Morgunblaðið - 14.03.1976, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.03.1976, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976 Þriðja og síðasta grein um alræmdasta og harðsnúnasta hermdarverkamann áratugarins 4 - 4 4 4 eftir Colin Smith sannfæra frönsku leyniþjónustuna um, að hann væri ekkert annað en spilltur glaumgosi frá Venezúela og aðeins kunningi Moukharbel. Hins vegar hefur þessi óvissa áreiðanlega bakað honum mikið sálarstrlð, og mynd, sem leyniþjónustan franska lét taka af honum á götu I Paris um þetta leyti, sýnir að hann bítur ! neðri vörina að innanverðu, en slikt gerir hann aðeins, þegar að honum sverfur. TENGILIÐUR Moukharbel reyndi að snúa hundana af sér 21. júni kom hann til London, en brezka lögreglan, sem fengið hafði viðvörun frá frönsku leyniþjónustunni, visaði honum til baka. Leyniþjónustan greip til þess hyggilega ráðs að láta hann leika lausum hala í Parls og hafa nánar gætur á öllu atferli hans þar. Hann var eins og bolti, sem skoppaði um á litlum leikvangi og skoraði mark fyrir leyniþjónustuna i hvert skipti sem hann leitaði i örvæntingu aðstoðar til að komast á brott Carlos hafði tekið á leigu Ibúð á hægri bakka Signu og hafðar voru gætur á öllum, sem þangað vöndu komur slnar. Vinstri sinnaður útgefandi, Wilfrid Boese að nafni, sem var tengiliður samtakanna við samtök i Þýzkalandi, varð þess var, að honum var veitt eftirför, eftir að hann fór út úr íbúð Carlosar. Moukharbel hafði farið þess á leit við hann, áð hann reyndi að fá Carlos til að útvega sér fölsuð skilriki, en Carlos taldi vonlaust að veita arabanum nokkra aðstoð, þar sem hann var undir svo ströngu eftirliti, sem raun bar vitni. 23. júni var Moukharbel handtekinn, einn sins liðs og yfirgefinn, og varð það honum jafnvel til nokkurs léttis. Tveimur dögum síðar var Boese gripinn fyrir framan íbúð Carlosar, en sjálfur var húsráðandi allur á bak og burt. KONUR, KONÍAK, PÓKER Á þeim tveim árum, sem Carlos var foringi Commando Boudia, lézt hann vera ungur hagfræðingur, starfandi hjá alþjóðlegu fyrirtæki og þyrfti hann starfs sins vegna að vera á faraldsfæti milli landa Hann hafði gaman af þvi að tala um konur, drekka koniak og spila póker Flestir þeir, sem kynntust honum lauslega, töldu hann vera feitan glaumgosa, sem kynni að njóta llfsins Hann féll vel að þessu hlutverki, enda var það ekki ólikt honum sjálfum. Eitt helzta ánægjuefni Carlosar var, að hann gat staðið í umsvifamiklu kvennastússi og fengið það allt greitt sem risnukostnað Hann átti fjórar vinkonur, tvær hvorum megin Ermarsunds Þrjár þessara stúlkna voru frá Rómönsku Amerlku, en sú fjórða var spænsk Angela Otaola var 21 árs að aldri, frá Baskahéruðum Spánar og var dökk yfirlitum Henni kynntist Carlos á matsölu- stað, þar sem hún var þjónustustúlka, og innan tlðar notaði hann Ibúð hennar i Bayswater til að geyma fölsuð vegabréf, sprengiefni og byssur. Siðar hlaut hún 12 mánaða fangelsis- dóm fyrir að hafa vopn I ibúð sinni Við réttarhöldin lýsti verjandi hennar yfir þvi, að hún hefði verið i tygjum við Carlos. Hin vinkona Carlosar i London var miklu eldri að árum. Hún hét Maria Nidya Tobon de Romero og var fögur fráskilin kona frá Colombiu. Henni kynntist Carlos þegar hún var við nám í einkaritaraskóla i London. Hún var eins konar gjaldkeri fyrir Carlos, og hann sendi henni a.m.k. £1.000 i frönkum frá Paris Ennfremur geymdi hún nokkur fölsk vegabréf fyrir hann. Hvorug kvennanna vissi af hinni, né heldur vissu þær, að móðir Carlosar og bræður hans bjuggu I Kensington. „NEGRASTELPAN" Einnig hafði hann búið vel um hnútaha í París. Þar átti hann Ifka tvær vinkonur, og vissi hvorug um hina, enda þótt skammt væri á milli íbúða þeirra. Amparo Silva-Masmela frá Colombiu bjó í Ibúð við Amelite-götu skammt frá flugstöðinni við Les Invalides. Þetta var hæglát stúlka, sem starfaði I banka og var 24ra ára að aldri. Hún geymdi nógu mikið af sprengiefni samtakanna Commando Boudia til að sprengja húsið, þar sem hún bjó, hátt í loft upp. Nancy Sanches var nemandi I mannfræði og var frá Venuzuela. í henni var eitthvað af negrablóði, og því var hún dekkri á hörund en Carlos. Hann átti það til að taka um hökuna á henni og segja: — Ah, negrastelpa, og þetta kom oft illa við vini Nancyar, sem gerðu sér ekki grein fyrir því, að þetta er eins konar gæluyrði í Rómönsku Ameríku. Carlos kallaði bróður sinn, Lenin, sem er allhörundsdökkur, einnig negra, og sjálfur er hann kallaður El Gordo, þ.e. fituklumpur í fjölskyldu sinni. Það var í íbúð Nancyar í Latínuhverfinu. sem Carlos kom I Ijós á ný eftir handtöku Moukharbel. Húsið er 6 hæða bygging við Toullier-götu og íbúð Nancyar var f þeim hluta hússins baka til sem var áður ætlaður þjónustufólki, og þangað er gengið eftir göngubrú frá húsinu framanverðu. 27. júnf sl. ár, er Nancy hafði lokið fjögurra ára námi í mannfræði við Sorbonne háskólann, ætlaði hún til Venezuela til að gera rannsóknir á indíánaættflokki, sem býr afskekkt þar í landi. Flugvélin, sem hún ætlaði með, átti að leggja af stað kl. 10 um morgun, svo að kveðjuveizlan hófst sfðla daginn áður og stóð enn, þegar hún lagði af stað út á flugvöll kl. 8.30. Carlos hafði fengið ímugust á flugvöllum, og dvaldist því áfram f fbúðinni og hélt veizlunni áfram. Leiga hafði verið greidd fyrir fbúðina einn mánuð til viðbótar, og hann ætlaði að halda þar kyrru fyrir, þar til öldurnar, sem risið höfðu eftir handtöku Moukharbel, hefði lægt. En snemma á öðrum degi yfirheyrslnanna, féll Moukharbel saman. Hann vísaði lögreglunni á híbýli Nancyar og fór þangað sjálfur í fylgd með þremur lögreglumönnum. Þeir voru Jean Herranz lögregluforingi og tveir óbreyttir menn úr lögregluliðinu, Raymond Dous og Jean Donati Enginn þeirra hafði hugsun á að taka með sér vopn BAUÐ UPP Á DRYKK Um kl. 21 40, daginn sem Nancy fór til Venezuela, hringdu lögreglumennirnir í misgripum á dyrabjöllu hjá ungum hjón- um, sem bjuggu á næstu hæð fyrir neðan Nancy Ungu hjónin sem voru með kvöldverðarboð, vísuðu þeim upp í íbúð hennar. Hálfri klukkustund síðar, I sama bili og húsbóndinn stóð upp til að kveðja gesti sfna, komu tvær byssukúlur I gegnum loftið, og fór önnur þeirra í gegnum borðstofuborðið Þessar kúlur höfðu farið í gegnum Moukharbel, því að það urðu endalok hans að falla fyrir kúlu frá sínum gamla vini og samstarfsmanni. Aðrar byssukúlur urðu Dous og Donati að aldurtitla, og Herranz hlaut skot í hálsinn og særðist. Þegar Herranz hafði náð sér eftir skotsárið, sagði hann, að þeir hefðu aðeins álitið Carlos eins konar tengilið samtakanna Hann kvað hann hafa tekið þeim vel, er þeir knúðu dyra, boðið þeim upp á drykk, og sjálfur kvaðst Herranz hafa þegið í glas. Veizlan var að leysast upp, en enn voru í íbúðinni tvær stúlkur. Þeir fóru inn f annað herbergi, meðan lögreglumennirnir ræddu við Carlos. Carlos lézt vera drukknari en hann var, en allt gekk vel, þar til lögreglumennirnir báðu hann að koma mér sér niður á lögreglustöð, þá varð hann viðskotaillur, en samþykkti þó loks að fara með þeim, ef hann fengi fyrst að skreppa á salernið Þaðan kom hann með stóra rússneska byssu og innan tfu sekúndna hafði hann skotið þá alla fjóra. Siðast hæfði hann Moukharbel, sem hafði beygt sig niður á góif. Næsta morgun var það Angela Armstrong, ritari við Sorbonne, sem kom auga á Carlos á flugstöðinni hjá Les Invalides. Hún stóð f biðröð við afgreiðsluborðið, þegar Carlos birtist skyndilega eftir að hafa átt næturstað hjá Ampera Silva-Masmela VOPNABÚRIÐ Það var ekki hyggilegt fyrir Carlos á þessari stundu að fara Cit á flugstöðvar, þvi að þeirra var vendilega gætt af öryggis- lögreglunni. En á honum var engan bilbug að finna Angela kallaði til hans, og þá gekk hann hægum skrefum til hennar tók utan um hana og hvislaði: Ég er búinn að skjóta tvo menn Það var arabarotta, sem sveik mig, og ég drep alla þá, sem svíkja mig. Meðan þessu fór fram, voru lögreglumenn I óðaönn að skoða eigur þær, sem „arabarottan" hafði eftir sig látið í ávisanahefti hans sáu þeir, að einhver Silva-Masmela hafði fengið greidd 250 sterlingspund. Þegar hibýli hennar voru rannsökuð, kom I Ijós, að þar var vopnabúr Commando Boudia og þar var meðal annars siðasta sprengjan af gerðinni M26, sem Baader-Meinhof samtökin höfðu stolið árið 1971 Þegar Carlos birtist næst, var það i Vinarborg um jólaleytið, eins og frægt er orðið Þá hafði hann lagt verulega af frá þvi að hann sást siðast, enda líklega verið lengi á flótta. Ekki er vitað, hvernig hann komst út úr Frakklandi. mynd, sem lögreglan tók á laun af hinum lífseiga hermdarverkamanni fimm dögum fyrir dráp tvímenninganna. Sá sem skipulagði hryöjuverkin, lærisveinn hans og fórnarlömb — frá vinstri: PFLP-foringinn dr. George Habash; Raymond Dous (efri myndin) og Jean Donatini, sem Carlos skaut báða til bana; og loks \ L

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.