Morgunblaðið - 14.03.1976, Side 39

Morgunblaðið - 14.03.1976, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976 39 Ólafur Jóhann Gíslason -Minning „Tíminn liður, — og æ hraðar með hverju ári, sem við ævina bætist. Og á þessum hraða straumi tímans berast burt sam- ferðamennirnir, hver á fætur öðr- um, skyldmenni, tengdamenn, kunningjar, vinir, sífellt fleiri, — og koma aldrei aftur. En þetta er lífsins gangur, segja menn, og dugir þá vist eigi um að sakast. Ekki breytist þessi mikli sann- leikur þó þeirri staðreynd, að æv- inlega hlýtur fráfall þeirra, sem okkur eru á einhvem hátt vana- bundnir, að snerta viðkvæman streng í hverju brjósti og vekja upp í huganum endurminningar um hinn látna vin og samúð með ástvinum hans. Hinn 21. febrúar síðastliðinn andaðist mágur minn, Ölafur Jó- hann Gislason, langt frá sinni feðrafold, vestur i stórborginni Toronto í Kanada, en þar hafði hann þá átt heimili siðastliðin tuttugu ár. Ölafur heitinn fædd- ist hér í Reykjavík 14. desember 1929, sonur hjónanna Guðríðar Guðmundsdóttur frá Sandlæk í Gnúpverjahreppi og Gísla Eiriks- sonar frá Miðbýli á Skeiðum. Ungur að árum missti hann föður sinn, sem drukknaði á bezta aldri, er togarinn Max Pemberton fórst með allri áhöfn undir Svörtuloft- um 11. janúar 1944 á leið til Reykjavíkur með fullfermi af Vestfjarðamiðum. Hafði Gisli þá lengi verið bátsmaður hjá hinum kunna skipstjóra, Pétri Maack. Þrátt fyrir takmörkuð fjárráð réðst Olafur heitinn til náms i héraðsskólanum á Laugarvatni. En ekki lét hann þar við sitja, heldur brauzt hann nú í því að fara um langan veg til framhalds- náms. Atján ára að aldri hélt hann til Kanada með tilstyrk móður sinnar og systkina og innritaðist í háskólann í Calg- ary í Alberta fylki til náms i flugtækni. Lauk hann þar brottfararprófi að fjórum árum liðnum, vorið 1952. Þar vestra átti hann góða að, einkum þó föðursystur sína, Sigrúnu Hjartarson, móður Sigriðar Hjart- arson, sem var til skamms tima forstöðukóna elliheimilisins Betel á Gimli og mörgum að góðu kunn, ekki sízt nú eftir að samgöngur milli Islendinga austan hafs og vestan urðu nær daglegur við- burður. Sonur frú Sigrúnar og bróðir Sigriðar forstöðukonu var Hjörtur E. Guðmundsson, frajn- kvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavikur, sem nú er nýlátinn, maður vinsæll og vei metinn af öllum, er honum kynntust. Vann Ölafur heitinn í sumarleyfum sín- um á búi föðursystur sinnar á Steep Rock í Manitoba, og létti það honum að kljúfa námskostn- að sinn. Haustið 1952 kom Ölafur heim frá námi og vann um hálfs þriðja árs skeið sem sérfræðingur hýá bandaríkjaher á Keflavíkurflug- velli við eftirlit flugvéla. Greiddi hann þá fjölskyldu sinni að fullu námsskuldir sínar, enda ævinlega metnaður hans að vera engum byrði og engum háður fjárhags- lega. En vestur skyldi stefnt að öðru sinni. Þar beið hans unnusta t j þfipSi, _ Joant __ sem _ hann _ haíði kynnzt á námsárum sínum. Hún er í móðurætt af skozkum upp- runa en faðir hennar, Alex Stef- ánsson á Steep Rock af skagfirzk- um ættum, sonur Jóns Stefáns- sonar frá Vöglum í Blönduhlið og konu hans. Sæunnar Jónsdóttur frá Anastöðum í Svartárdal. Gekk Ölafur að eiga unnustu sína 27. ágúst 1955. En nú fór sem oftar, að sér- menntun ungs Islendings nýtist honum og öðrum vel erlendis, sem lítt eða ekki hér heima Varð því úr, að Olafur tók við starfi í De Havilland- flugvélaverksmiðjunum i Tor- onto. Fluttust ungu hjónin þang- að skömmu eftir giftingu sína og áttu þar heimili síðan að undan- teknu einu ári, er Ölafur var að fullnuma sig í grein sinni í Cal- gary. Þau hjón eignuðust tvo drengi, Davið Þór og Ian, nú á 11. og8. ári. Þrisvar komu þau saman í heimsókn til Islands, eitt sinn með báða syni sina, en Ölafur auk þess önnur þrjú skipti, síðast há- tíðasumarið 1974 með drengina sína til að láta þá taka sinn þátt í hátíð þjóðarinnar. Er það nú fagnaðarefni, að hann — og þeir feðgar allir — skyldu eiga hér þessa dvöl og geta verið á Þing- velli í sumardýrðinni daginn ógleymanlega. Sýnir þetta glöggt tryggð hans við átthaga sina og fjölskyldu. En enginn má sköpum renna. Fyrir fimmtán árum mun Ólafur fyrst hafa kennt þess meins, er að lokum leiddi hann til bana 1 fyrstu fékk hann bót, en smám saman magnaðist sjúkdómurinn þrátt fyrir kunnáttu færustu lækna. Lengst af stundaði hann þó starf sitt að fullu, unz orkuna þraut fyrir rúmum fjórum árum. Síðasta árið var svo komið, að hann varð að dveljast á hjúkrun- arheimili. En allt þetta mótlæti bar hann með einstöku þolgæði og æðruleysi, og eftirminnileg er í bréfum hans setningin: „Okkur líður öllum vel“, — og mátti hann þó vart penna valda. Ung ekkja og tveir litlir drengir handan hafsins syrgja eiginmann og' föður, en hér heima stendur yfir moldum sonar sins öldruð móðir, sem áður hefur misst í sjóinn eiginmann í blóma iífsins og annan son, baín i vöggu. — Með þeim er samúð okkar, vina þeirra. Jón S. Guðmundsson. Yfirlýsing frá Listasafni íslands I TILEFNI af fréttapistli á for- síðu Tímans fimmtudaginn 11. marz 1976 finnur Listasafn Is- lands sig til knúið að leiðrétta alvarlega missögn sem þar kemur fram. Fyrirhuguð sýning í Bogasal Þjóðminjasafnsins á verkum Karls Einarssonar Dunganons er Listasafninu með öllu óviðkom- andi. Sýningin verður haldin á vegum framkvæmdastjórnar Listahátíðar og ber hún ein ábyrgð á sýningunni. Framlag Listasafnsins til Lista- hátíðar 1976 verður hins vegar sýning á verkum austurríska málarans Hundertwassers og er hún boðin safninu af austurrísku ríkisstjórninni. FÆREYSKAR konur hér f Reykjavfk og nágrenni, sem um árabil hafa efnt til basars til ágóða fyrir bvggingarsjóð hins nýja færevska sjómannaheimilis við Skiphoft efna f dag, sunnudag, til basars f færeyska sjómannaheimilinu við Skúlagötuna og hefst hann klukkan 3 sfðd. Frú Justa Mortensen (á mvndinni) sem hefur verið mikil driffjöður í þessum félagsskap færeysku kvennanna, sagði að þær hefðu unnið að undirbúningi basarins f vetur og yrði þar alls konar handavinna á boðstólum og prjónles, auk þess kökur ofl. Þu færö mikiö fyrir peninginn þegar þú kaupir F A T 131 131 er meó barna- læsingum á hurðum er með áskrúfuðum frambrettum, sem mjög auðvelt er að skipta um er serlega vel ryðvarinn frá verksmiðju. 131 er með sérbyggðum stuðara, sem gengur inn allt að 6 cm áður en yfirbygging verður fyrir tjóni. 131 G/æsi/egar innréttingar og fallegt mælaborð. Auk þess má nefna stórt farangursrými, tvöfa/t bremsukerfi, einangraðan topp, færan/egt stýri og sérlega vel styrkt farþegarými. FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI Davíð Sigurðsson hf. SIÐUMULA 35. SÍMAR 38845 — 38888

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.