Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976
Björt halastjarna
á að sjást hér á
landi næstu morgna
BJÖRT halastjarna mun sjást
berum augum hér á landi næstu
morgna ef veður verður bjart. Að
sögn Þorsteins Sæmundssonar
stjarnfræðings á halastjarnan að
sjást f austri og verður hún skýr-
ust um og fyrir sólarupprás. Hún
á að sjást jafnvel alls staðar á
landinu. Skipverjar á rannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni sáu
halastjörnuna greinilega f gær-
morgun, en skipið var þá statt út
af Austfjörðum.
Þorsteinn sagði að halastjarna
þessi bæri nafnið West, og væri
hún nefnd eftir manni þeim, sem
fyrstur varð hennar var. Er það
Bandaríkjamaður að nafni Ric-
hard West, sem starfar í stjörnu-
athugunarstöð í Chile. Stjarnan
kom fyrst fram á ljósmyndum í
ágúst í fyrra. Hún fór framhjá
sólu 25. febrúar s.l. og verður
skærust á næstu dögum en síðan
dofnar hún smám saman. Hali
stjörnunnar er vel greinilegur og
stjarnan sjálf er bjartari en talið
var að hún myndi verða þegar
hún fyrst uppgötvaðist.
Vonast til þess að
mjólkurdreifing verði
eðlileg á þriðjudaginn
MJÖLKURDREIFING f höfuð-
borginni mun ekki komast f eðli-
legt horf fyrr en f fyrsta lagi á
þriðjudaginn, að þvf er Oddur
Helgason hjá Mjólkursamsölunni
tjáði Morgunblaðinu f gær.
Mjólkurmagn það, sem dreift
hefur verið undanfarna daga,
hefur ekki nægt fyrir eftirspurn
og margir hafa enga mjólk fengið
enda þótt hverjum viðskiptavini
hafi verið skammtaðir tveir
Iftrar.
Oddur sagði, að helsta ástæðan
fyrir því hversu seint dreifingin
kemst í rétt horf væri sú, að engin
Enn berast kröf-
ur í Air Viking
Ein Sunnuferð heimiluð í dag
SKIPTARÁÐANDINN,
Unnsteinn Beck, borgar-
fógeti, tjáði Morgunblað-
inu í gærkvöldi, að í gær-
dag hefðu borizt tvær
kröfur í þrotabú flugfé-
lagsins Air Vikings. Var
mjólk hefði verið til hjá mjólkur-
búunum, Mjólkursamsölunni né á
heimilum þegar verkfallið leyst-
ist. Mjólkin hefði farið út og síðan
selst jafnharðan og enn hefði
engin mjólk safnast fyrir á lager
þannig að eðlileg dreifing gæti átt
sér stað. Bjóst Oddur við því að
nú yfir helgina myndi mjólk
safnast eitthvað fyrir og vonir
stæðu til að málin yrðu komin í
lag á þriðjudaginn. Að sögn Odds
hefur sáralítið verið unnið af
mjólkurvörum ennþá, einfaldlega
vegna þess að mjólkin hefur verið
seld jafnóðum og hún berst og
ekkert verið afgangs til vinnslu.
Veggmynd Hjálparstofnunar kirkjunnar í Fórnarvikunni 7.—14.
marz.
Æskulýðs- og fórnarvika 1976:
Aðstoð við
þroskaheft hörn
ÞAÐ IIEFUR verið föst venja í starfi Iljálparstofnunar kirkjunnar
að efna til fórnarviku. Hafa slfkar fórnarvikur verið haldnar árlega
undanfarin ár. Sömuleiðis hefur Æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar
gengizt fyrir sérstökum æskulýðsdegi um svipað leyti. I ár er
áformað að þessar stofnanir taki höndum saman í sameiginlegri
æskulýðs- og fórnarviku undir yfirskriftinni Guð þarfnast þinna
handa.
Undirbúningur að fram-
kvæmd vikunnar hefur staðið
yfir allt frá áramótum og er
markmið vikunnar tvíþætt að
þessu sinni. Annars vegar að
minna á skyldur við þurfandi
meðbræður sína og er fólk i því
sambandi hvatt til samstarfs til
að bæta úr þörfum þroska-
heftra barr.a á Islandi. Er að
þvi stefnt að safna peningum til
styrktar þessu brýna málefni. I
annan stað þarf að efla almenn-
Framhald á bls. 27
önnur þeirra frá manni
þeim, sem hefur séð flug-
félaginu fyrir mat í flug-
vélar þess, samtals að upp-
hæð rúmlega 1,1 milljón
króna. Hin er frá aðilum í
Sierra Leone, en þar hafði
Air Viking bækistöð í píla-
grímaflugi fyrir síðustu
áramót. Sú krafa er upp á
32 þúsund dollara, eða
rúma milljón. Sagði Unn-
steinn, að sú krafa væri
umdeild.
Framhald á bls. 27
Spariskírteini útgefín
fyrir 500 milljónir kr.
MIÐVIKUDAGINN 10. marz n.k.
hefst sala spariskfrteina rfkis-
sjóðs ( 1. fl. 1976, samtals að fjár-
hæð 500 milljónir króna. Byggist
útgáfan á f járlagaheimild, og
verður lánsandvirðinu varið til
opinberra framkvæmda á grund-
velli lánsfjáráætlunar rfkis-
stjórnarinnar fyrir þetta ár.
Kjör skírteinanna eru hin sömu
og í fyrra. Höfuðstóll og vextir
eru verðtryggð miðað við breyt-
ingar á byggingarvisitölu. Skír-
teinin eru bundin fyrstu fimm
árin, og að þeim tíma loknum eru
þau innleysanleg, hvenær sem er
næstu þrettán árin. Breytist inn-
lausnarverð þá árlega miðað við
10. marz, fyrst 10. marz 1981.
Vakin er athygli á þvi, að skír-
teinastærðir eru nú 10, 50 og 100
þúsund krónur.
Skirteinin, svo og vextir af
Framhald á bls. 27
Verkfallið á Akranesi:
Athugasemd Vinnuveitendasam-
bands og Vinnumálasambands
MORGUNBLAÐINU barst í gær-
kvöldi eftirfarandi greinargerð
frá Vinnuveitendasambandi ls-
lands og Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna vegna verk-
fallsaðgerða kvennadeildar
Verkaléðsfélags Akraness:
Er vinnuveitendasamband Is-
lands frétti um ólögmætar verk-
fallsaðgerðir Kvennadeildar
Verkalýðsfélags Akraness, var
kvennadeildinni þegar í stað sent
eftirfarandi símskeyti:
Verkaiýðsfélag Akraness,
kvennad eild,
Suðurgötu36, Akranesi.
Vér leyfum oss hér með fyrir
hönd félagsmanns vors, Haraldar
Böðvarssonar & Co., Akranesi, að
mótmæla harðlega þeim ólöglegu
verkfallsaðgerðum, er viðhafðar
voru i gær, þegar félagar í
kvennadeild Verkalýðsfélags
Akraness hindruðu að hreinsuð
loðnuhrogn væru sett í bráða-
birgðaumbúðir til frystingar,
geymslu og endurvinnslu. Einnig
er harðlega mótmælt hindrun
sömu aðila á flutningi á
óhreinsuðum loðnuhrognum, er
flytja átti upp i Borgarnes um kl.
22.00 í gærkvöldi. Rétt er að taka
fram, að konur myndu ekki hafa
unnið neitt af þeim störfum, er
hér um ræðir. Vér áskiljum oss að
sjálfsögðu allan rétt f.h. umbjóð-
anda vors, þar á meðal skaðabæt-
ur fyrir allt það tjón, er umbjóð-
andi vor hefir orðið fyrir eða
verður fyrir, haldi hinum ólög-
legu verkfallsaðgerðum áfram.
Vinnuveitendasamband Islands
Olafur Jónsson
Barði Friðriksson.
Skeyti þetta skýrir afstöðu
sambandsins til málsins. Er að
Framhald á bls. 27
Straukst
Andromeda
við Baldur?
BREZKA freigátan Andrómeda
reyndi f gær að sigla á varðskipið
Baldur á Hvalbakssvæðinu. Bald-
ur varð að vfkja sér undan og
voru varðskipsmenn ekki frá þvf
að f eitt skipti hefði skutur Bald-
urs strokist við freigátuna þegar
varðskipið var að beygja undan.
33 brezkir togarar voru við landið
f gær, flestir á Hvalbakssvæðinu
og gerðu varðskipin þeim erfitt
fyrir við veiðarnar. Brezki togar-
inn Aldershot varð t.d. að hffa
vörpuna f miklu hasti þegar Oð-
inn nálgaðist hann f fyrrinótt og
bilaði spil togarans við það. Fór
hann til Færeyja, þar sem gert
verður við spilið.
Aðdragandinn að aðför Andró-
medu var sá, að freigátan Naiad
var að taka eldsneyti úr birgða-
skipi og sigldi samhliða þvf. Bald-
ur átti af tilviljun leið þarna um
og varð mikið fjaðrafok þegar
varðskipið nálgaðist. Kom Andró-
meda á vettvang og reyndi að
bægja Baldir frá. En lætin urðu
slik að Naiad missti af oliuslöng-
unni. Veður fór versnandi á
miðunum undan Austurlandi í
gær og undir kvöldmat voru kom-
in 8 vindstig af suð,suð-austri og
engir togarar að veiðum. Versn-
andi veðri var spáð á þessum slóð-
um með kvöldinu.
Bókmennta-
kynning helguð
Ólafi Jóhanni
SUNNUDAGINN 7. marz n.k.
verður bókmenntakynning,
helguð Ölafi Jóhanni Sigurðssyni,
f Norræna húsinu á vegum Máls
og menningar. Vésteinn Ólason
lektor flytur erindi um skáldið og
lesið verður úr verkum hans.
Lesarar eru: Edda Þórarinsdóttir,
Gísli Halldórsson, Karl Guð-
mundsson, Þórarinn Guðnason og
Þorleifur Hauksson.
Kynningin hefst kl. 16.
Vilja fella niður
skatta af verðlaunum
„Fundur stjórnar og formanna
aðildarfélaga, haldinn 25. febrúar
1976, beinir þeim tilmælum til
hins háa alþingis að það felli
niður opinber gjöld af þeim
Norðurlandaverðlaunum, er Is-
lendingar hafa hlotið. Bendir
fundurinn á fordæmi á þessu
sviði, svo sem Nóbelsverðlaun og
Sonning-verðlaun."
Játuðu 26 inn-
brot og þjófnaði
EINS OG Morgunblaðið skýrði frá
fyrir nokkru, voru þrfr piltar und-
ir tvítugu úrskurðaðir I allt að 14
daga gæzluvarðhald i Vestmanna-
eyjum grunaðir um þjófnaði. Við
yfirheyrslur játuðu piltarnir á sig
samtals 26 þjófnaði og innbrot.
Voru þetta bæði gömul og ný inn-
brot, en fæst þeirra munu hafa
verið stórvægileg.