Morgunblaðið - 06.03.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976
7
Öryggishags-
munir íslands
Þótt furðulegt kunni að
virðast er Tlmanum, mál-
gagni utanrlkisráðherra,
ekki Ijóst I hverju öryggis-
hagsmunir fslands eru
fólgnir og það þvælist ber-
sýnilega mjög fyrir skrif-
urum Tlmans að átta sig á
þeim grundvallarmun,
sem er á öryggismálum
okkar og landhelgismál-
um. Þegar rætt er um
að tryggja þurfi öryggi
lands og þjóðar er átt
við að gera þurfi ráð-
stafanir til þess að við
höldum þvl frelsi og þvl
sjálfstæði, sem fullvalda
þjóð> sem við öðluðumst
hinn 17. júnl 1944 eftir
aldalanga baráttu við er-
lenda yfirstjórn I tslenzk-
um málefnum. Sérhver
sjálfstæð þjóð I veröldinni
hefur talið sér nauðsyn-
legt að tryggja með ein-
hverjum hætti. að frelsi
þegna hennar og sjálf-
stæði verði ekki skert en
skerðingin er I þvl fólgin,
að sjálfsákvörðunarréttur
viðkomandi þjóðar er tak-
markaður með einhverj-
um hætti. Við höfum gert
tvenns konar ráðstafanir
til að tryggja frelsi okkar,
sjálfstæði og sjálfsákvörð-
unarrétt. Annars vegar
með aðild okkar að Atl-
antshafsbandalaginu.
Hins vegar með varnar-
samningnum við Banda-
rlkin. Við höfum gerzt að-
ilar að þessu bandalagi
og tekið upp samstarf
við Bandarlkin um vamir
landsins vegna þess, að
við höfum talið, eins og
allar aðrar frjálsar þjóðir I
Evrópu, að öryggi okkar
þ.e. frelsi, sjálfstæði og
sjálfsákvörðunarrétti. sé
ógnað af hervaldi Sovét-
rlkjanna. Við höfum séð,
hvernig Sovétrlkin hafa
beitt þessu hervaldi til
þess að skerða sjálfs-
ákvörðunarrétt annarra
þjóða I Evrópu og viljum
ekki fara sömu leið sjálfir.
Þetta eru þeir hagsmunir,
sem nefndir eru öryggis-
hagsmunir.
Barátta um
auðlindir
Landhelgisdeilan við
Breta er barátta um auð-
lindir. Við teljum þessar
auðlindir okkar eign. Þess
vegna höfum við helgað
okkur þær. Allar aðrar
þjóðir en Bretar hafa við-
urkennt yfirráð okkar yfir
þessum auðlindum I raun,
en engin þjóð hefur viður-
kennt útfærslu okkar
lagalega. Á þessu tvennu
er mikill munur. Um leið
og við færðum út I 200
sjómflur gerðum við okkur
Ijóst, að enda þótt út-
færslan væri I samræmi
við þróun alþjóðaréttar á
þessu sviði var hún ekki I
samræmi við alþjóðalög.
Sendimenn okkar eru hins
vegar að vinna að þvl á
hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna að þar
verði samþykkt alþjóða-
lög, sem tryggi hagsmuni
okkar en engir vita það
betur en við sjálfir. að sllk
alþjóðalög hafa enn ekki
verið samþykkt. Þessi
barátta um auðlindir
skiptir höfuðmáli fyrir
okkur en við megum samt
ekki láta hana blinda okk-
ur svo mjög, að við lýsum
okkur reiðubúna til þess
að fórna öryggishagsmun-
um okkar hennar vegna.
Við björgum ekki þorskn-
um með þvl.
Framsóknar-
flokkurinn
og Nato
Framsóknarf lokkurinn
hefur alltaf verið tvlskipt-
ur I afstöðunni til aðildar
okkar að Atlantshafs-
bandalaginu og dvalar
varnarliðsins hér á landi.
Þau öfl innan Framsókn-
arflokksins. sem hafa
stutt þessa stefnu I örygg-
ismálum, hafa þó jafnan
orðið yfirsterkari að lok-
um. Alfreð Þorsteinsson
hefur hingað til verið tal-
inn I þeim hópi. Vera má,
að hann horfi til annarra
átta nú. Tækifærissinnnar
eru I öllum flokkum. Stöð-
uglyndi og stefnufesta
virðast orðnir fátlðir eigin-
leikar I fari þeirra, sem
hafa afskipti af stjómmál-
um. En þess mættu þeir
minnast, sem virðast
freistast til að hlaupa und-
an merkjum, að tækifær-
issinnar hafa aldrei átt
upp á pallborðið hjá is-
lenzkum kjósendum. Sú
sannfæring þjóðarinnar,
að sjálfstæði hennar og
frelsi sé bezt tryggt eins
og nú er ástatt I heimin-
um með aðild okkar að
Atlantshafsbandalaginu
og vamarsamningi við
Bandarikin hefur hvað eft-
ir annað komið sterklega
fram I kosningum en
aldrei þó eins og I undir-
skriftasöfnun Varins lands
veturinn 1974 og kosn-
ingasigri Sjálfstæðis-
flokksins þá um sumarið.
Þegar þjóðin varð þess
vör, að vinstri flokkarnir
hygðust fóma öryggis-
hagsmunum hennar á alt-
ari innbyrðis samninga-
makks tók hún til sinna
ráða og það eftirminni-
lega. Framsóknarflokkur-
inn ætti ekki að gleyma
þvl. Og dauðateygjur
brezka togaraflotans á ís-
landsmiðum breyta hér
engu um.
iffleóöur
á morgun
Guðspjall fyrsta sunnudags (
föstu: Matteus 4, 1—11. Frelst-
ing Jesú.
Fjólublár, sem er litur iórunar
og yfirbótar, er einkennislitur
föstunnar.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar
DÓMKIRKJAN Æskulýðs-
messa kl. 11 árd. Séra Óskar J.
Þorláksson dómprófastur.
Föstumessa kl. 2 siðd., Litanían
sungin. Séra Þórir Stephensen.
LAUGARNESKIRKJA. Messa
kl. 2 síðd. Pétur Maack stud.
theol. predikar. Ungmenni
aðstoða við guðþjónustuna.
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
SéraGarðar Svavarsson.
FlLADELFlUKIRKJAN. Safn-
aðarguðþjónusta kl. 2 siðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
ARBÆJARPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Æskulýðsguðþjón-
usta í skólanum kl. 2 siðd. Ungt
fólk aðstoðar. Helgileikur
fluttur. Kvöldvaka Æskulýðs-
félagsins á sama stað kl. 8.30
síðd. Fjölbreytt dagskrá. Allt
safnaðarfólk er velkomið. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
KIRKJA ÓHAÐA SAFNAÐ-
ARINS. Messa kl. 2 síðd.
Kirkjugestum boðið til kaffi-
drykkju í Kirkjubæ eftir
messu. Séra Emil Björnsson.
ENSK messa verður i Háskóla-
kapellunni kl. 12 á hádegi.
LANGHOLT'SPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Séra Árelíus Nielsson.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Ræðu-
efni: Þú átt brýnt erindi að
leysa i dag, ef það er mikil-
vægara en það sem Kristur á
við þig. Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Óskastundin kl. 4
Sfðd. Sig. Haukur. Sóknar-
nefndin.
DÓMKIRKJA KRISTS KON-
UNGS, Landakoti, Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd.
Asprestakall.
Guðþjónusta að Norðurbrún 1
kl. 2 síðd. Séra Árelíus Níels-
son.
GRENSASKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Æskulýðs-
messa kl. 2 síðd. Gunnar J.
Gunnarsson stud. theol.
prédikar. Fermingarbörn eru
beðin að koma til messunnar.
— Biblíulestur verður I safn-
aðarheimilinu n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 8.30 Séra Halldór S.
Gröndal.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík.
Guðþjónusta kl. 5 síðd. Sigurð-
ur Bjarnason prédikar.
FELLA- OG HÓLASÓKN.
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
Fellaskóla. Æskulýðsmessa I
skólanum kl. 2 siðd. Séra
Hreinn Hjartarson
hjAlpræðisherinn.
Klukkan 11 ár helgunarsam-
koma kl. 2 siðd. sunnudaga-
skóli. Kl. 8.30 hjálpræðissam-
koma. Kapt. Daniel Óskarsson.
HATEIGSKIRKJA. Barnaguð-
þjónusta kl. 10.30 árd. Séra
Arngrimur Jónsson. Messa kl. 2
síðd. Dr. Jakob Jónsson messar.
Séra Jón Þorvarðsson. Síðdegis-
guðþjónusta kl. 5 siðd. Séra
Arngrimur Jónsson.
ELLI- OG HJUKRUNAR-
HEIMILIÐ Grund. Guðþjón-
usta kl. 10 árd. Séra Lárus Hall-
dórsson messar.
SELTJARNARNESSÓKN.
Guðþjónusta í félagsheimilinú
á Seltjarnarnesi kl. 11 árd. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
HALLGRlMSKIRKJA Æsku-
lýðsmessa kl. 11 á vegum Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar og
æskulýðsstarfsemi þjóð-
kirkjunnar. Séra Jón Dalbú
Hróbjartsson prédikar. Fjöl-
skyldumessa kl. 2 siðd. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson. Mánu-
dags- og þriðjudagskvöld kl. 6
kvöldbænir, lesið úr Passíu-
sálmunum. Messa kl. 15.30 Sig-
urður Þ. Árnason guðfræði-
nemi og Oddur Albertsson
menntaskólanemi tala. Skóla-
prestur þjonar fyrir altari, —
altarisganga. Kirkjukaffi eftir
messu I umsjá Kristilegrar
skólastarfsemi og kristilegs
stúdentafélags.
FRlKIRKJAN f Reykjavfk.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Séra Þorsteinn Björnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd.
Æskulýðsmessa kl. 2 síðd. í
Breiðholtsskóla. Ungt fólk að-
stoðar og syngur. Séra Lárus
Halldórsson.
NESKIRKJA. Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2
siðd. Ungmenni aðstoða og
æskulýðskór syngur. Séra Guð-
mundur Óskar Olafsson.
BÚSTAÐAKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 11. Guðþjónusta kl. 2
siðd. Ungt fólk aðstoðar við
messuflutning. Séra Ólafur
Skúlason.
LAGAFELLSKIRKJA Æsku-
lýðsguðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Bjarni Sigurðsson.
KARSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma I Kársnesskóla
kl. 11 árd. Messa i Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Guðni Þór
Ólafsson guðfræðinemi prédik-
ar. Séra Árni Pálsson.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma I Vighólaskóla
kl. 11 árd. Æskulýðsguðþjón-
usta I Kópavogskirkju kl. 2
síðd. Séra Þorbergur Kristjáns-
son.
GARÐAKIRKJA Guðþjónusta
kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriks-
son.
FRlKIRKJAN 1 HAFNAR-
FIRÐI Barnasamkoma kl. 10.30
árd. Guðþjónusta kl. 2 siðd.
Hilmar Baldursson kennari
Framhald á bls. 25
Sinfóníuhljómsveit íslands
Fjölskyldutónleikar
í HÁSKÓLABÍÓI í DAG KL. 14.
Á efnisskránni eru þessi verk:
HÁTÍÐ DÝRANNA eftir Saint-Saéns, Lagasyrpa úr
WEST SIDE STORY eftir Bernstein. RITVÉLIN eftir
Leroy Anderson, og ennfremur LÍNA LANGSOKKUR.
Kynnirer KJARTAN RAGNARSSON LEIKARI.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn.
eru nú aftur fyrirliggj-
andi. Verð kr.
35.202,— með sölu-
skatti. Innifalið í
verði: hjðl, kaplar,
hjálmur, tengur og
tengidós. Flestir vara-
hlutir fyrirliggjandi.
Ennfremur fyrirliggj-
andi: suðuvettlingar
kr. 659.—, suðu-
svuntur kr. 2.400.—,
ermahlífar kr.
1.661.—
Bandarísku 225-amp.
rafsuðuvélarnar
Mikið úrval af slípi- og
skuðarskífum á hag-
stæðu verði.
Iðnaðarvörur
Kleppsveg 150, Reykjavík
Pósthólf 4040, sími 86375
SKÓBÆR
Póstsendum.
Laugavegi 49,
sími 2 27 55.