Morgunblaðið - 14.03.1976, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976
Skátastarf í Reykjavík
Þessar skátastúlkur voru að æfa fyrir skemmtikvöld. Ljósmynd Friðþjófur
Á íslandi eru nú starfandi .
um 6.000 skátar. Halda þeir
árlega fjölda móta og nám-
skeiða auk hins reglulega
starfs sem fram fer að jafnaði
i skátaheimilunum. Starf-
semi skátanna er ákaflega
fjölbreytileg en þó er þeim
nokkuð þröngur stakkur
skorinn hvað húsnæði varðar
og takmarkar það starf-
semina og fjölda félaga
nokkuð
Skátasamband Reykja-
víkur hefur aðstöðu að
Blönduhlíð 23 i Reykjavík,
húsnæði sem sambandið á
að hluta á móti Bandalagi
íslenzkra skáta Fram-
kvæmdastjóri er Steinþór
Ingvarsson og veitti hann
allar upplýsingar um skáta-
starfið.
Nú eru liðin um niu ár
síðan skátar fluttu úr miðstöð
sinni við Snorrabraut og
fluttu starfsemi sína út í hin
ýmsu hverfi borgarinnar
Slikur flutningur hefur að
sjálfsögðu mikla erfiðleika í
för með sér en eftir þessa
breytingu getur starfsemi
skátanna náð til fleiri. í
mörgum félögum í hverfum
borgarinnar eiga skátar við
erfiðleika að etja og er að-
staðan víða ófullnægjandi
hvað varðar húsnæði.
Steinþór Ingvarsson sagði
einnig að fjárhagur væri víða
mjög bágborinn. Öll vinna
skátanna er lögð fram endur-
gjaldslaust en styrkur hins
opinbera erákaflega lítill.
Nú eru félögin sameiginleg
fyrir drengi og stúlkur en
ekki skipt i mismunandi
deildir eftir kynjum. Er nú
yfirleitt talað um léskáta i
stað ylfinga og Ijósálfa. Lé-
skátar eru yfirleitt á aldrinum
9—11 ára. Þá taka við
skátar á aldrinum 12—14
ára en elztir eru dróttskátar
um það bil 1 5 til 18 ára.
Nú eru starfandi í Reykja-
vík 10 skátafélög. Heita þau
Dalbúar, Garðbúar, Hafernir,
Hamrabúar, Landnemar,
Skjöldungar, Urðarkettir,
Ægisbúar, Félag eldri kven-
skáta og Hjálparsveit skáta.
Félagar i þessum 10 félögum
voru um áramót rúmlega
2000.
Þá eru starfandi nokkrar
sérdeildir skáta. Þekktust er
sennilega Hjálparsveit skáta
en á landinu eru 10 slikar
deildir starfandi. í Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík eru
starfandi um 60 félagar og
hefur starfsemi sveitarinnar
verið mikil. Hefur sveitin
m.a. sjúkraþjónustu í Bláfjöll-
um yfir helgar. Sveitin hélt
fjölda námskeiða, bæði fyrir
félaga sfna og almenning. Þá
komu sporhundar Hjálpar-
sveitar skáta í Hafnarfirði og í
Reykjavík að góðu gagni á
undanförnu ári sem oft áður.
Voru útköll á liðnu ári um
átján en átta sinnum var leit-
að til sveitarinnar á árinu í
sambandi við leit.
Starfshópur radioskáta
vinnur að þvi að koma verk-
efnum i radio-tækni inn í
skátastarfið. Hafa þeir út-
vegað ósamsett tæki sem
skátafélögin geta fengið og
sett saman. Þá hafa þeir
haldið sérstaka keppni sem
„Skátastarfið
mikils virði sem
félagsstarfff
„einn er bláeygður,
annar dökkhœrður,
þriðji fatlaður.... ”
SKÁTAFELAGIÐ Ægis-
búar hefur húsnæði í kjall-
ara Hagaskóla og er starfs-
svið þeirra vesturbær.
1 féiaginu eru starfandi
313 skátar og hefur starf-
semin verið gróskumikil,
þrátt fvrir þrengsli í hús-
næðismálum. 1 vetur mun
þó rætast úr húsnæðis-
vandræðum Ægisbúa þar
sem þeir fá inni í nýju
iþróttahúsi Hagaskólans.
Ægisbúar eiga skálann
Arnarsetur sem er vestar-
lega í Bláfjöllum. Hafa
skátarnir endurbætt skál-
ann mikið á undanförnum
árum og voru um 11000
starfsstundir lagðar fram
við viðgerðina.
Valdimar Jörgensson er
gjaldkeri Ægisbúa og
ræddum við við hann f
húsakvnnum félagsins f
Hagaskóla.
— 1 skátafélaginu er
mjög virk þátttaka. Kemur
sú virkni fram m.a. i þvf að
allir skátar eiga að sækja
fundi i flokkunum viku-
lega og er fundarsókn yfir-
leitt m jög góð. Ljósálfar og
ylfingar starfa i sveitum
og eru fundir vikulega
með mjög góðri fundar-
sókn. Sveitarfundir eru
haldnir um það bil
mánaðarlega hjá hverri
sveit.
— Starfið er einkum
undirstaða og æfingar
undir prófin ásamt leikj-
um og skemmt iatriðum.
Undirbúningur að próf-
unum miðar að þvi að gera
skátana sjálfstæða t.d. í
útilegunum ásumrin.
— Vetrarstarfið er að
miklu leyti undirbúningur
undir útilegur að sumrinu
og einnig er margs konar
fræðsla og þjálfun látin i
té.
— öll möguleg fræðsla
og þjálfun fer oft fram í
leikjaformi.
— Einnig eru skála-
ferðir yfir vetrartimann.
Þá sækjum við skála sem
heitir Arnarsetur við
Vffilsfell.
— A síðast liðnu ári tók
félagið þátt í þremur
mótum og sendi 15 þátttak-
endur á Nordjamb. Fóru
10 sem almennir þátttak-
endur en 5 fóru f vinnu-
búðir. Einnig tókum við á
móti skátum sem dvöldust
hér í viku fyrir mótið 1
Noregi.
— Skátastarfið er tvf-
mælalaust mikils virði sem
félagsstarf. Hefur það
fram yfir mörg önnur
æskuiýðsfélög að hér eru
allir aðilar virkir þátttak-
endur.
AÐALBJÖRG Sigurðar-
dóttir sótti á sfðast liðnu
ári námskeið 1 skátastarfi
fatlaðra. Er hún meðal
þeirra sem eru að hleypa
af stokkunum slfkri starf-
semi á Islandi. Því var
ástæða til að ræða við hana
um námskeiðið og þessa
tegund skátastarfs.
— Jú, ég var á námskeiði
f Noregi f sumar sem
haldið var af norrænu
skátabandalögunum öll-
um. Námskeiðið var aðal-
lega um fræðileg efni en
minna var um verklega
kennslu. Námskeiðið var
styrkt af Norðurlandaráði
og fórum við tvö frá Is-
landi. Námskeiðið var að
sjálfsögðu aðallega fyrir
þá sem hafa áhuga á fé-
lagsmálum fatlaðra.
— Námskeiðið var mest f
fyrirlestraformi. Nám-
skeið hjá hverju landi
ættu að gefa meiri verk-
lega þjálfun.
— Eftir að ég kom frá
Noregi lá þetta nokkuð
niðri. Sfðan kom hingað
Norðmaður sem starfaði
með skátum. Þá var boðað
til fundar með starfsmönn-
um stofnana og skóla fyrir
fatlaða til að skipuleggja
þetta verkefni.
— Það sem ég tel mjög
nauðsynlegt við slfka
skátastarfsemi er að fá for-
eldra skátanna fyrst inn f
starfið. Það þarf eldra.
þroskaðra, þolinmóðara og
reyndara fólk.
— Nú þegar hefur verið
stofnuð nefnd í Heyrnleys-
ingjaskólanum með tveim
skátum, tveim kennurum
og foreldrum barnanna.
Þessi nefnd mun gera áætl-
un um starfið sem nú
þegar er hafið.
— Akveðið skátafélag
tekur að sér þetta starf og
verður ekki litið á börnin
sem einhver sértilfelli og
reynt að hafa þau sem eðli-
legust í umhverfinu. Taka
þau þátt i skátafundum og
eru mjög fljótt með á nót-
unum f sambandi við leiki
o.þ.h.
— Skátafélögin á Islandi
hafa verið mikil flokk-
unarvél og er nú verið að
reyna að breyta þessu. Þeir
krakkar, sem hafa verið
mjög virk f félagslffi al-
mennt eru einnig virkasta
fólkið f skátastarfinu. Þeir
sem hafa verið lengst 1
skátahrevfingunni og eru
mest áberandi eru annað-
hvort eða hvort tveggja
lfkamlega sterkir og hafa
góða greind.
— A námskeiðinu f
Noregi voru margir for-
eldrar fatlaðra barna og
voru þar að reyna að finna
félagsaðstöðu fvrir börnin
og gerast þvf félagar f
skátastarfi fatlaðra.
— Svfar eru mjög
framarlega f þessum
efnum og Danir ef til vill
einnig.
— Það er nauðsynlegt að
þeir fötluðu geti verið sem
eðlilegastir f umhverfinu
og er auðvitað gaman ef
slfkur árangur næst.
— Það má lfta á þetta
þannig að einn er bláeygð-
ur, annar dökkhærður sá
þriðji fatlaður og svo fram-
vegis. I venjulcgu skátafé-
lagi er einn duglegur að
hlaupa, annar duglegur að
hnýta, engum er alls
varnað.