Morgunblaðið - 20.02.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976
Allír barna- og unglingaskólar
á höfuðborgarsvæðinu lokaðir
Mikill óþrifnaður í afgreiðslusölum banka
SKÓLAR á höfuðborgarsvæðinu og reyndar vfðar um
land eru nú að lokast af völdum verkfallsins. t gær
var ákveðið, að kennsla f öllum barna- og unglinga-
skólum borgarinnar skyldi falla niður frá og með
deginum f dag og kennsla f menntaskólum og öðrum
æðri skólum mun sennilega falla með öllu niður eftir
helgi, hafi ekki tekizt samningar fyrir þann tfma.
Sömu sögu er að segja úr Hafnarfirði. Strætisvagnar
Reykjavíkur eiga f miklum erfiðleikum með að halda
uppi starfsemi, en þó hefur stofnunin aðeins getað
aukið hana. Á miðnætti s.l. átti að hef jast verkfall hjá
Starfsstúlknafélaginu Sókn, en þvf hefur verið frest-
IKi
'ItllHIIII
lllllltlttll
imiuuiii
‘‘Piniiiii
llliiililli!
II
m m
Allir barna- og unglingaskólar ( Reykjavfk og Kópavogi eru nú lokaðir af völdum verkfallsins.
að.
S.V.R. EYKUR
AÐEINS FERÐATlÐNINA
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið I gær, að þar sem fengizt
hefði undanþága fyrir einn
Vfða er mikil örtröð á blðstöð-
um S.V.R. endakomaivagnarn-
ir sjaldnar en áður.
mann til viðbótar á verkstæði
fyrirtækisins, væri hægt að
auka ferðatíðni lftillega. A
verkstæðinu væru nú starfandi
6 menn, en fyrst eftir að verk-
fallið skall á hefðu þeir verið 5.
Þá sagði Eirfkur, að búið
væri að ákveða ferðir S.V.R. um
helgina. I dag, föstudag, yrði
ekið á öllum leiðum á timabil-
inu frá kl. 7 árdegis til kl. 9,
samkvæmt tímatöflu laugar-
daga. Frá kl. 9 til kl. 15 yrði
ekið á leiðunum 3 — 10 — 11 og
12 samkvæmt sömu tímatöflu,
en síðan yrði ekið á öllum
leiðum frá kl. 15 til 19. Eftir
það yrði einungis ekið á
leiðunum 3 — 10 — 11 og 12 út
aksturstfmann og samkvæmt
sömu timatöflu.
Á morgun, laugardag, sagði
Eiríkur, verður einungis ekið á
umgetnum fjórum leiðum frá
kl. 9 til kl. 19 og samkvæmt
kvöldtímatöflu. A sunnudag
verður ekið á sömu leiðum og
þá einnig samkvæmt kvöld-
töflu.
SKÓLAR LOKAÐIR
Skúli Johnsen borgarlæknir
sagði f samtali við Morgun-
blaðið í gær, að heilbrigðis-
nefnd borgarinnar hefði
ákveðið þá fyrr um daginn, að
kennsla í öllum barna- og ungl-
ingaskólum borgarinnar skyldi
falla niður frá og með deginum
í dag. Væri þetta gert af heil-
brigðisástæðum.^én skólarnir
hefðu ekki verið ræstir síðan
verkfallið skall á.
Sagði Skúli, að það væri
menntamálaráðuneytið, sem
tæki ákvörðun um hvenær
kennsla f öðrum skólum borgar-
innar legðist niður og eftir því
sem hann hefði heyrt yrði það
strax á mánudag, ef málin
stæðu eins og nú.
Andrés Kristjánsson, fræðslu-
stjóri f Kópavogi, sagði, að þar
hefðu heilbrigðisyfirvöld
ákveðið að hætta kennslu í
barna- og gagnfræðaskólum frá
og með deginum í gær. Kennsla
í menntaskólanum hefði einnig
hætt þá. Þar hefði verið unnt að
kenna á morgun, en kennsla
félli niður af sjálfu sér, þar sem
mánaðarfrí hefði verið ákveðið
þar fyrir löngu.
Kristján Bersi Ólafsson,
skólameistari í Hafnarfirði,
sagði, að þar yrði kennt í dag,
hvað sem sfðar yrði. Það væru
heilbrigðisyfirvöld, sem tækju
ákvörðun um, hvenær kennslu
skyldi hætt og engin boð hefðu
enn komið frá þeim.
Þá sfmaði fréttaritari
Morgunblaðsins á Húsavfk f
gær, að ákveðið hefði verið að
hætta kennslu í skólum þar
vegna óþrifnaðar, sem skapazt
hefði.af völdum verkfallsins.
LOKAST BANKARNIR?
Margir hafa velt því fyrir sér
hvort bönkum verður lokað á
næstunni, þar sem þeir hafa
ekki frekar en skólar verið
þrifnir frá því á mánudag sl.
Morgunblaðið sneri sér til Ara
Guðmundssonar starfsmanna-
stjóra Landsbankans og spurði
hann hvort líklegt væri að
bönkum yrði lokað.
Ari sagði, að það hjálpaði til
að allir hefðu gengið mjög
þrifalega um, Iftið hefði verið
að gera f bönkunum síðan verk-
fall skall á og sfðast en ekki sfzt
hefði verið þurrt f veðri þar til í
gær, er fór að rigna.
— Annars eru það heil-
brigðisyfirvöld sem taka
ákvörðun um hvort loka beri
bönkunum vegna óþrifnaðar en
ekki við, sagði Ari.
Þá sagði hann, að ef bönkum
yrði lokað, ylli það ýmsum
vandræðum. Fólk gæti hvorki
komið til að greiða skuldir
sfnar né að taka út innstæðufé.
Ef loka ætti bönkunum, þyrfti
sennilega lagasetningu til.
Framhald á bls. 13
Aðeins búið að
frysta nokkur
hundruð tonn
ÞAÐ sem af er loðnuvertfð hefur
sáralftil loðna farið til frystingar.
Eftir þvl, sem Morgunblaðið
hefur komizt næst, mun frysting-
in aðeins nema nokkur hundruð
tonnum.
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, sagði f
gær, að eftir því sem hann bezt
vissi væru frystihús innan vé-
banda SH aðeins búin að frysta
um 250 tonn. Sennilega væri búið
að frysta langmest í Neskaupstað
eða um 150 tonn.
Ólafur Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sjávarafurða-
deildar Sambandsins, sagði, að
einhver frysting hefði átt sér stað
hjá þeim en engar haldbærar
tölur hefðu borizt enn.
Skákmótið á Spáni:
Guðmundur varð
í 4.-7. sæti
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
gerði jafntefli f sfðustu skák
sinni á alþjóðamótinu á Spáni við
Júan Manuel Bellon frá Spáni f
fjórtán leikjum og varð í 4.—7.
sæti ásamt Cicocaltea og Keene
með 7.5 vinning. Sigurvegari varð
bandarfski skákmeistarinn
Robert Byrne með 9.5 vinninga. 1
öðru sæti var Christiansen frá
Bandarfkjunum með nfu vinn-
Framhald á bls. 13
Hö&m komið tíl móts YÍð kröfur
launþega í veigamiklum atriðum
— segir Jón H. Bergs um stöðuna í kjaramálunum
„VIÐ höfum lagt fram þessa ákveðnu tillögu frá okkur til lausnar
þessari deilu," sagði Jón H. Bergs, formaður Vinnuveitendasam-
bands tslands, er Mbl. spurði hann um þær tillögur, sem vinnu-
veitendur lögðu fram f gærkveldi á sáttafundum á Loftleiðum og
greint er frá á baksfðu Mbl. f dag. „Forsendan fyrir þessum
tillögum okkar er að viðsemjendur okkar falli frá sérkröfum
einstakra stéttarfélaga og landssambanda ef undan eru skildar þær
sérkröfur, sem vinnuveitendur hafa þegar tekið undir að komi til
greina að samþykkja eða lagfæra."
„Við föllumst á miðlunartil-
lögu sáttanefndarinnar með
þeim fyrirvara þó, að við óskum
eftir þvf að samningstfminn
verði til 1. júní 1977 í stað 1.
marz eins og sáttanefndin hafði
gert ráð fyrir. I tillögu sátta-
nefndarinnar var gert ráð fyrir
13,6 til 16,5% kauphækkun f
áföngum og að hún verði öll
komin 1. október á þessu ári og
ennfremur að framfærsluvfsi-
talan tryggði Iaunþegum verð-
bætur á laun, ef hún færi fram
úr 585 stigum hinn 1. nóvember
frá og með 1. desember. Teljum
við að með þvf móti sé kaup-
máttur launanna tryggður fram
á árið 1977.“
„Við föllumst," sagði Jón H.
Bergs, „á verulegan hluta af
sameiginlegum sérkröfum
aðildarfélaga Alþýðusambands-
ins. Þar má nefna, að greiðslur
fyrir slysa- og atvinnusjúk-
dómatilfelli skuli vera með
óskertu kaupi í fjórar vikur f
stað einnar viku lágmarks nú.
Þá höfum við fallizt á hækkun
fjárhæða fyrir slysa- og dánar-
bætur til samræmis við kaup-
gjald, en núverandi tölur eru
frá 1974. Við höfum fallizt á að
fastir starfsmenn varðandi or-
lofslaun skuli teljast þeir sem
hafi minnst eins mánaðar
uppsagnarfrest og einnig höf-
um við fallizt á með vissum
skilyrðum, að launþegar, sem
veikjast alvarlega í orlofi
ákveðinn dagafjölda, skuli eiga
rétt til orlofslengingar, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Þá má einnig nefna, að áunnin
réttindi starfsmanns, sem sagt
hefur verið upp t.d. vegna sam-
dráttar skuli haldast, ef hann
er endurráðinn innan eins árs.“
„Þetta eru aðalatriði þessarar
tillögu okkar og að okkar mati
mjög mikilvæg auk kauptrygg-
ingarinnar og samkomulags um
vissar verðbætur á iífeyri, sem
frá hefur verið skýrt opinber-
lega“, sagði Jón H. Bergs og
bætti þvf við, að rétt væri sem
fram hefði komið, að lífeyris-
málin væru sameiginlegt
áhugamál beggja samnings-
aðila og hefði verið lengi.
Vinnuveitendasambandinu
hefði lengi verið Ijóst að stuðla
ætti að þvf að lffeyrir lffeyris-
þega úr einkarekstri mætti
Jón H. Bergs, formaður Vinnu-
veitendasambands lslands.
ekki vera lakari en lffeyrir lff-
eyrisþega, sem starfað hefðu
hjá hinu opinbera. „Þetta mis-
ræmi verður ekki lagað f einu
vetfangi. Það verður að gerast
f áföngum og um það eru báðir
aðilar vinnumarkaðarins sam-
mála.“ Sfðan sagði Jón H.
Bergs:
„Af þessari upptalningu sést
að vinnuveitendur hafa komið
mjög til móts við kröfur laun-
þega f veigamiklum atriðum og
við væntum þess, að viðsemj-
endur okkar geri sér grein fyrir
því að greiðsluþoli atvinnuveg-
anna eru takmörk sett og að
þeir sætti sig'viðþær kjarabæt-
ur , sem við höfum boðið. Við-
semjendur okkar hafa jafn-
framt tjáð sig samþykka þvf að
koma til móts við ýmsar sameig-
inlegar sérkröfur vinnuveit-
enda, þvf að auðvitað höfum við
sett fram atriði, sem þurfa lag-
færingar við af fenginni
reynslu. Þessi atriði snerta þó
yfirleitt ekki launagreiðslur
eða launatengd gjöld.“
Þá spurði Morgunblaðið Jón
H. Bergs, hverju hann vildi
svara þeim ákúrum, að seina-
gangur hefði verið á afgreiðslu
vinnuveitenda á tillögum sátta-
nefndarinnar. Hann sagði:
„Það er ljóst að ekki er ein-
göngu við vinnuveitendur að
sakast um seinagang á lausn
þessarar deilu. Við höfum
svarað tillögum á eðlilegum
tfma. Við sögðum t.d. strax, að
tillagan feldi í sér of mikil
launagjöld við núverandi að-
stæður. Hins vegar var henni
aldrei hafnað og hún hefur
verið til afgreiðslu hjá báðum
aðilum, þótt ekki hafi verið
unnt að gefa henni fullnaðaraf-
greiðslu m.a. vegna þess að full-
trúar ASt lýstu henni sem óað-
gengilegri og allt of lágri. Deil-
an snýst í raun um það hve
mikið unnt er að leggja á at-
vinnureksturinn. Við hfjfum
varað við því að boginn yrði
spenntur um of og okkur langar
ekki til þess að liggja undir
ákúrum um að hafa rasað um
ráð fram — að hafa gert verð-
bólgusamninga með þeim
hrikalegu afleiðingum, sem
slfkt getur haft f för með sér
fyrir alla landsmenn," sagði
Jón H. Bergs að lokum.