Morgunblaðið - 22.02.1976, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 22.02.1976, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1976 37 VEQ/AKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags. % Áfram með krossgötur Áhangendur Krossgatna, eins og þeir kalla sig, skrifa: Utvarpsráð, og þið háu herrar, sem þar ráðið lofum og lögum f tónlistardeild. Er endanlega hætt að flytja þáttinn Krossgötur, sem var á dagskrá útvarpsins í vetur? Þessi þáttur er með þvi besta sem flutt hefur verið i dagskrá Ríkis- útvarpsins. Ég veit um fjöldann af fólki, sem er sammála okkur i þvi, og við beinum þeirri ein- dregnu ósk til Þorsteins Hannes- sonar og þeirra, sem þar ráða ein- hverju, að haldið verði áfram á þeirri braut að flytja þessháttar efni og tónlist, sem í þessum þáttum er flutt. Og til útvarps- ráðs: Áfram með Krossgötur. 0 Nóbelsskáldi þakkað Annar útvarpshlustandi Sv. Þ. skrifar Það er kominn timi til þess að í svo víðlesnu biaði sem Mbl. komi fram þakklæti til Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness fyrir upplestur hans á verki sínu Kristnihald undir Jökli i útvarpinu nú undan- farið. Þótt fólk hafi lesið verk skálds- ins áður en Halidór tók að lesa þau upp i útvarp, þá er óhætt að fullyrða að verk hans verða allt önnur í hinum frábæra lestri hans. A það ekki síst við um sögu- persónurnar, sem verða meira lif- andi og eftirminnilegri en áður. Kvöldin þrjú í viku hverri, sem Halldór Laxness les úr Kristni- haldinu, eru hinum ótalmörgu að- dáendum hans hverju sinni sem ósvikinn kraftbirtingarhljómur. —Sv.Þ. 0 Hvílíkur skáld- skapur. Hvílík list Á.H. skrifar: Eg hefi verið að horfa á auglýs- ingar Happdrættis Háskóla ís- lands í sjónvarpinu undanfarið og sannast að segja hissa á að enginn skuli hafa haft orð á þeim, þvi svo finnst mér þær fyrir neðan virð- ingu Háskólans og dettur i hug hvort þær eigi að endurspegla móralinn i þessu musteri andans. Önnur auglýsingin er af þeim Bessa og Árna Tryggvasyni pú- andi vindla út i loftið, það er sjálfsagt innlegg Háskólans i bar- áttunni við tóbakið og á að vera viðvörun fyrir ungdóminn en svo búningurinn á mönnunum og út- litið. Hvað á það að tákna á máli Háskólans? Væri gaman að heyra nokkuð um það. Þá er það hin auglýsingin þar sem þeir syngja þremenningarnir vel völdum orðum smfivegis óþægindum sem hann ættí við að stríða f þvf efni. David sagði að sér þætti leitt að heyra þetta. Lögfræðingurfnn bandaði frfi sér og lét mfilið vera útkljfið. — öllu mfi venjast sagði hann og lét fara vel um sig f stólnum. — Jæja, Hurst, þér eruð komnir hingað til að gera tflkall til arfs- insyðar. — Sem kom mér vissulega meira en Iftið á óvart. — Einmitt það. Gerir það enn skemmtilegra. Brfiðskemmtilegt f raun og veru. Fas hans einkenndist af vin- semd og hlýju og David var fullur velvilja f garð þessa notalega manns. — Hvað getið þér sagt mér um þetta hús? spurði hann. Gautier yppti öxlum. — Þetta er fikaflega venjulegt hús. Hentar fvrir fjölskvldu. Ekkert sérstakt frfi sjónarmiði arkitekts en ósköp vinalegt og heldur hentugt. Fjögur svefnher- bergi, lftill garður — þér vitið fireiðanlega hvernig þetta hús er. — Er það langt f burtu? — Nei, alls ekki. Þér getið sem hægast farið þangað fótgangandi. Arni, Bessi og Ævar og má kannski allt gott segja um leik- listina, en verkamaðurinn hann fær sitt: „Pirrar mig að púla og puða skítnum í“. Og ef hann vinnur. Þá tekur hann frí. . . Já, þessi störf eru ekki hátt skrifuð hjá Happdrætti Háskólans, þegar það ver hundruðum þúsunda til að láta álit sitt i ljós. Hvílíkur skáldskapur. Hvílik list. Ætli höfundurinn hafi ekki fengið aukahöfundarlaun. Það væri svona eftir öðru. • P.E. skrifar: Ég er alveg hissa á því hve fáir bílstjórar, sem enn geta komizt leiðar sinnar á eigin bilum, bjóða öðrum far, annað hvort taka gang- andi fólk upp eða bjóða nágrönn- um far ofan í bæ eða heim þaðan. Ég hefi verið í verkfallstímum t.d. i Frakklandi og þar buðu bíl- stjórar, sem voru að aka einir fólki iðulega far, ef þeir sáu það á förnum vegi. Það er þeim mun undarlegra, að hér hefur verið ákaflega vont veður og vegfar- endur verið að berjast áfram, þegar strætisvagnar hafa ekki gengið. Á föstudagsmorguninn veitti ég þessu sérstaklega athygli, af þvi veðrið var svo vont og strætis- vagnar gengu ekki. Þá kom röðin af bílunum um það leyti sem vinna var að byrja og yfirleitt einn maður í hverjum bíl. Ég sá eina konu veifa i aðra, sem var gangandi og taka hana upp í bíl- inn hjá sér. Aðrir óku bara áfram framhjá. Ég fór svo að tala um þetta við samstarfsmann minn, þegar ég kom á vinnustað. Hann sagðist alltaf hafa boðið fólki far, ef vont var veður og hann sá það á gangi, jafnvel þó ekki væri verkfall, þar til einu sinni að hann ætlaði að bjóða ungri stúlku far og hún sneri upp á sig. Þá hætti hann að skipta sér af öðrum. Hann ætlaði ekki að láta fólk halda að hann væri á kvennaveiðum. Hvað um það, þegar veður eru jafn vond og þau eru nú og jafn erfitt að komast leiðar sinnar vegna verkfalla, þá ættu menn meðan þeir eiga bensín og nota það, að leyfa öðrum að njóta. Eins gætu íbúar i stórum húsum tekið sig saman og ekið á vixl niður I bæinn og heim eftir vinnu, til að spara bensínið. Það endist þeim mun Iengur. HÖGNI HREKKVÍSI „Fáránlegt! Keikningur uppá 1000 krónur frá tré- Námskeið Heimilisiðnaðarfélags íslands Hnýting Macrame kvöldnámskeið Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20.00 — 23.00 Byrjar 26. febrúar — 25. marz. Myndvefnaður dagnámskeið Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 1 5.00—18.00 Byrjar 2. marz — 30. marz. Upplýsingar og tekið á móti umsóknum í verzlun félagsins. Islenzkur heimilisiðnaður Hafnarstræti — sími 11 784 /_1' VlV£R Lo^m 'OYtfONO Mf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.