Morgunblaðið - 20.02.1976, Blaðsíða 28
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
Jttergunlilabife
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JRargunblabib
FÖSTUDAGUR 20. FEBRUAR 1976
Vinnuveitendiir fallast á
miðlunartillögu sáttanefndar
— með skilyrði
um sérkröfur
VINNUVEITENDUR féllust í gærkveldi á miðlunartil-
lögu sáttanefndar rfkisins um 13,6 til 16,5% kaup-
hækkun f áföngum með þeim fyrirvara að samningstfm-
inn verði til 1. júní f stað 28. febrúar 1977. Ennfremur
setja vinnuveitendur það skilyrði, að Alþýðusamband
tslands falli frá sérkröfum einstakra stéttarfélaga og
landssambanda, ef undan eru skildar þær kröfur, sem
vinnuveitendur hafa nú þegar tekið undir að komi til
greina að samþykkja. Ennfremur fallast vinnuveitendur
á verulegan hluta af sameiginlegum sérkröfum aðildar-
félaga ASl.
Sáttanefnd ríkisins lagði miðl-
unartillögu sína fyrir samnings-
aðila hinn 10. febrúar og felur
hún í sér allt að 16.5% launa-
hækkun fyrir láglaunafólk, en á
öll laun felur tillagan f sér 13,6%
launahækkun. Skiptist launa-
hækkunin, sem VSt og Vinnu-
málasambandið féllust á í gær-
kveldi, f þrjár áfangaprósentur,
4% hinn 1. marz, 5% hinn 1. júlí
og 4% hinn 1. október. Þau laun,
sem lægri eru en 54 þúsund
krónur á mánuði fá að auki 1500
krónur á mánuði f láglaunaupp-
bót, sem jafnast út á bilinu upp að
57 þúsund krónum. Eru þessar
Björn Jónsson:
„Leysir
ekki málið”
MORGUNBLAÐIÐ spurði Björn
Jónsson forseta ASl f gærkvöldi
um tillögur vinnuveitenda. Björn
kvað forystumenn ASt ekki hafa
rætt málið á fundum, þar sem
þeir voru svo nýbúnir að fá tillög-
urnar, en þær voru afhentar
nokkru fyrir miðnætti. Björn
sagði hins vegar:
„Við höfum svarað fiestu sem
tillögurnar fjalla um áður. Þetta
leysir ekki málið. Tilboðið er lak-
ara en sáttatillagan sjálf, sem við
höfum áður lýst yfir, að sé ekki
nægileg til þess að unnt sé að
Framhald á bls. 16
1500 krónur metnar á tæplega
3%.
í tillögu sáttanefndarinnar var
gert ráð fyrir þvf að samningur-
inn væri til mánaðamóta febrú-
Framhald á bls. 16
L,jósm. Uuðjón Arngrímsson.
BREZKA freigátan Scylla F-71 brunar þarna upp að skut varðskipsins Ægis á Austfjarðamiðum f
gærmorgun og reynir að slfta klippurnar aftanúr varðskipinu. Það mistókst og Ægir klippti. Sjá bls. 2.
Mjólkur-
skortur:
Jafnvel lífshættulegt ef
kornabörn fá ekki kúamiólk
ÞRATT fyrir að mjólkurskorts sé
farið að gæta, víða á höfuðborgar-
svæðinu hefur enn ekki fengizt
undanþága til sölu á mjólk handa
börnum, sjúklingum og gamal-
mennum. Eitthvað mun hafa
verið fjallað um þessi mál f gær,
en engin niðurstaða fengizt. For-
ráðamenn verkalýðsfélaganna
höfnuðu beiðni Mjólkursamsöl-
unnar fyrr í vikunni um sölu á
mjólk í verkfallinu — en að sögn
lækna má það ekki dragast lengur
en fram yfir helgi, að undanþága
á mjólkursölu verði veitt.
Morgunblaðið hafði samband
við Skúla Johnsen borgarlækni í
gærdag og spurði hann hvort
undanþágu væri að vænta. Skúli
kvaðst þá ekki hafa náð tali af
þéim aðiljum er undanþágur
veittu. Hins vegar sagðist hann
— segir Skúli Johnsen borgarlæknir
álita að mjólkurskortur, sérstak-
lega hjá kornabörnum, sjúkl-
ingum, einstaka gamalmenni,
gæti haft hinar alvarlegustu
afleiðingar.
— Ef kornabörn, sem búið er að
venja á kúamjólk, fá hana ekki,
getur það leitt af sér heilsutjón
Hlé á samningaviðræðum
sjómanna og utvegsmanna
EINHVER hnútur virðist hafa
komið á viðræður um gerð nýrra
sjómannasamninga, þótt ekki
beri mikið í milli í hlutaskipta-
reglum milli aðila. Samninga-
fundur, sem hófst klukkan 14 á
miðvikudag, stóð til klukkan
05,30 f gærmorgun, en þá mynd-
aðist tregða f samningsgerðinni
og hafði f gærkveldi ekki verið
Verkföllin:
Yfir 250 Islending-
ar tepptir erlendis
Flugleiðir verða fyrir gífurlegu fjárhagstjóni
ALLS munu um 250 tslending
ar vera strandaglópar erlendis,
aðallega f Evrópu og á Kanarf-
eyjum, þar eð millilandaflug
hefur lagzt niður vegna vfir-
standandi allsherjarverkfalls.
Að því er Sveinn Sæmundsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, tjáði
Morgunblaðinu átti f gær að
koma 125 manna hópur frá
Kanaríeyjum en ekki gat af því
orðið vegna verkfailsins.
Fólkið mun dveljast áfram á
sömu hótelum og það hefur
verið á, þar til hægt verður að
sækja það eða um leið og verk-
fallið leysist. Þá sagði Sveinn
að vitað væri um u.þ.b. 130 ts-
lendinga er biðu eftir ferðum
heim f hinum ýmsu Evrópu-
löndum, og einnig væri
eitthvað af fóiki f Bandarfkj-
unum og Chicago.
Sveinn sagði, að öll flugstarf-
semi Flugleiða lægi nú niðri
vegna verkfallsins. Innanlands-
flugvélar félagsins stæðu á
Reykjavíkurflugvelli, en milli-
landaflugvélarnar væru í
Briissel, Luxemborg og New
York. Til að mynda eru báðar
Boeing 727 vélarnar í Briissel,
önnur í skoðun en hin hefði
Framhald á bls. 13
boðaður nýr fundur. I gær voru
menn að ieiða getum að því að
aðilar f sjómannasamningunum
vildu sjá, hvaða þróun heildar-
kjarasamningar tækju, en vonir
stóðu þó til að ekki liði langur
tími unz fundur yrði boðaður á
ný.
I sjómannasamningunum er
verið að semja um algjöra kerfis-
breytingu, sem erfitt ætti að vera
að taka til viðmiðunar í kjara-
samningaviðræðunum milli ASI
og vinnuveitenda. Þó gæti kaup-
tryggingin í sjómannasamning-
unum verið viðmiðunarpunktur. t
sjómannasamningunum er verið
að semja um skiptaprósentur
fyrir 14 veiðarfæri og er mismun-
andi prósenta á hvert um sig.
Einnig skiptist prósentan í 8
stærðir báta í hverjum flokki.
Samkvæmt því, sem Mbl. komst
næst í gær, en aðilar verjast allra
frétta, mun það vera álit útvegs-
manna að sjómenn hafi ekki
staðið nægilega við þau atriði,
sem sjóðanefndarálitið fól í sér,
en aðilar höfðu undirrifáð samn-
ing um að sníða kjarasamninga
sjómanna, bæði gildandi samn-
inga og þá sem ekki eru í gildi,
Framhald á bls. 16
hjá þeim og jafnvel verið lifs-
hættulegt. Því tel ég að það megi
alls ekki dragast 'lengur en fram
yfir helgi, að undanþága til
mjólkursölu til áðurgreindra
aðila verði veitt.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Guðmund J. Guðmunds-
son formann Dagsbrúnar og
spurði hann hvort undanþágu
væri að vænta. Hann sagði að
engin ný ákvörðun hefði yerið
tekin i mjólkursölumálunum. —
En um leið og Mjólkursamsalan
gefur út yfirlýsingu þess efnis, að
hún sé reiðubúin að ræða þetta
mál, einangrað og sér, þannig að
um sölu á mjólk til barna, sjúkl-
inga og gamalmenna verði ein-
göngu að ræða, þá erum við til-
búnir, sagði Guðmundur, og bætti
við: Til þessa hefur afstaða
Mjólkursamsölunnar verið sú að
opna mjólkurbúðirnar algjörlega
eða ekki, sem er hrein fjarstæða
þegar verkfall er.
Þá vildi Guðmundur láta þess
Framhald á bls. 16
Umræður
um vantraust
á mánudag
VantrauststiIIaga stjórnarand-
stæðinga á rfkisstjórnina kem-
ur til umræðu á mánudag.
Nokkrar umræður urðu um
það f sameinuðu þingi hvenær
þessar umræður skyldu fara
fram og eru þær raktar ftar-
lega á þingsíðu Morgunblaðs-
ins f dag, en talsmenn stjórn-
arandstöðunnar töldu eðli-
legra, að umræðurnar færu
fram f dag, föstudag. Asgeir
Bjarnason, forseti sameinaðs
þings, sagði óhjákvæmilegt að
Framhald á bls. 13