Morgunblaðið - 23.06.1976, Side 19

Morgunblaðið - 23.06.1976, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JUNÍ 1976 19 Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR JÓN GUÐMUNDSSON. fyrrverandi bóksali. andaðist að Elliheimilinu Grund 21 þ m Ingibjorg Halldórsdóttir, Sigvaldi Þorsteinsson. Júlíus Halldórsson, Sigríður Sigurðardóttir. og barnaböm. Maðurinn minn. faðir okkar. tengdafaðir og afi. ERLING LANG-JENSEN, lyfsali, Ruds — Vedby, Sjálandi, Danmörku, andaðíst 3. júní 1976 Útförin hefur farið fram. Hrefna Lang-Jensen, Birgit, Torsten. Leif, tengdabörn og barnaböm. Móðir okkar. KIRSTEN POULSEN, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 1 9 júni Edith Moller. Esther Munro, Frida Thorup. Móðir okkar, HANNESÍNA RUT ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Vesturgötu 51 C, lézt að Vifilsstaðaspitala 20 júni 1976 Börnin. t Eiginkona mín RAGNA BJÖRNSDÓTTIR Nökkvavog 1. andaðist í Landspitalanum 21. júní. Fyrir hönd barna minna og annarra vandamanna Bergþór N. Magnússon. Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir ÞÓRÐUR GUÐNI MAGNUSSON Nönnugötu 1 b sem lést 18 júni, verður jarðsettur frá Dómkirkjunni í Reykjavik fimmtudaginn 24 júni kl 13 30. „ ... Sigriður Sveinsdóttir Rannveig Þórðardóttir Guðmundur Arason. + Utför föður okkar, tengdaföður og afa, BJÖRNS M. BJORNSSONAR bókbindara, Njálsgötu 28, Raykjavik, verður gerð frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 24 . júni kl 1 3.30 Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið Margrét Bjömsdóttir, Sigurgeir Jónasson, Bima Bjömsdóttir, Skúli Kristmundsson, Ástráður Bjömsson, Laufey Jónsdóttir, Bjöm H. Bjömsson, Áróra B. Champlain, Jóhanna Sigfúsdóttir, Jónfna B. Domminick, Henry Domminick, Oddný B. Regan. James Regan og barnaböm. + Þökkum innilega samúð og vináttu viðfráfall og útför, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR. Grænuvöllum 6, Selfossi Sigriður Ólafsdóttir. Ása Ólafsdóttir, Baldur Sigurðsson, Ingibjörg Heiðdal, Guðmundur Sigurðsson, Ásta Hjálmtýsdóttir, Ástríður Sigurðardóttir, Hlíf Sigurðardóttir, Guðmundur Á. Böðvarsson, Ólafur Sigurðsson, Páll Sigurðsson, Ingigerður Þorsteinsdóttir, Geirmundur Sigurðsson, Fanney Ófeigsdóttir, Garðar Sigurðsson, Inga Benediktsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Guðjón Karlsson. Sólrún Sigurðardóttir, Sigurður E. Ásbjörnsson, Raldur Geirmundsson, Ulla Hillers. barnabörn og barnabarnabörn. Magnús G. Guð- bjartsson fyrrv. vélstjóri—Minning Fæddur 17. marz 1899 Dáinn 14. júnf 1976 Þaö var einn sólbjartasta dag- inn, sem komið hefur á sumrinu, að hringt var til mín og mér til- kynnt, að tengdafaðir minn, Magnús G. Guðbjartsson, hefði orðið bráðkvaddur að heimili sínu þá um morguninn. Mér brá illi- lega — slíkar fregnir sækja jafn- an of snemma að. Þó vissi ég eins vel og aðrir, að hann hafði um nær tveggja áratuga skeið lifað við kransæðasjúkdóm, sem gerði, að búast mátti við kallinu fyrir- varalaust. Magnús Guðmundur Guðbjarts: son fæddist að Gemlufalli í Dýra- firði 17. marz 1899, sonur hjón- anna Sigríðar Magnúsdóttur og Guðbjartar Björnssonar bónda á Læk og síðar Höfða í Dýrafirði. Magnús átti eina alsystur, Guð- rúnu, og sjö hálfsystkini af fyrra hjónabandi föður hans, Ásgeir, Pál, Guðrúnu, Þórarin, Sigríði, Valgerði og Guðbjart. Þau eru öll látin. + KJARTAN GUÐMUNDSSON. bifreiðastjóri, Suðurgötu 45. HafnarfirSi, andaðist í St Jósefsspitala mánudaginn 21 júní Jarðarförin ákveðin síðar. Helgi Guðmundsson, Vlglundur Guðmundsson, Eyrún Eiriksdóttir, Jófriður Jóhannesdóttir, Guðmundur Bentsson. Magnús missti móður sína árs- gamall og ólst eftir það upp með föður sínum. Hann stundaði nám í járnsmfði á ísafirði og í vél- smiðjunni Hamri í Reykjavík. Eftir það fór hann I Vélskólann, þaðan sem hann lauk vélstjóra- prófi árið 1922. Næstu árin var hann vélstjóri á togurum. Bróðir hans, Guðbjartur, síðar fyrsti heiðursfélagi Vélstjórafélags Islands, var einn fyrsti Islending- urinn hérlendis sem lagði stund á gæzlu gufuvéla, og áhugasamur um málefni stéttar sinnar. Er ekki ósennilegt að það hafi verið fyrir áhrif hans að næstu árin tók Magnús mikinn þátt í félagsmál- um vélstjóra. Hann átti sæti I samninganefndum um kaup og kjör af hálfu Vélstjórafélagsins, og í stjórn þess sat hann árin 1936—38. Árin 1929 — 33 var hann síðan vélstjóri á varðskipunum Öðni og Þór, en eftir það á strandferða- skipinu Esju, þar til hún var seld. Gerðist hann þá vélstjóri á varð- skipinu Ægi. Arið 1941 urðu straumhvörf I lífi hans, er hann fór i land og fluttist til Vestmannaeyja. Næstu sjö árin átti hann og rak þar frystihúsið Fiskur og ís hf. Það voru mestu umsvifaárin í lífi hans, og minntist hann þeirra jafnan siðan með ótvíræðri ánægju, en þó einnig nokkrum söknuði. Frystihús hans starfaði innan Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna og var eitt af vinnslu- hæstu húsunum þar. Það starfar enn og nefnist nú Vinnslustöðin hf. Þá var Magnús einn af stofn- endum skipafélagsins Jöklar, hf., og siðustu ár var hann endur- skoðandi þess félags. + Eiginmaður minn GUNNAR GUÐMUNDSSON. fyrrv. útgerðarmaður, Vesturgotu 52, andaðist í Landspítalanum 21 júní Fyrir hönd barna og annarra vandamanna Jakobína Guðmundsdóttir. Móðir okkar ÞÓRUNN HALLDÓRSDÓTTIR • er lést að Sólvangi Hafnarfirði, verður jarðsungin fimmtudaginn 24. júni frá Háteigskirkju kl. 3. Fyrir hönd systkina hinnar látnu, tengda- barna og barnabarna Ólafía Þorvaldsdóttir Sigurður Halldórsson Hafsteinn Þorvaldsson Haukur Þorvaldsson Ólafur Þorvaldsson Laufey Þorvaldsdóttir + Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa MAGNÚSAR G. GUÐBJARTSSONAR fyrrv. vélstjóra StigahllS 49 fer fram frá Háteigskirkju, i dag, miðvikudaginn 23. júni, kl 1 3 30. Þeim, sem vildu minnast hans. er vinsamlega bent á liknarstofnanir. Sigriður Benónýsdóttir Gylfi Þór Magnússon, Sigriður Dóra Jóhannsdóttir, Elisabet S. Magnúsdóttir, Eysteinn SigurSsson, Magnea S. Magnúsdóttir. Guðni Ólafsson. Kristberg Magnússon, Ragna Ágústsdóttir og barnaböm. + Þökkum af alhug öllum þeim er vottað hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför GUÐLÍNAR GUNNARSDÓTTIR, Strandgötu 21. ÓlafsfirSi. Guð blessi ykkur öll. ísleifur Valtýsson, Valtýr ísleifsson, J6n Gunnar Ingvason, Jóna Arthúrsdóttir, Gunnar Guðlaugsson, ValgerSur Gunnarsdóttir. Fanney Gunnarsdóttir, Arthúr Gunnarsson, Halldóra Skúladóttir, Jón GuSmundsson. Ymissa ástæðna vegna afréð hann þó að hætta rekstrinum i Eyjum, og fluttist hann til Reykjavikur 1948, þar sem hann bjó síðan. Gerðist hann forstjóri Olíuhreinsunarstöðvarinnar hf. við Sætún, og frá 1958 rak hann Smurstöðina að Sætúni 4, þar til fyrir tveimur árum. Lifði hann eftir það í hægri elli og sinnti mest ýmsum áhugamálum sínum. Magnús var þríkvæntur. Fyrstu konu sína, Kristbjörgu Svein- björnsdóttur, missti hann eftir rúmlega eins árs sambúð árið 1927. Sonur þeirra er Kristberg vélstjóri, sem starfar hjá Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna. Hann er kvæntur Rögnu Ágústsdóttur meinatækni, og eiga þau þrjú börn uppkomin: Elísabetu Maríu, Halldóru og Magnús Guðbjart. Önnur kona Magnúsar var Sveinsína Jónsdóttir. Hann missti hana einnig eftir tæplega eins árs sambúð árið 1932. Dóttir þeirra er Magnea Sveinsína, gift Guðna Ólafssyni fyrsta vélstjóra á ms. Hofsjökli. Þau eiga einn son á unglingsaldri Jakob Þór. Eftirlifandi kona Magnúsar er Sigriður Benónýsdóttir, ættuð úr Dýrafirði. Þau voru gefin saman í hjónaband 8. april 1939. Börn þeirra eru tvö. Dóttir þeirra er Elísabet Sigríður manneldisfræð- ingur. Hún er gift þeim er þetta ritar, og eiga þau tvær dætur, Sigriði Erlu og Þóru Björk. Sonur þeirra er Gylfi Þór viðskiptafræð- ingur og framkvæmdastjóri hjá Sölustofnun lagmetis. Hann er kvæntur Sigríði Dóru Jóhanns- dóttur hárgreiðslumeistara, og eiga þau ungan son, Magnús Þór. Fyrir röskum áratug reistu þau Magnús og Sigríður sér mynd- arlegt íbúðarhús að Stigahlið 49 hér í borg. Tókst þeim þar, sem og annars staðar, er þau bjuggu, að skapa sér vistlegt og vinalegt heimili, þar sem smekkvísi og listrænn áhugi blöstu við hvarvetna. Hygg ég, að á engan sé hallað, þótt ég telji, að þar hafi öruggur smekk- ur frú Sigríðar ekki hvað sizt komið til skjalanna. Hún er frábærlega reglusöm og sam- vizkusöm i húsmóðurstörfum sin- um, eins og hinir fjölmörgu vinir þeirra hjóna, sem notið hafa gest- risni þeirra á umliðnum árum, geta bezt borið vitni um. Á heimili þeirra Magnúsar og Sig- ríðar var gott að koma, og þar ríkti sá hlýleiki og það kærleiks- ríka viðmót, sem lengi yljar í minningum. Áttu þar báðir hús- bændur óskiptan hlut. Mér er einnig í sérstöku minni sú mikla umhyggja, sem Sigríður sýndi manni sínum seinni árin, eftir að heilsa hans var farin að bila. Má segja, að hún hafi í einu og öllu hagað lífi sínu eftir því, sem heilsa hans útheimti. Milli þeirra hjóna lágu þvilik bönd, sem mega verða ýmsum okkar, sem yngri erum, holl fyrirmynd. Ég var naumast af mótunar- skeiði, er ég fyrst kynntist Magnúsi, og rúmlega tvítugur varð ég tengdasonur hans. Eins og gefur að skilja höfðum við mikil kynni og samskipti allar götur síðan. Mér er það síður en svo nokkurt launungarmál, að ég tel þessi kynni hafa orðið mér á margan hátt til gæfu. Með því á ég ekki einungis við þá margvís- legu aðstoð sem hann og þau hjón bæði veittu mér og konu minni á Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.