Morgunblaðið - 20.02.1976, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976
LOFTLEIDIR
TT 2 1190 2 11 88
BÍLALEIGAN
p;;
i < i
(c*
VfelEYSIRot
CAR Laugavegur 66 [jt i >
RENTAL 24460
28810 nf
Utvíirpog stereo kasettutæki
FERÐABÍLAR hf.
Bílaleiga, sími 81260.
Fðlksbílar — stationbilar —
sendibilar — hópferðabílar
Mismunun eftir
kynjum útrýmt
úr kennslubókum
FRÆÐSLURAÐ Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum9. febrú-
ar með 5 samhljóða atkvæðum
svohljóðandi tillögu frá Elínu
Pálmadóttur og Aslaugu Friðriks-
dóttur:
„Fræðsluráð Reykjavíkur bein-
ir því tii stjórnar Ríkisútgáfu
námsbóka, að nú þegar verði haf-
izt handa um endurskoðun á
kennslubókum grunnskóla, í
þeim tilgangi að útrýma hvers
konar mismunun eftir kynjum i
texta og myndaefni, svo að ávallt
séu tiltækar endurskoðaðar bæk-
ur þegar þarf að endurnýja þær.
Jafnframt beinir fræðsluráð
Reykjavíkur þvi til Skólarann-
sóknadeildar menntamálaráðu-
neytisins að nýtt kennsluefni
verði gert á sama hátt.“
Alltá
floti á
Akureyri
Akureyri — 16. febrúar
SNJÓKOMA var hér framan af
degi en skömmu eftir hádegi
tók að hvessa af suðri og
hlýnaði ört með vaxandi rign-
ingu. Af þessu hlauzt mikið
flóð víða um götur og sums
staðar runnu straumþungir
lækir eða öllu heldur ár eftir
götum og gangstéttum þannig
að ekki varð fært öðrum en vel
stfgvéluðum mönnum. Margar
götur voru svellaðar undir svo
að hálkan var gffurleg ekki
sfzt þegar stormurinn jók enn
á vandræðin. 1 kvöld var
komið stórt stöðuvatn kringum
Ráðhústorg og verkamenn frá
bænum unnu kappsamlega að
þvf að halda opnum niðurföll-
um og dæla burtu vatninu svo
að ekki rynni inn f hús og ylli
skaða. Þegar leið á kvöldið dró
úr regninu og horfur eru á að
vatnsaginn minnki.ekki sfzt ef
hann snýst f norðvcstrið með
frosti og kólnandi veðri eins
og spáð er.
— Sv.P.
Nýr borgar-
gjaldkeri
Á fundi sínum 10. febrúar sam-
þykkti borgarráð Reykjavíkur aó
ráða Jón Rósmundsson i stöðu
borgargjaldkera frá 1. feb. 1976
að telja. Jón hefur starfað hjá
Reykjavíkurborg í um 40 ár þar af
30 ár á skrifstofunum og gegndi
starfi Jóns B. Jónssonar borgar-
gjaldkera í veikindaforföllum
hans.
Ulvarp Reykjavík
__________M*.___1___
FOSTUDbGUR
20. febrúar
MORGUNNINN_________________
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund harnanna kl.
9.15: Sigurður Gunnarsson
heldur áfram sögu sinni
„Frændi segir frá“.
Tilkynningar kl. 9.30
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða.
Spjallað við bændur kl. 10.05
Ur handraðanum kl. 10.25:
Sverrir Kjartansson sér um
þáttinn.
Morguntónleikar kl 11.00:
Cassenti hljóðfæraleikar-
arnir leika Svftu fyrir
klarfnettu, fiðlu og pfanó
eftir Milhaud / Margit
Weber og Sinfónfuhljóm-
sveit útvarpsins í Berlfn
leika Konsertfnu fvrir pfanó
og hljómsveit eftir Hon-
egger; Ferene Fricsay stjórn-
ar / Claude Corbeil syngur
Fjóra söngva eftir Guy-
Roparts við 1 jóðaflokkinn
„Intermezzo" eftir Heine;
Janine Lachance leikur á
píanó / Roger Bourdin Col-
ette Lequien og Annie
Challan leika Sónötu fvrir
flautu, lágfiðlu og hörpu
eftir Debussy.
12.00 Dagskráin Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Sú
aftansól" eftir William
Faulkncr Kristján Karlsson
fslenzkaði. Elfn Guðjóns-
dóttir les sfðari hluta.
15.00 Miðdegistónleikar Rena
20. febrúar 1976.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýs-
ingar.
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni
Umsjónarmaður Svala
Thorlacíus.
21.30 Ur sögu jassins
7. þáttur.
t þessum þætti er greint frá
þróun jassins á árunum um
og eftir heimsstyrjöldina
síðari. Meðal hljómlistar-
manna, sem koma fram, má
nefna Dizzie Gillespie,
Charlie Parker, Stan Getz,
Lee Konitz o.fl.
V_____________________________
Kyriakou leikur pfanótónlist
eftir Chabrier. Jörg Demus
og Barylli strengjakvartett-
inn leika Kvintett f Es-dúr
op. 44 eftir Schumann.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Utvarpssaga barnanna:
„Njósnir að næturþeli" eftir
Guðjón Sveinsson Höfundur
les (7).
17.30 Tónleikar Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
Þýðandi Jón Skaptason.
(Nordvision-Danska sjón-
varpið)
22.00 Seint fyrnast fornar
ástir
(That Certain Feeling)
Bandarfsk gamanmynd frá
árinu 1956.
Aðalhlutverk Bob Hope, Eva
Maria Saint og George
Sanders.
Frægur myndasöguteiknari
ræður til sfn starfsmann
samkvæmt meðmæium
einkaritara sfns, sem er
fyrrverandi eiginkona nýja
starfsmannsins.
Þýðandi Brfet Héðinsdóttir.
23.40 Dagskrárlok.
FÖSTUDKGUR i
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Guðni
Kolbeinsson flytur þáttinn.
19.40 Þingsjá Umsjón: Kári
Jónasson.
20.00 Frá sfðustu vorhátfð f
Vinarborg
a. Hermann Prey syngur lög
eftir Schubert; Leonard
Hokanson leikur á pfanó.
b. György Cziffra leikur á
pfanó fjögur Impromptu
eftir Chopin.
20.50 Svipleiftur úr sögu
Tyrkjans Sverrir Kristjáns-
son sagnfræðingur flytur
erindi: Sjúklingurinn við
Sæviðarsund. Þetta er fyrsta
erindið af fjórum sem Sverr-
ir flytur í framhaldi af
erindaflokki í árslok 1974.
21.15 Þrjú lög fyrir fiðlu og
pfanó eftir Helga Pálsson
Björn Olafsson og Árni
Kristjánsson leika.
21.30 Utvarpssagan: „Kristni-
hald undir Jökli“ eftir
Halldór Laxness Höfundur
les (12).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passfusálma (5)
22.25 Dvöl Þáttur um
bókmenntir. Umsjón: Gylfi
Gröndal.
22.55 Áfangar Tónlistarþáttur
f umsjá Ásmundar Jónssonar
og Guðna Rúnars Ágnars-
sonar.
23.40 Fréttir Dagskrárlok.
Kastljós í kvöld:
Verkfallsmál og
eignarréttur
á landinu
Klukkan 20.40 er Kast-
ljós að venju og er Svala
Thorlacius umsjónar-
maður. Fyrri helmingur
þáttarins mun fjalla um
verkfallsmálin og sér
Freysteinn Jóhannsson
ritstjórnarfulltrúi um þá
hlið málsins ásamt Svölu.
Þau fóru meðal annars á
verkfallsskrifstofur og
ræddu við starfsmenn
þar, fóru i útkall i mat-
vöruverzlun, þar sem
verkfallsbrot var til-
kynnt og var rætt við við-
komandi kaupmann og
fleira. Vilhelm G. Krist-
insson fréttamaður verð-
ur með samanburð á
kaupmætti launa nú og
fyrir síðustu samninga
og fleira sem á þeirri
spýtu hangir. Mun hann
fá viðmælendur til aó
ræða málið, en ekki var í
gær fullákveðið hverjir
þeir yrðu. Aö lokum
verður svo Svala með
umfjöllun á eignarétti á
landinu, en það mál hef-
ur jafnan skotið upp kolli
öðru hverju. Til viðræðu
fær hún Benedikt Grön-
dal alþm., en Alþýðu-
flokkurinn hefur flutt
þingsályktunartillögu
um efni þetta á síðustu
þingum og Ölvir Karls-
son, bónda í Þjórsártúni,
og að líkindum Sigurð
Líndal prófessor.
Leiörétting
1 dálkinum kom fram, að Aðal-
steinn Ingólfsson hefði verið
settur framkvæmdastjóri Kjar-
valsstaða. Það er ekki rétt.
Aðalsteinn hefur verið ráðinn
listfræðingur að Kjarvals-
stöðum og er jafnframt fram-
kvæmdastjóri Listráðs. P'or-
sröðumaður Kjarvalsstaða er
eftir sem áður Alfreð
Guðmundsson og verður áfram
framkvæmdastjóri hússtjórnar
Kjarvalsstaða. Leiðréttist þetta
hér með.
„Seint
fgrnast
fornar
ástir”
FÖSTUDAGSMYNDIN
„That Certain Feeling“
sem kölluð er Seint fyrn-
ast fornar ástir, fær þrjár
og hálfa stjörnu í kvik-
mynda handbókinni og
er þar tekið fram að þetta
sé með betri og skemmti-
legri Bob Hope myndum.
Meó önnur stór hlutverk
fara Eva Marie Saint og
George Sanders.
Á myndinni er Bob
Hope ásamt Shirley Ross
í einni eldri mynda hans
„The Big Broadcast of
1938“.