Morgunblaðið - 14.03.1976, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.03.1976, Qupperneq 22
Rétt fyrir kl 19 30. desember, þegar orkukreppan í Bretlandi stóð sem hæst, hringdi grímuklæddur maður á dyrabjölluna á húsi Edward Sieff i St. Johns Wood Húsráð- andi var milljónamæringur og einn aðaleigandi Marx og Spencer verzlunarhringsins og varaforseti Zionistasamtakanna á Stóra Bretlandi Það var portúgalskur bryti, sem fór til dyra, og stóð þar andspænis ungum manni, fremur þybbnum, sem hann áleit vera mitt á þrítugsaldri Miðaði hann byssu að brytanum og þvingaði hann til að fara með sig á fund húsráðanda, sem var að skipta um föt í svefnherbergi sfnu Þar miðaði hann byssunni að andliti Sieff á nokkurra þumlunga færi og hleypti af Þegar hanrvhafði séð fórnardýr sitt, hníga niður, hljóp hann eins og örskot út úr húsinu og hvarf út í myrkrið Það var Edward Sieff til lífs, að hann hafði óvenjulega sterkar tennur af 68 ára gömlum manni að vera, sem hægðu á þungri 9 mm kúlunni, áður en hún hafnaði hálfum sentimetra frá hálsæðinni Reyndar mun það einnig hafa bjargað honum, að kona hans, Lois, hafði rænu á, að snúa honum við, og kom þannig í veg fyrir, að hann kafnaði í eigin blóði Byssa sú, sem notuð var við þetta tilræði, fannst 18 mánuðum síðar í íbúð í Bayswater, en hana hafði á leigu stúlka, er var í vinfengi við mann að nafni Carlos Martinez. SKÓKASSI MEÐ SPRENGJU Svo virðist sem þessi kaldrifjaða árás á Edward Sieff hafi verið fyrsta stórvirki hins unga borgarskæruliða frá Venezuela, llich Ramirez Sanches, sem stjórnaði Commando Boudia, hryðjuverkasamtökum á vegum Alþýðufylkingarinnar fyrir frelsun Palestínu. Samtökin, sem nefndust eftir látnum hryðjuverkamanni frá Alsír, voru upphaflega sett á stofn i París Þau voru í tengslum við aðra hryðjuverkahópa í Evrópu, þar á meðal Baader- Meinhof samtökin í Vestur-Þýzkalandi, en frá þeim hlaut Carlos að gjöf nokkrar bandarískar M26 handsprengjur Samtökin fluttu starfsemi sína til London skömmu eftir að franska leyniþjónustan tók á sitt vald hús, sem hryðjuverka- menn úr tyrkneska frelsishernum höfðu á leigu, en þar hafði Carlos fengið að geyma nokkuð af vopnabúnaði samtaka sinna, þar á meðal M26 sprengjurnar, sem auðvelt var að rekja til hans Önnur árás Carlosar í London var gerð í banka ísraels- manna, Hapoalim í Lawrence Lane í City of London 25. janúar 1974 var það ungur maður á þrítugsaldri, sem hélt vængdyrum bankans opnum með annarri hendi, en fleygði með hinni skókassa með sprengju inn á gólfið í sama bili sleppti hann taki sínu á hurðinni, en kassinn þeyttist inn eftir gólfinu og sprengjan sprakk rétt framan við afgreiðsluborðið Ritari að nafni Janet Kipling særðist í þessari árás Vorið eftir þessar aðgerðir þótti Carlos tími til kominn að Commando Boudida léti að sér kveða i Frakklandi á nýjan leik Ákveðið var að beina skeytum að blöðum hægri sinna og gyðinga Áætlanir voru gerðar með mikilli varkárni. í ágúst 1 974 gerði hópurinn atlögu að L'Aurore, tímaritinu Minute og L'Arche, sem var í eigu gyðinga Voru bílsprengjur sprengdar framan við skrifstofur blaðanna, og þótti þessi aðgerð hafa tekizt prýðilega Fréttunum var tekið með fögnuði i Beirut FÉLAGARNIR Carlos var leiðtogi Commando Boudia um tveggja ára skeið Virkir félagar i samtökunum munu varla hafa verið fleiri en 8 talsins, en stöku sinnum fengu þau sendar palestínskar skyttur frá Beirut til að annast sérstök verkefni. Á þessu tímabili voru ferðir hryðjuverkamannanna tiðar milli Parísar og Lundúna, en þar bjó móðir Carlosar í íbúð í Kensington Yngsti bróðir hans, Vladimir, dæmigerður táningur og nemandi í St Marylebone- menntaskólanum, lék knattspyrnu með strákum af gyðinga- ættum í Maccabi-félaginu, og sagði hann við Hugh O'Shaugh- nessy, fréttamann blaðsins í Rómönsku Ameríku, að Carlos og félagar hans hefðu kallað sig Isaac Ramirez Aðrir félagar hópsins, sem vitað er um, voru miðaldra Suður-Ameríkani með mikið yfirvaraskegg og gleraugu, og hét samkvæmt vegabréfi frá Equador Antonio Dages Bouvier og Michel Wahab Moukharbel, sem átti eftir að falla fyrir byssukúlu Carlosar vegna meintra svika Bouvier var á vfxl f London og Parls eins og Carlos. Mourkharbel fór hins vegar ekki eins oft til London, en var á stöðugum ferðalögum milli Parísar og Beirut eins og nokkurs konar milliliður hópsins og bækistöðva Alþýðufylkingarinnar. Hann var oft í fylgd með Carlos í kynnisferðum, sem ævinlega voru farnar fyrir meiri- háttaraðgerðir. Hann átti að fylgjast með eyðslu félaganna og færði nákvæmlega inn sérhvern kostnaðarlið allt frá leigubíl- um til matarkaupa Carlos sat við og við fundi með þremur kúbönskum sendifulltrúum i Parfs, og ef til vill hefur hann gert það án vitundar félaga sinna Frakkar sökuðu þessa Kúbana síðar um að vera félagar kúbönsku leyniþjónustunnar og vísuðu þeim úr landi. Commando Boudia var að búa sig undir fleiri sprengjuað- gerðir i Parfs, þegar veður skipuðust skyndilega í lofti. Franska leyniþjónustan handtók i ágústmánuði 1974 Yutuka Furaya, sendimann og gjaldkera Rauða hersins í Japan (JRA) Þetta var enginn smáfiskur, og JRA var staðráðinn í að ná honum aftur. Vitaskuld sneri hann sér fyrst til Alþýðufylkingarinnar fyrir frelsun Palestfnu, með beiðni um aðstoð, en hann átti hönk upp í bakið á fylkingunni vegna bfóðbaðsins, sem hann hafði efnt til á Lod-flugvelli árið 1 972 beinlinis í þágu hennar SENDIRÁÐIÐ í HAAG Commando Boudia var kvödd til, og eftir nokkrar viðræður við fulltrúa JRA I Zurich, var ákveðið að láta til skarar skrlða gegn sendiráði Frakka I Haag, enda væri það heppilegasta skotmarkið I færi Carlos og Mourkarbel, sem fylgdi honum eins og skuggi þegar hér var komið sögu, fóru til Haag með lest 1 1 september til þess að skoða sendiráðið Daginn eftir komu þeir aftur eftir viðkomu I Amsterdam til að gefa JRA skýrslu. Moukharbel gerði samvizkusamlega grein fyrir ferð þessari í ávísanaheftinu sínu Árásin á sendiráðið var gerð næsta dag, 13. september Áður en félagarnir úr Commando Boudia sögðu skilið við fulltrúa JRA, gáfu þeir þeim nokkrar M26 sprengjur, en óðum var farið að ganga á birgðirnar Sprengjur þessar fundust slðar I sendiráðinu, eftir að hryðjuverkamennirnir voru komnir til Sýrlands Þar sem amerísk M26 sprengja springur verður hættu- svæði I 50 feta radius Sunnudaginn 15 september, annan dag umsátursins um sendiráðið I Haag, þegar fréttir um atburðinn voru á forsiðum allra blaða, þyrptist ungt fólk inn á Drugstore við St. German- des-Prés Félagi úr Commando Boudia hallaði sér yfir handriðið á annar.ri hæð og fleygði M‘26 sprengju í mannþröngina umhverfis blaðasöluna Sprengjan varð tveimur að bana og 34 særðust, er vírbútar úr henni þeyttust um með ofsahraða Einn af þeim, sem sluppu ósærðir var dægurlagasöngvarinn Jean-Jacques Debout, og sagði hann: — Fólk lá eins og hráviði út um allt. Ég sá lítinn dreng, svona 1 2 ára gamlan. einblina á handlegginn á sér með vantrú og skelfingu I svipnum Hann hafði enga hönd Nokkrir viðstaddir höfðu sem snöggvast séð bregða fyrir manninum, sem kastaði sprengjunni, áður en hann hvarf í ringulreiðinni sem fylgdi En enda þótt allir sjónarvottar væru á einu máli um að þetta hefði verið ungur maður, klæddur gráum, slitnum jakka, töldu tveir, að hann hefði verið Evrópu- maður, en einn var þess fullviss, að hann hefði verið Norður- Afrlkumaður. Um það bil ári slðar hafði franska lögreglan fengið fullvissu um, að maðurinn var hvorki frá Evrópu né Norður-Afrlku, heldur frá Rómönsku Ameriku Þetta var Carlos í fyrstu var lögreglan vantrúuð á, að hér væri um að ræða pólitiskt glæpaverk En fljótlega kom annað upp á teninginn Maður nokkur hringdi I tvær fréttastofur, Agence France Presse og Reuter og talaði frönsku með sterkum erlendum hreim Hann sagði að árásin væri viðvörun til rikisstjórna Frakklands og Hollands við að hundsa kröfur Japananna i Haag — Að öðrum kosti ráðumst við næst á kvikmyndahús, — sagði hann Leynilögreglumenn, sem grandskoðuðu vegsummerki á Drugstcre, fundu fljótlega brot úr sprengjunni. Þvlnæst komust þeir að raun um. að hún hafði verið I sprengjubirgð- unum, sem Baader-Meinhof samtökin stálu frá bandariska hernum I Vestur-Þýzkalandi á slnum tlma Á þeim þremur árum, sem liðin eru siðan sprengjunum var stolið hafa þær og brot úr þeim, sem tekin hafa verið úr ýmsum fórnardýrum, myndað langan slóða um Evrópu Þetta hefur leitt i Ijós, að furðulega náin samvinna er á milli óllkra hópa borgarskæruliða, og lögreglan hefur slðar sannfærzt um, að Carlos hefur verið við þá alla riðinn að einhverju leyti NÝFÓRNARDÝR Eftir sprengjuárásina á Drugstore frestaði hópurinn aðgerð- um I Parls um þriggja mánaða skeið Carlos og Moukharbel nýttu þennan tíma til að finna sér ný fórnardýr. Þar á meðal var sendiherra ísraels I Paris. Þeir rituðu nákvæmlega niður allt varðandi öryggisvörzlu hans á vmnustað og I einkallfi Getur það að lita f vasabók, sem lögreglan náði i siðar Um næstu áramót var smyglað til hópsins beztu vopnum, sem hann hafði nokkru sinni fengið. Voru þar á meðal litlar eldflaugar og rússneskar sprengjuvörpur, sem beitt er gegn skriðdrekum. Auk þess fengu þeir þrjá Palestinumenn til að beita þessum vopnum Þeir lögðu á ráðin um að granda flugvél frá El Al með farþegum innanborðs á Orly- flugvellinum Til allrar hamingju réðu félagarnir I Commando Boudia ekkert við þessi stórhættulegu morðtól, sem þeir höfðu fengið I hendur í janúar 1975 gerðu þeir tvisvar á einni viku tilraun til að sprengja upp flugvél frá El Al á Orly með þvi að miða á bensíngeymi. í fyrra skiptið misstu þeir marks, og hæfðu júgóslavneska flugvél i misgripum. Kom það af stað getgátum um, að hér hefðu verið að verki hryðjuverkamenn frá Króatíu Þeir lögðu á flótta, og svo mikill asi var á þeim, að þeir skildu eftir skammbyssu og tvær eldflaugar Siðari tilraunin var enn meira vindhögg. Lögreglumenn stóðu vörð um allar flugvélar El Al á flugvellinum, og einn þeirra kom auga á grlmuklæddan mann, sem birtist framan við flugstöðvarbygginguna og gerði sig liklegan til að senda eldflaug að vélinni, sem hann var að gæta. Lögreglumaðurinn skaut þegar i stað að tilræðismanninum úr vélbyssu sinni, en hann fleygði sprengju á móti. Nú upphófst eltingarleikur á flugstöðinni og skot kváðu við. Þrem hermdarverkamönnum tókst að ná 10 manns I matsal flugstöðvarinnar á sitt vald, og héldu þeir þeim I gislingu inni á salernum, þar til yfirvöld samþykktu að leyfa þeim að flýja til Baghdað I samningavið- ræðunum tjáðu þeir lögreglunni, að þeir væru félagar i Commando Boudia Vitaskuld var Carlos ekki i þessum hópi, þvi að hann hafði enga löngun til þátttöku i stórhættulegum leik, ef ekki væri tryggilega um hnútana búið. Svo virðist sem Palestlnumenn- irnir í hópnum hafi knúið þessa aðgerð fram Mikil hræðsla greip um sig er fregnir bárust um, að eldflaugar hefðu verið notaðar gegn flugvélum, og víða í Vestur-Evrópu var öryggis- eftirlit á flugvöllum stórlega hert. Sveitir með litla skriðdreka settu á svið „æfingu i öryggisskyni" á Heathrow flugvelli i London SLÆMAR FRÉTTIR Enn á ný lögðust aðgerðir Commando Boudia niður, og Carlos ferðaðist um Evrópu, oft i fylgd með Moukharbel. Honum varð tlðförult til Lundúna og Zúrich, þar sem samtökin höfðu númeraðan bankareikning og I mai fór hann einn slns liðs til Vestur-Þýzkalands til viðræðna við Baader-Meinhof samtökin. í herbúðum þeirra var glatt á hjalla, þvl að þau höfðu nýlega rænt stjórnmálamanninum Peter Lorenz og slðar framselt hann I skiptum fyrir 8 stjórnleysingja, sem farið hafði verið með flugleiðis til Suður-Jemen. Þar á meðal var Gabriele Kroechev-Tiedeman, sem siðar var i för með Carlosi til Vlnarborgar, svo sem frægt er orðið. En 13. júni kom Moukharbel úr ferð um Mið-Austurlönd og hafði ekki góðar fréttir að færa. Leyniþjónusta Libanon hafði gripið hann og yfirheyrt i heilan sólarhring. Hann sagði, að þeir hefðu velgt sér dálitið undir uggum, en fullyrti samt, að hann hefði ekki sagt þeim satt orð. Þegar yfirheyrslunum var að verða lokið, kom útlendingur inn og hlustaði gaumgæfilega á svör hans Taldi hann, að hér hefði verið um að ræða Bandaríkjamann frá CIA. Síðan hefði sér verið sleppt. Carlos sleppti sér alveg gagnvart arabanum. Hafði hann enga vitglóru I kollinum? Gerði hann sér ekki grein fyrir þvi, að CIA hefði ráðlagt leyniþjónustunni að sleppa honum, svo að hann gæti visað þeim á aðra félaga I samtökunum Honum hefði sennilega verið veitt eftirför allt frá þvi að hann sté á land I Orly. En þegar Carlosi tók að renna reiðin, urðu viðbrögð hans þau sömu og venjulega, þegar á móti blæs Hann varð fullkomlega rólegur og yfirvegaði málið Hann gerði sér grein fyrir þvl, að hann var undir eftirliti. og ef hann gerði minnstu tilraun til að flýja, yrði það til þess eins að hann yrði handtekinn. Það viturlegasta sem hann gæti gert var að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.