Morgunblaðið - 14.03.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976
Flugleiðir annast næstu
Kanaríeyjaferðir Sunnu
SAMNINGAR hafa nú tekizt
milii forráúamanna Flugleiúa og
Hljómeyki syng-
ur á Akureyri
Akureyri 11. marz
HLJÖMEYKI, átta manna söng-
flokkur undir stjórn Rutar L.
Magnússon söngkonu, heldur tón-
leika f Borgarbfói á Akureyri 1
dag kl. 1S. Tónleikarnir eru
haldnir á vegum tónlistarfélags
Akurcyrar og menntaskólans á
Akureyri.
Á efnisskrá eru lög allt frá 16.
öld og til okkar tíma, þjóðlög frá
ýmsum löndum og madrigalar eft-
ir innlenda og erlenda höfunda,
svo sem Atla Heimi Sveinsson,
Britten, Ravel, Morley o.fl. Söngv-
ararnir kynna sjálfir efni og eðli
söngvanna sem þeir flytja.
Aðgöngumiðar verða fáanlegir í
bókabúðinni Huld, tónlistarskól-
anum, Menntaskólanum og við
innganginn. beir kosta 300 krón-
ur fyrir skólafólk og börn, en 600
krónur fyrir aðra.
Sv.P.
Ferðaskrifstofunnar Sunnu um
að þotur Flugfélagsins flvtji far-
þega Sunnu til Kanarievja í
na'stu ferðum. Verður flogið á
sömu dögum og meðan Air
Viking annaðist flugið fvrir
Sunnu, en nú verður hins vegar
sú brevting á að flugvélarnar
verða að millilenda i Glasgow
meðan þotur Air Viking flugu
beint.
Ekki tókst Morgunblaðinu að
afla upplýsinga um hversu
margar ferðir P’lugleiðir mundu
fara fyrir Sunnu á næstunni, en
Kanarieyjaferðum ferðaskrif-
stofanna lýkur vanalega fljótlega
eftir páska og Spánarferðir
hefjast siðan i maímánuði. Ekki
mun enn vera frágengið hvaða
flugrekstraraðilar munu annast
Spánarferðir Sunnu í sumar, en
Guðni Þórðarson forstjóri Sunnu,
hefur lýst þvi yfir að nóg framboð
sé á flugvélum til slíkra ferða.
DANSKI leikarinn Ebbe Rode er hér á ferð um helgina og mun
hann sýna hér leikinn Góðborgara og gálgafugla eftir Patrick
Garland. Frumsýning verður f Þjóðleikhúsinu 1 kvöld en önnur
sýning sfðan annað kvöld. Ebbe Rode er meðal kunnustu leikara
Dana og hefur lengst af starfað við Konunglega leikhúsið.
Fjórðungsmót hestamanna:
Bæði á Suður- og
Norðurlandi í sumar
Leitað enn
ARNA Jöns Arnasonar, Nýbýla-
vegi 30 A, Kópavogi, sem hvarf
síðastliðið miðvikudagskvöid, er
enn saknað. Hann sást síðast i
strætisvagni við Hlemmtorg, leið
IV, og var þá klæddur grænni
kuldaúlpu, brúnteinóttum jakka-
fötum og uppreimuðum, svörtum
gúmmistígvélum. Hann er fædd-
ur 2.7. 1945. Arni er 175 cm á hæð,
brúnhærður og með rauðbirkinn
hökutopp. Meðfylgjandi mynd er
sú nýjasta, sem til er af honum.
PJn tekið skal þó fram, að hann
var búinn að raka af sér yfir-
skeggið.
Á KOMANDI sumri efna hesta-
menn til tveggja fjórðungsmóta.
Dagana 26. og 27. júní verður
Fjórðungsmót Sunnlendinga
haldið á Rangárhökkum við Hellu
og helgina 10. og 11. júlí halda
norðlenskir hestamenn fjórð-
ungsmót sitt á Melgerðismelum í
Evjafirði. A báðum þessum mót-
um fara fram sýningar á kvnbóta-
hrossum auk kappreiða og sér-
stakra keppnisatriða s.s. gæðinga-
keppni fvrir börn og unglinga á
mótinu á Hellu.
Sunnlenskir hestamenn halda
fjórðungsmót sitt á svæði Hesta-
mannafélagsins Geysis á Hellu.
Þó mótið sjálft fari fram dagana
26. og 27. júní hefst skoðun kyn-
bötahrossa fyrr, en stóðhestar
verða skoðaðir og dæmdir á
fimmtudeginum, 24. júní, og
hryssur föstudaginn 25. júní. A
föstudegínum fer einnig fram
gæðingakeppni fyrir börn og ung-
linga á aldrinum 10 til 15 ára og
verður keppendum þar skipt
niður í flokka eftir aldri og
verður fyrirkomulag keppninnar
mismunandi eftir flokkum. Það
skilyrði er sett að hestar sem
keppt verður á í þessari keppni
hafi ekki áður unnið til verðlauna
á landsmótum og fjórðungsmót-
um. Nánar verður gerð grein fyrir
fyrirkomulagi þessarar keppni
siðar í þættinum Hestar hér í
blaðinu.
Varðandi kynbótahrossin, sem
keppa eiga á mótinu, er eigendum
og B flokkur. Dæmt verður með
spjaldadómum og hver hestur
eindæmdur en hlutkesti látið
ráða, verði hestar jafnir í einkunn
til verðlauna. Kappreiðar verða
að vanda fjölbreyttar og verða
veittir verðlaunapeningar ti!
handa fyrstu hrossum í hverri
grein, auk peningaverðlauna.
Keppnisgreinar verða: 1500 m
brokk, 250 m stökk, 350 m stökk,
800 m stökk, 250 m skeið og 1500
m stökk.
Það skal tekið fram að búíð er
að tryggja næga beit fyrir ferða-
hross beggja vegna Rangár og
einnig verða næg tjaldstæði við
mótssvæðið.
Mótið á Melgerðismelum verður
eins og áður sagði 10. og 11. júlí
Framhald á bls. 47
Meðlagsmál rædd
áfundiFEF
— á Hótel Esju
nk. þriðjudag
Félag einstæðra foreldra held-
ur almennan félagsfund á Hótel
Esju þriðjudaginn 16. marz n.k.
kl. 21.00.
Rætt verður um meðlagsmál.
Þingmönnum heilbrigðis- og
trygginganefndar efri deildar Al-
þingis hefur verið boðið að koma
og kynna sér sjónarmið félags-
manna og ræða þau.
Trygginganefnd félagsins mun
gera grein fyrir baráttu sinni við
þingheim, einnig verður greint
frá gangi könnunar Hagstofunnar
á framfærslukostnaði barna ein-
stæðra foreldra, sem nú er verið
að gera.
Eru félagar hvattir til að mæta
hressir á þennan mjög svo mikil-
væga fund.
Söfnunardagur
Ekknasjóðs
íslands
ÁRLEGUR söfnunardagur fvrir
Ekknasjóð tslands er annar
sunnudagur í marz. Söfnunardag-
urinn er þvl nú á sunnudag en
hlutverk sjóðsins er að hlaupa
undir bagga með ekkjum sem eru
í nauðum staddar fjárhagslega.
Slíkar ekkjur eru vissulega til
þrátt fvrir tryggingar og getur
stvrkur bætt úr brýnni þörf þótt
ekki sé hann hár. Sjóðurinn
hefur getað orðið mörgum að liði
á undanförnum árum I tíma-
bundnum erfiðleikum.
Á síðasta ári veitti sjóðurinn 4
ekkjum úrlausn samtals 250 þús.
krónur. Ráðstöfunartekjur hans
eru nær eingöngu ágóði af
merkjasölu hér í Reykjavik svo og
söfnunarfé í kirkjum. Víðast um
land hefur árangur af fjársöfnun
Ekknasjóðs verið litill sem eng-
inn að undanförnu. Það eru því
vinsamleg tilmæli frá Ekknasjóði
að menn muni sjóð þennan og
hlutverk hans.
Það var frú Guðný Gilsdóttir
sem stofnaði sjóðinn ásamt manni
sínum á stríðsárunum með
Framhald á bls. 47
þeirra bent á að hafa samband við
Þorkel Bjarnason, hrossaræktar-
ráðunaut, sem veitir nánari
upplýsingar um forskoðun.
Ákveðið hefur verið að kynbóta-
hross yngri en 4 vetra verði ekki
sýnd á mótunu.
Gæðingakeppni á fjórðungs-
mótinu á Hellu verður tviskipt, A-
Mánudagsmyndin:
Mynd um kynþáttafor-
dóma eftir Fassbinder
NÆSTA mánudagsmvnd Há-
skólabiós er Úttinn tortimir sál-
unni eftir þýzka kvikmynda-
Ising rýrir sjóhæfni
Asheville-gæzluskipa
Kinkasokvli (ii Mbl
Washinglon. 18. marz. AP.
VARÐSKIP af Asheville-gerð
henta ekki vel í Norðurhöfum
þar sem áhrif ísingar draga úr
sjóha-fni þeirra að sögn banda-
ríska sjóhersins er leitað var
álits hans á skipunum vegna
frétta um að islenzka landhelg-
isgæzlan hafi augastað á þcim.
Atta slíkir fallbvssubátar eru
í flotanum og fimm í varaflot-
anum. Skipin eru 245 lestir
fullhlaðin og um 55 metra löng.
.ci eru búin ýmsum fallbvss-
um og þau er einnig hægt að
búa venjulegum eldflaugum.
Áhafnirnar eru venjulega 24 til
27 menn.
Elotinn segir að Asheville-
skipin séu aðeins notuð nálægt
ströndum þar sem úthald
þeirra sé aðeins 500 milur þeg-
ar þau sigli á miklum hraða. Ef
ölduhæð er meiri en tveir og
hálfur metri til þrír metrar seg-
ir flotinn að verulega dragi úr
hámarkshraða þeirra sem getur
orðið 40 hnútar við venjulegar
aðstæður. Mikill sjógangur
veldur áhöfninni líka óþægind-
um og kemur niður á hæfni
hennar. I miklum veltum geta
skipin hallazt um 65 gráður frá
borði í borð.
Þar að auki segir flotinn að
hætta sé á ísingu á skipunum.
Þar sem þau eru smíðuð úr
trefjaplasti og áli eykur það
Varðskip af Ashevilie-gerð
áhrif ísingarinnar á sjóhæfnina
og því er afísing erfiðari en ella
að sögn flotans.
I 18 til 21 stigs frosti og þegar
vindhraði er 25 til 35 hnútar
hleðst 1.60 til 2 metra þykkt
íslag á skipin á um það bil 10
klukkutímum. Þetta íslag eyk-
ur þyngd skipsins um um það
bil einn fjórða að sögn flotans.
Ahafnir Asheville-skipanna
þurfa venjulega þjálfun banda-
rískra sjóliða en hiin er um níu
vikna verkleg þjálfun og þjálf-
un í viðgerðum skipa og auk
þess eins til tveggja mánaða
þjálfun úti á rúmsjó. Ef
bandaríski sjóherinn veitti is-
lenzkum sjóliðum slíka þjálfun
færi hún sennilega fram i San
Diego í Kaliforníu, Norfolk í
Virginia og Dam Neck í
Virginia.
gerðarmanninn Rainer Werner
Fassbinder, og er þetta önnur
mvndin eftir hann sem sýnd er
hér á landi.
Þýzk kvikmyndagerð lifir nú
blómlegt endurreisnarskeið eft-
ir hnignum styrjaldaráranna og
hefur hróður v-þýzkra kvik-
myndagerðarmanna borizt víða
um heim á síðustu árum. Asamt
W. Herzog er Fassbinder í far-
arbroddi þessarar nýju kyn-
slóðar kvikmyndagerðarmanna,
og hinn afkastamesti þeirra
allra, því að þótt hann sé aðeins
liðlega þrítugur að aldri hefur
hann þegar að baki milli 20 og
30 kvikmyndir.
Öttinn tortímir sálinni er
sennilega sú mynd Fassbinder,
sem vakið hefur mesta athygli
á honum utan landsteina
Þýzkalands, en fyrir hana fékk
Fassbinder verðlaun í Cannes
árið 1972. Efni myndarinnar er
um þýzka þvottakonu og verka-
mann frá Maroccó sem ákveða
að rugla saman reytum sinum,
og þá er þess skammt að bíða að
fordómarnir komi upp á yfir-
borðið.
Afmæli
SEXTUG verður á morgun,
mánudag, frú Guðný Einarsdóttir
frá Morastöðum i Kjós, nú til
heimilis að Gyðufelli 6 R. Á
afmælisdaginn verður hún hjá
dóttur sinni og tengdasyni að lra-
bakka 30 hér í borg.