Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976 Steinunn og Jórunn báru nokkuð af á ÍR-mótinu Steinunn Sæmundsdóttir og Jórunn Viggósdóttir —stúlkurn- ar sem tóku þátt í Olympíuleikun- um I Innsbruck á dögunum sigruðu örugglega í sínum grein- um á skíðamóti IR sem fram fór í Bláfjöllum um fyrri helgi. Þær gátu ekki keppt þar saman, þar sem Steinunn er enn ekki orðin 16 ára, en þeim aldri þurfa kepp- endur að hafa náð til þess að fá að keppa í flokki fullorðinna Þurfti Steinunn reyndar meira fyrir sln- um sigrum að hafa í iR-mótinu en Jórunn, þótt hún keppti I ungl- ingaflokki, þar sem María Viggós- dóttir yngri systir Jórunnar veitti henni nokkra keppni, einkum i sviginu, þar sem munurinn á 3 blakleikir um helgina ÞRÍR leikir verða I 1. deild islands- mótsins I blaki um helgina. Þróttur og ÍMA mætast I íþróttahúsi Kenn- araháskólans I kvöld og hefst viður- eign þeirra klukkan 20.30. Á morg- un leika Þróttur og UMFL og siðan ÍS og ÍMA, á undan þessum leikjum mætast Þróttur og Vikingur. Hefst fyrsti leikurinn annað kvöld klukkan 1 9.00. en allir fara þeir fram I Haga skólanum. Staðan i 1. deild karla er nu þessi: iS 6 6 0 18:5 319:210 12 UMFL 7 5 2 18:8 354:252 10 Vtk. 7 4 3 15:10 314:260 8 Þróttur 5 3 2 10:9 227:227 6 UMFB 4 0 4 0:12 87:182 0 þeim varð ekki nema röskar 6 sekúndur. Jórunn vann hins vegar helzta keppinaut sinn, Önnu DIu Erlingsdóttur, með um 30 sekúndna mun, bæði f svigi og stórsvigi. Greinilega er nú töluverð gróska í skíðaíþróttinni sem keppnisgrein i Reykjavík og þeir sem láta mest að sér kveða á þeim vettvangi eru flestir ungir að árum og eiga vafalaust möguleika á þess að bæta árangur sinn veru- lega í framtíðinni. Þannig mátti á iR-mótinu sjá marga efnilega unglinga i yngri aldurshópunum, unglinga sem kunna orðið mikið fyrir sér í íþróttinni, þar var líka keppnin hörðust, sérstaklega í stórsvigi drengja 15—16 ára. Keppni i svigi karla var einnig nokkuð skemmtileg en þar bar hinn bráðefnilegi skíðamaður úr KR, Bjarni Þórðarson, nokkuð öruggan sigur úr býtum. Náði hann langbeztum brautartima i fyrri umferðinni, 60,19 sek., en í seinni umferðinni náði hins vegar Ármenningurinn Kristján Kristjánsson beztum tíma 61,07 sek. á móti 61,21 sek. hjá Bjarna og krækti Kristján þar með í þriðja sætið. Helztu úrslit i mótinu urðu þessi: STÓRSVIG Stúlkur 13—15 ára: Steinunn Sæmundsdóttir, A 124,8 Marfa Viggósdótt ir, KR 143,1 Nína Helgadóttir, lR 147,4 Drengir 13—14 ára: Ami Þór Arnason, A 133,8 Lárus Guðmundsson, A 148,0 Drengir 15—16 ára: Páll Valsson, IR 68,9 Hallgrímur Ifelgason, IR 70,7 Geir Sigu rðsson, A 77,1 Karlar: Guðjón Ingi Sverrisson, A 64,1 A rnór Guóbjartsson, A 66,0 Thor Strandenæs, IR 66,8 Konur: Jórunn Viggósdóttir, KR 68,7 Anna Día Erlingsdóttir, KR 90,8 Halldóra Hreggviðsdóttir, IR 121,7 SVIG: Stúlkur 13—15 ára: Steinunn Sæmundsdóttir, A 102,05 María Viggósdóttir, KR 108,47 Svava Viggósdóttir, KR 111,23 Konur: Jórunn Viggósdóttir, KR 133,86 Anna Día Erlingsdóttir, KR 160,63 Hildur Harðardóttir, IR 185,63 Drengir 15—16 ára: Helgi Geirharósson, A 124,25 Guðmundur Jakohsson, A 130,74 Hjörtur Þórðarson, A 132,53 Karlar: Rjarni Þórðarson, KR 121,40 Tómas Jónsson, A 124,42 Kristján Kristjánsson, A 124,59 Skíðamót ÍR Sklðadeild ÍR gengst fyrir skfða- móti fyrir börn 12 ára og yngri I Hamragili um helgina. Stórsvig verð- ur á laugardag, hefst keppnin klukk- an 14.00, en nafnakall klukkan 12.00. Á morgun verður keppt I svigi, keppnin hefst kl. 13.00, en nafnakall kl. 12.00 KR mœtir Njarðvíkingum Þrlr leikir fara fram I 1. deild Íslandsmótsins I körfuknattleik um helgina. Aðalleikurinn verður á milli KR og Ungmennafélags Njarðvlkur og hefst klukkan 14 oo I Hagaskóla I dag. Klukkan 17.oo hefst svo leikur ÍS og Snæfells I Kennaraháskólan- um. Á morgun klukkan 11.30 leika svo Snæfell og Valur á Akranesi. Páll Björgvinsson skorar I landsleik — vonandi tekst honum að leika þann leik sem oftast f Júgóslavíu. Hjördfs Sigurjónsdóttir skorar einamarksitt f leiknum við Armann á dögunum. Vonandi tekst Hjördfsi oft að klekkja á bandarfsku stúfkun- um f vörninni eins og hún hcfur snúið á Önnu Dóru. (Ijósm RAX.) Erfiðnr róðnr hjá handknattleiks- landsliðinn í Júgóslavín á morgnn tSLENZKA landsliðið f hand- knattleik karla leikur sfðasta leik sinn f undankeppni Olympfuleik- anna á morgun og mætir þá fiðið Júgósfövum f heimalandi þeirra. Kom fslenzka landsliðið til Júgó- slavfu f gærkvöldi og notar sfðan tfmann til þess að undirbúa sig fyrir leikinn. Litil von er til að íslenzka lands- liðið standist Júgóslövum snúning í leiknum á morgun. Sem kunnugt er eiga Júgóslavar eitt bezta handknattleikslandslið i heimi og eru þeir núverandi Olympíumeistarar. Lið þeirra hefur verið búið allvel undir leik- inn á morgun, en af mörgu má þó Leikið við Baiidaríkjastólkur á Keflavíkurflugvelli á morgun ISLENZKA kvennalandsliðið — eða unglingalandslið stúlkna — leikur á morgun gegn bandarfska kvennalandsliðinu f fþróttahúsi varnarliðsins á Kaflavfkurflug- velli. Hefst leikurinn klukkan 15.00. Bandarfska liðið er væntan- legt hingað til lands f dag og leikur þrjá leiki f ferðinni eins og greint hefur verið frá. Hingað til hefur fslenzkt lands- lið ekki tapað fyrir bandarfsku f handknattleik, en spurning er hvórt að þvf kemur f þeim þrem- ur leikjum, sem fyrirhugaðir eru f ferðinni. Bæði er það að banda- rfsku stúlkunum hefur að sögn mjög vaxið ásmegin að undan- förnu og svo hitt að það landslið Islands sem nú teflt fram er eng- an veginn eins sterkt og það gæti verið. Enda eru okkar reyndustu handknattleikskonur úti í kuldan- um og er það furðulegt hjá lands- liðsnefnd að gefa í skyn að kvennalandslið skuli lagt niður þó svo að örfáar sterkar hand- knattleikskonur gefi ekki kost á sér af persónulegum ástæðum. Hvernig væri það i karlahand- knattleiknum ef Ölafur H. Jóns- son og nafni hans Benediktsson bættust í hóp þeirra Geirs Hall- steinssonar og Pálma Pálmasonar — yrði þá landslið karla lagt nið- ur og unglingalandslið sent gegn Júgóslövum? Landsliðsnefndin hlýtur að breyta landsliðinu fyrir seinni leikina í ferðinni; ekki er stætt á öðru. Aö hverju eiga stúlkur eins og Oddný Sigsteinsdóttir og jafn- öldrur hennar að keppa ef ekkert er landsliðið. Það getur ekki verið stefna landsliðsnefndarinnar að ef handknattleikskona er orðið 22 ára þá eigi hún ekki möguleika á að komast f landsliðið. Landsliðs- nefndarmenn — og konur vita það jafnvel og undirritaður að um tvítugt hverfur stór hluti hand- knattleikskvennanna úr íþrótt- inni og því er bráð nauðsyn að sjá þeim, sem halda áfram og sýna hæfileika í íþróttinni fyrir aukn- um verkefnum, landsleikjum og einhverju öðru en leikjum með sínum félagsliðum við sömu mót- herjana ár eftir ár eftir ár. Þessari gagnrýni er engan veg- inn beint gegn stúlkunum, sem skipa landsliðið okkar í leiknum morgun. Þær hafa flestar sýnt áhuga í vetur og þeim fylgja ekk- ert annað en góðar óskir í leikn- um á Keflavíkurflugvelli á morg- un. -áij. marka að Júgóslavarnir óttast Is- lendinga ekki ýkja mikið í leikn- um. Til þess hafa þeir líka tæpast ástæðu. Þeir unnu fyrri leikinn i undankeppninni, sem fram fór í Reykjavík með 6 marka mun, og hingað til hefur júgóslavneska landsliðið ekki verið lamb að leika við á heimavelli. Kom fram 1 viðtali Morgunblaðsins við nokkra af júgóslavnesku landsliðsmönnunum, sem birtist fyrir nokkru, að þeir teldu allar líkur á mun stærri sigri í leiknum I Júgóslavíu. Undirbúningur landsliðanna fyrir undankeppni Olympfuleik- anna hefur einnig verið mjög ólik. Júgóslavneska landsliðið hefur æft meira og minna saman í mörg ár, en undirbúningur ís- lenzka liðsins hins vegar verið í nokkrum molum. Fyrir fyrri leik- inn, f desember, var reyndar farið í æfingaferð til Danmerkur, en eftir landsleikinn sögðu sumir landsliðsmannanna f viðtölum við fjölmiðla að sú ferð hefði verið það erfið að þreyta hefði setið í þeim í leiknum. Nú var undirbún- ingur landsliðsins nánast enginn áður en haldið var utan og leikið við Luxemburgara, enda var frammistaða liðsins í þeim leik eftir því. Hafa Luxemburgarar sennilega aldrei náð jafn hag- stæðum úrslitum og þeir náðu í leik þessum í keppni við þjóð sem talin er góð handknattleiksþjóð, en úrslit hans urðu 18:12. Má nefna til samanburðar að Júgó- slavar unnu leik sinn í Luxem- burg sem fram fór fyrir nokkru með 16 marka mun: 27:11. Eftir landsleikinn við Luxemburgara hefur fslenzka landsliðið svo leikið fjóra æfingaleiki við frönsk og vestur-þýzk félagslið og hefur útkoma í þeim leikjum tæpast verið til þess að hrópa húrra fyrir. Þó var árangur fslenzka liðsins í síðustu tveimur æfingaleikjunum viðunandi og bendir hún til þess að liðið hafi heldur verið að þjappast saman. Vonandi er að fslenzka lands- liðið nái viðunandi útkomu í leik sínum f Júgóslavfu á morgun. Þótt vonlaust megi heita að mögu- leikar séu á því að komast f loka- keppni Olympíuleikanna þá hafa úrslit leiksins eigi að síður mikil áhrif, ekki hvað sízt með tilliti til framtíðarviðskipta Islendinga við sterkustu handknattleiksþjóð- irnar. tslenzka handknattleiks- Framhald á bls. 27 Skíðaxkóli í Skálafelli SKÍÐADEILD KR mun um næstu helgar standa fyrir sklðakennslu fyrir almenning undir stjórn Jóhanns Vilbergssonar sklSakappa, en honum til aðstoðar verða nokkrir sklðamenn er kenna sem sjálfboðaliðar á vegum KR. Kennslan fer fram við lyftu 5, sem er austasta lyftan I Skálafelli og eru brekkur þar mjög hagstæðar til kennslu fyrir almenning. Kennt verður I 3 flokkum, eftir getu hvers og eins. Þátttakendur verða sem næst 10 I hverjum flokki. Kennslugjald er kr. 300 fyrir hverja önn og kr. 100 fyrir börn innan 12 ára. Fyrri önn er frá kl. 11.00—12.30 Slðari önn er frá kl. 15.00—16.30. Skráning fer fram við lyftu 5. Kennsla hefst næstkomandi sunnu- dag. Reynt verður að kynna almenningi allt það nýjasta sem kennt er I sklða- Iþróttinni og eru nokkrir KR-ingar erlendis um þessar mundir I þeim tilgangi að fylgjast með nýjungum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.