Morgunblaðið - 14.03.1976, Side 16

Morgunblaðið - 14.03.1976, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976 í Víkingasal Hótel Loftleiða mánudagskvöld kl. 9—1. Jazzmenn leika. Jam — Session. Jazz-rock-blues. JAZZVAKNING ÞÓRSBLÓT Lionsklúbburinn Þór efnir til Þórsblóts og af- mælisfagnaðar á herrakvöldi á 20 ára afmæli sínu fimmtudaginn 18. marz. Þórsblótið hefst kl. 19 í Lækarhvammi (Átthagasal) á Hótel Sögu. Blótið hefst rneð ávarpi formanns Þórs. Sverris Július sonar, forstjóra. Ræðumenn kvöldsins verða Guðmundur Kærnested, skipherra, og Vilmundur Gylfa- son, menntaskólakennari. Efnt verður til happdrættis og málverkaupp- boðs. Ómar Ragnarsson flytur grín og gaman. Lukkupottar Þórs verða bornir meðal gesta. Nemendur Hjúkrunarskóla íslands aðstoða. Veizlustjóri: Guðmundur Vignir Jósefsson. Lionsmenn í Reykjavík og nágrenni og gestir þeirra eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgöngumiðar verða seldir í Bókaverlzun Lárusar Blöndal við Skólavörðustíg og Aðal- stræti á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Fjölmennum á Þórsblótið 18. marz og minn- umst 20 ára starfs Þórs að ITknarmálum. sr its 1% : • Ljósmynd af Asgrími Jónssyni tekin á árum hans i Húsinu á Eyrarbakka. # Sjálfsmynd Albrechts Dúrers, er hann gerði 13 ára gamall. Merkilegar, myndir Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON ÞEGAR ég fyrir nokkru í fyrsta skipti sá æskumynd af Ásgrími Jónssyni frá dvöl hans í Húsinu á Eyrarbakka, minnti hún mig sterklega á aðra mynd, sem ég kom þó ekki strax fyrir mig hver væri, einkum var það hinn opni og spuruli svipur á andliti Ásgríms sem hér tók athygli mína. En er ég kom næst á vinnustofu mína, rann skyndi- lega upp fyrir mér ljós og ég leitaði uppi hina frægu sjálfs- mynd Albrechts Dúrers, er hann gerði 13 ára að aldri. Þessar myndir eru í formi, gerð og uppbyggingu gjörólik- ar, annars vegar er Ijósmynd af Ásgrími en hins vegar er spegil- mynd er Dúrer rissaði upp af sjálfum sér, en það er eitthvað í yfirbragði þeirra er grípur, hin innri skynhrif og útgeislan, sem tengir þær saman. Við nánari athugun og rannsókn kemur í ljós að fleira er skylt með þeim en yfirbragðið eitt. Þeir eru fæddir á sajna ára- tugnum, en fjórar aldir skilja, og í báðum tilvikum standa þeir á þröskuldi nýrra og umbrota- samra tíma. Þeir eru á líku reki við myndgerðina og fram kem- ur hvorttveggja, ungæðisleg viðkvæmni og sterkur vilji til átaka við hina óræðu framtíð sem bjarmar af. Andlit beggja virðast full undrunar yfir hin- um nýuppgötvaða heimi og um leið opinbera þau eitthvað af ótakmörkuðum krafti og festu sem innra með þeim bjó. Báðir upplifa þeir aldamót, sem með sjaldgæfri nákvæmni boða strauma nýrra tíma. Alda- mótin 1500, sem Dúrer lifði, boðuðu lok miðalda og upphaf endurreisnar, þó að raunar deilist tímabil sögunnar aldrei i nákvæmt afmarkaða hluta, þar sem lífsform, siðir og venjur lúta lögmáli aðlögunar og þróunar. En við lok fimmtándu aldar verða mikil og greinileg umskipti líkt og allir andar séu í uppnámi. Þannig er sem þá bylti sér í dauðateygjum hinn liðni aldartugarhelmingur, jafnframt þvi sem nýtt tíma- skeið með ferskum hugmynd- um í heimspeki, myndlist og trúarbrögðum boðar komu sína með umbrotamiklum fæðingar- hríðum. Flest þetta og margt fleira má heimfæra á hin sögulegu aldamót 1900, sem Ásgrímur lifði. Iðnbyltingin hafði gjör- breytt lífi og afkomu manna og umbrotasamasta framfaraskeið í sögu mannsins var að hefja göngu sína, og hið undarlega við þetta allt er, að segja má að Ásgríms biði það hlutverk, að taka aftur upp myndlistarþráð- inn, er islendingar misstu ásamt sjálfstæðinu við lok miðalda og hefja til vegs að nýju. I mörgum skilningi voru enn miðaldir á íslandi en meó breyttum timum og vaxandi sjálfstæði var einungis tíma- spursmál hvenær merkinu yrði lyft á ný i menningarlegri sókn því að glæðurnar kulnuðu aldrei að fullu. Aldir áþjánar og harðræðis voru að baki og fögnuður nýrr- ar sjálfstæðisvitundar fór um þjóðina. Likast var sem með hinni fyrstu bernskuminningu Ásgrims er tengdist rauðum feiknstöfum og eldrúnum væri fortíðin að kveðja og jafn- framt að minna á þann háska og hrikadýrð, sem er samfara lífinu á þessari jörð og öll sköp- un er bundin. Báðir voru uppi á dögum heimsógna er öllu lifi hótaði að granda og miklar mannfórnir kostuðu, Dúrer á dögum Pestar- innar (svartadauða) en Ásgrímur á dögum ragnaraka og hörmunga tveggja heims- styrjalda Andstæðurnar i lifi þessara tveggja miklu sona þjóða sinna eru um margt engu minni en hið sameiginlega. Albrecht Dúrer var að vísu af fátækum kominn líkt og Ásgrímur, en hins vegar blómstraði list og menning allt i kring um hann og þurfti hann einungis að taka við til ávöxtunar arfi hins fræga koparstungusnillings og teiknara, Martins Schongauers. Auk þess varð hann þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp og vera leikbróðir og seinna ævi- vinur og skjólstæðingur hins auðuga og mikla húmanista tímanna, Willibald Pirck- heimers, en hann var heims- maður og lýsandi andi sem hafði djúptæk áhrif á mótun heimsmyndar Dúrers og opnaði honum sýn til menntunarheims fornaldarinnar og ítalskrar list- ar og varð þannig áhrifamaður til úrslita í lífi Dúrers. Einn af samtíðarmönnum Pirckheimers er hann dvaldist við háskóla- nám í Pavia var Leonardo da Vinci, er þá var við hirð Lodovico Sforza. Guðfaðir Dúrers og nágranni var Anthon Koberger, sem átti mikilvægasta prentverk Evrópu í þá daga, — þá skrifuð- ust þeir seinna á, Dúrer og Rafael og vitað er að þrykk- myndir eftir Dúrer héngu uppi á vinnustofu Rafaels. Menning og list í æskuum- hverfi Ásgríms var hins vegar ekki önnur virkt en sú er tak- markaðist af Húsinu á Eyrar- bakka þar sem hann í fyrsta skipti heyrir leikið á orgel- harmoníum og sér fyrstu mynd- ir af málverkum i dönskum vikublöðum, og síðar eru það kynnin við reisnarsetrið á Bíldudal, þar sem lék fjarrænn gustur erlendrar menningar. Þessir staðir tveir báru vissu- lega óvenjulegt menningarlegt svipmót á þessum árum og svo var um fleiri byggðarlög þótt þau hefðu máski ekki í sama mæli ýtt undir hneigð Ásgríms til sjónlista. Bakhjarl listar Asgríms var svo myndauðugt og hrikalegt svið íslenzkrar náttúru ásamt fornsögum og þjóðtrú. List þessara tveggja manna varð gjörólík og ég er ekki að höfða til slíks að neinu leyti með skrifi mínu, heldur þess hve margt er sameiginlegt með yfirbragði myndanna og að auki aldaskila á lffstið þeirra, þótt fjórar aldir bæri á milli. Finnst mér fróðlegt að bera þessar myndir og tímaskeið saman því að likast er sem tíminn standi hér kyrr i harð- ræði fjögurra alda á meðan Evrópa lifði að öðru leyti mörg þróunarskeið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.