða. I gær var ekki flug-
veður og því ekki hægt að fara
í gæzluflug.
2 sólarhringa löndunar-
bið í nær öllum höfnum
„Kom nær aldrei fyrir í fyrra
þegar við höfðum Norglobal,”
segir formaður loðnunefndar
FYRSTA LOÐNAN — Hjálm-
ar Vilhjálmsson fiskifræð-
ingur og menn hans eru þarna
að bera bala fullan af loðnu,
sem þeir ætla að fara að rann-
saka. Myndin var tekin við
loðnurannsóknir um borð f
Árna Friðrikssyni f janúar s.I.
og mun þetta vera fyrsta loðn-
an sem þeir náðu. Hún fékkst í
flottroll. Ljósm. Oskar Sæmundsson.
Björn Jónsson, forseti ASÍ:
Verulega kauphækkun þarf til
að halda í við verðlagsspár
Rætt við aðila vinnumarkaðarins um ástand og horfur í samningamálum