Morgunblaðið - 06.03.1976, Síða 27

Morgunblaðið - 06.03.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1976 27 Sembaltón- leikar í dag A, háskólatónleikum í Félags- stofnun stúdenta sem hefjast kl. 17 f dag leika EHn Guðmunds- dóttir og Helga Ingólfsdóttir tón- list fyrir tvo sembala eftir Bach, Couperin, Krebs, Tomkins og Carlton. Verkin eru öll samin á 16. og 17. öld. Þess skal getið sem vel er gert Siglufirði 5. marz. 1 DAG hafa menn frá vegagerð- inni verið að saltbera Skriðurnar og var fyllilega tími til kominn. Eins og menn muna fór bíll þarna út af fyrir skömmu vegna hálku og mjög mikil hálka var á vegin- um I morgun. Er þetta vafalsut miklu ódýrari og betri ráðstöfun en senda veg- hefil alla leið frá Sauðárkrók til að rífa upp Skriðurnar. Vona Siglfirðingar að sams konar fram- kvæmda verði að vænta í framtíð- inni þegar klaki sezt í Skriðurnar. Stálvíkin var að koma inn eftir stutta útiveru með 40 tonn af fiski. Hún landaði um daginn i Færeyjum og hefur verið stutt á veiðum. —m.j. PAS-nefnd stofnuð AKVEÐIÐ hefur verið að stofna stuðningsnefnd við baráttu verka- lvðsstéttar Portúgals, Angóla og Spánar. Fundur til undirbúnings stofnun nefndarinnar (PAS- nefndar) hefur verið boðaður að Laugavegi 53A, Sunnudaginn 7. marz klukkan 3. r Agreiningur inn- an stjómarinnar? Osló, 5. marz. NTB. EINAR Agústsson, utanrikisráð- herra lslands, endurtók f viðtali við Oslóarblaðið Dagbladet að það væri persónuleg skoðun sfn, að fslenzka rfkisstjórnin myndi krefjast þess að Bandarfkjamenn drægju herlið sitt á burtu frá tslandi og ef það ekki kæmi að gagni f sambandi við afstöðu NATO til fiskveiðideilu Breta og Islendinga mundu Islendingar hætta þátttöku f NATO. Haft er eftir stjórnmálafrétta- riturum í Reykjavík, að þeir leggi nú stöðugt meira upp úr um- mælum utanríkisráðherrans og lögð er áherzla á að staða Einars hafi styrkst ' innan rikisstjórn- arinnar og meðal þjóðarinnar frá því að þorskastríðið hófst og hann sé nú æ oftar nefndur sem næsti forsætisráðherra Islands. — Stal Framhald af bls. 28 800 þúsund krónur. Þá hefur pilturinn einnig viðurkennt innbrot í hús eitt í Túnunum, þar sem hann stal hljómflutnings- tækjum að verðmæti vel á annað hundrað þúsund krónur. Þýfið fannst heima hjá pilti og var það litt eða ekkert hreýft. Pilturinn hefur áður komið við sögu lögreglunnar. — Eftirmaður Framhald af bls. 1 Brezhnev, er hann lætur af störf- um, en hann er nú 71 árs. Roman- ov, sem eins og fyrr segir er 53 ára, er yngstur þeirra, sem sæti eiga í ráðinu. Frami hans innan flokksins hefur verið fremur skjótur, hann hefur t.d. átt sæti í miðstjórn flokksins i 10 ár og að- eins verið varamaður f stjórn- málaráðinu í 3 ár. Romanov er bóndasonur og hann lauk námi i skipasmíðum er hann var 40 ára. Hann vakti fyrst opinbera athygli, er hann árið 1970 var gerður að aðalritara flokks- deildarinnar í Leningrad, sem er sú næst stærsta í landinu. 1 ræðu sinni á flokksþinginu lagði Romanov áherzlu á aukna verkmenntun á Leningradsvæð- inu og var ræða hans að sögn stjórnmálafréttaritara mjög hóg- vær og hann forðaðist t.d. alveg fjálgleg lofsyrði um Brezhnev, sem einkenndu ræður margra fulltrúa. Hann var einn af for- setum þingsins. Hækkun Ustinovs kom hins vegar ekki á óvart, þar sem hann hefur verið varamaður í ráðinu i 20 ár. Hann hefur starfað innan sovézku ríkisstjórnarinnar síðan 1941, yfirleitt sem yfirmaður vopnaframleiðslu landsins. Hann er fyrsti varaforsætisráðherra landsins nú. Hann var kjörinn i miðstjórnina 1952. Kosning hans nú er talinn ábending um að þeir stjórnmálaráðsmenn, sem vilja auknar fjárveitingar til hermála, hafi fengið vilja sinum fram- gengt, enda lagði Brezhnev á það áherzlu í setningarræðu sinni, að herir landsins skyldu fá allt sem sem nauðsynlegt væri talið til þess að þeir gætu uppfyllt skyld- ur sínar gagnvart þjóðinni. Anastas Mikoyan lét nú opin- berlega af störfum innan flokks- ins og var ekki kjörinn aftur i miðstjórnina, þar sem hann átti sæti I hálfa öld. Hann er nú átt- ræður og einn af kunnustu stjórn- málamönnum Sovétrikjanna. Hann hóf störf sem viðskiptaráð- herra í stjórn Stalins 1926, en lét af opinberum störfum 1965, eftir að hafa verið forseti landsins um hálfs annars árs skeið. — Loðna Framhald af bls. 28 Alftafell 230, Húnaröst 260, Huginn 400, Loftur Baldvinsson 500, Hilmir KE 130, Dagfari 260, Gullberg 400, Harpa 330, Náttfari 260, Albert 300, Sæunn 170, Kap 11 50, Eldborg 540, Kristbjörg 200, Ísleifur 260, Arnarnes 220 og Höfrungur III 250. — Leitað eftir... Framhald af bls. 28 bréf f gær, en hann bjóst fastlega við þvf að þetta erindi dómsmála- ráðuneytisins yrði sent áfram fljótlega upp úr helginni. Dómsmálaráðuneytið sendi í gær frá sér fréttatilkynningu um þetta mál og önnur sem varða Landhelgisgæzluna og fer hún orð- rétt hér á eftir: „Skilað hefur verið til rfkis- stjórnarinnar bráðabirgðagreinar- gerð um athugun á æskilegustu ráðstöfunum til eflingar Land- helgisgæzlunni. Leitað hefir verið álits nokkurra skipherra um hverjar ráðstafanir þeir teldu helzt koma til greina og aflað hefur verið ýmissa gagna, einkum um hraðgeng skip, til upplýsingar um æskilegustu úrræði. Hafa skip- herrarnir, að því er hraðgeng skip varðar, einkum haft augastað á 2 gerðum, af bandarískum gæzlu- skipum af „Asheville“-gerð og rússneskum smáfreigátum af „Mirka“-gerð. Hefir dómsmála- ráóuneytið þegar óskað þess í bréfi til utanríkisráðuneytisins að þeirri málaleitun verði beint form- lega til Bandaríkjastjórnar að lát- in verði í té skip af fyrrnefndu gerðinni eða önnur samsvarandi. Er vitnað til ákvæðis í viðauka frá 1974 við varnarsamning við Bandarfkin þessari málaleitun til stuðnings. — Athugun hefur verið gerð á kostnaði við rekstur Land- helgisgæzlunnar nú undanfarið, og er ljóst, að kostnaður, þegar við núverandi aðstæður, mun fara verulega fram úr fjárveitingum fjárlaga og mun verða leitað við- ræðna á næstu dögum við alþingis- menn úr viðkomandi nefndum þingsins, um mögulegar fjáröfi- unarleiðir. Frekari viðræður verða við skipherra og flugstjórnarmenn nú um helgina. Frekari athugun- um á mögulegri tækjaöflun mun haldið áfram, m.a. með milligöngu utanríkisráðuneytisins. Upplýst skal að í pöntun er meðalstór þyrla sem hæf er til notkunar frá varð- skipunum. Er vænzt afgreiðslu á henni á næstu vikum." — Áburður Framhald a.f bls. 28 spurðist fyrir um hvað liði þeirri verðákvörðun. Hjá Guðmundi kom fram að horfur eru á að % lækk- un á áburði erlendis frá vegi upp á móti kostnaðarhækkun áburðar hérlendis og tapi því, sem Áburðarverksmiðjan hefur orðið fyrir vegna gengis- sigs. Hins vegar hefði ekki verið tekin ákvörðun um, hvort áburður yrði áfram greiddur niður í þeim mæli, sem var á siðastliðnu ári, en þá var varið 750 milljónum króna til niðurgreiðslna á áburðar- verðinu. Sagði Guðmundur að ef þessi niðurgreiðsla yrði felld niður yrði áburður að hækka um 40% og hann tók einnig fram að niðurgreiðslur á áburði hefðu verið teknar upp að tillögu nefndar, sem skipuð var til að kanna áhrif áburðarverðshækkunarinnar í fyrra og það hefði verið tillaga nefndarinnar að niðurgreiðsl- urnar yrðu lækkaðar í áföng- um á þremur árum. — Air Viking Framhald af bls. 2 Unnsteinn sagði, að í gær hefði verið veitt leyfi fyrir því að flug- vél Air Vikings flygi með farþega ferðaskrifstofunnar Sunnu til Kanaríeyja og tæki þar 170 far- þegatil baka. Sagði Unnsteinn, að aðeins yrði veitt leyfi fyrir þessu eina flugi. Hefði það fyrst og fremst verið gert með það í huga, að farþegar þeir, sem dvelja ytra, yrðu ekki vegalausir. — Pundið Framhald af bls. 1 að bankinn hafi gert þetta fyrir ríkisstjórn Nígeríu, sem hafi viljað minnka peninga- eign sina í pundum. Pundið var skráð á 4.03 dollara i lok heimsstyrjaldarinnar, það var fellt niður í 2.80 dollara 1949 og síðan í 2.40 dollara 1967. Það var síðan hækkað í 2.60 dollara 1971, eins og fyrr segir. — Bretar Framhald af bls. 13 sína svo að sjóherinn gæti einbeitt sér að alvarlegri verk- efnum. Þar með mundi borgaralegt löggæzlulið fást við veiðiþjófa og minni hætta yrði á tilfinningaþrungnum árekstrum eins og á tslands- miðum sem Bretar segja að ts- lendingar hafi reynt að hafa af sálrænan ávinning. En þar sem þetta hefði kostnaðarauka í för með sér er talið víst að sjóherinn sjái um þetta starf eins og hingað til.j Því er þess krafizt að hann fái rétt skip til starfsins í stað þeirra sem nú séu notuð og séu undarlegt samansafn og óheppileg. Eins og nú sé ástatt verói brezku varðskipin að kalla á hjálp eða koma of seint á vettvang. — fþróttir Framhald af bls. 26 landsliðið er frægt fyrir að standa sig einna bezt þegar við minnstu er búizt af því, og víst er að enginn á von á að heyra hagstæð úrslit frá Júgóslaviu á morgun. Hafi hins vegar náðst upp bæri- legur baráttuandi og kraftur í lið- inu, má gera þær kröfur til þess að það fái ekki slæma útreið hjá júgóslavnesku meisturunum, og það er það bezta sem hægt er að gera sér vonir um. — Spariskírteini Framhald af bls. 2 þeim og verðbætur, eru skatt- frjáls og framtalsfrjáls á sama hátt og sparifé. Þau skulu skráð á nafn, með nafnnúmeri eiganda. Sérprentaðir útboðsskilmálar fást hjá söluaðilum, sem eru sem fyrr bankar, sparisjóðir og nokkr- ir verðbréfasalar í Reykjavik. — Hvað felst... Framhald af bls. 3 hafa en lífeyri. Akveðið þak hefur verið í gildi á öðrum tekj- um lífeyrisþega. Hefur það ver- ið rúmlega 3.000 krónur, en hefur nú með samkomulaginu verið hækkað í 10.000 krónur. Fyrir hverjar 1.000 krónur, sem þessar aukatekjur fara fram yf- ir 10.000 krónur, lækkar tekju- tryggingin um550 krónur. Ástæða er til þess að benda lífeyrisþegum á að margir þeirra, sem átt hafa réttindi í lifeyrissjóðum, þótt þeir upp- haflega hafi ekki fallið undir ákvæði laganna frá 1971, gætu nú átt réttindi til uppbótar á lifeyri sinn. í slíkum tilfellum geta lífeyrisþegar lítt annað gert en að hafa samband við lífeyrissjóði sína og athuga stöðu sína gagnvart þessu nýja B ráð ab irgðasam komu 1 agi. Að lokum skulu hér tilfærð tvö dæmi, þar sem engar tekjur eru aðrar en lífeyrisréttindi. — Aðstoð við Framhald af bls. 2 an neyðarsjóð Hjálparstofnun- ar kirkjunnar. Er í því skyni stefnt að því að koma upp öfl- ugu styrktarmannakerfi, þar sem styrktarmenn legðu af mörkum t.d. ársfjórðungslega eitthvert brot af tekjum sínum til Hjálparstofnunar kirkjunn- ar. Ársfjórðungslega munu þessir styrktarmenn síðan fá sent fréttabréf þar sem minnzt verður á verkefni líðandi stundar. Það er von allra þeirra, sem að framkvæmd þessarar fórnar- viku standa, að ná megi al- mennri samstöðu í landinu til hjálpar þroskaheftum börnum. Reynt verður að kynna málefni þeirra i fjölmiðlum á breiðum grundvelli og landsmenn hvatt- ir til að láta hug sinn til þessara barna í ljós með framlögum f landssöfnunina og minnir Hjálparstofnun kirkjunnar í því skyni á gíróreikning 20.000. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur í mörg ár beðið um lið- sinni landsmanna til hvers kyns neyðarverkefna Hér er á ferðinni málefni sem ætti að standa öllum Islendingum nær en mörg önnur. — Borgarstjórn Framhald af bls. 5 þeirra, ef lokast fyrir þau við- skipti. Borgarstjórn telur eðlilegt, að það verði að koma til mats við hver einstök kaup, hvort beina eigi viðskiptum tíl Bretlands. Borgarstjórn visar því frá fram- kominni tillögu.“ Markús Örn Antonsson mælti með frávísunartillögunni og taldi Sigurjón Pétursson ekki sjálfum sér samkvæman við þennan til- löguflutning, þvi að nýverið hefði ferðaskrifstofa Sigurjóns gengizt fyrir mikilli auglýsingaherferð þar sem mjög var hvatt til þess að almenningur sækti Breta heim. Auglýstar hefðu verið skreppitúr- ar til Glasgow og helgarferðir til Bretlands, svo eitthvað væri nefnt. (Sigurjón Pétursson á sæti í stjórn Landsýnar og Alþýðuor- lofs). Björgvin Guðmundsson mælti gegn tillögu Sigurjóns og Alfreðs. Taldi hann viðskiptabann Reykja- vikurborgar ekkert hafa að segja í landhelgismálinu og í sama streng tóku Albert Guðmundsson og Magnús L. Sveinsson. Albert taldi tilganginn með tillögunni fyrst og fremst þann að gera rikis- stjórninni erfiðara fyrir um lausn landhelgismálsins, en auk þess væri tillagan vanhugsuð og til þess fallin að skaða hagsmuni Reykjavíkurborgar. Það kom fram í máli Sigurjóns Péturssonar síðar i umræðunum, að honum hafði verið ljóst frá upphafi að tillagan yrði felld. Frávísunartillaga borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins var að lokum samþykkt gegn atkvæðum Kristjáns Benediktssonar, Þor- björns Broddasonar, Öddu Báru Sigfúsdóttur og flutningsmanna. — Verkfallið á Akranesi Framhald af bls. 2 sjálfsögðu mjög vitavert að verk- fallskonur hindri á ólögmætan hátt félagsmenn félags, sem samningar hafa tekist við, í að rækja störf sín. Lögbannsaðgerðum við þessum ólögmætu vérkfallsaðgerðum hefir hins vegar ekki enn verið beitt. Frekari greinargerð verður birt, ef þurfa þykir. I nefndri grein kemur einnig fram, að verkakonur á Akranesi fari fram á, að uppsögn verði ávallt miðuð við siðasta dag hverrar vinnuviku. 1 tilefni af því, taka undirrituð samtök fram eftirfarandi: M.a vegna óljósra ákvæða í fyrri kauptryggingarsamningi, var gripið til tiðari uppsagna á ýmsum stöðum en æskilegt var, þegar hráefni var af skornum skammti. Gekk það jafnvel svo langt, að beitt var vikulegum uppsögnum i einstaka tilfellum, þannig að kauptryggingarsamn- ingur komst ekki fullkomlega i gildi nema e.t.v. hluta úr viku. I tengslum við þá samnings- gerð, sem lá að baki endurnýj- uðum kauptryggingarsamn- ingum, var leitað skilnings stjórn- ar atvinnuleysistryggingasjóðs m.a á uppsagnarákvæðum fyrri samninga A grundvelli þess skilnings tókust siðan samningar um skýrari reglur, sem m.a. tryggja það, að þegar samningur tekur gildi á ný eftir að honum hefur verið sagt upp, getur hann aldrei fallið úr gildi vegna upp- sagnar fyrr en eftir minnst 7 sólarhringa, og trvggir hann þannig réttarstöðu verkakvenna mun betur en fyrri samningar. Verkakvennafélagið á Akranesi fer hins vegar fram á að fyrra fyrirkomulag samninga verði tekið upp, þ.e. sagt verði upp miðað við vikuskipti, þ.e. fyrir- komulag, er reyndist valda tiðum uppsögnum á fyrra samnings- timabili, og auk þess hefur félagið farið fram á, að kauptryggingar- samningurinn virki aftur fyrir sig, þ.e. á tímabili, sem hann er úr gildi vegna uppsagnar. Með kauptryggingarsamn- ingum i fiskiðnaði er verið að reyna að nálgast það mikla vanda- mál að tryggja, svo sem kostur er, fasta vinnu þrátt fyrir að hrá- efnisöflun, eins og öllum islend- ingum mun kunnugt, getur verið stopul á ýmsum timabilum og ýmsum stöðum á landinu. Kaup- tryggingarsamningurinn hefur stuðlað verulega að festu i þessu sambandi og það leiðir af sjálfu sér að þegar náðst hefur heildar- samningur varðandi þessi vand- meðförnu málefni við Verka- mannasamband Islands og þar með á landsmælikvarða, þá er ekki réttlátt að fámennur hópur verkakvenna geti með valdbeit- ingu knúið fram viðbætur og önnur kjör fyrir sig. Samtök vinnuveitenda myndu sannarlega ekki styðja hóp vinnuveitenda eins og t.d. á Akranesi i þvi að neita að veita verkafólki á staðnum kjarabætur, sem heildar- kjarasamningar hefðu gert ráð fyrir gagnvart öðru verkafölki í landinu, hliðstæðar kröfur varð- andi samræmingu verður að gera til kvennadeildar Verkalýðsfélags Akraness. Vinnuveitendasamband tslands, Barði Friðriksson. Vinnumálasamband samvinnufélaganna, Júlíus Kr. Valdimarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.