Morgunblaðið - 14.03.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976
HUGVEKJA
efiirsr.
Þóri Slephensen
Ég veit ekki, hvað þú, les-
andi góður, sérð í skirn lítils
barns. E.t.v. lítur þú ein-
göngu á hana sem hátíð-
legan ramma utan um nafn-
gjöf þess. Slíkt eralrangt, þvi
nafngjöf og skírn þurfa alls
ekki að fara saman og gera
það ekki hjá mörgum kristn-
um þjóðum. Þar eru lög
sumsstaðar þannig, að skylt
er að skrá nafn barns við
fæðingu þess, en síðan ráða
foreldrar, hvort þeir bera
barnið til skírnar siðar meir
eða ekki.
En hvað sér kristinn maður
þá i skírninni? Mér finnst
eðlilegt í því sambandi að
rifja upp, það sem gerðist við
skírn Krists. Hvað ytri ásýnd
við kemur þá var það mjög
svipað því sem við þekkjum.
Maður var vatni ausinn. En
jafnframt urðu a.m.k. ein-
hverjir þar vitni að atburði,
sem sýnir, að skirn Krists var
ekki bara mannleg athöfn,
verknaður skírarans. Þeim
fannst himinninn opnast og
andi Guðs koma yfir Jesú.
Og þeir heyrðu rödd, er
sagði: „Þessi er minn elskaði
sonur, sem ég hefi velþókn-
un á."
Þegar Kristur fór frá
Jórdan, gekk hann út í mikla
baráttu, sem hófst með
freistingum og lauk með
píslargöngu hans til Golgata.
En hann gekk ekki einn, ekki
í eigin krafti einum saman.
Guð var með honum, andi
hans og kraftur var í honum.
Jesús frá Nasaret var að
því leyti venjulegur maður,
að hann hafði sömu mann-
legu tilfinningar og við. Hann
gat verið svangur og þreytt-
ur, sorgbitinn og sárþjáður.
Á þv! sviði var hann enginn
yfirmannleg vera. Hann var
því i sömu þörf og við fyrir
styrk frá Guði til hins daglega
lífs og baráttu þess og auð-
vitað því meiri styrks sem
hlutverk hans var bæði
erfiðara og háleitara en
okkar.
Freistingarsagan segir frá
því, að þá er freistarinn yfir-
gaf hann, haíi englar komið
og þjónað honum. I mínum
augum er þar verið að segja
það í líkingu, að honum hafi
verið sendur styrkur frá æðri
heimi eftir hina erfiðu raun
og áður en til köllunarstarfs-
ins var haldið. Við eigum
svipuð ummæli úr Getse-
manebaráttunni. Þarersagt
beinum orðum: „Þá birtist
honum engill af himni, sem
styrkti hann."
Sagan af ummynduninni á
fjallinu er oftast útskýrð sem
nokkurs konar himnesk stað-
festing þess, að Jesús væri »
Messías, Guðssonurinn sem
spámennirnir töluðu um. En
hitt er ekkert síður nærtækt,
að jafnframt hafi þessi at-
burður átt að veita Jesú
styrk, búa hann undir pislir
og krossdauða, sem þá voru
á næsta leiti.
Bæn eftir E.J.
Þá ber Nýja testamentið
líka glöggt vitni um bæn-
rækni Jesú. Hann hóf starfs-
dag sinn með því að biðjast
fyrir. Hann leitaði gjarnan í
einrúm eða á óbyggðan stað
til slíkra stunda. Þar var
honum gefinn kraftur, sem
hann gat miðlað mönnunum
I starfi sínu.
En hvað segir þetta okkur?
Er í þessu fólgið eitthvað
það, sem skiptir máli fyrir líf
okkarog daglega baráttu
þess? Að minum skilningi er
það vissulega svo. Við erum
skírð. í okkarskírn gerist
einnig annað og meira en
það sem presturinn fram-
kvæmir. Hún er annað og
meira en nafngjöf i hátíð-
legum ramma. Við hverja
skirn okkar á meðal gerist hið
sama og við skírn Krists. Hér
er líka himinninn opinn og
Guð sendir hverju barni sinar
ósýnilegu gjafir, blessun og
andlegan styrk i veganesti
fyrir lifsleiðina.
En slíkar athafnir eru fleiri
og marka sumar ákveðin
þáttaskil i lífi einstakling-
anna. Ég nefni þar bæði
fermingu og hjónavígslu. í
þeirri fyrr nefndu er hinn
ungi maður að staðfesta
skírnarheit foreldra sinna og
þiggur um leið blessun og
styrk til oft erfiðrar ferðar
sinnar um æskulönd.
Til hjónavígslunnar koma
hjónaefnin til að hljóta
blessun yfir sameiginlega
lífsbaráttu og lif heimilisins,
sem þau eru að stofna.
Þetta eru ekki bara fallegir,
táknrænir siðir. Á bak við allt
þetta býr hinn mikli, eilífi
andi og kraftur Guðs. Ég hef
margsinnis orðið vitni að því,
að þegar einstaklingurinn
lýtur þeim mætti i auðmýkt
og einlægri bæn, þegar
mannleg sál tekur á móti
honum heilum, opnum
huga, þá kemur einstakl-
ingurinn sterkari af þeim
fundi. — En það eru bara
ekki nærri allir, sem gera sér
þetta Ijóst, að veröldin er
sem sköpun Guðs hlaðin
andlegri orku, krafti hans, og
því er það svo mikilvægt að
geta tengt sjálfan sig þeirri
aflstöð, sem hin andlega
veröld er fyrir mannlífið.
Kirkja Krists á yfir ýmsum
leiðum að ráða, þar sem ein-
staklingunum er ætlað að
hjálpa til að komast i nána
snertingu við guðdóminn og
öðlast við það kraft og styrk
til baráttu hins daglega lífs.
Ég hef þegar nefnt skírn,
fermingu og hjónavigslu. Ein
hin mikilvægasta er þó ótal-
in, altatisgangan, hin heilaga
kvöldmáltíð. Það er trú krist-
ins manns, að hann komist
hvergi nær frelsara sínum en
þegar hann krýpur við Guðs
borð, og að þar fái hann
ómældan styrk til baráttu um
daganna þraut.
Guðsþjónustan sjálf með
boðun sinni og tilbeiðslu er
lika mikilvæg i þessu sam-
bandi. Flestirganga heim frá
kirkju sinni á helgum degi
með eitthvað það, sem gerir
þá sterkari í baráttu hins
hversdagslega lífs.
Og svo er það bænin,
bænin ein og hrein. Hún er
hinn rauði þráður allra þeirra
athafna, sem hér hafa verið
nefndar. Hún er alls staðar
farvegurinn fyrir kraft hinnar
æðri veraldar inn i okkar
mannlega líf. En hún ein, án
allra umbúða, er ekki síður
mikilvæg. Kristur hóf hvern
dag með bæn og bjó sig
undir allar sínar erfiðustu
stundir með einlægri bæn.
Hví skyldum við þá ekki gera
hið sama? Hvi skyldum við
þá ekki sinna kalli kirkjunnar
og rækja hinar helgu athafnir
i auðmýkt og einlægni, þegar
við vitum, að þær eru til þess
stofnaðar að veita blessun og
styrk inn i lif okkar?
Með vanrækslu hinna
helgu stunda sviptum við
sjálf okkur andlegum verð-
mæ'turn. Með þvi aftur á
móti að rækja þær vel, sköp-
um við grundvöll að farsælla
og hamingjusamara lifi okkar
sem annarra.
Vinsæla kalda borðið
frá Skiphóli!
Fyrir afmæii, brúðkaup, fermingar o.fl.
Pantið tímanlega fyrir fermingar.
Veitingahúsið
SKÚTAN
Strandgötu 1 — Hafnarfirði
sími 51810.
Þessa helgi:
Óvenju ódýrir blómvendir.
Mikið úrval þurra skreytinga og pottaplantna. Komið
og sjáið sérkennilegustu blómaverzlun landsins.
Breiðholti við Breiðholtsbæinn.
ÓTRIJLEG VERÐLÆKKUN!
LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÓRRI HURÐ
(auðvelt að hlaða og afhlaða)
LEITIÐAÐ ÞVOTTAVÉL MEÐ STÓRUM ÞVOTTABELG
(fer betur með þvottinn-Þvær betur)
LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÓDÝR íREKSTRI
(tekur bæði heitt og kalt vatn, sparar rafmagn)
LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ DEMPURUM
(lengri ending og hl/óðlátari)
LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÞUNG
(meira fyrir peningana, vandaðri vara)
o. fl. o. fl. o. fl. o. fí. o. fl. o. fí. o. fl.
OG ÞÉR MUNUÐ SANNFÆRAST UM YFIRBURÐI
PHILCO ÞVOTTAVÉLANNA.
Þess vegna segjum við að þær hafi
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA OKKAR TRYGGIR YÐAR HAG.
heimilistœki sf
Haf narstræti 3—Sætúni 8