Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976 19 Baldvin Þ. Kristjánsson: Hugleiðingar um merka bók ÖSJALDAN virðist það vera svo, að því meira sem í bækur er spunnið, því þynnra hljóði er um þær þagað af þeim, sem annars leggja í vana sinn eða eru at- vinnumenn í því að skrifa um bækur. Enn eina staðfestingu á þessu fannst mér ég fá í sambandi við lestur merkrar bókar, sem Haf- steinn Guðmundsson bókaút- gefandi í Þjóðsögu gaf út síðla fyrra árs. Þótt mér sé ekki kunnugt um, að nokkur gagnrýn- andi hafi séð ástæðu til að geta um þessa bók, hika ég ekki við að telja hana stórathyglisverða og eina af merkustu bókum, sem út komu á árinu, og þótt lengra sé leitað. Svo fersk og frumleg er hún, um ævarandi viðfangsefni, hugsandi og leitandi manna að hún á vart sinn lika um efnismeð- ferð og vísindalegt viðhorf i ann- ars andlegum og yfirskilvitlegum málum, og viðhorfum til áður lítt eða ókannaðra skynsviða manns- ins. Hér að framan á ég við bókina „NÝJAR VIDDIRIMANNLREGI SKYNJUN" eftir dr. Shafica Karagulla, sérfræðing I tauga- og geðsjúkdómum. Ut af fyrir sig er það eftirtektarvert fyrirbæri, að viðkunnur og snjall vísindamaður í læknisfræðum, á öruggri frama- braut, við hin beztu lifsskilyrði, rífur sig frá öllu þessu til að helga líf sitt og starf vísindalegum rannsóknum i lítt kunnum fræð- um, þótt gömul séu, sem til skamms tíma hefur yfirleitt þótt hæfa að hæða og jafnvel lítils- virða — ekki sízt af einmitt þeim, er þrykktir eru gæðastimpli háskólavísindamennsku. Allslaus og í fullkominni óvissu, brýtur bókarhöfundur allar brýr að baki og heldur út á „veraldarsjóinn“ í leit að órannsökuðum sannleika á hinum hæpnustu miðum, bæði frá fjárhagslegum og vísindalegum sjónarmiðum og jafnvel siðferði- legum. Gegn öllum þessum var- hugaverðu torfærum heldur höfundur geiglaus með horskum hug, enda þótt á stundum i upp- hafi sæktu að henni svipir efans, og er af öllu þessu mikil saga, sem sögð er í bókinni Það hefur löngum verið vitað og viðurkennt, að maðurinn „væri ekki allur þar sem hann væri séð- ur.“ Auk hinna venjulegu manna — alls fjöldans — hafa jafnan verið til einstaklingar, sem skorið hafa sig úr um sérstæða og marg- slungna skynhæfni i ýmsar áttir, og þá gjarna verið álitnir „skrýtn- ir“, ef ekki annað verra, og kallaðir ýmsum nöfnum, sem gáfu til kynna, að þeir væru tæp- lega eða alls ekki heilbrigðir; ekki „eins og fólk er flest,“og víst má það til sanns vegar færa. Hinu hefur víst aldrei verið trúað um þetta fólk, að það væri e.t.v. bezt af guði gefið og fullkomnasta fólkið, og fyrirfyndist i miklu rík- ari mæli en vitað hefur verið og viðurkennt til þessa. En það er einmitt þetta m.a sem dr. Kara- gulla hefur verið að rannsaka og sýna fram á — ekki með þjóð- sagnakenndum og rómantískum trúar- eða tilfinningahita — svo mjög sem slíkt getur verið hrifandi — heldur bláköldum, visindalegum rökum og heil- brigðri skynsemi. Hún hefur aflað sér upplýsinga og rann- sóknarefnis víða um lönd og álfur, og lagt rannsóknarrækt við fjölda hæfileikafólks — ekki sízt lækna og annað menntafólk — sem gætt er sérstöku og undra- verðu skynnæmi. Það er hin „æðri skynjun" þessa fólks sem fyrst og fremst er viðfangsefni hennar — „Higher sense Perception", skammstafað „HSP“ — og það er iJæstum ótrúlegt, hverjum visindaárangri hún hefur náð, sem reyndar væri alveg óhugsandi, ef henni hefði ekki auðnast að ná varanlegri rannsóknarsamstöðu við mikinn fjölda hinna beztu úrvals- og hæfileikamanna. Hún og hennar samstarfsfólk leiðir m.a í ljós, að hér er um ótrúlega auðugan garð að gresja, sem opnar möguleika HELLUBIÓ Með danslelk helgarinnar Haukar sjá um sveltaball gamlir grallarar og sveittir brallarar dregnir fram sem sagt gott stuð í kvöld. RANDI MEÐ LÉTT DISKÓ SHOW Á„MJLLJ Sem sagt geyspum (austur Sætaferðir B.S.Í. Þorlákshöfrt, Hveragerði, Laugavatni, Grindavík. til víðari skilnings og hærri lífs- sýnar fyrir allan fjölda manna, en ekki aðeins fáa útvalda. Einhver mesti harmleikur mannsins er ' að skynja ekki sjálfan sig rétt og til fulls — að vera að mestu ókunnugt um þá hæfileika, sem með honum búa, og skaparinn trúlega hefur gefið öllum sínum börnum; meira og minna — að vera ekki í reynd, nema brot af því, sem hann raun- verulega er. Ein er þó sú stétt manna. sem þannig er í sveit sett, að mikil gæfa til mannheilla myndi fylgja, ef hún virkilega uppgötvaði sjálfa sig og sæi í öðru og æðra ljósi. Það er læknastéttin. „Þeir eru ófáir, sem höfundur leiðir til vit’nis um niðurstöður sínar og sannreynir varðandi margþættar sérgáfur á ólíkustu sviðum efnis og anda og eins líka þá staðreynd, nálega óbrigðula, að þar sem einn fyrirfinnst með ótvlræða HSP-hæfileika, spretta gjarna út frá honum margir áþekkir, þegar að er gætt, sem fáa eða enga óraði fyrir. Þar má sannarlega segja, að „funi kveikist af funa.“ Enginn veit, né getur vitað, hvilíkum fjársjóðum mannkynið býr yfir að þessu leyti, en víst er, að þvi fleiri heiðarlegir hugsjónar og vísinda- Framhald á bls. 25 Hljómsveit Kalla Bjarna LEIKUR í KVÖLD Opið til kl. 2. Allar veitingar Fjörið verður á hótelinu í kvöld VIÐ BYGGJUM LEIKHÚS ■P Gamanleikurinn góðkunni sýndur í Austurbæjarbíói til ágóða fyrir Húsbyggingarsjóð Leikfélagsins. Skemmtið ykkur og hjálpið okkur að byggja leikhús. Miðnætursýning Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30 Aðgöngumiðasalan í Austurbæjarbíói er opin frá kl. 16.00 í dag. Sími 11384. VIÐ BYGGJUM LEIKHUS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.