Morgunblaðið - 26.06.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. JUNl 1976
5
Nokkrir þroskaþjálfanemar við hluta leikfanganna, sem verða á
sýningunni.
Nýstárleg sýning á
þroskaleikföngum
I DAG laugardag og sunnudag
verður haldin sýning á þroska-
leikföngum í Lyngási, Safamýri
5. Það eru nemar í Þroska-
þjálfaskóla íslands, sem hafa
veg og vanda af þessari
sýningu, en eftirtaiin heildsölu-
fyrirtæki hafa lánað leikföngin,
sem þarna eru sýnd: Brek h.f.,
Kristjánsson h.f., Verzlunin
Völuskrín, Skólavörubúðin og
Reykjalundur.
Að sögn nemendanna er þessi
sýning haldin til þess að kynna
fólki góð og vönduð leikföng,
sem fáanleg eru hér á landi.
Töldu þeir brýna þörf á að fólk
gerði sér grein fyrir mikilvægi
þess að velja góð og þroskavæn-
leg leikföng fyrir börn og álitu
að viðhorf fólks til þessara
hluta hefði mikið breytzt til
betri vegar.
Sýningin verður opin báða
dagana frá kl. 14:00—22:00 og
er aðgangur ókeypis.
Fyrstu kandidat-
arnir í ensku
203 brautskrást frá Háskólanum
BRAUTSKRANING frá Háskóla
tslands fer fram f dag f Háskóla-
bfói við hátíðlega athöfn. Alls
verða brautskráðir 203 stúdentar
í hinum ýmsu fræðum frá
Háskólanum. Við þetta tækifæri
flytur rektor ræðu og deildarfor-
setar afhenda prófskírteini. Þá
syngur Háskólakórinn og Sigríð-
ur Ella Magnúsdóttir syngur
einsöng.
Að þessu sinni verða fyrsta sinn
brautskráðir kandidatar í ensku,
en slíkt hefur ekki verið gert áður
frá heimspekideild. Kandidatar
frá heimspekideild hafa áður ver-
ið i íslenzku, sagnfræði og islenzk-
um fræðum. Kandidatarnir í
ensku hafa áður lokið BA-prófi í
endku. Þeir eru nú 2 sem braut-
skrást sem kandidatar.
Þeir sem fá prófskírteini sin í
dag skiptast þannig eftir grein-
um. Embættispróf í guðfræði 3,
embættispróf í læknisfræði 47,
aðstoðar lyfjafræðingspróf 7,
kandidatspróf í tannlækningum
6, embættispróf í lögfræði 19,
kandidatspróf í viðskiptafræðum
30, BA-próf frá heimspekideild
30, kandidatspróf í sagnfræði 1,
BS-próf í verkfræðideild 53 og
BA-próf i almennum þjóðfélags-
fræðum 3. Samtals eru því þeir
sem brautskrást frá Háskóla
íslands í dag 203 að tölu.
Varðarferðin á morgun
HIN árlega sumarferð
Varðar er á morgun. Verð-
ur lagt upp frá Sjálfstæðis-
húsinu kl. 8 í fyrramálið og
ekið um söguslóðir Suður-
lands, mannvirki skoðuð
við Sigöldu og heimsóttir
staðir, sem þekktir eru
fyrir náttuúrufegurð undir
leiðsögn hins kunna ferða-
garps Einars Guðjohnsen.
Ðunganon-
sýningunni
lýkur á
sunnudag
SYNING á verkum Dunganons,
sem Listahátíð opnaði í ^ogasal
Þjóðminjasafnsins 4. júní, verður
opin til sunnudagskvöids, en þá
lýkur henni klukkan 22. Góð
aðsókn hefur verið að sýningunni.
Er Mbl. hafði samband
við ferðanefndina var und-
irbúningur á lokastigi og
voru menn mjög ánægðir
með væntanlega þátttöku,
en að öllum líkindum verð-
ur ferðin með fjölmennari
Varðarferðum sem farnar
hafa verið. Enn eru nokkr-
ar pantanir ósóttar og
hvatti nefndin viðkomandi
til að vitja þeirra fyrir
hádegi i dag svo hægt sé að
ganga endanlega frá undir-
búningi. Þá er og hugsan-
legt að unnt verði að bæta
nokkrum þátttakendum
við ef menn bregða skjótt
við og hafa samband við
ferðanefnd í síma 82900.
fíúmgóóur ódýr Fíat
Fíat 125p
Unnið að norrænu bind-
indisstarfi unglinga
Unnið er að undirbúningi að
stofnun sambands barnastúkna á
Norðurlöndum, en starfsemin á
þeim vettvangi er víða öflug. Þó
hefur mikill áhugi skapazt á
auknu starfi síðustu ár, sérstak-
lega eftir að Svíar komust aðraun
um að sala millisterks öls þar í
landi hafði stóraukið drykkju-
skap og vandamál unglinga, allt
niður fyrir 10 ára aldur. Hefur
því verið lögð áherzla á aukið
starf bindindisfélaga, en það er
hvað öflugast i Noregi, en mjög
lítið i Danmörku. Fram til þessa
hafa félög ungra bindindismanna
á Norðurlöndum starfað sjálf-
stætt, en samkvæmt upplýsingum
Kristins Vilhjálmssonar hjá Stór-
stúku Islands hefur vilji manna á
Norðurlöndum hrint af stað und-
irbúningi að frekari’ framgangi
málsins.
V
□ Hámarkshraði 135 km.
Benzíneyðsla um 10 lítrar per 100 km. [~J
Kraftbremsur með diskum á öllum hjólum
| | Radial-dekk j ] Ryðvörn. [[[] Tvö-
föld framljós með 'stillingu. [[] Læst
benzínlok []] Bakkljós []] Rautt Ijós i
öllum hurðum. |~j Teppalagður □ Loft-
ræstikerfi. □ Oryggisgler □ 2ja hraða
miðstöð □ 2ja hraða rúðuþurrkur. '\ |
Rafmagnrúðusprauta □ Hanzkahólf og
hilla. □ Kveikjari □ Litaður baksýnis-
spegill □ Verkfærataska □ Gljábrennt
lakk □ Ljós i farangursgeymslu □ 2ja
hólfa karborator □ Synkromeseraður gir-
kassi □ Hituð afturrúða □ Hallanleg
sætisbök □ Höfuðpúðar.