Morgunblaðið - 20.02.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.02.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976 5 Krabbameinsfél. Rvk herðir sóknina gegn sígarettureykingum Gunnlaugur Snædal endurkjörinn formaður Júllus S. Ölafsson, framkvæmdastjóri F.l.S. I ræðustól. Hann gerði á fundinum grein fvrir starfsemi skrifstofu félagsins og samstarfi innan verzlunarinnar. Aðalfundur stórkaupmanna: Tekin verði upp ný stefna í verðlagsmálum hið fyrsta AÐALFUNDUR Félags Islenzkra stórkaupmanna var haldinn sfðast- liðinn laugardag. A fundinum voru samþvkktar nokkrar álvktanir um málefni verzlunarinnar og er í þeim meðal annars átalinn sá dráttur, sem stórkaupmenn segja að orðinn sé á að tekin verði upp ný stefna í verðlagsmálum hér á landi og skoraði fundurinn á rfkisstjórnina að framfylgja hið fyrsta hinni yfirlvstu stefnu sinni um endurskipan verðlagsmála. Að lokum aðalfundinum fór fram vfgsla á nvrri félags- aðstöðu á tveimur efri hæðum húss félagsins í Tjarnargötu 14 en gagngerar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu. I upphafi fundarins minntist Jón Magnússon, formaður félags- ins, látinna félagsmanna, þeirra Braga Ölafssonar, Gunnars Kvaran, Jóns Bjarna Kristins- sonar, Stefáns Thorarensen og Valgarðs Stefánssonar. Þrír nýir menn voru kjörnir í stjórn félags- ins, þeir Arni J. Fannberg, Ólafur Kjartansson og Rafn Johnson. Fyrir í stjórninni voru Jón Magnússon, formaður, Agúst Ár- mann, Gunnar Kvaran og Jóhann J. Ölafsson. A fundinum var einnig kjörið í fastanefndir fé- lagsins. Eins og áður sagði tók félagið nú í notkun nýja félagsað- stöðu í húsi sínu í Tjarnargötu 14 og hafa framkvæmdir við breyt- ingar á húsinu verið unnar í sam- ræmi við frumteikningar af hús- inu frá 1912 og m.a. verið settir nýir gluggar á það í samræmi við upphaflegu teikninguna. I tilefni af þessum tímamótum í húsnæðismálum félagsins voru sérstaklega heiðraðir þeir Páll Þorgeirsson, KristjánG. Gíslason, Árni Gestsson, Kristinn Bergþórs- son og Kristján Þorvaldsson, og afhenti Jón Magnússon þeim gull- merki F.l.S. Aðalfundur F.I.S. gerði eins og áður sagði nokkrar samþykktir um málefni verzlunarinnar. 1 ályktun um frjálsa verzlun og inn- flutningshöft er skorað á ríkis- stjórnina að halda fast við það stefnumark, sem ákveðið var í málefnasamningi hennar, að frelsi ríkti i utanríkisverzlun landsmanna. Minnt er á að jafn- vægi og stefnufesta í innflutn- ings- og gjaldeyrismálum stuðlar að bættum viðskiptakjörum út á við en jafnvægisleysi og sífelldar bráðabirgðaráðstafanir skapa aðeins vantrú á islenzkum inn- flytjendum, eins og segir i sam- þykkt stórkaupmanna. Samþykkt- ar voru ályktanir um lánsfjármál verzlunarinnar, aðild F.l.S. að Verzlunarráði íslands, greiðslu- frest á aðflutningsgjöldum, gjald- eyrismál og skattalega meðferð birgða. Hér fer á eftir samþykkt aðal- fundarins um verðlagsmál: Aðalfundur F.I.S. 1976 átelur þann drátt sem orðið hefur á því að breytt sé um stefnu i verðlags- málum hér á landi og skorar á rikisstjórnina að framfylgja hið fyrsta hinni yfirlýstu stefnu sinni um endurskipan verðlagsmála. Það er nú almennt viðurkennt, að núverandi verðlagsákvæði stuðla ekki að lægra verðlagi heldur hvetja þau þvert á móti til óhagstæðra innkaupa. Núverandi skipan verðlagsmála Leiðrétting 1 AFMÆLISGREIN mína um Jóhann Rafnsson á dögunum slæddist sú villa, að hann væri fæddur i Grundarfirði. — Það rétta er að hann er fæddur í Reykjavík. — Fjölskylda hans fluttist í Grundarfjörð og siðar til Stykkishólms. Jóhann vill láta leiðrétta það að hann sé driffjöðrin í þvi að koma hér upp byggðasafni, eins og ókunnugir gætu kannski ályktað af greininni, það ágæta starf séu allt aðrir menn viðriðnir. Ég get gengizt inn á þetta við Jóhann vin minn, en ég tek ekki of djúpt i árinni þótt ég segi, að þeir, sem með uppbyggingu safns- ins hafa að gera, eigi hauk í horni þar sem hann er. Arni Helgason. er þvi Þrándur i Götu efnahags- framfara hér á landi og ber því að ryðja henni úr vegi. Islenzk verzlunarstétt óskar aðeins eftir jafnrétti og eðlilegum starfsskilyrðum í verðlagsmálum á við aðrar atvinnugreinar, um leið og hún krefst viðurkenningar hins opinbera á mikilvægi starfa sinna í þágu þjóðarbúsins og hagsmuna hins almenna neyt- anda. Við það verður því ekki unað öllu lengur að mikilvægu hags- munamáli stéttarinnar sé ýtt til hliðar æ ofan i æ, með tilheyrandi samdrætti í þeirri verzlunar- þjónustu sem stéttin megnar að veita og er nú þegar orðin veru- lega minni en þykir eðlilegt og hæfilegt í nálægum löndum. AÐALFUNDUR félagsins var haldinn 16. febr. Formaður fé- lagsins, Gunnl. Snædal læknir, flutti þar skýrslu stjórnarinnar um starfið á sfðasta ári. Fram kom, að helstu viðfangsefni fé- lagsins hafa eins og undanfarin ár verið fjáröflun fyrir krabba- meinssamtökin og fræðslustarf- semi. Fjár er að mestu levti aflað með happdrætti, sem haldið er tvisvar á ári. A vorin eru miðar sendir heim til fólks úti á landi en á haustin til íbúa á Stór- Reykjavfkursvæðinu. Hafa lands- menn sýnt skilning á nauðsvn þessarar fjáröflunar félagsins og veitt stuðning, sem félagið getur ekki án verið. Framlag Krabba- meinsfélags Reykjavfkur til Krabbameinsfél. tslands fvrir árið 1975 nam rúml. 4.1 millj. kr. Rennur það beint til rekstrar leitarstöðva og tengdra starfa. I árslok 1975 hætti Jón Oddgeir Jónsson framkvæmdastj. starfi hjá félaginu. Voru honum færðar á fundinum þakkir fyrir langt og giftudrjúgt starf sem fram- kvæmdastjóri og erindrekí félags- ins. Nýr framkv.stj. hefur verið ráðinn og er það Þorvarður Örn- ólfsson lögfræðingur. Flutti hann erindi um markmið og leiðir í baráttunni gegn reykingum, sem er hvarvetna viðurkennd sem eitt allra mikilvægasta verkefnið á sviði heilbrigðismála. Hefur Krabbameinsfélag Rvíkur að undanförnu beitt sér fyrir að auka og skipuleggja andóf gegn reykingum, einkum f skólum landsins. I þessu sambandi var einróma samþykkt á fundinum ályktun, sem hér fer á eftir, en kveikjan að henni er grein, sem Bjarni Bjarnason læknir ritaði í síðasta tbl. Fréttabréfs um heil- brigðismál. Ályktunin er svohljóðandi: „Aðalfundur Krabbameinsfé- lags Reykjavikur, haldinn 16. febrúar 1976, minnir á og þakkar ómetanleg störf islenzkra kvenna og samtaka þeirra i þágu heil- brigðis-, mannúðar- og menn- ingarmála og treystir enn á stuðn- ing þeirra við starfsemi krabba- meinsfélaganna í landinu. Jafnframt minnir fundurinn á, hve nú er brýn þörf fyrir víðtæka sókn gegn sígarettureykingum, þeim vágesti, sem læknar og heil- brigðisstofnanir staðhæfa að sé veigamesta orsök veikinda og dauðsfalla, sem unnt væri að sneiða hjá. Leyfir fundurinn sér að taka undir orð hins nýlátna, ötula bar- áttumanns um heilsugæslu, Bjarna Bjarnasonar læknis, að nú standi íslenskum konum ,,opið tækifæri til að vinna stórvirki með samtakamætti sínum" og heitir á þær, félög þeirra um land allt og heildarsamtök að taka'upp markvissa baráttu gegn reyk- ingum.“ Gunnlaugur Snædal læknir var einróma endurkjörinn formaður, svo og þeir stjórnarmeðlimir, sem áttu að ganga úr stjórninni skv. lögum félagsins. Stjórnina skipa nú, auk Gunn- laugs: Frú Alda Halldórsdóttir, hjúkr.fr. — Baldvin Tryggvason, framkv.stj. — Guðm. S. Jónsson, dósent — Jón Oddgeir Jónsson frv. framkv.stj. — Páll Gislason, Framhald á bls. 16 Aðalfundur Félags ísl. stórkaupmanna var fjölsóttur. Hér sést hluti fundarmanna. ÓKEYPIS! Tveggja mínútna leitin Allt sem þú þarft að gera er: að skrifa okkur á bréfsefni fyrirtækis þíns og segja okkur hvaða vörum þú þarft á að halda og nota. Segðu okkur hvort fyrirtæki þitt notar það sjálft eða er söluaðili. Segðu okkur einnig frá banka fyrirtækisins eða aðra erlenda viðskiptaaðila, venjulegar greiðsluaðferðir (letter of credit eða annað) og þær upplýsingar sem máli skipta fyrir seljanda. Er okkur berast spurningar þínar komum við þeim áleiðis til fyrirtækja í New York ríki sem gætu þjónað yður bezt. Þeir munu síðan skrifaþér beint. Á stuttum tima getur þú eignast traust viðskiptasambönd við framleiðendur í New York riki. Sendið bréf flugleiðis til: New York State Department of Commerce, International Division, Dept. LLFP, 230 Park Avenue, New York, New York 10017, U.S.A. Fyrirspurnarbréf á ensku ganga betur fyrir sig. NEW YORK STATE yTaT/ "’M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.