Morgunblaðið - 20.02.1976, Síða 27

Morgunblaðið - 20.02.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976 27 Stenmark hlaut Volvo-bikarinn EINS og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í . gær var Ingemar Sténmark, skíðamaður frá Sví- þjóð, valinn „Iþróttamaður Norðurlanda" árið 1975 og hlýt- ur hann hinn eftirsóknarverða veðlaunagrip sem VOLVO- verksmiðjurnar i Svíþjóð gefa og félag Ingemars Stenmarks i Svíþjóð fær að auki 6000 krónur sænskar sem verja á til uppbyggingar íþróttastarfsins og þá sérstaklega til unglinga- starfs innan þess. Val Ingemars Stenmarks var ákveðið á fundi formanna íþróttafréttamannasamtaka á Norðurlöndum, sem haldinn var í Gautaborg í Svíþjóð í fyrrakvöld. Fulltrúi Islands á þeim fundí var Jón Ásgeirsson, formaður Samtaka Iþrótta- fréttamanna. Við val „Iþróttamanns Norðurlanda“ er fylgt þeirri reglu að þeir íþróttamenn sem íþróttafréttamenn velja sem „íþróttamann ársins" í viðkom- andi löndum koma einir til álita við úthlutun verðlaunanna. Með tilvisun til þessa var Jóhannes Eðvaldsson I kjöri af Islands hálfu að þessu sinni. 1 fyrra hlaut Daninn Jesper Törring Volvo-bikarinn og titil- inn „Iþróttamaður Norður- landa 1974“. Volvo-bikarinn og peninga- upphæð sú er honum fylgir verður siðan afhentur síðar, sennilega næsta sumar. \aumt tap Armenninga í kveðjnleik sínnm í 1. deild ÁRMENNINGAR kvöddu 1. deildina að þessu sinni með all góðum leik á móti Haukum i Laugardalshöllinni i fyrrakvöld. Urslitin urðu Haukasigur 21—20, eftir að leikurinn hafði lengst af verið f járnum. Var það slæmur kafli Ármenninga og óheppni undir lok leiksins sem réð úrslit- um hans, en þá tókst Haukunum að skora fimm mörk i röð og ná fram stöðunni 21:17. Þar með var sigurinn f höfn, og Haukarnir fóru sér heidur óðslega á loka- mfnútunum, þannig að Armenn- ingum tókst að minnka aftur muninn niður I eitt mark. Ekki verður annað sagt en að töluverð eftirsjón sé að Ármenn- ingum niður í 2. deild. Liðið er að stofni til skipað mjög ungum leik- mönnum, sem flestir hverjir eru hinir efnilegustu, enda á Armann nú, eins og í fyrra, ágætan 2. flokk. I bland eru svo eldri og leikreyndari menn, eins og Hörður Kristinsson og Ragnar Gunnarsson, en Hörður hefur átt mjög gott keppnistímabil að þessu sinni og var t.d. maðurinn i Ármannsliðinu sem upp úr stóð í fyrrakvöld. En einhvern veginn hefur það verið þannig í vetur, að Ármannsliðið hefur ekki náð að sýna þá festu og ákveðni sem var einkennandi fyrir það í fyrra- vetur. Vörn liðsins er miklu gloppóttari en hún var þá. öðru hverju nær hún ágætlega saman, en þess á milli myndast miklar eyður sem andstæðingarnir eiga auðvelt með að notfæra sér. Þannig var það t.d. i fyrrakvöld að alltof oft fékk Hörður Sigmars- son að koma sér í uppáhaldsskot- stöðu sína og þá þarf ekki að sökum að spyrja — knötturinn hafnar í netinu. Haukarnir voru frískir í leikn- um I fyrrakvöld og léku betur en þeir hafa gert í nokkurn tíma. Minnti margt i leik þeirra á það bezta sem þeir hafa gert í vetur, en því verður ekki á móti mælt að Haukaliðið var vel leikandi og skemmtilegt í upphafi keppnis- tímabils. Hver ástæðan er fyrir þvi að liðið datt síðan niður er erfitt að ímynda sér, en senni- lega hefur það átt stóran þátt í þvi að Gunnar Einarsson markvörður sem varði oft stórkostlega vel í fyrstu leikjum liðsins í mótinu, datt niður og sömuleiðis þeir Hörður Sigmarsson og Elías Jónasson sem voru driffjaðrir í öllu spili liðsins. Það má segja um Haukana það sama og um Ármenninga. Þeirra ætti framtíðin að vera, þar sem margir leikmannanna eru ungir og félagið átti I fyrra afbragðs- góðan 2. flokk. Meðal þeirra pilta var Jón Hauksson, sem vakið hefur verulega athygli í siðustu leikjum sínum með Haukaliðinu. Sem fyrr greinir stóð leikurinn i fyrrakvöld lengst í járnum. Armenningar höfðu eitt mark yf- ir í hálfleikoggafsttækifæritil þess að auka þá forystu í byrjun seinni hálfleiks en voru þá heldur óheppnir og Haukarnir náðu for- ystunni. Þegar staðan var 17:17 var sem Armenningar misstu um tíma þolinmæðina, eins og stundum áður, og einstakir leik- menn fóru að sýna ævintýralega tilburði í sóknarleiknum, sem kostuðu það að Haukarnir náðu knettinum aftur og aftur og náðu að skora. ISTUTTU MALI: ISLANDSMÓTIÐ 1. DEILD LAUGARDALSHÖLL 18. FEBRUAR URSIJT: ARMANN — HAUKAR 20—21 (11—10) GANGU R LEIKSINS. MlN. ARMANN HAUKAR 4. 0:1 Jón 4. 0:2 Hörður 5. Vilberg 1:2 7. Hörður K. 2:2 8. 2:3 Þorgeir 8. Hörður K (v) 3:3 10. 3:4 Hörður 11. Vilberg 4:4 13. 4:5 Hörður 14. 4:6 Hörður (v) 15. Jón A. 5:6 15. 5:7 Stefán 17. Pétur 6:7 18. 6:8 Hörður (v) 19. Hörður K (v) 7:8 21. Hörður K (v) 8:8 22. 8:9 Elfas 22. Jón V. 9:9 27. Jón V. 10:9 28. 10:10 Jón 29. Friðrik 11:10 hAlfleikur 31. 11:11 Hörður 32. 11:12 Stefán 32. Jens(v) 12:12 33. 12:13 Stefán 37. Jens 13:13 38. Pétur 14:13 38. 14:14 Hörður 39. Vilberg 15:14 40. Jens 16:14 41. 16:15 Hörður 42. 16:16 Stefán 43. Hörður H. 17:16 48. 17:17 Ólafur (v) 49. 17:18 Arnór 52. 17:19 Hörður 53. 17:20 Jón 54. 17:21 Elfas 55. Hörður K (v) 18:21 60. Jens(v) 19:21 60. Jens 20:21 MÖRK ARMANNS: Hörður Kristinsson 5, Jens Jensson 4, Vilberg Sigtryggsson 3, Pétur Ingólfsson 3, Jön V. Slgurðsson 2, Friðrfk Jöhannesson 1, Jðn Astvaldsson 1, Hörður Harðarson 1. MÖRK HAUKA: Hörður Sigmarsson 9. Stefán Jónsson 4, Jón Hauksson 3, Elfas Jónasson 2, Þorgeir Haraldsson 1, Ólafur Ólafsson 1, Amór Guðmundsson 1. RROTTVlSANIR AF VELU: Hörður Harðarson, Armanni f 2 mfn. MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Cunnar Einarsson. Haukum varði vftakast Harðar Kristinssonar á 23. mfn., og Hörður átti vfta- kast f stöng á 59. mfn. Hörður Sigmarsson átti vftakast f þverslá á 36. mfn. og Ragnar Gunnarsson varði vftakast Jóns Haukssonar á 59. mfn. Víkingsstúlkurnar hreinu allan fyrri Það er ekki oft sem það hefur komið fyrir i meistaraflokksleik 'að lið hafí ekkert mark skorað í heilum hálfleik. Sliks eru þó dæmi, og eitt þeirra er leikur Vfkings og Breiðabliks ( meist- araflokki kvenna f Isiandsmót- inu, sem fram fór f Laugardals- höllinni í fyrrakvöld. Staðan f hálfieik var 7—0 fyrir Vfking, og raunar var töluvert liðið á seinni hálfleikinn er Kristfnu Jónsdótt- ur tókst Ioks að skora fyrir Breiða blik. En þar með var sem stffla brysti og f leiksíok skildu aðeins 3 mörk liðin að, 9—6. Hafa Vfk- ingsstúlkurnar sennilega mátt þakka fyrir að leikunnn stóð ekki f svona 7—10 mfnútur f viðbót. Allan fyrri hálfleikinn fór sam- an ágæt vörn Víkingsiiðsins og óheppni og klaufaskapur í skot- um hjá Blikastúlkunum. Hvað eft- ir annaðáttu þær skot framhjá eða í stengur Víkingsmarksins. Vikingastúlkurnar léku hins veg- ar mjög yfirvegað og gáfu sér tíma til þess að biða eftir færum við Breiðabliksmarkið. I seinni hálfleik snérist svo dæmið við. Víkingsstúlkurnar ætluðu sér sennilega að vinna eft- irminnilegan sigur, en strax og þær höfðu fengið mark á sig, Á efri myndinni hefur Friðrik Jóhannesson lagt Svavar Geirsson í gólfið, en Ragnar Gunnarsson, markvörður Ármenninga virðist hafa fullan hug á að ná knettinum. Á neðri myndinni eru leikmenn nr. 10 í báðum liðunum á ferðinni. Hörður Sigmarsson Haukamaður að búa sig undir markskot, en Hörður Kristinsson, Ármenningur er til varnar. Ljósm. Mbl. Friðþjófur. héldu hálfleik dofnaði yfir liðinu, og það lék meira af kappi en forsjá í sókn og vörn. Beztar Víkingsstúlknanna i þessum leik voru þær Sigrún 01- geirsdóttir og Ástrós Guðmunds- dóttir, en i liði Breiðabliks áttu þær Kristin Jónsdóttir og Björg Gisladóttir einna beztan leik. Mörk Vfkings: Halldóra Jó- hannesdóttir 3, Sigrún Olgeirs- dóttir 2, Jóhanna Magnúsdóttir 1, Ragnheiður Guðjónsdóttir 1, Guð- rún Stefánsdóttir 1 og Astrós Guðmundsdóttir 1. Mörk Breiðabliks: Björg Gisla- dóttir 3, Sigurbcrg Daðadóttir 2 og Kristín Jónsdóttir 1. —stjl. Sovétmenn stighœstir SOVÉTMENN hlutu flest stig í hinni óopinberu stigakeppni Olympfuleikanna f Innsbruck, eða samtals 192. Austur- Þjéðverjar urðu f öðru sæti með 135 stig og Bandarfkja- menn f þriðja sæti með 73 stig. Landsmót í gtímu LANDSMÓTIN I glfmu 1976 hafa nú verið ákveðin og verða þau sem hér segir: 1. BIKARGLÍMA GLÍ: Fer fram 21. febrúar n.k. Mótið verður háð á Húsavik og sér glfmuráð Héraðs- sambands Suður-Þingeyinga um mótið. 2. LANDSFLOKKAGLÍMAN. Fer fram 20. marz kl. 14.00. 3. ÍSLANDSGLÍMAN 1976: Fer fram 24. aprfl kl. 14.00. Landsflokkagllman og fslands- gllman fara fram I iþróttahúsi Kennaraháskóla fslands og þurfa þátttökutilkynningar að berast sjö dögum fyrir mótsdag til formanns mótanefndar, Sigurðar Ingasonar. pósthólf 997, Reykjavfk. Bikarkeppni og skólamót BLÍ BIKARKEPPNI Blaksambands tslands, sem var haldin í fyrsta sinn í fyrra verður haldin i mars og april. Ekkert lið hefur enn sent þátttökutilkynningu sina, en varla er þar verðlauna- gripnum um að kenna, en hann er sérstaklega fallegur „Ljóma- bikarinn“. Núverandi bikar- meistari er Iþróttafélag stúdenta. — Skólamót BLI fer einnig að hefjast og eru þau lið sem hyggja á þátttöku beðin að senda inn tilkynningu sem allra fyrst. HSÍ DREGIÐ hefur verið í bifreiða- happdrætti Handknattleiks- sambands Islands og féll vinn- ingurinn á númer 2420. Er vinningsnúmerið birt án ábyrgðar. Ráðstefnu frestað Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur verið ákveðið að fresta ráðstefnu þeirri um fjölmiðla og fþróttir, sem vera átti nú um helgina. Er vonazt til þess, að unnt verði að halda ráðstefnuna fljótlega, og taka þar fyrir þá málaflokka, sem búið var að ákveða að kæmu til umræðu, en það voru samskipti fþróttahrevf- ingarinnar og f jölmiðla f rá mörgum sjónarhornum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.