Morgunblaðið - 26.06.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNl 1976
Göngu-
leiðir
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
ÁRSRIT Útivislar 1975. ] IJm-
sjóri mci) útgáfu: Kinar Þ. Guri-
johnsen og ,I6n I. Bjarnason.
Útgefandi: Útivist 1976.
Utivist 1 hefst á greininni
Fyrsta vetrarferð okkar í Þórs-
mörk á bíl eftir Hallgrím Jónas-
son Þessi ferö var farin
1955. Feróasagan er krydduö
meö sýni.shornum af vísnagerö
höfundar. Dæmi er vísa um'
Þorstein Kjarval uppi í krónu
hirkitrés (skemmtileg ljós-
mynd fylgir):
0«n «*r K jarval orrtinn slór.
Kkki t*r drt*n«ur loppinn.
Ilálfa l«*irt lil himins fór.
Ilt ldur sér í toppinn.
Jón I. Bjarnason á greinina A
Vatnajökli. Jón er hrifnæmur
og rómantískur feröamaöur.
Ung stúlka lýsir tilgangi feröar-
innar meö þessum eftirminní-
legu orðum: „Eg er hér úti til
þess að komast í sem mest
návígi viö jökulinn, segir hún.
Til þess aö finna andblæ ís-
veraldarinnar leika um mig.
Sjáöu hvaö viö erum lítil í
auöninni."
Gísli Sigurðsson lýsir a£
mikilli nákvæmni og samvisku-
semi gamalli gönguleið, Sel-
vogsgötu. Lesandinn fær
löngun til að feta í fótspor Gisla
og það eru hæg heimatökin
fyrir þá sem búa í Reykjavík og
nágrenni.
Fyrir neðan Heiði nefnist
önnur grein eftir Jón I. Bjarna-
son. I henni lýsir hann ,,í
stórum dráttum leiöinni frá
Reykjavík um I.ækjarbotna aö
Hellisheiöi, — Suöurlandsveg-
inum, — og nokki um leiöum og
gönguslóöum út frá honum og i
nágrenni hans á því svæöi. “
Lesandinn er þakklátur Jóni
fyrir þann fróöleik sem í grein-
inni er aö finna. Sannarlega
vitum viö of lítiö um þetta
svæöi sem er svo skammt und-
an. Hér eru í senn lýsingar á
kennileitum og mannlífi. Sagt
er frá dularfullum atburöi frá
árinu 1910, hvarfi drengs á
Hellisheiöi. Jón telur aö rang-
lega hafi verið skýrt frá þessum
atburöi og byggir frásögn sína á
sögu leitarmanna drengsins, en
einkum styöst hann viö orö
Guðmundar H. Sigurðssonar og
Guöfinnu Karlsdóttur á Lög-
bergi.
Ég er viss um að þetta fyrsta
hefti Utivistar er hiö gagn-
legasta fyrir náttúruunnendur.
t ritinu eru margar myndir,
sumar í lit, og eru þær textan-
um stoö. Útivist 1 þjónar þeim
tilgangi aö vera leiðarvísir fyrir
feröamenn. Útgefendum skal
aftur á móti bent á aö ekki
sakar að gæta betur samræmis í
stafsetningu. Frágangur ritsins
er þó yfirleitt til fyrirmyndar.
Auk þeirra greina sem hér
hefur verið drepið á er í ritinu
sagt frá stofnfundi félagsins
Útivistar og lög félagsins birt.
“gjJÍIUK'WiBliii
Til móts við andblæ ísveraldar.
Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur slitið
IIÚSSTJÓRNARSKÓLA Revkja-
vfkur var slitið 29. maf sl. I upp-
hafi ræðu sinnar minntist skóla-
stjórinn, Jakobfna Guðmunds-
dóttir, fyrsta handavinnukennara
skólans, frú Ólafar Blöndal, en
hún andaðist 26. maf. 30-ára nem-
endur gáfu skólanum peninga-
upphæð til minningar um frú
Ólöfu en viðstaddir skólaslit voru
sex árgangar eldri nemenda.
María Haraldsdóttir, 25-áya
nemandi, tilkynnti að fjórir ár-
gangar eldri nemenda skólans
10, 15, 20 og 25 ára) hefðu ákveö-
ið að gefa skólanum málverk af
Catrínu Helgadóttur fyrrverandi
skólastjóra en hún lét af störfum
á síðastliönu ári.
í skólanum voru í vetur haldin
ýmiss konar námskeið frá tveggja
ög þriggja daga til átta vikna. í
janúar hófst 5-mánaða námskeið í
hússtjórn, þar sem nemendur
áttu kost á að búa í heimavist.
Fæðiskostnaður fyrir þá var 8.200
kr. á mánuði. Alls stunduðu 420
nemendur nám í skólanum í vet-
ur.
Eftirtaldir nemendur hlutu
verðlaun fyrir góðan námsárang-
ur: Aðalbjörg Þorsteinsdóttir,
Ingveldur Halldórsdóttir, Jó-
hanna Rún Leifsdóttir, Rut Sig-
urðardóttir og Svandís Sverris-
dóttir.
Israelsk Kfir-þota og vopnabúnaður hennar. Hægt er að bæta við tveimur byssum.
Bandaríska leyniþjónustan
CIA hefur áætlað að Israels-
menn ráði yfir 10 til 20 kjarn-
orkuvopnum tilbúnum til notk
unar. Vikuritið Time hefur
hins vegar greint frá þvi nýlega
aö ísraelsmenn eigi 13 kjarn-
orkusprengjur sem þeir geti
beitt gegn óvinaherjum meö
sérstaklega útbúnum orrustu-
þotum af gerðunum Kfir o'g
Phantom og eldflaugum af
Jerichogerð. Hver sprengja
vegur 20 kílótonn eða álíka öfl-
ug og sú sem var varpað á
Hiroshima.
Blaðið greinir enn fremur frá
því að þessum 13 kjarnorku-
sprengjum hafi verið komið
fyrir í neðanjarðargöngum í
upphafi októberstríðsins 1973.
Þá höfðu Egyptar hrundiö
fyrstu gagriárásum Ísraels-
manna meöfram Súezskurði og
ísraelska herliðið í Golanhæð-
um var á undanhaldi. Yfirmað-
urinn á norðurvígstöðvunum,
Yitzhak Hoffi hershöfðingi, til-
kynnti 8. október að hann gæti
ekki varizt öllu lengur.
Nóttina eftir tilkynnti Moshe
Dayan landvarnaráðherra
Goldu Meír forsætisráðherra að
endalokin væru nærri og hún
heimilaði honum aö beita
kjarnorkuvopnunum. Áður en
til þeirra var gripið náðu ísra-
elsmenn undirtökunum á báð-
um vígstöðvum. Sprengjurnar
höfðu verið afhentar flughern-
um, en nú voru þær aftur flutt-
ar í geymslur í eyðimörkinni og
þar segir Time að þær séu enn í
dag, tilbúnartil nokunar.
Blaðið telur sig einnig hafa
áreiðanlegar heimildir fyrir því
að Ísraelsmenn hafi verið sann-
færðir um að Rússar hafi kom-
izt á snoðir um nýtilkominn
kjarnorkumátt þeirra, senni-
lega með tilstyrk Cosmos-
njósnahnatta. 13. oktöber
sendu Rússar kjarnaodda frá
flotastöð sinni í Odessa til Alex-
andríu þar sem koma átti þeim
fyrir á Scud-eldflaugum þeirra
þar. Bandaríkjamenn urðu var-
ir við sovézku kjarnaoddana
þegar skipið sem flutti þá sigl-
andi gegnum tyrknesku sundin
15. október og tilkynntu Rúss-
um að bandaríski heraflinn
hefði verið settur í viðbragðs-
stöðu um allan heim.
Háttsettir embættismenn í
Washington halda því fram, að
Bandarikjamenn hafi ekkert
vitað um sprengjurnar og neita
því aö þær hafi átt þátt i því að
heraflanum var skipað að vera i
viðbragðsstöðu. Hins vegar seg-
ir Time að vitneskja Banda-
ríkjamanna um sprengjurnar
hafi verið árangur könnunar-
flugs njósnaflugvélar af gerð-
inni SR-71. ísraelsmenn urðu
varir við ferðir hennar og
sendu tvær Phantom-þotur til
að stöðva hana. Önnur þeirra
fékk skipun um að granda
njósnaflugvélinni frá háttsett-
um yfirmanni i ísraelska flug-
hernum, en henni reyndist auð-
velt að komast undan með
vitneskju sína.
Fyrsti forseti israels, Chaim
Weizman, var heimskunnur
efnafræðingur og kjarnorku-
áætlun ísraelsmanna hófst þeg-
ar hann hvatti kjarnorkuvis-
indamenn til þess að láta hend-
ur standa fram úr ermum. Þeir
framleiddu úraníum úr fosfati i
Negev-auðninni og fundu upp
handhæga aðferð til að fram-
leiða þungt vatn. Árið 1953
fengu israelsmenn að fylgjast
með kjarnorkuáætlun Frakka
og tóku þátt í tilraunum þeírra
í Sahara. Fjórum árum síðar
létu Frakkar israelsmönnum
fyrst kjarnaofninn i té og síðar
veittu þeir aðstoð við smíði
Dimona-kjarnorkurannsóknar-
stöðvar Ísraelsmanna í Negev.
Kjarnaofninn var tekinn i
notkun 1964 og á sama tíma
fóru fram miklar umræður að
tjaldabaki um hvort stjórnin
ætti að reisa sérstakt kjarn-
orkuver til að framleiöa nauð-
'synleg efni í kjarnorku-
sprengju. Með því voru Davíð
Ben-Gurion forsætisráðherra,
Shimon Peres þáverandi að-
stoðarlandvarnaráðherra en á
móti voru frú Meir, Yigal Allon
núverandi utanríkisráðherra
og Levi Eskhol, eftirmaður Ben
Gurions. israelska öryggisráðið
beitti neitunarvaldi sinu gegn
smíöi slíks vers 1968 en
skömmu síðar uppgötvaði Esk-
hol aö Dayan hafði í kjölfar sex
daga stríðsins 1967 gefið leyni-
leg fyrirmæli um að smíði þess
skyldi hafin. Eskhol og ráðu-
nautar hans töldu sér ekki ann-
að fært en að samþykkja smíð-
ina úr því hún var hafin.
Dayan segir í viðtali við Time
að hann telji að israelsmenn
eigi einskis annars úrkosti en
koma sér upp kjarnorkuvopn-
um. Þeir „geti ekki endalaust
aflað sér fleiri og fleiri skrið-
dreka og flugvéla“. Ymsir
vestrænir sérfræðingar telja að
ísraelsmann hafi gert kjarn-
orkutilraun neðanjarðar í
Negev-eyðimörkinni 1963 og
undirbúningur að smíði kjarn-
orkusprengju hafi hafizt
skömmu síðar. Smíöi kjarn-
orkuversins lauk 1969, en Ísra-
elsmenn hófu ekki smíöi kjarn-
orkusprengju þegar í stað og
einbeittu sér að þvi í staðinn að
finna nýjar leiðir til að stytta
þann tima sem þarf til að fram-
leiða kjarnorkuvopn.
Dimona-rannsóknastöðvar-
innar og kjarnorku-
versins er stranglega gætt all-
an sólarhringinn með her-
liði og fullkomnu rafeinda-
og ratsjárkerfi og ísraelskum
herflugvélum og öllum öðrum
flugvélum er bannað að fljúga
yfir svæðin sem þau eru á. ísra-
elsk þota af gerðinni Mirage III
flaug óvart yfir Dimona í sex
daga. stríðinu og ísraelsmenn
skutu hana niöur með loft-
varnaeldflaug. Líbýsk farþega-
þota á leið frá Benghazi til
Kaíró 1973 villtist og flaug í átt
að bannsvæðinu. ísraelskar
herflugvélar reyndu að bægja
henni burtu en án árangurs og
skutu hana þá niður af öryggis-
ástæðum með þeim afleiðing-
um að 108 af 113 sem i henni
voru biðu bana.
13 ísraelskar
kjamorku-
sprengjur
Fyrsta kjarnorkustöð Ísraelsmanna f Dimona I Negev-auðninní.