Morgunblaðið - 26.06.1976, Síða 3

Morgunblaðið - 26.06.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. JUNI 1976 3 Skrúfan hffð úr grunninum. Ljósm. Rax. skeytamaðurinn Cann, báðir bandarískir og i Royal Air Force Ferry Command og siglingafræðingurinn, sem var frá Kanada og i kana- díska flughernum. Ekki er Flugvjel hrapar YÍÖ Kaplaskjólsveg talið að fleiri menn hafi verið með þessari flugvél, en ekki er það þó útilokað Lik mannanna fundust og eru jarðsett i Fossvogskirkju- garði Frá þessu flugslysi er lítil- lega sagt i Morgunblaðinu þrem dögum eftir að það gerist en fréttin var ekki itar- leg, þar sem blöðin voru rit- skoðuð í stríðinu. Segir t.d. aðeins í fréttinni "skammt frá húsi nokkru” eins og sjá má á meðfylgjandi úrklippu. Að sögn Ragnars hefur verið ákveðið að grafa upp allt flak vélarinnar til að at- huga hvort þarna séu vél- byssuskot eða sprengjur þar sem þarna á að reisa fjölbýl- ishús, eins og áður sagði og þykir ekki hæfa annað en ganga fyllilega úr skugga um að engar hættur leynist í brakinu eða við það. Framlög til útflutn- ingsbóta rædd í ríkisstjórninni EINS og fram hefur komið I frétt- um hefur Þjóðhagsstofnun lýst þeirri skoðun sinni að breyta verði reglum um útflutningsupp- bætur á landbúnaðarafurðir en að öðrum kosti sé stefnt I nokkurn greiðsluhalla á rfkissjóði. 1 fjár- lögum ársins 1976 er gert ráð fyrir að 890 milljónum króna verði varið til greiðslu útflutn- ingsuppbóta og samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér I gær er nú búið að greiða 760 rnilljónir af þessari upphæð það sem af er árinu. Þá á rfkissjóður eftir að greiða 280 milljónir f útflutningsuppbætur á vörur, sem þegar hafa verið fluttar út og að sögn Gunnar Guðbjartssonar, formanns Framleiðsluráðs land- búnaðarins, er enn eftir að flytja út nokkuð af landbúnaðarafurð- um og sagði hann Ijóst vera að mikið vantaði á að sú tala, sem áætluð væri f fjárlögum til út- flutningsbóta, dygði. Halldór E. Sigurðsson land- búnaðarráðherra var í gær spurð- ur álits á fyrrnefndri yfirlýsingu Þjóðhagsstofnunar og með hvaða hætti ríkisstjórnin hygðist bregð- ast við henni. Halldór sagði, að mál þetta hefði verið tekið til umræðu á fundi ríkisstjórnar- innar í gærmorgun en endanleg ákvörðun um málið yrði að biða, því nú væri unnið að söfnun upp- lýsinga um áætlað magn þeirra landbúnaðarafurða, sem flytja þyrfti úr landi á árinu. Hvað snerti upphæð útflutningsupp- bóta á fjárlögum, sagði ráðherr- ann, að hér væri um að ræða áætlaða tölu, sem endurskoða yrði í ljós breytinga á verðlagi á árinu. Að lokum sagði Halldór: „Þetta vandamál er eins og mörg önnur, sem rikisstjórnin hefur fengið til úrlausnar, og ég fæ ekki annað séð en hún hafi getað leyst þau merkilega vel eins og landhelgis- málið. Þetta mál verður að leysa með hag bæði ríkissjóðs og bænda í huga og það er trú mín að svo verði gert.“ Framhald á bls. 31. Ævintýri á gönguför ? RANNSÖKNARLÖGREGLAN auglýsti I gærkvöldi eftir ungri danskri stúlku, sem ekkert hafði spurzt til frá því á miðvikudag, skömmu eftir að hún skyldi við ferðafélaga sfna. Þegar eftir aug- lýsinguna bárust rannsóknarlög- reglunni þó fjöldi upplýsinga um ferðir stúlkunnar og kom f Ijós að I gær var hún á leið frá Vest- mannaeyjum til Þorlákshafnar með Herjólfi. Stúlkan hafði komið hingað til lands ásamt fáeinum löndum sín- um, og þau síðan tekið bílaleigu- bíl og haldið austur um Suður- land. Þegar þau komu að Skógum á þriðjudag ákvað þessi stúlka að snúa við til Reykjavíkur en ferða- félagar hennar vildu hins vegar halda ferðinni áfram. Varð það úr að hún hélt aftur til baka og hugð- ist ferðast á puttanum. Þegar ferðafélagar hennar komu síðan aftur til borgarinnar í gær, kom í Ijós að stúlkan var ekki komin fram á Farfuglaheimilinu, þar sem þau bjuggu, og gerðu þau þá lögreglunni aðvart. Rannsóknarlögreglan fékk fljótlega þær upplýsingar, að danska stúlkan hefði sést i Framhald á bls. 31. Aðalfundur Kísiliðjunnar hf.: Söluverðmæti framleiðslunn- ar 684 milljónir króna 1975 Björk, Mývatnssveit, 25. júní — AÐALFUNDUR Kfsiliðjunnar h.f. var haldinn I gær, 24 júní, og voru þar lagðir fram reikningar ársins 1975 ásamt skýrslu stjórn- ar og framkvæmdastjóra. Á fundinum kom fram. að afkoma fyrirtækisins var góð á árinu og nam reksturshagnaður rúmlega 40 milljónum króna. Höfðu þá fullar afskriftir verið reiknaðar. Fyrirtækið fjárfesti á árinu rúmlega 26 milljónir króna í ýms- um framkvæmdum, sem miða að þvi að auka hagræðingu í rekstrinum og vinna bug á rykmengun, sem verið hefur samfara verksmiðjurekstrinum. Söluverðmæti framleiðslu Kísil- iðjunnar h.f. á erlendum og innlendum markaði nam á árinu samtals 684 milljónum króna, en þegar útflutningskostnaður hafði verið dregirin frá, námu tekjur verksmiðjunnar 470 milljónum króna. Framleiðsla ársins 1975 af fullunnum kísilgúr var 21.676 tonn, sem er minna en framleiðsl- an var 1974. Mismunurinn stafar einkum af löngu verkfalli vorið 1975, en einnig varð að draga nokkuð úr framleiðslu siðari hluta ársins sökum sölutregðu. A fundinum kom fram, að enn er við nokkra sölutregðu að glíma sökum samdráttar i markaðslönd- unum, en búizt er við að ástandið lagist, þegar líður á þetta ár. Framleiðsla Kísiliðjunnar er nú seld til 20 landa í Evrópu og Afríku. Eigendur verksmiðj- unnar eru íslenzka rikið ásamt bandaríska fyrirtækinu Johns- Manville og nokkrum sveitar- félögum á Norðurlandi. 1 stjórn fyrirtækisins eru þeir Magnús Jónsson útibússtjóri ásamt tveimur fulltrúum frá Johns Man- ville. Framkvæmdastjórar eru Vésteinn Guðmundsson og Björn Friðfinnsson. — Kristján Nyja Palmolivesápan hddur húiAnni mjúkri og unglegri. Olífuolían í Palmollvcsápunni og hið silkimjúka lööur gefur húðinni mýkt og heldur útliti yðar ungu og fersku. Palmolivesápan mefr olífuolíu heldur húð yðar ungri á eölilegan hátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.