Morgunblaðið - 18.05.1976, Blaðsíða 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
IIPps
JWor0unl>In?iil>
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1976
Siglufjörður: AlV&rlfiff
heilahimnubólgu-
tilfelli meðal barna
ALVARLEG heilahimnubólgutilfelli hafa undanfarið komið upp með-
al harna f Siglufirði. Hefur á skömmum tíma orðið að flvtja 5—6 börn
með sjúkraflugvélum f sjúkrahúsið á Akurevri af þessum sökum, og
einnig hefur Morgunblaðið heyrt að svipaðra tilfella hafi orðið vart á
Sauðárkróki og f Vestmannaeyjum.
Samkvæmt upplýsingum land-
iæknis virðist hér vera baktería á
ferð, því að tekizt hefur að lækna
börnin með lyfjagjöf þegar i
sjúkrahús hefur verið komið. Er
nú verið að rækta bakteríuna en
niðurstöður hennar liggja enn
ekki fyrir.
Landlæknisembættinu höfðu
ekki borizt fregnir af heilahimnu-
bólgutilfellum af öðrum stöðum,
og gat starfsmaður landlæknis sér
til, að ef slík tilfelli hefðu komið
upp annars staðar þá væri það
ekki í sama mæli og í Siglufirði,
því að annars mætti búast við þvf
að embættið hefði verið látið vita,
líkt og var um tilfellin f Siglu-
firði.
Brezki togaraflotinn
aftur á Austfjarðamið
Brezku togaraskipstjórarnir vilja tvö veiði-
Alþingi:
Námsmenn
í ryskingum
við þingverS
Stúdent hélt reiði-
lestur af þingpöllum
um námslánin
SÁ óvanalegi atburður gerðist
f gær kl. rúmlega 7 að ungur
maður úr hópi pallgesta hóf
mikinn reiði- og skammarlest-
ur yfir þingmönúum og ráð-
herrum. Þegar þingverðir
hugðust fjarlægja manninn
sló hópur pallgesta, allt
háskólastúdentar, skjaldborg í
kringum ræðumann og
hindruðu þingverði og lög-
reglumenn f að ná til hans.
Námslánafrumvarp mennta-
málaráðherra var á dagskrá í
neðri deild, og hafði Svava
Jakobsdóttir, alþingismaður,
nýlokið að mæla fyrir
Framhald á bls. 39
svæði — annað stöðugt en hitt hreyfanlegt
BREZKU togaraskipstjórarnir
samþvkktu við atkvæðagreiðslu f
gærdag að yfirgefa Vestf jarðamið
og halda á nýjan leik á miðin
fyrir Austfjörðum. Brezku togar-
arnir héldu vestur með Norður-
landi á laugardag og gátu hafið
veiðar Iftillega á sunnudag, en
sfðan hefur verið þar bræla og
nánast engin veiði. Olli það þess-
um skvndilegu sinnaskiptum tog-
araskipstjóranna, að þvf Land-
helgisgæzlan sagði f gær.
Það var um þrjú leytið í gærdag
að atkvæðagreiðsla fór fram með-
al togaraskipstjóranna hvort þeir
skyldu halda aftur austur eða
vera kyrrir fyrir vestan. Var til-
lagan um að haldá aftur á Aust-
fjarðamið samþykkt með 18 at-
kvæðum gegn 8 en 6 skipstjórar
sátu hjá. Var talsverður urgur
meðal þeirra skipstjóra, sem und-
ir urðu í atkvæðagreiðslunni, með
þennan þvæling fram og til baka.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bretlandi ætlaði brezki veiðiflot-
Framhald á bls. 39
Meiri afli nú í stærstu
verstöðvunum en í fyrra
VETRARVERTIÐ er lokið
suðvestanlands eða frá 15.
maí að telja, enda þótt
nokkrir bátar haldi enn
Hrapaði í klettum
ÞAÐ SLYS varð f hlfðum Ingólfs-
fjalls um hálffjögurleytið í gær,
að 16 ára piltur, sem var f eggja-
leit ásamt fleiri unglingum,
hrapaði f klettum og rann sfðan
drjúgan spotta niður skriður. Var
lögreglan á Selfossi strax kölluð
til, og pilturinn ffuttur á sjúkra-
húsið á Selfossi. Hann var mjög
mikið skorinn á höfði og fótum og
auk þess talið að hann hefði fót-
brotnað.
Þá fékk hann mikið
höfuðhögg og mun hafa rotazt við
fallið, en hann rankaði fljótlega
við sér.
áfram veiðum. Ljóst er að
útkoman á vertíðinni er
slök en engu að síður hefur
í nokkrum stærstu ver-
stöðvunum komið meiri
afli á land nú en á vertíð-
inni í fyrra, og það þrátt
fyrir að hálfur mánuður
félli að mestu úr f febrúar
vegna verkfalla.
Vestmannaeyjar: Samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Sigurgeir
Jónasson, fréttaritari Mbl., aflaði
sér í gær, mun heildaraflinn í
Eyjum frá áramótum og fram til
15. þ.m. vera um eða yfir 22 þús-
und tonn en var í fyrra 21.400
tonn. Þórunn Sveinsdóttir er afia-
hæst nú eins og f fyrra með 977
tonn, og er þetta í þriðja sinn á
fjórum árum sem skipstjóri báts-
Framhald á bls. 39
Gamla bíó
til sölu
GAMALT og gróið kvikmvndahús
f borginni hefur verið auglýst til
sölu. Eftir upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér er
hér um að ræða Gamla bfó, en f
samtali við Morgunblaðið f gær
vildi Hilmar Garðarsson, einn af
eigendum kvikmvndahússins,
ekkert um þessa sölu segja né
hvað ástæður lægju þar að baki.
Eftir því sem blaðið kemst næst
munu figendurnir vilja fá allt að
200 milljónir króna fyrir húsið
ásamt þeim viðskiptasamböndum
sem húsið hefur við erlend kvik-
myndadreififélög. Kunnust
þessara fyrirtækja sem Gamla bíó
skiptir við eru Metro-
Goldwin-Meyer og Walt Disney-
kvikmyndafélögin.
Tvísýnt um örlög
z-unnar í efri deild
„Fiskgengdin líklega
i en í fyr
30%
minnt
ra
— segir aflakóngur vetrarvertíðarinnar, Sigurður á Skarðsvík SH
FISKGENGDIN fer minnkandi
með hverju árinu og ætli hún
hafi ekki verið 30% minni í
vetur en á vertfðinni f fyrra,“
sagði aflakóngur á nýlokinni
vetrai .ertfð, Sigurður Krist-
jónsson á Skarðsvfk SH frá
Hellissandi, f samtali við Morg-
unblaðið f gærkvöldi. Miðað við
15. maf s.l. fiskaði Skarðsvfk á
vertíðinni 1054 lestir að afla-
verðmæti 50—60 milljónir
króna. Sigurður hefur verið
aflakóngur á fjórum af fimm
sfðustu vertfð-
um og sá skip-
stjóri, sem
fært hefur á
land mest afla-
verðmæti á
a.m.k. síðustu
5 vertfðum.
Vertfðin 1972
var sú bezta
hjá honum, þá
fékk hann
1800 lestir.
Sigurður sagði í samtali sfnu
Sigurður á Skarðs
vfkinni.
við Mbl., að það væri eins og
togaraflotinn hreinsaði upp
fiskgöngurnar alveg frá því
þær kæmu upp að landinu. Það
væri því alltaf minna og minna
af fiski sem gengi á grunnslóð
og hiutur bátanna minnkaði
stöðugt. „Þetta er bara hrafl
sem bátarnir fá miðað við það
sem gerðist hér áður fyrr.“ Það
er þó yfirleitt ágætisfiskur, sem
bátarnir fá, að sögn Sigurðar og
Framhald á bls. 39
LITLAR Ifkur voru á þvf f gær-
kvöldi að Z-frumvarpið hlyti
afgreiðslu frá efri deild alþingis
fyrr en f fyrsta lagi seinni hluta
dags f dag. 1 gær kom fram breyt-
ingartillaga við frumvarpið sem
Jón Helgason fiytur ásamt 6 öðr-
um þingmönnum efri deildar, og
er breytingartillagan efnislega
samhljóða frumvarpi til laga um
sama éfni sem menntamálaráð-
herra lagði fram fyrr á þinginu. 1
efri deild sitja 20 þingmenn,
þannig að flutningsmenn breyt-
ingartillagnanna þurfa enn að
tryggja sér stuðning þriggja þing-
manna f deildinni til að fella
þingmannafrumvarpið á jöfnum
atkvæðum.
í breytingartillögunum er gert
ráð fyrir að fyrsta grein orðist
svo: „Menntamálaráðuneytið
setur reglur um ísl. stafsetningu."
í öðru lagi er gert ráð fyrir breyt-
ingu við 3ju grein þess efnis, að
ráðuneytið skuli leita tillagna
nefndar sérfróðra aðila, sem
nánar verði ákveðið hvernig skip-
uð skuli, um setningu slfkra
reglna. í þriðja lagi er gert ráð
fyrir því, að áður en slikar staf-
setningarreglur verði settar af
ráðuneytinu skuli leitað sam-
þykkis alþingis fyrir þeim f formi
þingsályktunar.
í gærkvöldi var fyrsta umræða
um frumvarpið f efri deild, og
þegar blaðið hafði síðast fréttir
Framhald á bls. 39
Kristján og Haukur:
Vilja verja
eigið mál
MÁL það, sem nýlega var höfð-
að á hendur þeim Kristjáni
Péturssvni deildarstjóra f toll-
inum á Keflavfkurflugvelli og
Hauki Guðmundssyni rann-
sóknarlögreglumanni f Kefla-
vfk fyrir meint misferli f opin-
beru starfi, hefur verið tekið
til dómsmeðferðar og Sigur-
berg Guðjónsson fulltrúi bæj-
arfógetans f Kópavogi skipað-
ur setudómari.
Þeir Kristján og Haukur ósk-
uðu eftir því að verða eigin
Framhald á bls. 39