Morgunblaðið - 20.02.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976
7
Varðlæknis-
þjónusta
og neyðarvakt
f gær var lögð fram i
borgarstjórn Reykjavíkur
af borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins athyglis-
verð tillaga um varð-
læknisþjónustu og
neyðarvakt en þau mál
hafa verið mjög á dagskrá
almennings undanfarið.
Tillaga borgarstjórnar-
flokksins var svohljóð-
andi:
„Borgarstjórn Reykja-
víkur beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til
stjórnar Sjúkrasamlags
Reykjavikur og stjórnar
Læknafélags Reykjavikur,
að eftirfarandi úrbætur
verði hið fyrsta gerðar á
varðlæknisþjónustu og
neyðarvakt lækna I
borginni:
0 1. að læknum á
kvöldvakt, næturvakt og
helgidagavakt verði
fjölgað i tvo.
0 2. að sérþjálfað starfs-
lið, helzt hjúkrunar-
fræðingur eða læknir,
annist að staðaldri sima-
vözlu varð- og neyðar-
þjónustunar allan sólar-
hringinn."
Þjónustuálagið
hefur vaxið
verulega
f greinargerð með
tillögunni segir m.a.:
„Siðastliðin 20 ár hefur
varðlæknisþjónustan i
borginni verið óbreytt,
þannig að einn læknir
hefur verið á vakt i senn á
kvöldin, um nætur og á
helgum. Á þessu tlmabili
hefur ibúum borgarinnar
fjölgað úr rúmlega 60
þús. i 85 þús., eða rúm-
lega 40%. Það, sem þó
ekki sizt verður að taka
tillit til i þessu sambandi
er hin mikla útþensla
borgarinnar með tilkomu
nýrra hverfa, Árbæjar og
Breiðholts. og mjög
mikilli fólksfjölgun á Sel-
tjamarnesi. Auk þessa
hefur Kópavogskaupstað
verið þjónað af vaktinni
héðan úr Reykjavik og á
þessu timabili vaxið úr
þorpi i kaupstað með hátt
i 13 þús. ibúa.
Vegalengdir þær sem
vaktin þarf að komast yfir
hafa vaxið mjög mikið og
Ibúafjöldinn, sem þarf að
þjóna, aukizt um 50%.
Vaxandi umferðarþungi i
borginni hlýtur og að
valda töfum fyrir bifreið
vaktarinnar og eykur það
enn á þann tima, sem
tekur að flytja lækninn
milli hverfa I borginni."
Vitjunarbeiðnir
hlaðast upp
„Álag á vaktina er mest
á kvöldin og á helgidög-
um. Jafnvel þótt ekki séu
sérstakir veikindafar-
aldrar i borginni vilja
hlaðast upp vitjanabeiðnir
og þvi algengt að liði
2—3 klst. þar til hægt er
að sinna beiðni um vitjun.
Sé mikið álag á vakt-
lækninum, verður hann
að vinna i óæskilegu
kapphlaupi við timann, og
getur hann aðeins verið
lágmarkstima við hvert
tilfelli. Það væri æskilegt,
að vaktlæknir hefði það
rúman tima að hann gæti
fylgt mikið veiku fólki i
sjúkrabifreið á spitala, t.d.
hjartatilfellum, enda eru
bifreiðamar útbúnar
þannig að hægt er að
veita mikilvæga meðferð
meðan á flutningi
stendur.
Þegar veikindafaraldrar
ganga i borginni eru að
sjálfsögðu mun ffeiri
vitjanabeiðnir en venju-
lega geta jafnvel orðið
50—60 á kvöldvakt og
hefur þá sá háttur verið
hafður á að simavarzla
hefur óskað aðstoðar frá
fleiri læknum. Er það að
sjálfsögðu undir ýmsu
komið, hvernig tekst að
ná fleiri lækna á vaktina,
þar sem ekki er um skipu-
lagða bakvakt að ræða."
Þjónustuálma
Borgarspítalans
„Simavarzla vaktar-
innar gegnir mjög mikil-
vægu hlutverki s.s. við
öflun upplýsinga um hvert
sjúkdómstilfelli. Verður
ávallt nauðsynlegt að
meta hversu bráð tilfelli
er um að ræða og raða
vitjunum eftir því. Yrði
þetta jafnnauðsynlegt
þótt læknum yrði fjölgað.
Simavarzla vaktarinnar
gæti og gegnt mikilvægari
upplýsinga- og ráðgjafar-
þjónustu fyrir fólk sem á i
vandræðum sakir
veikinda. Til þess að sinna
þessari þjónustu er nauð-
synlegt að faglærðir aðilar
annist simavörztu.
Með tilkomu þjónustu-
álmu Borgarspitalans
verður mögulegt að skipu-
leggja alla bráðaþjónustu
i tengslum við heilsu-
gæzlustöð og slysadeild
og er þvi nauðsynlegt að
hraðað verði svo sem
kostur er byggingu
hennar.
f millitiðinni er þó nauð-
synlegt að úrbætur þær
sem tillagan gerir ráð fyrir
komist I framkvæmd sem
fyrst og þolir það mál ekki
bið."
FREMSTA röð frá vinstri: Garðar Cortes skólastjóri, Michael Head F.R.A.M. prófdómari og Crystyna
Cortes undirleikari.
Fremri röð standandi frá vinstri: Þórunn Halla Guðlaugsdóttir, Ingunn Ragnarsdóttir, Matthildur
Matthíasdóttir, Kolbrún Ásgrfmsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Sigrún Andrésdóttir, Dóra Reyndal,
Elfsabet F. Eirfksdóttir.
Aftari röð, standandi f.v.: Asrún Davfðsdóttir, Þórdfs A. Þorvarðardóttir, Hrönn Hafliðadóttir,
Gunnar Björnsson, Kristfn Sædal Sigtryggsdóttir, Aiice Boucher, Eyjólfur Ölafsson, Unnur Jensdótt-
ir, Valgerður Gunnarsdóttir og Ragnheiður Eria Bjarnadóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Ásbjörns-
dóttur. Ljósmynd Mbl. RAX.
Þreyttu alþjóðlegt
söngpróf við Laufásveginn
19 NEMENDUR Söngskólans í Reykja-
vík tóku fyrir skömmu 5. stig söngprófs
við skólann, en söngskólinn byggir á
sömu prófstigum og Konunglegi brezki
tónlistar- og söngskólinn í London. Er
þar um 8 stig að ræða, en 8. stigið, sem
er lokapróf, er gjarnan stökkpallur
fyrir fólk inn í æðri tónlistarskóla víða
um heim, því prófin frá þessari náms-
skrá gilda í tónlistarskóla um allan
heim. Er þetta í fyrsta sinn, sem þetta
próf er þreytt hér á landi. Konunglegi
brezki tónlistarskólinn sendir prófdóm-
ara hingað til Söngskólans og sá sem
kom í fyrsta sinn heitir Michael Head.
Skákmót ímiðri byltingu
Portúgalir hafa aldrei verið
taldir meðal „skákþjóða" og
fram til þessa hefur land þeirra
verió einna þekktast i skák-
sögunni sem landið, þar sem
Aljekín dó. Mitt í öllu
byltingarfarganinu síðastliðið
haust héldu Portúgalsmenn
hins vegar allsterkt skákmót á
sólarströndinni við Algarve og
buðu heim ýmsum velþekktum
meisturum. Urslit mótsins urðu
sem hér segir: 1. L. Evans
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
(U.S.A.) 7,5 v. 2. N. Weinstein
(U.S.A.) 7 v„ 3. — 6. V. Chekov
(Sovétr.), J. Donner (Holland),
R. Calvo (Spánn) og R. D.
Keene (Engl.) 6.5 v., 7. G.
Garcia (Kúba) 6v., 8. F. Silva
(Portúgal) 5,5 v., 9.—10. Ju.
Averbach! (Sovétr.) og 0.
Rodriguez (Perú) 5 v., 11.
Duran (Portúgal) 2,5 v., og 12.
L. Santos Portúgal 1,5 v.
Hið eina sem virkilega kemur
á óvart er hinn slaki árangur
sovézka stórmeistarans
Averbach, en þess ber að gæta,
að hann hefur lítið teflt á mót-
um um langa hrið. Larry Evans
Framhald af bls.7
&
DUNLOP
Lyftaradekk
23X5 600X9 250X15
25X6 700X9 550X15
27X6 650X10 600X15
18X7 750X10 700X15
29X7 825X10 750X15
500X8 27X10—12 825X15
21 X8—9 700X12 1000X15
AUSTURBAKKIf
Sími 38944
30107.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Fjármálastjórn fyrirtækja
H ver er fjárhagsleg aðstaða fyrirtækisins.
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði í fjármálum I 23. febrúar til 1.
marz n.k. að Skipholti 37. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 1 5.00 til kl.
19.00 mánud. 23. febrúar, þriðjudaginn 24. febrúar, miðvikud. 25.
febrúar föstud. 27. febrúar og mánud. 1. marz.
Markmið þessa námskeiðs er að veita þjálfun í að meta afkomu og
fjárhagslega stöðu fyrirtækis og að auki að kynna gerð fjárhagsáætlana
(budgeting), þ.e.a.s. áætlana um rekstrarafkomu, um sjóðshreyfingar
og um þróun efnahags fyrirtækja.
Athyglinni verður beint fyrst og
fremst að ársreikningum (rekstrar-
og efnahagsreikningi) fyrirtækja og
kannað, hvert gagn megi af þeim
hafa og i hverju þeim sé áfátt. Eftir
upprifjun í bókhaldstækni verður
gerð grein fyrir tækni við rannsóknir
á ársreikningum og tækni við
samningu yfirlits um fjármagns-
streymi.
Þá kemur lýsing og gagnrýnið mat á hefðbundnum meginreglum sem
fylgt er við samningu ársreikninga og lýst tækni, sem beita má til að
leiðrétta það vegna áhrifa verðlagsbreytinga.
Nauðsynlegt er fyrir þátttakendur að hafa bókhaldsþekkingu. Nám-
skeiðið kemur að góðu haldi öllum, sem fást við fjármál.
Leiðbeinandi verður
Árni Vilhjálmsson prófessor
Þátttaka tilkynnist í síma 82930
Þetta er rétta námskeiðið fyrir þá sem standa í ársuppgjöri.
UTSOUJ-
SS^í*,
I □
ENN BETRI KJÖR,
EN Á VETRAR
ÚTSÖLUNNI
ALLT NÝJAR OG
NÝLEGAR VÖRUR
ÓTRÚLEGT
VÖRUÚRVAL
LÁTIÐ EKKI HAPP
ÚR HENDI SLEPPA
er að
Laugavegi
66
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
feKARNABÆR
Útsölumarkaöurinn.
Utsölumarkaðurinn,
Laugavegi 66, sími 28155