Morgunblaðið - 22.02.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.02.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976 + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför SIGRÍÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR, frá Höfnum við Bakkafjörð. Sérstakar þakkir eru hérmeð færðar starfsfólki Sjúkrahúss Keflavíkur fyrir góða umönnun. Fyrir hönd vandamanna. Marinó Pétursson. + Móðir min. MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR, Hrafnistu verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði mánudaginn 23 febrúar kl 2 e h Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlega bent á liknar- stofnanir. Fyrir hönd aðstandenda Jóhanna Ellasdóttir. + Móðir okkar STEINUNN JÓNSDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu 20 þ m Fyrir hönd systkinanna Halla Stefánsdóttir, Kristbjörg Stefánsdóttir. Útför eiginmanns míns og föður JÓHANNS G. BJÖRNSSONAR, Reynihlíð, Garðabæ, fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 24 febrúar kl 14 e h. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Garðakirkju Ásta G. Björnsson, Gunnar J Björnsson, Guðmundur J. Björnsson. Guðrún Krants, Eiginmaður minn, + BJARNI GUOMUNDSSON, frá Stóra Nýjabæ við Krísuvlk Garðstlg 3. Hafnarfirði, andaðist að morgn 20. febrúar að St. Jósefspitala Hafnarfirði. Fyrir mlna hönd. barna og tengdabarna Sigrlður Helgadóttir. + okkar. + Alúðarþakkir til allra nær og fjær fyrir auðsýnda samúð og sérstakan vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, SIGURLAUGAR SOFFÍU GRÍMSDÓTTUR, Alftamýri 58. Ásta Snorradóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Guðmundur Mikaelsson, Gunnlaug Guðmundsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi ÁRNI GUÐLAUGSSON prentari Hagamel 16, Reykjavik verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudag 24 febrúar kl 1 5 00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanír. Kristln Sigurðardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Útför foreldra okkar, ELÍSABETAR FINNSDÓTTUR, og PÉTURS JÓNSSONAR, frá Sólvöllum, Vogum, fer fram frá Fossvogkirkju, miðvikudaginn 25. febrúar kl. 1.30. Jarðsett verður í Hafnarfirði. Dætur hinna látnu. Minning: Ingvar Gísli Kolbeinsson Fæddur 7. desember 1916. Dáinn 14. febrúar 1976. Á morgun verður til moldar borinn Ingvar Gísli Kolbeinsson, verkstjóri, sem andaðist að morgni laugardagsins 14. febrúar eftir stutta sjúkdómslegu. Ingvar var sonur hjónanna Ingibjargar Gísladóttur og Kol- beins Ivarssonar, bakarameistara. Hann var þriðji í röðinni af sjö systkinum. Sex komust til full- orðinsára, en það elsta dó í fæð- ingu. Fjögur systkinanna eru enn á lífi ásamt háöldruðum föður þeirra. Ingvar var fæddur og uppalinn í Vesturbænum. Þar var frjálslegt og þar var gaman að vera ungur i þá daga. Við höfðum gott svigrúm til margvíslegra leikja og þar kynntumst við lífi fólksins á ein- stæðan hátt. í Vesturbænum lögðu margir stund á sjóróðra og aðrir höfðu kindur eða hesta í kofum heima hjá sér. Þetta allt vakti okkur forvitni og áhuga. Ingvar fékk fljótt sérstakan áhuga á skgpn- unum og var tíður gestur við gegningarnar á kvöldin. Hann var ekki gamall, þegar hann eignaðist sjálfur fyrstu kindurnar sínar og hirti um af stakri natni. Þessi búskaparáhugi, sem vaknaði hjá Ingvari á unga aldri, hélst síðan allt til dauðadags. Ég held að alla tíð síðan hafi hann átt kindur og hesta. Ingvar var snemma sendur f sveit eins og siður var I þá daga og var þá jafnan á sama bæ hjá Oddi bónda í Þverárkoti á Kjalarnesi. Tóku þeir miklu ástfóstri hvor við annan og hélst það á meðan báðir lifðu. Á þeim árum héldu margir vinir Ingvars, að hann mundi ger- ast bóndi I sveit, en það átti ekki fyrir honum að liggja. Ingvar lagði I fyrstu fyrir sig ýmiss konar verkamannavinnu í Reykjavík. En um tvítugsaldur fékk hann vinnu í grjótnámi Reykjavíkurborgar við Elliðaár- vog. Þá vinnu stundaði hann síðan um fjörítu ára skeið uns yfir lauk. Mörg síðustu árin var hann verkstjóri í mulningsdeild grjótnámsins. I foreldrahúsum hafði Ingvar alist upp við guðsótta og góða siði. Þann arf mat hann meir en nokkuð annað alla ævi. Hann var snemma sendur í K.F.U.M. og sótti þar stöðugt fundi bæði i sunnudagaskólanum og yngri deildum félagsins. Við þann félagsskap hélt hann tryggð æ siðan. Hann taldi það ávallt mestu hamingju lifs síns að hafa kynnst starfi séra Friðriks og notið ávaxta þess. Á unglingsárum sínum öðlaðist hann persónulega trú á Jesúm | Krist sem frelsara sinn. Sú reynsla mótaði allt hans lif upp frá þvi. Ingvar gerðist brátt sjálfboða- liði í starfi K.F.U.M. og var sveitarstjóri um skeið í Vinadeild- inni. Siðan varð hann húsvörður í húsi félagsins á Amtmannsstíg. Því starfi gegndi hann af stakri skyldurækni um árabil. Áratug- um saman, og allt til dauðadags, var hann starfsmaður í Sunnu- dagsskóla K.F.U.M. Trúfesti hans og samviskusemi hans í því starfi var einstök. Hann var mættur fyrstur manna á hverjum sunnu- dagsmorgni og tók brosandi á móti börnunum og stimplaði spjöldin þeirra. Er Kristniboðsflokkur K.F.U.M var stofnaður, var Ingvar einn af stofnendum hans. Síðar gerðist hann formaður þess flokks og hélt starfi hans uppi I mörg ár. Ingvar hafði einlægan og brennandi áhuga á kristniboði og lagði þvi málefni lið á margvísleg- an hátt. Hann tók sér stundum á hendur ferðir út á land með er- indrekum Kristniboðssambands- ins. Hann var einlægur vinur kirkju sinnar og trúfastur kirkjugestur. Hann fylgdist vel með öllu, sem gerðist á vegum kirkjunnar og bar gott skyn á stefnur og hrær- ingar innan hennar. Hann gladd- ist ávallt, er hann heyrði hinn hreina tón fagnaðarerindisins. Ég hygg að engum, sem kynnt- ist Ingvari eða var eitthvað með honum hafi getað dulist að fagnaðarerindi Frelsarans var honum heilagt hjartans mál. Því Minning: Margrét Guðrún Kris tjánsdó ttir Margrét Guðrún Kristjánsdótt- ir, Hrafnistu, andaðist á Lands- spítalanum 14. þ.m. eftir stutta dvöl þar. Var gerð á henni skurð- aðgerð vegna innvortis mein- semdar. Margrét heitin var fædd 22. ágúst 1889 í Hælavík á Horn- ströndum. Foreldrar hennar voru þau Kristján Jóhannesson bóndi, f. 4. apríl 1861 og d. 30. janúar 1927 á Siglufirði, og Hansina Finnsdóttir, f. 10. febrúar 1852 og d. 26. marz 1932 á Siglufirði. Bæði voru Hansína og Kristján fædd og uppalin á Hornströndum til árs- ins 1908 og fluttust þau fyrst til Bolungarvíkur og síðan til Siglu- fjarðar. Þau eignuðust tvær dæt- ur, Margréti, sem nú er látin, og Jóhönnu, f. 6. janúar 1892, og er hún á lífi og býr hjá dóttur og tengdasyni í Kópavogi. Jóhanna var gift Þorkeli Sigurðssyni sjó- manni, en hann lézt árið 1940. Einn uppeldisbróður áttu þær- systur, Jóhannes Hjálmarsson skipstjóra, sem lézt árið 1942, en hann var giftur Huldu Lúðvíks- dóttur, Sigurjónssonar frá Laxa- mýri og er hún á lífi. Margrét heitin giftist Eliasi Angantýs- syni, f. 20. október 1886, en hann drukknaði 7. nóvember 1923. Þau eignuðust 10 börn, tvær dætur, sem dóu fárra mánaða gamlar, en átta börn þeirra eru á lifi. Ekkjan stóð ein uppi með sjö börn og gekk með yngsta barn ið er maður hennar lézt. Með að- stoð vina og vandamanna tókst henni að ráða fram úr vandanum, börnin fóru I fóstur, sum til ætt- ingja og vina. Elsta barnið fylgdi móður sinni fyrstu árin. Börnin sem álífi eru: Jóhanna, + Þökkum innilega öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför REBEKKU RUNÓLFSDÓTTUR, Reynigrund 33. Kópavogi, Kristln Skaptadóttir Kristján Olsen Erna Olsen Gunnar Guðnason og aðrir vandamenn. + Útför móður okkar STEFANfU S. ARNÓRSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24 febrúar kl 1 30 e.h. Bjarni Einarsson, Ragnheiður Einarsdóttir, Þorgrlmur Einarsson, Margrét Guðmundsdóttir. málefni unni hann og á því byggði hann lif sitt og alla von. Hann var handgenginn orði Guðs og samfélag trúaðra var honum til yndis. Það fundum við vinir hans vel, er við vorum með honum I þrengri hópi, annaðhvort heima hjá honum sjálfum eða öðrum félagsbræðrum. Þá var Ingvar oft hrókur alls fagnaðar en gat lika komið með glöggar athugasemdir í alvarlegum mál- um. Nokkrum dögum áður en Ingvar lagðist banaleguna hélt hann snjalla og hjartnæma hug- leiðingu á jólafundi aðaldeildar K.F.U.M. Þeir, sem hlýddu á þá hugleiðingu, telja að hún muni þeim seint úr minni Ilða. Ingvar var dulur maður og hlé- drægur að eðlisfari. Okkur fannst það oft langt um of, þvi hann hafði jafnan margt fott til mála að leggja. Hann hafði fast mótaðar skoðanir bæði I trúmálum og þjóðmálum og hélt vel á sínum málstað, ef á hann var hallað, enda var hann greindur vel. Ingvar var alla ævi ókvæntur en bjó með öldruðum föður sinum og elstu systur. Að öllu ættingj- um, vinum og samverkamönnum Ingvars er sár harmur kveðinn við hið skjóta fráfall hans., En minningin um góðan dreng og sannan mann mun lifa meðal okkar. Mætti þjóð vor eignast marga slíka syni sem Ingvar var. Megi algóður Guð veita öllum ástvinum hans þann styrk, er var honum sjálfum svo mikils virði í lífi og dauða. Blessuð sé minning mins góða og trygga vinar. Ástráður Sigursteindórsson. gift Kristjáni Þorvarðssyni, lækni í Reykjavík, Kristjana, var gift Jens Haraldssyni bifreiðastjóra í Reykjavík, en eftir lát hans flutt- ist hún til Bandarfkjanna og gift- ist þar John Benjamino og búa þau þar. Sumarlína Laufey býr I Reykjavík, ógift, Angantýr skip- stjóri, búsettur i Vestmannaeyj- um, kvæntur Sigrfði Björnsdótt- ur, Sigurbjörn afgreiðslumaður I Hafnarfirði, kvæntur Ingibjörgu Guðjónsdóttur, Guðrún gift Ólafi Sigurðssyni, hreppstjóra, Þykkva- bæ, Rangárv. sýslu. Gísli verk- stjóri, búsettur á Siglufirði, kvæntur Dagnýju Jensdóttur og loks Elísa, sem er ógift og býr i Reykjavik. Er börnin komust á þroskaald- ur, leituðu þau smám saman til Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar og hófust þá aftur nánari tengsl við móðurina, enda reyndi hún eftir getu að hafa samband við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.