Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 14

Morgunblaðið - 22.02.1976, Page 14
Þióðsagnaheimur Asgrims „Ertu kominn hér Kjafta-Leifi,“ spyr tröllkonan. Úr þjððsögunni um Galdra-Leifa. Myndin gerð um 1948. Samtal við Bjarnveigu Bjarnaflotlur í tllefni af helðurssýningu á verkum Ásgrlms Jónssonar I NÆSTA mánuði heldur Reykjavíkurborg heiðurs- sýningu á Kjarvaisstöðum á verkum Ásgríms Jónssonar í tilefni af aldarafmæli hans. Sýningin verður opnuð 6. marz, og verða þar eingöngu sýnd verk, sem Ásgrímur ánafnaði þjóð sinni. Fer hér á eftir samtal við frú Bjarnveigu Bjarnadóttur forstöðukonu Ásgrímssafns um undirbúning sýningar- innar. Blaðinu er kunnugt um, að þar verður m.a. fjöldi mynda úr vinnubókum, sem áður hefur ekki verið sýndur, og spurði frú Bjarnveigu sérstaklega um þessar myndir. Björgun úr sjávarháska. Myndin gerð árið 1905. I Mjaðveig Mánadóttir og tröllk). Teiknuð árið 1957. — Já, þetta eru mjög merki- legar myndir, ýmist gerðar með blýanti, penna, tússi eða kolum. Líka nokkrar með vatnslitum. Asgrímur hefur lagt mikla rækt við teikninguna. Enda minnist ég þess, þegar fyrir kom að ég var stödd hjá honum, og ungir mynd- listarmenn komu til hans í heim- sókn — og auðvitað var rætt um myndlist — hve Ásgrímur lagði rika áherzlu á teikninguna, hún væri í rauninni undirstaðan að alvarlegu myndlistarnámi. — Og þessar mvndir eru ný uppgötvun á listaverkagjöf Ásgrfms. Hvers vegna hafa þær ekki komið fram í dagsbirtuna fyrr en nú? — Ástæðan er sú, að skömmu eftir andlát Ásgríms hófum við Jón bróðir hans skrásetningu á gjöf hans. Þar á meðal komu í ljós 150 vinnubækur. Við skrásettum þær þannig að við töldum öll blöð í hverri bók, og hve margar mynd- ir væru í bókinni, en á mörgum blöðum voru myndir báðum megin, en sum blöðin auð. Við skráðum siðan báðar tölurnar á kápu bókarinnar. En við Jón höfðum hreinlega ekki tíma til þess að rannsaka hvað bækurnar höfðu að geyma af myndlist. Síð- an hafa þær legið ósnertar í húsi Ásgríms þar til á s.l. ári, þegar farið var að hugsa fyrir heiðurs- sýningunni á Kjarvalsstöðum i til- efni aldarafmælis hans. Elztu myndirnar í þessum vinnubókum eru gerðar um aldamótin, og síð- an allt fram til ársins 1950. Og þess var gætt þegar innrömmun hófst á þessum myndum, að báðar myndirnar kæmu í ljós á sumum blaðanna. 1 marz á s.l. ári hófum við Þórir Sigurðsson teiknikennari rann- sóknina, og það var mikið starf, en mjög ánægjulegt. Við vorum svo heppinn að ártöl voru á nokkrum myndanna, og drógum við þá ályktun af ártalinu að sú bók væri frá því ári. Líka má sjá skyldleika með myndum, og hafa slfkt til hliðsjónar. Og ýmislegt kom okkur á óvart, t.d. komu í ljós bækur sem i voru bæði teikningar og vel skrifaðar nótur. Ásgrímur var ákaflega músíkalskur, hefir ef til vill dottið í hug stef við teikningu sem hann var með þá stundina. Þegar þessu vinnubóka-verki okkar Þóris Sigurðssonar lauk, tók Hjörleifur Sigurðsson list- málari við, en hann rannsakaði þjóðsagnateikningar sem lágu i möppum, sumar seinni tíma verk. Líka þjóðsagna-stúdíur málaðar með vatnslitum. Þar kom líka margt merkilegt í ljós. Allar þess- ar myndir, um 120 að tölu, hafa verið innrammaðar undanfarna mánuði. Þeir sem það verk önnuð- ust lögðu sig fram vió að vinna verkið sem bezt og smekklegast. Bjarnveig Bjarnadóttir. — Og viðfangsefni Asgrfms í þessum vinnubókamvndum munu aðallega vera þjóðsögur okkar? Það er greinilegt að þær hafa verið honum mjög hugleiknar alla ævi. Og síðasta verk Ásgríms, sem hann vann á fjórum dögum fyfir andlát sitt, er þjóðsagnamynd, og má af því marka, að þessar merki- legu bókmenntir okkar hafa verið honum umhugsunarefni fram i andlátið. En myndina gat hann ekki lokið við. Og ekki má gleyma Islendingasögunum. Þær voru einnig mikið og margþætt við- fangsefni i myndlist Ásgríms, sér- staklega Njála og Grettissaga. — Hefur tekizt að leiða i ljós hvaða þjóðsögur Ásgrfmur hefur haft f huga þegar hann gerði myndirnar? Já,— ekki þó alltaf. Þórir var þar mikil hjálparhella. Einnig Jón bróðir Asgríms. LíkaBjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður og Jóhann Briem listmálari. Svo voru nú vissar þjóðsagnapersónur augljósar, eins og Djákninn frá Myrká og Mjaðveig Mánadóttir, en þær eru eins og rauður þráður svo að segja alla tíð í þessum þjóðsagnamyndum. Mér er nær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.