Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976
3
Kona fótbrotnaði í um-
ferðarslysi í Grindavík
Umferðarslys varð í grennd við'
Grindavfk á miðvikudag. Til-
kynntu þá tæknifræðingar her-
stöðvarinnar f Grindavfk lögregl-
unni f Grindavfk, að þeir hefðu á
leið sinni til vinnu ekið fram á
fólksbifreið, sem farið hefði út af
veginum á móts við Svartsengi.
Ökumaðurinn væri enn I bifreið-
inni og virtist slasaður á fæti.
Lögreglan fór þegar á vettvang
og var bifreiðastjórinn, sem var
kona, fluttur í slysadeild Borgar-
spitalans. Hafði hún fótbrotnað
og kvartaði auk þess undan
eymslum í brjóstholi og síðu. Bif-
reiðin skemmdist mikið, enda
hafði hún kastast á klett og vél
bifreiðarinnar gengið aftur undir
framsætið, sem jafnframt hafði
hrokkið fram við áreksturinn.
Ný símaskrá kemur út í apríl:
Pappírinn vegur
rúmlega 100 tonn
NYJA símaskráin er nú i
prentun, að sögn ritstjóra hennar,
Hafsteins Þorsteinssonar sim-
stjóra I Reykjavík. Reiknað er
með að stærð hennar verði 6—700
blaðsíður og upplagið rúmlega 90
þúsund eintök. Hafsteinn bjóst
við þvi að simaskráin yrði tilbúin
til afhendingar fyrri hluta apríl
n.k. en smátöf varð á útkomu
hennar vegna verkfallsins. Ekki
liggur ljóst fyrir hve mikill kostn-
Eskimóar á
Grænlandi
NORRÆJVA félagið i Hafnarfirði
gengst fyrir kvöldvöku í Iðnaðar-
mannahúsinu við Linnetsstíg á
sunnudagskvöld, og hefst hún kl.
9.
A kvöldvökunni talar Haraldur
Ólafsson lektor um Eskimóa á
Grænlandi, siði þeirra og menn-
ingu.
aður verður af útgáfunni, en þess
má geta, að pappírinn i skrána
vegur yfir 100 tonn. A móti kostn-
aði fást auglýsingatekjur af bók-
inni.
Fíkniefnamálið:
Höfuðpaurinn
laus úr gæzlu
FlKNIEFNADÖMSTÓLLINN
sleppti i gær Bandaríkjamanni
sem setið hefur i gæzluvarðhaldi í
tæpa 80 daga á meðan rannsókn
hefur farið fram á umfangsmesta
fíkniefnasmygli, sem upp hefur
komið hérlendis. Maður þessi er
höfuðpaurinn i málinu, en þarna
er um að ræða smygl á 23—24 kg
af fíkniefnum i gegnum Kefla-
víkurflugvöll. Megnið af því var
hass en einnig var um að ræða
marihuana, amfetamín og eitt-
hvað smávegis af LSD.
Hjónagarðarnir við Suðurgötu. Ljósm. Oi.k.m.
Hjónagarðar stúd-
enta í notkun í vor
FYRSTI áfangi Hjónagarða
stúdenta verður tekinn i notkun
1. maf n.k. Hefur Félagsstofnun
stúdenta þegar auglvst lausar til
leigu þrjátfu fbúðir sem tilbúnar
verða í vor. 1 þessum fyrsta
áfanga eru 57 íbúðir og verða þær
sem eftir eru væntanlega til-
búnar 1. okt. n.k.
Byggingarframkvæmdir við
hjónagarðana hófust 1972. 1
þessum fyrsta áfanga eru 57 fbúð-
ir, 53 þeirra eru tveggja her-
bergja en fjórar eru fjögra her-
bergja. Kostnaður við hjónagarð-
ana er nálægt 240 millj. I áætlun
sem gerð hefur verið fyrir hjóna-
garðana er gert ráð fyrir 180 íbúð-
um þ.e. þremur svipuðum húsum,
og nú verður tekið i notkun. Þá er
i áætluninni gert ráð fyrir gæslu-
velli og barnaheimili og verður
það verkefni tekið fyrir næst.
1 hverri ibúð eru eldhús og
stofa, svefnherbergi og baðher-
bergi. Þá eru í stærri íbúðunum
barnaherbergi. Einnig eru í ibúð-
unum ísskápar, rúm og hillur en
ekki húsgögn í stofu.
Hrafnkell Thorlacius teiknaði
hjónagarðana.
Hvað felst í samkomu-
laginu um lífeyrinn?
HVER verður hækkunin til lff-
eyrisþega lífevrissjóða, sem
eigi hafa verið verðtryggðir,
samkvæmt bráðabirgðasam-
komulagi vinnu veitenda og
ASI, sem gert var á dögunum?
Þessari spurningu er kannski
ekki gott að svara og er þvf
lffeyrisþegum bent á að spyrj-
ast fyrir um réttindi sfn hjá
viðkomandi sjóðum. Engu að
sfður ætlar Morgunblaðið í
stuttu máli að reyna að gera
grein fvrir þessu almennt.
Fyrsta spurningin er þá: Til
hverra nær samkomulagið?
Samkomulagið tekur aðeins til
fólks, sem hefur náð 70 ára
aldri og það verður að vera
hætt vinnu, nema það hafi þeg-
ar náð 75 ára aldri. Ennfremur
verður viðkomandi að hafa
unnið frá árinu 1955.
I öðru lagi má spyrja: Hver
verður lifeyririnn úr Iffeyris-
sjóðunum? Lífeyririnn verður
á bilinu frá 14.500 krónum á
mánuði til 19.000 króna frá og
með 1. janúar 1976 og þeir, sem
hafa haft lífeyri sem er lægri
en þessi, mega búast við hækk-
un upp í það mark, sem er á
þessu bili. Hækkunin vegna
samkomulagsins nemur 84% og
áður var lífeyrir, sem fólk fékk
samkvæmt lögum nr. 63 frá
1971 á bilinu 8.000 til 10.000
krónur. Þessi lifeyrir verður
síðan kauptryggður og fær
sömu hækkanir og 2. taxti dags-
brúnar. Hækkar þessi lifeyrir
hinn 1. júní næstkomandi um
6% og 1.500 króna láglauna-
uppbót, þannig að heildar-
hækkunin þá verður um 10%.
Breytingar verða síðan til
hækkunar vegna kauptrygging-
ar hinn 1. júní og 1. janúar
næstu 2 ár.
Hvað um ellilífeyri? Þeir líf-
eyrisþegar, sem hér um ræðir
fá að auki ellilífeyri sem er um
16.000 krónur frá Trygginga-
stofnun ríkisins, þannig að ein-
staklingur ætti að fá á bilinu
frá 30.000 til 35.000 krónur á
mánuði. Er hér eingöngu átt við
einhleypinga.
Hvað um hjón? Hjón geta
bæði notið lífeyrisréttinda hafi
bæði unnið eins og að ofan
greinir. Að auki fá þau ellilíf-
eyri, sem er 80% hærri en elli-
lifeyrir einstaklings eða um
29.000 krónur. Sé annað hjóna
látið, fær makinn um 60% af
lífeyrisgreiðslum sem makinn
átti rétt á hefði hann lifað og er
það greiðsla á mánuði á bilinu
8.000 til 12.000 krónur. Sá mak-
inn hins vegar 67 ára eða eldri,
fær hann að auki ellilifeyri frá
almannatryggingum, sem er
rúmlega 16.000 krónur, en sé
konan á bilinu 50 til 67 ára, fær
hún ekkjulífeyri í stað elli-
launa.
Hvað um tekjutrvggingu?
Tekjutrygging er fyrir lífeyris-
þega, sem engar aðrar tekjur
Framhald á bls. 27
Einstaklingur, sem hættir vinnu 70 ára með 15 ára lifeyrisrétt:
Áöur kr. Eftir kr. Hækkun
Lifeyrissjóður 8.604 15.802 84%
Ellilífeyrir 16.946 16.946 0%
Tekjutrygging 12.148 12.148 0%
Samtals 37.698 44.896 19%
Hjón, annað með 15 ára Iffeyrisrétt:
Aður Eftir Hækkun
kr. kr.
Lifeyrissjóður 8.604 15.802 84%
Ellilífeyrir 30.503 30.503 0%
Tekjutrygging 23.224 23.224 0%
Samtals 62.331 69.529 ! 12%
Ur leikritinu „Halló krakkar".
„Halló krakkar”
sýnt að nýju
Stolið úr
Klúbbnum
I FYRRINÖTT var einhverju
magni af áfengi stolið á einum
barnum í veitingahúsinu Klúbbn-
um. Er talið að einn ballgesta
kvöldiíf áður hafi viljandi látið
loka sig inni í húsinu, og siðan
tekið upp iðju sína þegar allir
aðrir voru farnir. Málið er í
rannsókn.
Ýsuflök
hœkka
um 24%
RlKISSTJÓRNIN hefur stað-
fest ákvörðun verðlagsnefndar
um hækkun á neyzlufiski, en
hún fylgir 1 kjölfar hækkunar
á almennu fiskverði. Hvert kg
af ýsuflökum hækkar úr 204
krónum f 253 krónur eða 24%.
Kg af ýsu með haus hækkar úr
91 krónu f 114 krónur eða
25,3%. Hvert kg. af þorsk-
flökum hækkar úr 204 krónum
f 251 krónu eða 23%. Hvert kg
af þorski með haus hækkar úr
91 krónu f 113 krónur eða rétt
rúm 25%.
LEIKFELAG Hafnarf jarðar
byrjar um helgina að sýna leikrit-
ið „Halló krakkar" að nýju eftir
nokkurt hlé.
Verður fyrsta sýn-
ingin f Félagsheimili Kópavogs
sunnudaginn 7. marz klukkan 13.
Sfðan er áætlað að halda áfram
þar sem frá var horfið og sýna um
helgar f marz-aprfl f Bæjarbfói í
Hafnarfirði, skólum á Reykja-
vfkursvæðinu og út um sveitir
landsins eftir þvf sem við verður
komið og fjárhagur leyfir. Leik-
endur eru 6 og leikstjóri Magnús
Axelsson.