Morgunblaðið - 20.02.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 20.02.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976 Síendurtekið tékkamisferli Klúbbsins: V eitingamaðurinn hefur leikið á banka- 91 kerfið í a.m.k. áratug segir Björn Tryggvason, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans AVISANAMÁL veitingahússins Klúbbsins er nú til meðferðar hjá sakadómi Reykjavfkur, eins og kom fram f Morgunblaðinu f gær. I þvf tilefni spurðist Morgunblaðið fyrir um það hvort rétt væri að forsvars- maður veitingahússins hefði hvað eftir annað fengið opnaða ávfsana- reikninga f hinum ýmsu bönkum og útibúum þeirra, þrátt fyrir margftrekað tékkamisferli á liðnum árum. 1 samtali við útibússtjóra Bún- aðarbankans í Mosfellssveit fékk Mbl. þær upplýsingar, að for- svarsmaður veitingahússins hefði þar sjálfur aldrei verið með reikning en hins vegar hefði verið reikningur á nafni fyrirtækisins Borgartúns og ávfsanir þær, sem nú eru til meðferðar hjá saka- dómi, væru útgefnar af starfs- konu þar. Að öðru leyti vfsaði hann á aðalbankann, og náði Mbl. tali af Magnúsi Jónssyni, banka- stjóra, sem vakti athygli á þvf, að nafn forsvarsmanns téðs veitinga- húss væri hvergi að finna á lista þeim, sem Seðlabankinn sendi út reglulega um þá, sem uppvísir hefðu orðið að meiriháttar tékka- misferli. Morgunblaðið hafði þá sam- Stjórnarfrumvarp: Flugvallaskatt- ur lækkaður Matthías A. Mathiesen, fjár- málaráðherra, mælti f gær fyrir stjórnarfrumvarpi um flugvalla- gjald. Ráðherrann gat þess að frá 1. maí sl. hefði verið innheimt flug- vallagjald af ferðum með loft- förum innanlands og frá fslandi. 1 fjárlögum fyrir árið 1976 væri gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af flugvallagjaldi næmi 235 m.kr. Er einsýnt sagði ráðherra, að haida verður áfram innheimtu flugvaliagjalds, ef sú áætlun á að standast. Þetta frumvarp gerði ráð fyrir því að sett yrðu ótíma- bundin ákvæði um innheimtu flugvallagjalds, ef sú áætlun á að standast. Þetta frumvarp gerði ráð fyrir því að sett yrðu ótíma- bundin ákvæði um innheimtu flugvallagjalds af utanlandsflugi, en fjárhæð þess jafnframt lækkuð verulega frá því sem væri nú, en flugvallagjald vegna ferða innanlands með öllu fellt niður. Meginefni breytinganna væri því þetta: 0 flugvailagjald vegna innan- landsflugs yrði fellt niðurt • flugvallagjald vegna utan- landsflugs lækkaði úr kr. 2.500.- Framhald á bls. 13 band við Björn Tryggvason, að- stoðarbankastjóra, og spurði hann nánar út i þetta atriði. Björn sagði, að forsvarsmaður veitinga- hússins hefði löngum leikið þann leik að stofna ný og ný fyrirtæki og fá opnaðan ávísanareikning út á þau — eitt sinn hefði fyrirtækið heitið Bær, síðan Lækjamót og nú væri það Borgartún. Lækjamót hefði t.d. komið töluvert við sögu f skyndikönnuninni I nóvember sl. og sagði Björn, að raunveru- lega mætti segja, að veitinga- maðurinn hefði leikið á banka- kerfið að minnsta kosti i áratug eða allt frá því að mikið tékkamái kom upp varðandi þennan veit- ingamann árið 1963. Eftir það hefði siðan nafn hans hvergi sézt I skjölum en í stað þess hefði hann haldið uppi fyrri iðju í skjóli nýrra og nýrra fyrirtækja. Björn kvað hins vegar reglur Seðiabankans I þessum efnum vera nokkuð þröngar, þar sem þar væri það ákvæði um svarta list- ann að ef maður kæmi ekki fyrir í 10 ár, félli hann sjálfkrafa af listanum. Þannig hefði veitinga- maðurinn sjálfur fallið niður af iistanum af misgáningi, en öllum bankamönnum ætti að vera ljóst hvað fælist á bak við umrædd fyrirtæki. Gat Björn þess t.d., að Framhald á bls. 13 Varðskipið Baldur I grennd við brezka freigátu á miðunum úti fyrir Norðausturlandi. Ægir klippti á báða togvíra Royal Lincs Þór risti á troll Resolution VARÐSKIPIÐ Ægir skar á báða togvfra brezka togarans Royal Lincs GY 18 kl. rúmlega 10 f gærmorgun. Atburðurinn átti sér stað djúpt úti af Gerpi. Fyrr um morguninn reyndi varðskipið Þór að skera á togvfra Ross Resolution GY 527, þar sem togarinn var á veiðum 26 sjómílur SA af Hvalbak. Togarinn hffði sem mest hann mátti er varðskipsins varð vart, og náði Þór aðeins að rffa trollið mjög mikið. Skipherra á Ægi er Þröstur Sigtryggsson, en á Þór Þorvaldur Axelsson. Þegar Ægir kom að togarahópn- um úti af Gerpi í morgun, reyndi freigátan Scylla að koma í veg fyrir að varðskipið kæmist nálægt togarahópnum. Yfirmaður frei- gátunnar hélt, að hann hefði í fullu tré við varðskipið og skoraði á togarana að halda áfram veiðum Bæjarstjórn Seltjarnarness: Lýsir stuðningi við stefnu ríkisstjómar í landhelgismálinu MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun bæjar- stjórnar Seltjarnarness um land- helgismálið, þar sem hún var samþykkt mótatkvæðalaust: „Bæjarstjórn Seltjarnarness lýsir stuðningi við stefnu rikis- stjórnarinnar í landhelgismálinu og telur skynsamlegt að reynt verði til þrautar að setja niður deiluna með samningum til skamms tima. Forsenda þess að svo megi verða er þó sú, að Bretar sýni raunhæfari samningsvilja en þeir hafa gert til þessa. Ljóst er, að sigur i landhelgismálinu vinnst því aðeins, að á málum sé haldið af skynsemd og rökfestu. Uppþot og æsingar eru eingöngu til þess fallin að spilla máli okkar meðal vinveittra þjóða og gætu skaðað málstað okkar á komandi hafréttarráðstefnu." Benedikt Gröndal og Magn- ús Torfi um stjórnmálaslitin MORGUNBLAÐIÐ sneri sér f gær til Benedikts Gröndals, for- manns Alþýðuflokksins, og Magnúsar Torfa Úlafssonar, formanns Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, og innti eftir áliti þeirra á stjórnmálaslitun- um við Breta. Ennfremur reyndi Mbl. ítrekað að ná í forystumenn Alþýðubanda- lagsins, þá Ragnar Arnalds og Lúðvfk Jósepsson, en það tókst ekki. Benedikt Gröndal sagði: „Þegar Bretar sendu herskipin að nýju inn I fiskveiðilandhelg- ina og beittu eins og áður áreitni og ásiglingum gegn ís- lenzku varðskipunum máttu þeir vita að viðbrögð fslendinga myndu verða alvarleg og fram- hald á slíkum árásaraðgerðum Benedikt Magnús Torfi gætu leitt til þess að fslending- ar myndu grípa til alvarlegra gagnráðstafana. Forsætisráð- herra hótaði þessu eftir fyrstu árekstrana. Sfðan hefur fram- kvæmd stjórnmálaslitanna verið frestað nokkrum sinnum og þar með gefinn tími aftur og aftur fyrir Breta og þá, sem reyna að miðla málum, að koma fram með nokkur þau samn- ingskjör sem við teldum hugsanlegan grundvöll frekari viðræðna. Þetta hefur ekki gerzt og því var óhjákvæmilegt annað en framkvæma stjórn- málaslitin. Viðbrögð hafa verið eins og búizt var við. Þetta er talið mjög alvarlegt skref og verður vonandi til þess að stytta tímann í það að andstæð- ingar okkar fari að skilja eðli þessa máls og sætta sig við að Islendingar eigi einir rétt á landhelginni.“ Magnús Torfi ölafsson svar- aði eftirfarandi: „Þetta er ráð- stöfun sem búin er að liggja í loftinu lengi, en varla er við þvi að búast að hún ein útaf fyrir sig muni breyta afstöðu brezku stjórnarinnar. En þó skal maður seint fortaka að ínenn Framhald á bls. 13 þótt varðskipið nálgaðist. Engu að siður tókst varðskipsmönnum að skjótast skamma stund frá frei- gátunni og það nægði til að skera á báða togvíra Royal Lincs. Að vonum varð skipstjóri togarans ekki beint kátur yfir þessu, sér- staklega þar sem skorað hafði verið á hann að halda áfram veiðum, þó svo að Ægir væri ná- lægur. Fékk yfirmaður freigát- unnar að heyra mörg vel valin orð, sem ekki er hægt að birta á prenti. Skömmu eftir að Ægir hafði skorið á togvírana bárust þær fréttir frá togaranum, að einn af skipverjum Royal Lincs hefði slasazt mikið við aó fá vír í sig um leið og Ægir skar á vírana. 1 Bret- landi var gert mikið úr þessu og tekið sem dæmi hve hættulegar togviraklippingar væru, eins og Þrefað um skólaþrif „VIÐ nemendur menntaskólans v/Hamrahlfð tókum þá ákvörðun á almennum fundi okkar að leggja niður nám til þess að mót- mæla verkfallsbroti hér í skól- anum. Verkfallsbrot þetta fór þannig fram, að nokkrir nem- endur þrifu skólann aðfararnótt 19. febrúar." Þannig hljóðar upp- haf fréttatilkynningar sem Framhald á bls. 13 Bretar hefðu ávallt haldið fram. Maðurinn, sem slasaðist, var siðan fluttur um borð i eftirlits- skipið Miröndu og þaðan bá^ust þær fréttir um kl. 12, að maður- inn hefði skrámazt aðeins á hendi og fengið vægt taugaáfall. Og ekki gengi meira að honum en það, að engin ástæða væri til að senda hann á sjúkrahús í landi. Gunnar Ölafsson, skipherra í stjórnstöð Landhelgisgæzlunnar, sagði í gær, að Ægir hefði skorið á virana mjög djúpt I sjó og vírarnir ekki slegizt upp. Aðeins komið smáslaki á þá. — Svona áróðurs- brögð af Breta hálfu eru viðbjóðs- leg, sagði Gunnar. Framhald á bls. 13 Kær£ milljónar- stuld — en mest af peningunum fannst í íbúðinni UM hádegisbil f gær kom maður nokkur til rannsóknar- lögreglunnar og skýrði frá þvf, að stolið hefði verið einni milljón f reiðufé úr íbúð hans. Tilgreindi hann ákveðinn mann, sem hann grunaði um þjófnaðinn. Féð kvaðst maðurinn hafa fengið fyrir sölu á fyrirtæki sem hann átti. Maðurinn var nokkuð við skál, og var því sögunni trúað mátulega. Þó var farið að kíkja eftir manni þeim, sem bent hafði verið á. Fannst hann i fangelsi lögreglunnar. Hafði hann verið tekinn fastur nóttina áður er hann var að reyna að troða sér inn um glugga hjá fyrrverandi eigin- konu sinni. I fórum mannsins voru 70 þúsund krónur og kvað hann það vera eftir- Framhald á bls. 13 Vestmannaeyjar: Eiga eftir að bræða 5000 lestir af ioðnu þeg- ar verkfallið skellur á Fiskimjölsverksmiðjan f Vest- mannaeyjum mun ekki ljúka við bræðslu á þeirri ioðnu sem er f þróm verksmiðjunnar áður en verkfall skellur á f Vestmanna- eyjum f kvöld. Verksmiðjan hefur ekki farið fram á undan- þágu til að Ijúka við bræðslu á þessu hráefni. Haraldur Gfslason, fram- kvæmdastjóri Fiskimjölsverk- smiðjunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að líklega yrðu 5000—6000 lestir af loðnu eftir á miðnætti þegar verkfallið skylli á, en verðmæti hráefnisins væri yfir 16 milljónir króna. Haraldur sagði, að verksmiðjan myndi ekki sækja um undanþágu til að bræða loðnuna. Loðnan væri rotvarin til hálfs mánaðar geymslu og menn yrðu að vona að búið yrði að leysa verkfallið þá. — Svona löng geymsla fer að sjálfsögðu mjög illa með hráefnið. Bæði rýrnar það og nýting á mjöli og lýsi verður ekki eins góð, sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.