Morgunblaðið - 26.06.1976, Side 7

Morgunblaðið - 26.06.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNl 1976 7 Hin sögulega málamiðlun Að því hefur áður verið látið liggja hér í stökum steinum, að hin „sögu- lega málamiðlun". eins og kosningastefnuskrá ítalskra kornmúnista var kölluð af þeim sjálfum, hafi verið með fréttnæm- ari fyrirbærum evrópskra stjórnmála síðustu vikurn- ar. í þvf mati felst hins- vegar enginn dómur á þeim heilindum, sem kunna að búa að baki þessari ,,sögulegu mála miðlun". Efnisatriði henn- ar vóru m.a.: ^ — 1. Að ekki væri nægilegt að kommúnista- flokkurinn og jafnaðar- menn næðu naumum meirihluta á ítalska þing- inu, heldur þyrfti til að koma samstarf á breiðum grundvelli þessara aðila og kristilegra demókrata, sem er öflugur flokkur, til að leysa þann vanda, einkum á sviði efnahags- mála, sem ítalir eiga við að etja. 0 — 2. Að Ítalía yrði skilyrðislaust áfram f NATO, bæði vegna þess að þar væri öryggi lands- ins bezt borgið, og ekki sfður vegna hins, að úr- sögn landsins úr varnar- bandalagi vestrænna ríkja myndi raska valdajafn- væginu f heiminum. ^ — 3. Að ekki skyldi stefnt að frekari þjóðnýt- ingu f ftölskum iðnaði og leikreglur borgaralegs lýð- ræðis virtar í hvfvetna. Bergmál í eldhugans brjósti Alþýðublaðið birti sl. miðvikudag viðtal við Ein- ar Olgeirsson, hinn gam- alkunna eldhuga íslenzkra sósfal- og kommúnista. Hann sagði þar m.a.: „Foringi ftalskra komm- únista, Berlinguer, hefur mótað djarfa og sterka stefnu, þá emu sem fær er til að ráða við þann ægi- lega efnahagsvanda, sem hrjáir þjóðina." í þessu sambandi er vert að minn- ast þess að hin „sögulega málamiðlun" og „djarfa og sterka stefna" mótar þveröfuga og raunhæfari afstöðu til aðildar að Nato en fslenzka „Alþýðu- bandalagið", sem þó reið- ist fáu frekar en að vera kallað kommúnistaflokkur — og kann raunar bezt við sig I dulftið kratískum klæðnaði á grfmudansleik íslenzkra stjórnmála. í viðtalinu við Einar Ol- geirsson segir Alþýðu- blaðið: „Að lokum sagði Einar Olgeirsson að sigur flokksins í kosningunum á ítalfu væri stórkostlegur og áhrifa flokksins myndi án efa gæta f stjórnmálum V Evrópuþjóða á næstu árum. Einar sagðist einnig telja að stefna flokksins, hin sögulega málamiðlun, mundi án efa hafa sín áhrif á hugsunarhátt stjórnmálamanna hér á landi. Það má e.t.v. draga þá ályktun, að hinn gam- alreyndi leiðtogi íslenzkra kommúnista, Einar Ol- geirsson, sé hlynntari ný- sköpunarstjórn en hreinni vinstri stjórn", segir Al- þýðublaðið að lokum. Þjóðviljinn þegir þunnu hljóði Pólitfskir skriffinnar Þjóðviljans, sem þó eru kunnari fyrir annað en feimni f skoðanatúlkun, þegja þunnu hljóði enn í dag um hina „sögulegu málamiðlun" ítalskra trú- bræðra sinna, einkum og sér í lagi að því er varðar afstöðuna til Nato og þær skoðanalegu forsendur, sem að baki hennar liggja. Þeir fara og ákaflega vel með þá skoðun, ef þeir eru sammála Einari Ol- geirssyni um hina „djörfu og sterku stefnu", sem „muni hafa áhrif á hugs- unarhátt stjórnmála- manna hér á landi", þess efnis að aðeins breitt samstarf til hægri geti leyst þann vanda sem vestur-evrópskar þjóðir eigi við að etja f efnahags- málum. Að ekki sé talað um stanz-stopp merkið á frekari þjóðnýtingu og virðinguna fyrir leikregl- um borgaralegs lýðræðis. Þegar á það er litið að Einar Olgeirsson mun hafa átt sinn hlut í „sögu- legri málamiðlun" ís- lenzkri á sinni tfð, að vfsu annars eðlis og rislægri, er Ragnar Arnalds var dubbaður upp f „for- mennsku" f Alþýðubanda- laginu, má e.t.v. búast við þvf, að hinn svokallaði formaður taki af skarið um afstöðu flokksins til skoðana Einars Olgeirs- sonar, þeirra er fram komu f viðtali við Alþýðu- blaðið. Ætla má að Ragn- ar skuldi Einari þau póli- tfsku fósturlaun að skoð- anir þess síðarnefnda séu virtar þess að um þær sé fjallað En hvað sem um það verður, er enn í minn- um, að íslenzka Alþýðu- bandalagið á til þann póli- tfska teygjanleika, sem nær utan um stjórnarað- ild, aðild að Nato, varnar stöðina á Miðnesheiði og raunar sitt hvað fleira, ef rétt er munað. Og hvað sem þögn Þjóðviljans Ifð- ur er hitt vfst, að róttækt fólk á íslandi Ijær þvf enn eyra, sem jafn gamal- reyndur stjórnmálamaður og Einar Olgeirsson, nú- verandi formaður banka ráðs Landsbankans, hefur til málanna að leggja KJÖRDÆMAFUNDIR FORSÆTISRÁÐHERRA Geír Hallgrímsson, forsætisráðherra flytur ræðu og svarar fyrírspurnum fundargesta Takiö þátt í fundum forsætisráöherra Tilkynning frá Runtalofnum h.f. Vegna sumarleyfa starfsmanna verður verk- smiðjan lokuð frá og með miðvikudeginum 14. júlí til 1 1 . ágúst. Skrifstofan og lagerinn verða opin allan tímann. Runtalofnar h. f., Síðumúla 2 7. Snæfellingar — Hnappdælir Suðurnesjum Hin árlega skemmtiferð félagsins er ákveðin í Borgarfjörð, föstudaginn 2. júlí. Gist í Reyk- holti. Skoðunarferðir undir leiðsögn Vilhjálms Einarssonar. Þátttaka tilkynnist til Lárusar í fiskbúðinni, Hringbraut 92, sími 2294 eigi síðar en 30. júní. Skemmtinefndin Hugmynda- samkeppni Nefnd er skipuð hefur verið til að reisa Oddgeiri heit. Kristjánss. tónskáldi í Vestmannaeyjum minnisvarða. hefur ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um gerð minnisvarðans. Hugmynd nefndarinnar er að varðanum verði valinn staður á Stakkagerðistúninu í Eyjum. Ákveðið er að veita 50.000.— kr. verðlaun fyrir beztu hugmyndina að mati nefndarinnar, enda verði sú hug- mynd valinn til að reisa minnisvarðann eftir. Skilafrestur er ákveðinn til 1. ágúst 1976. Tillögum, merktum ..Hugmyndasamkeppni ', ber að skila í Pósthólf 1 1 4 í Vestmannaeyjum fyrir 1 ágúst n k Nánari upplýsingar veita Stefán Runólfsson í símum 1 402 og 1 845 og svo Jóhann Björnsson í simum 1 1 89 og 1131 í Vestmannaeyjum Nefndin. Húsbyggjendur VORUKYNNING OPIÐ sunnud. 27/júní kl. 14—16. Hafið meðferðis teikningar. TILBOÐ — SAMNINGAR húsbyggjendum að kostnaðarlausu Sameiginlegur vöru- Sérhæfðir á sviði bygg- sýningarsalur og sölu- ingariðnaðar Allt frá skrifstofa um 40 fyrir- steinsteypu — upp í taekja teppi Gjörið svo vel — Allt á einum stað IÐNVAL Byggingaþjónusta Bolholti 4 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.