Morgunblaðið - 22.02.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1976
27
Björn Egilsson
betra
vera??
legukant hafnarinnar en eftir
er að grafa frá því. Það er
meiningin að gera það í
sumar. Verður sérstaklega
mikil búbót að fá þennan
viðlegukant, einkum yfir
loðnutimann þar sem oft
verða mikil þrengsli við höfn-
ina.
— Loðnuvertíðin minnir
óneitanlega mikið á síldar-
árin en þó er þetta ekki eins
brjálað. Það náði yfir svo
miklu meira. Þá voru kven-
mennirnir i söltun kannski
alla nótina og öll fjölskyldan
var meira og minna í þessu
allt niður í unglingskrakka.
Það þurfti svo miklu fleira
fólk við söltunina. Það eru
helzt bátakomurnar sem
minna á síldarárin þegar
bátarnir eru að koma drekk-
hlaðnir inn dag eftir dag og
oft margir í einu. Á síldar-
árunum var hér saltað á fjór-
um plönum auk þess sem
verksmiðjan var starfrækt
svo síldin hafði miklu við-
tækari áhrif.
— Það er rólegra þegar
loðnan er ekki og jafnara þó
svo það verði aldrei jafnt
þegar unnið er við sjávarút-
veg.
Hér á Reyðarfirði er þó
tiltölulega rólegt og gott að
vera, hvergi betra.
„Þá var slegizt
með árum„
ASMUNDUR Magnússon er
verksmiöjustjóri síldarverk-
smiöju ríkisins á Reyöarfirði.
Hafði hann í mörgu að snúast
enda verksmiðjan i fullum
gangi og eins mátti búast við
drekkhlöðnum bátum hvenær
sem var. Það tókst þó að ná
honum á skrifstofunni til að
ræða við hann.
„ÁTTI UPPHAFLEGA
EKKI AÐ VERA HÉRNA
NEMAEITT SUMAR“
— Loðnuvertíðin hleypir
óneitanlega miklu lifi í bæinn,
sérstaklega þegar farið verður
að frysta hana.
— Yfirleitt er ekki atvinnu-
leysi hér á Reyðarfirði, a.m.k.
ekki svo mér sé kunnugt. En ég
er þó í fyrsta sinn i þrjátíu ár
með kvenmenn í verksmiðj-
unni. Tók ég þær í tilefni nýlið-
ins kvennaárs. Verð ég ekki var
við annað en að þær standi sig
með prýði. Önnur þeirra er
þurrkyndari, kyndir þurrkar-
ana, hin er á kvörn, sín á hvorri
vakt til að gera ekki upp á milli
vaktformannanna.
— Ég hef verið hér á Reyðar-
firði frá því á áramótum
1964—1965 en hjá síldarverk-
smiðjum rikisins i 30 ár. Var ég
áður á Skagaströnd. Ég átti
upphaflega ekki að vera hér
nema eitt sumar og lofaði
aldrei meiru en nú hef ég verið
hér í 10 ár. Hér lenti maður á
síldarárunum 1966 og 1967. Þá
voru hér niu mánaða vertíðir.
Það er nú margt orðið breytt
frá þvi að ég kom. Verksmiðjan
hefur stækkað, afköstin hafa
aukizt úr svona 150 tonnum f
milli 500 og 600 tonn.
— Það sem er einkum ábóta-
vant hér við verksmiðjuna er
löndunaraðstaðan. Hér verður
að landa öllu á bílum i staðinn
fyrir að hægt væri að taka þetta
beint úr bátunum sem væri
mjög þægilegt. Það hefur verið
skipulagt h.érna hafnarsvæði
þannig að mjög heppilegt væri
að koma þessu fyrir, en það
hefur verið látið duga að láta
þetta ná á pappírana og ekki
lengra.
— Loðnuvertíðin minnir á
síldarárin en þetta er bara
styttri tími sem gerir það að
verkum að þetta verður allt
miklu dýrara.
FRA SlLDARÁRUNUM
— Árið 1942 var ég á síld. Það
var treg veiði framan af. Þá
keyrði flotinn eftir flugvéla-
fregnum frá Langanesi að
Horni. Á þessum tíma voru
flugvélar notaðar til að leita að
torfunum þegar síldin óð. Ekk-
ert fékkst fyrr en i byrjun
ágúst en þá kom hún upp á
Húnaflóa. Þetta var þó nokkur
floti og mikil harka við að ná í
sildina' Til merkis um hve
harkan var mikil þá lentum við
einu sinni í að kasta með öðrum
báti á sömu torfuna. Hvorugur
vildi gefa eftir og var kastað
þangað til bátarnir skullu
saman og þá var slegizt með
árum. Afleiðingarnar voru þær
að maður datt í sjóinn en varð
ekki meint af vegna þess hve
gott var veður. En við það að
maðurinn fór i sjóinn linnti
orrustunni. Torfan hvarf og
fékk hvorugur neitt en hver
varð að hífa sína nót upp.
— Þá voru eingöngu notaðir
nótabátar, tveir með hverju
skipi. Nú er tæknin orðin
önnur og allt miklu auðveldara.
„MIKIL LYFTISTÖNG
AÐ FÁLOÐNUNA"
Þetta hefur allt þróazt, flot-
inn hefur stækkað en vinnslu í
landi hefur ekki fleygt fram að
sama skapi.
— Það er mikil lyftistöng
fyrir Reyðarfjörð að fá loðn-
una.
— Reyðarfjörður er eflaust
einhver skásti staðurinn á
Austfjörðum fyrir fiskiðnað og
annað. Þetta er ákaflega mið-
svæðis og vegir eru yfirleitt
opnir allt árið. Hér hefði verið
hagkvæmt að hafa slipp. Það
kemur aldrei slíkt veður að
ekki væri hægt að taka upp bát
og aðdýpi er mikið. Hér þyrfti
ekki að sæta veðrum og sjávar-
föllum eins og víða annars
staðar.
— Ég held að það fari ekki
hjá þvi að það fari að byggjast
hér einhver iðnaður, skilyrði
eru svo góð.
— Staðurinn á ábyggilega
framtíðina fyrir sér.
Asmundur Magnússon.
Sjötugur:
ÓskarÁ. Þorkels-
son aðalgjaldkeri
Á morgun verður einn af þekkt-
ari borgurum Reykjavikur, vinur
minn Öskar Á Þorkelsson, aðal-
gjaldkeri hjá Slippfélaginu í
Reykjavik h.f. sjötugur.
Óskar er fæddur í Reykjavik þ.
23. febrúar 1006. Foreldrar hans
voru Þorkell Guðmundsson,
skipasmiður frá Sólmundarhöfða,
Akranesi, og kona hans Signý
Guðmundsdóttir frá Leirlækjar-
seli í Alftaneshreppi. Þorkell
vann i mörg ár við skipasmíðar
Slippfélaginu.
14 ára gamall byrjaði Óskar að
starfa hjá Slippfélaginu sem
sendisveinn og við innheimtu.
Skrifstofustjóri var þá Leifur
Þorleifsson og fékk Öskar góða
tilsögn hjá honum í bókhaldi.
23 ára gamall gerðist Óskar bók-
haldari hjá félaginu og hefur
hann haft þann starfa síðan, hef-
ur hann þvi starfað í rúma hálfa
öld hjá Slippfélaginu eða nánar
til tekið í 55 ár, og má það heita
óvenjulega langur tími hjá sama
félagi.
Aðaláhugamál Öskars hafa ver-
ið iþróttir og tónlist. Iþróttirnai
stundaði hann hjá Jóni Þorsteins-
syni íþróttakennara og sund lærði
hann hjá Páli Erlingssyni og tók
hann oft þátt í sundkeppni í sjó.
Árið 1931 hóf hann tónlistarnám
hjá Hallgrimi Þorsteinssyni,
skömmu siðar gerðist Óskar með-
limur Lúðrasveitar Reykjavíkur
og var starfandi í henni i 33 ár. I
stjórn Lúðrasveitar Reykjavíkur
var hann um langt árabil.
Árið 1930 kvæntist Óskar Sig-
ríði Ingunni Olafsdóttur, ættaðri
frá Flatey á Breiðafirði. Foreldr-
ar hennar voru Ölafur Jónsson,
sjómaður, og Ölína Pétursdóttir
frá Svefneyjum á Breiðafirði. Sig-
ríður er myndar húsmóðir og hef-
ur hún búið Óskari fallegt heim-
ili. Þau hjón in hafa eignazt 5
börn:
Signý, var gift Geir G. Jónssyni,
vélstjóra, hann lézt á síðastliðnu
ári og áttu þau 3 börn. Ólafur
Haraldur, sem er skólastjóri Val-
húsaskóla, Gagnfræðaskóla Sel-
tjarnarness. Olafur stundaði
nám við háskóla í Þýzkalandi og i
Bandaríkjunum, kona hans er El-
tn Sigurðardóttir, hjúkrunar-
kona. Anna Hansina, gift Þor-
grími Ólafssyni, sjómanni, og eiga
þau 2 drengi. Guðrún Fanney,
kennari, og hún á einn son. Skarp-
héðinn Pétur, kennari, kvæntur
Valgerði Björnsdóttur, kennara,
og eiga þau eina dóttur.
Ég hef þekkt Öskar frá þvi hann
var 12 ára, en þá leigðu foreldrar
hans í húsi foreldra minna við
Frakkastíg 19, og í því húsi byrj-
aði Óskar fyrst búskap sinn, svo
við höfum þekkzt i 58 ár. Alltaf
hefur hann verið sama ljúfmenn-
ið og þau 54 ár sem ég hef starfað
hjá Hamri h.f. þurfti ég oft að
leita til hans með ýmsar upplýs-
ingar og kom maður þá ekki að
tómum kofanum. nei Óskar vissi
allt, mundi allt og var fljótur að
afgreiða málið. Ég tel að það hafi
verið mikil gæfa fyrir Slippfélag-
ið að hafa slíkan mann í þjón-
ustu sinni.
Óskar hefur verið lánsamur, átt
góða konu, mannvænleg börn,
gott heimili og góða heilsu sem
hann nýtur enn. Að endingu vil
ég árna Oskari, hans ágætu konu
og börnunum allra heilla og far-
sællar framtíðar.
Jón Gunnarsson.
Scranton til S.Þ.
Washington 19. febr.
Reuter.
WILLIAM Scranton, fyrrverandi
rikisstjóri í Pennsylvaniu, hefur
tekið útnefningu stjórnarinnar
sem aðalfulltrúi Bandaríkja-
manna hjá Sameinuðu þjóðunum,
að því er áreiðanlegar heimildir
Reuters greindu frá i kvöld.
Scranton er reyndur stjórnmála-
maður úr röðum repúblikana og
náinn vinur Fords Bnadrikjafor-
seta. Ekki náðist í Scrantön til að
spyrja hann um málið.
írskir sjómenn
vilja 200 mílur
Dublin 19. febr.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
IRSKIR sjómenn vilja að stjórn
Irska lýðveldisins færi lögsögu
sina út í 200 milur, en stjórnin er
þessa stundina að ihuga að færa
út í 50 milur úr tólf milum. John
O’Halloran, ritari samstarfs-
nefndar sjómanna, sagði að enda
þótt fagna bæri úlfærslu i fimm-
tíu mílur, myndu sjómenn ekki
una við glaðir fyrr en fært hefði
verið út i 200 milursemþeirhefðu
umráðarétt yfir. Hann hvatti
einnig stjórnina til að tryggja
írskum sjómönnum rétt til að
veiða á Rockall-svæðinu, sem
brezka stjórnin hefur gert tilkalj
til.
24. leikvika — leikir 14. feb. 1 976.
Vinningsröð: X21 — 20X — 111 — 2X2
1. VINNINGUR: 1 0 réttir — kr. 35.000.00
2382 2748 36136 36182 36320 36528+ 36830
2. VINNINGUR: 9 réttir — kr. 1.700.00
111 + 4924 7500
424 4942 7637
969 5369 + 7771
1661 5472 7903
2604 6072 8052
3517 6295 8425
3954 6984 9453 +
4652 7257 + 10392
3770 7277 35038+
35160 36234 36528 +
35275 36319 36546
35362 + 36438 36758 +
35782 36438 36758 +
35921 36447 36760
35977 36491 + 36762
36001 36528+ 36830
36074 36528+ 37002
+ nafnlaus
37071
37156 +
37308
37315
37315
37401
37443
37969
Kærufrestur er til 8. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupp-
hæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 24.
leikviku verða póstlagðir eftir 9. marz.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni eða senda stofninn og
fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag
vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstödin — REYKJAVÍK