Morgunblaðið - 22.02.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976
Leigubílaflot-
inn að stöðvast
— segir Úlfur Markússon
„INNAN fárra daga hafa svo til allir leigubílar Reykja-
víkur stöðvazt vegna eldsneytisskorts þ.e. ef ekki nást
samningar fljótlega,“ sagði Úlfur Markússon, formaður
leigubílstjórafélagsins Frama, í samtali við Morgun-
hlaðið í gær. Þegar verkfallið skall á var aðeins til
eldsneyti á geymum leigubílastöðvanna til að fylla
geyma bílana 3—4 sinnum og nú eru birgðirnar á
þrotum.
HJÁLF 1 VIÐLÖGUM — Leigubílstjórarnir fara að leggja bílunum sínum hvað úr
hverju, enda bensínió á þrotum, eins og fram kemur í frétt hér á siðunni. En hann
átti rafmagn aflögu þessi, þegar flóðgáttirnar opnuðust í fyrradag og gerði
ökufólkinu meðal annars skráveifu af því tagi sem myndin lýsir.
togararnin Tapa allt að 3,4
millj. kr. í veiðiferð
Ulfur Markússon sagúi, aú lík-
lefta myndu bílar knúnir bonsíni
Allestarborð-
um stolið
TALSVERÐU magni af lestar-
borðum úr áli var nýlena stolið af
reit við skemmu sem stendur við
Garðaveg. Þarna er um mikil
verðmæti að ræða. Oskar rann-
sóknarlögreíílan í Hafnarfirði
eftir upplýsingum, sem í?ætu leitt
til þess að þjófarnir fyndust, en
það hlýtur að hafa vakið eftirtekt
einhverra er þeir voru að fjar-
læpja borðin.
Upplýstu 3 inn-
brot í Hafnarfirffi
RANNSOKNARLÖGREGLAN i
Hafnarfirði hefur nýlega upplýst
3 innhrot þar í hæ, i Alþýðuhúsið,
Verkamannaskýlið og verzlunina
Músik og sport. I fyrrnefndu
tveimur innbrotunum voru tölu-
vert míkil spjöll framin en litlu
stolið. Höfðu þjófarnir nokkurt
maftn af hljómplötum og öðrum
varningi á brott með sér úr verzl-
uninni. Þjófarnir reyndust vera 6
piltar, 14 ára tii tvítugs.
Islenzki svartminkurinn var á
uppboði á miðvikudaginn. Meðal-
verð á svörtum læðuskinnum var
8 pund 48 eða 2940 krónur
íslenzkar. Þetta er 25% hækkun
frá desember. Meðalverð fyrir
skinn af svörtum karldýrum var
13 pund og 80, eða 4775 krónur
íslenzkar. Hækkunin er 15% frá
því í desember. Samtals voru 14
þúsund svartminkaskinn frá Is-
landi á uppboðinu og seldust þau
011. Kaupendur voru frá Banda-
ríkjunum, ítaliu, Vestur-
stöðvast fyrst, en þeirsem notuðu
hráolíu myndu geta haldið áfram
eitthvað lengur.
— Menn trúðu ekki á langt verk
fall og héldu almennt, að það væri
ekki hægt undir þeim kringum-
stæðum er nú ríktu i þjóðfélag-
ínu.
Þá sagði Ulfur, að mikið hefði
verið að gera hjá leigubifreiðum
síðustu daga, þar sem strætis-
vagnarnir hefðu ekki getað haldið
uppi fullkominni þjónustu.
Annars væri stór hluti af starfi
leigubílstjóra í kringum heilsu-
gæzlu.
— Þar sem leigubílstjórar hafa
aldrei tekið neina afstöðu í al-
mennum verkföllum, fyndist
okkur sanngjarnt, að við fengjum
vissa undanþágu t.d. væri vel
hægt að skammta bensín á
bifreiðarnar, eða þá til að fylla á
tanka stöðvanna. Og þessa dagana
höfum við ærinn starfa við að
þjóna samninganefndarmönnum.
SINFÓNlUHLJÓMSVEIT
íslands hélt hljómleika
Þýzkalandi og ýmsum Evrópu--
löndum.
Svartminkur er um 70%
íslenzku framleiðslunnar en um
25% er pastelminkur, sem er
brúnn. íslenzku skinnin af þeirri
tegund voru boðin upp á
fimmtudaginh og i gær. Meðal-
verð fyrir kvendýraskinn var 7
pund 09 eða 2460 krónur og
meðalverð fyrir karlskinn var 13
pund 17, eða 4560 krónur. Þetta
er 25% hækkun frá í desember.
Eins og skýrt var frá í
Morgunblaöinu í gær er nú
mikill uppgjafartónn I
brezkum sjó- og útgerðar-
mönnum vegna ástandsins
á íslandsmiðum. Bæði
undir stjórn Páls P. Páls-
sonar í nýja íþróttahúsinu
hér í gærkvöldi. Dagskráin
var fjölbreytt og vai
hennar getið í Morgunblað-
inu 18. febrúar.
Sellóeinleikarinn Deborah
Davis hreif áheyrendur i leik
sinum í sellókonsert í b-dúr eftir
Boccherine. Það er óhætt að full-
yrða, að bæði leikir og lærðir voru
mjög ánægðir með framkomu og
framreiðslu hljómsveitarinnar í
heild, raunar var henni vel
fagnað af mesta áheyrendafjölda
sem hefur verið samankominn
undir einu þaki hér á Skaganum.
Hljómburður hússins er sérlega
góður og vakti mikla eftirtekt, þar
á meðal kunnáttumanna úr
Reykjavík, og er það fagnaðarefni
og býður heim beztu hljómlistar-
kröftum. Hljómsveitin var marg-
sinnis klöppuð upp og lék hún
aukalög, t.d. lagið við „Kátir voru
karlar“ og „Á Sprengisandi“, og
var það skemmtilegur þáttur og
endasprettur á afburðahljómleik-
um.
— Júlíus.
Fáskrúðsfjörður:
Undanþága veitt
fyrir loðnuna
Fáskrúðsfirði 21. feb.
VERKFALL á að skella á hér á
miðnætti á þriðjudagskvöld. Þess
vegna var hætt við að taka á móti
loðnú frá og með 19. feb. s.l. Nú
hefur verið gefin undanþága til
að taka á móti loðnu fram á
þriðjudag og jafnframt veitt
undanþága til að vinna þá loðnu,
sem þá liggur fyrir og þarf nauð-
synlega að vinna. Þessi ákvörðun
var tekin á fundi stjórnar og
trúnaðarráðs I gærkvöldi. Einn
bátur kom með loðnu í gær, og
var hluti aflans frystur.
— Albert.
fiska togararnir ákaflega
illa og verðið, sem fæst
fyrir fiskinn í Bretlandi,
er ákaflega lágt þessa
stundina. Smartt, frétta-
ritari Mbl. í Hull, tjáði
Morgunblaðinu, að Prince
Charles hefði selt fyrir 18
þúsund pund I fyrradag
eða 6.2 millj. kr. og var
togarinn þá búinn að vera
22 daga í veiðiferðinni.
Á meðan togarinn var á veiðum
aflaði hann fyrir 900 pund á dag,
eða 312 þúsund krónur, en hins
vegar kostar útgerð hans 1400
pund á dag eða 486 þús. kr.
Þannig var tapið á sólarhring
rúmar 173 þús. krónur eða 500
pund. Ef miðað er við 20 daga
hefur tapið á þeim tíma orðið 3.4
millj. króna.
Ef gert er ráð fyrir, að brezkir
togarar á Islandsmiðum séu í
kringum 30 að meðaltali og þeir
fiski nú og selji eins og Prince
Carles, þá nemur tapið á þeim á
hverjum 20 dögum alls 104 millj.
kr.
Verndarskipin, sem brezka
Viðskiptaráðherra sagði enn-
fremur, að til slíkra ráðstafana
hefði verið gripið áður undir svip-
uðum kringumstæðum, en þá
þannig að aóeins útsölunum hefði
verið lokað. Nú bæri þess að gæta,
að vínveitingastaðir væru orðnir
miklu fleiri en þá.
— Þá vil ég taka fram, að
skemmtihúsin eru ekki fyrst og
fremst til vínveitinga. Skilyrði
fyrir vlnveitingaleyfi er að geta
framreitt 1. flokks mat og vln á
síðan aðeins að geta fylgt með.
Hér á landi var einu sinni hörgull
á flestu nema brennivíni og ég
vona að sem fæstir eigi sér slíkt
draumaland nú, sagði Ölafur Jó-
hannesson.
Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóri á Sögu, sagði I gær, að nú
ríkið er með á Islandsmiðum, eru
mjög dýr i rekstri. Aldrei hafa
vérið gefnar upp tölur hve mikið
útgerð freigátu kostaði á sólar-
hring, en leiga á dráttarbát er I
ingum 1000 sterlingspund á sólar-
hring eða 347.200 krónur. Á 20
daga timabili þarf brezka ríkið
því að borga 6.9 millj. kr. I leig-
gjöld fyrir dráttarbát. Yfirleitt
eru þrír dráttarbátar á miðunum
og á 20 daga tímabilinu þurfa
brezkir skattborgarar að borga
20.7 millj. króna fyrir leigu á
þeim.
Vestmannaeyjar:
Þrír menn í
gæzluvarðhaldi
LÖGREGLAN I Vestmannaeyjum
handtók I síðustu viku 3 menn
grunaðá um allmörg innbrot, sem
framin hafa verið þar I bæ. Voru
mennirnir úrskurðaðir í allt að 14
daga gæzluvarðhaldi á meðan
rannsókn málsins fer fram. Upp
komst um mennina þegar einn
þeirra var tekinn á innbrotsstað.
fengi bindindisfólkið tækifæri til
að skemmta sér. Á föstudag hefði
verið búið að panta mat fyrir 400
manns I Súlnasal og I Grillinu, en
I gærmorgun hefði verið búið að
afpanta allt saman.
— Það er ekki hægt að neita
þvl, að rekstrartapið skiptir
milljónum króna á sólarhring. Og
að sjálfsögðu leiðir þetta til þess,
að vínveitingastaðirnir geta ekki
staðið I skilum eftir helgina. Þessi
ráðstöfun lfkist helzt verkbanni,
við fengum engan umþóttunar-
tfma.
Þá sagði hann, að þeir útlend-
ingar, sem byggju á hótelinu,
skildu allflestir verkfall en þeir
gætu alls ekki skilið hvers vegna
ekki væri hægt að fá rauðvínsglas
með matnum.
«ÍK/,5SÍ'JÓ«N ViENW^ V|A-
i'lCjJAi? MON NÓ 5NÖA S9R
AO ÓVRO Réfn.Æ.I'/SMA'a,
mWILl&A 200 tiflOM WR/R
OKKOR S9M M£í>f\MGM EFNA
\ÍA6S&4N0A1.AS5INS>
03 a
S9M «>ANNAR WINÍ/.0TN/NA
A ÍSIENSKOM VIWI, áLfiMW
Wi'EK'Kl, ViAROéV!
Islenzk minkaskinn
seldust fyrir 55 millj.
á uppboði 1 London
t VIKUNNI voru ísienzk minkaskinn seld á uppboði I London. Gekk
salan afbragðsvel, öll Islenzku skinnin seldust og það á 15—25% hærra
verði en á uppboði sem haldið var I desember s.l. Að sögn Skúla
Skúlasonar, umboðsmanns Hudson Bav félagsins, sem viðstaddur var
uppboðið, var samanlagt verðmæti fslenzku minkaskinnanna um 55
miiljónir króna.
Hrifning á hljómleikum
Sinfóníunnar á Skaganum
F’östudagur 20. febrúar.
„Þetta eru örygg-
isráðstafanir”
— segir dómsmálaráðherra um vínbannið
400 manns afpöntuðu mat á Hótel Sögu
„ÞETTA eru fyrst og fremst öryggisráðstafanir, enda er of seint að
byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan 1 hann,“ sagði Ölafur
Jóhannesson, dómsmálaráðherra, þegar Morgunblaðið spurði hann
hver væri helzta ástæðan fyrir lokun áfengisútsalanna og vfnbanni á
vfnveitingahúsum.