Morgunblaðið - 14.03.1976, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1976
Hverjir hljóta Oscars-
verðlaunin í ár?
Makalaus er sú ímynd-
un (eöa óskhyggja?)
nokkurra manna, að
OSCARsverölaunin séu
harla lítilsverö, lítiö
mark á þeim takandi og
þau fari framhjá flestum.
Engin kvikmyndaverö-
laun í heiminum í
dag, eru sveipuö slík-
um frægóarljóma og
OSCAKsverðlaunin, eng-
in önnur verðlaun
geta veitt vinnendum
sínum jafn öruggt braut-
argengi og eftir engri
annarri kvikmyndaverð-
launaafhendingu er
beöiö meó jafn mikilli
eftirvæntingu víöa um
heim. Um listrænt gildi
OSCARsins má aö sjálf-
sögöu deila í einstaka til-
viki, og því ber heldur
ekki að neita aö þaö
hefur komið fyrir að vin-
sælasta mynd hvers árs
hefur sett svip sinn á af-
hendinguna. Það getur
verið ósköp eðlilegt og
eins ber aö hafa í huga að
í kvikmyndaakademí-
unni bandarisku eru á
annað þúsund meðlimir,
sem allir hafa kosninga-
rétt og sjálfsagt æriö mis-
jafnan smekk.
Já, svo sannarlega væri
kvikmyndaheimurinn
mun fátækari ef
OSCARsverðlaunanna
nyti ekki við, og áhugi
almennings mun minni á
þessari listgrein, í öllu
falli á vesturlöndum.
Tilefni þessa greinar-
stúfs er að í lok þessa
mánaðar verða OSCARs-
verðlaunin afhent rétt
einu sinni. Því vil ég nota
tækifærið og birta til-
nefningarnar allar í
heild, en til þessa hefur
aðeins útdráttur þeirra
birst í dagblöðum hér-
lendis. Til gamans ætla
ég að merkja við hvaða
leikara, myndir eða tón-
list ég tel sigurstrangleg-
asta í ár. (sjá lista).
MAKALAUST
BANKARÁN
(DOC DAY AFTER-
NOON)
Ein þeirra mynda sem
tilnefnd er til OSCARs-
verðlaunanna sem besta
mynd ársins, er nýjasta
mynd þeirra Sidney
Lumet og A1 Pacino,
DOG DAY AFTERNOON
(fyrir tveim árum gerðu
þeir saman myndina
SERPICO, naut hún mik-
illa vinsælda viða um
heim, og er rétt ókomin í
Stjörnubíó.)
Á dögunum fékk undir-
ritaöur tækifæri til að sjá
þessa gráthlægilegu
tragi-kómedíu, þar sem
aö ægir saman hinum
furðulegustu manngerð-
um og fjarstæðukennd-
ustu atburðum. Myndin
fjallar um raunverulega
atburði; bankarán sem
framió var í Brooklyn
áriö 1972. Er það örugg-
lega eitt hið fáránlegasta
síðan sögur hófust. Tveir
félagar rændu bankann
29 þús. dölum, og voru að
komast undan þegar lög-
reglan komst á slóð
þeirra og umkringdi
bankann. Þá tóku þeir fé-
lagarnir níu gísla og
héldu þeim í einar
fjórtán klukkustundir.
Ástæðan fyrir ráninu
var aldeilis makalaus.
Kynvilltan vin þeirra fé-
laga (leikinn af A1
Pacino) skorti fé til að
láta framkvæma kyn-
skipti á ,,konunni“ sinni,
sem jafnframt var kyn-
villingur. Pacino-
karakterinn var einnig
giftur kvenmanni í raun-
veruleikanum.
Bankaránið fór að
sjálfsögðu allt í handa-
skolum, annar ræningj-
anna var drepinn (sá sem
leikinn er af John
Cazale) og allir viðriðnir
glæpinn urðu aðhláturs-
efni bandarisku þjóð-
arinnar sumarið ’72. Sá,
eða það, réttara sagt, sem
mest hagnaðist á glæpn-
um var sjálfsagt kyn-
skiptingurinn Ernest
Aron, og sá sem nú
nefnist Liz Eden. Kvik-
myndaframleiðandinn
borgaði nefnilega hina
langþráðu kynskiptaað-
gerð „þess“.
Leikstjórn Lumets er
hreinasta afbragð, aldrei
dauóur kafli ætíð ytri eða
innri spenna. Hann lýsir
og þessum fáránlega at-
burði af einstöku skop-
skyni.
Þeir A1 Pacino, sem fer
með aðalhlutverkið, og
John Cazale fara báðir á
kostum í hlutverkum
sínum. Sá síðarnefndi
sannar svo ekki verður
um villst, að leikur hans f
GODFATHER I og II var
engin tilviljun, en þar lék
hann einmitt hinn veik-
geðja, eldri bróður
Pacinos. Þá er Chris
Sarandon, í hlutverki
kynvillingsins ,,kærustu“
Pacinos, og síðar konu,
eftir makalausa gift-
ingarathöfn, eftirminni-
lega góður og tel ég hann
nokkuð öruggan um
OSCARsverðlaunin fyrir
bestan leik karls í auka-
hlutverki í ár. S.V.
STÚLKAN FRÁ
PETROVKA
Á fimmtudagskvöldið
var frumsýnd í Bæjarbíói
i Hafnarfirði ágæt og ný-
leg amerísk mynd meó
Goldie Hawn í aðalhlut-
verki. Þar sem að undir-
ritaður átti þess engan
kost að sjá umrædda
mynd, þá langar mig aö
vekja athygli kvikmynda-
húsgesta á henni sérstak-
lega, því að frumsýning-
ar góöra mynda í Hafnar-
firði eru virðingarverðar
og lítt ábatasöm fyrir-
tæki, jafnvel þótt þeim
séu gerð betri skil en
þessi. Vonandi er myndin
það athyglisverð að hún
gangi enn um næstu
helgi, þá verður hennar
getið frekar.
KVIKM YNDIRNAR I BORGINNI
GAMLA BIÓ: AÐ MOKA FLÓRINN + +
HAFNARBÍÓ: PAPILLON ***
LAUGARÁSBlÓ: MANNAVEIÐAR * *
NÝJA BÍÓ: FLUGKAPPARNIR * *
TÓNABÍÓ:****
1 myndinni eru Garmen leikin af Suan Peretz. Hér eru lögreglu-
menn að skýra henni frá ráninu. 1 myndinni lfkt og í raunveruleik-
anum ætlar hún ekki að trúa atburðum.
Al Pacino fer með hlutverk
bankaræningjans kynvillta,
John Wojtowicz
Hinn raunverulegi John
Wojtowicz