Morgunblaðið - 26.06.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNÍ 1976 .
13
Vmnustofusýnmg
HJÓNIN Sigrúnu Guðjónsdóttur
og Gest borgrímsson þekkja vel-
flestir, sem með myndlist
hafa fylgzt i höfuðborginni síð-
ustu áratugi, því að þau hafa víða
komið við á sviði sjónmennta,
bæði sem starfskraftar og
uppfræðendur. Frá því að þau
hófu að fást við leirmunagerð
hafa þau verið opin fyrir ýmsum
nýjungum innan fagsins auk þess
sem þau hafa sjálf fengizt við
ýmiss konar tilraunir — hefur svo
verið alla tíð, en þó í misríkum
mæli, allar götur frá þvi að þau
hösluðu sér völl með „Laugarnes-
leirnum“ nafntogaða forðum
daga.
Hjónin hafa nú opnað sína
þriðju vinnustofusýningu á
heimili sínu að Laugarásveg 7,
ásamt Guðnýju Magnúsdóttur, er
lauk námi við Myndlista- og
handíðnskóla íslands fyrir tveim
árum og hefur siðan haft aðstöðu
og verið viðloðandi verkstæði
Sigrúnar og Gests.
Á sýningunni eru á annað
hundrað verk, veggmyndir
(flísar), vasar, skálar, kaffi- og
testell, brjóstmyndir o.fl. Guðný á
hér fiesta muni og kemur hér
greinilega fram sköpunargleði og
ákafi byrjandans. Verk Guðnýjar
eru ákafleg misjöfn að gæðum
auk þess að vera margbreytileg,
sem bendir til þess að hún sé að
þreifa fyrir sér og hefur ekki
ennþá markað sér ákveðna stefnu
innan fagsins. Tilraunir hennar
með skálar á fæti, sem minnir á
skúlptúr, eru áhugaverðar, en hér
koma fram tvö gerólík stíl-
birgði, sem henni tekst ekki að
samræma á nógu sannfærandi
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
hátt. Tæknileg vankunnátta
kemur fram í mynd hennar
,,Andlit“ og i vösum þeim er hún
nefnir „Fjölskylda", en hugmynd-
ln að baki er áhugaverð þó
naumast sé hún frumleg. Skrínin
hennar hafa yfir sér ólíkt sterkari
heildarsvip, og eru fyrir sumt
nýstárleg, og veggmynd hennar
„Landslag" lofar góðu.
Væri mjög æskilegt að Guðný
fengi tækifæri til framhaldsnáms
á fullkomnu verkstæði eða skóla
ytra, þvi að væntanlega lætur hún
ekki hið takmarkaða nám innan
Myndlista- og handíðaskólans
verða sitt lokamark, og almenn
verkstæðisvinna er alltof einhæf
og bundin til þess að hún gefi
möguleika til mikils þroska.
Gestur Þorgrímsson lagði
upprunalega stund á höggmynda-
fagið (skúlptúr) og kemur það
greinilega fram I vinnubrögðum
hans varðandi leirmunagerð, —
á sýningunni sjáum viðt.d. vasa-
form í ýmsum tilbrigðum og
kemur þar fram rík kennd fyrir
skúlptúrformi. Væri fróðlegt að
sjá myndir eftir hann, þar sém
hann gæfi hugmyndafluginu
lausan tauminn, án tillits til nota-
gildis hlutanna, — þetta gæti
hann jafnvel einnig gert með
„ruku“ aðferðinni svonefndu, en
sú ævaforna aðferð er japönsk að
uppruna og mjög sérkennileg
vegna kopar-áferðarinnar, sem
eru einkenni hennar. Með brjóst-
mynd sinni. „Óii“, fetar Gestur út
á nýja braut, en slík vinnubrögð
gera miklar kröfur til skapenda
sinna um samfelld, óskipt vinnu-
brögð, — en þrátt fyrir það kemst
Gestur allvel frá frumraun sinni,
sem er fyrir sumt skyld tilraunum
súper-realista nútímans.
Sigrún Guðjónsdóttir sýnir
postulínsflísar, sem hún hefur
myndskreytt af þeim fágæta
þokka sem hún er löngu þekkt
fyrir, og sem hefur skipað henni
sérstakan sess innan islenzks list-
iðnaðar. Hafa veggflísarnar m.a.
verið teknar til framleiðslu af
hinu heimsþekkta danska fyrir-
tæki á þessu sviði, Bing &
Gröndal. Það er merkilegt og í
hæsta máta eftirtektarvert
hvernig Sigrún hefur þróað
myndstil sinn jafnt og þétt í gegn-
um árin og bætir við sig með
hverri sýningu. Tryggð hennar
við hinn sérstaka myndstíl léttrar
og fágaðrar línu, er hún markaði
sér strax í upphafi listferils sins,
hefur nú vissulega borið riku-
legan ávöxt. Listakonan á margt
ágætra muna á sýningunni og vil
ég sérstaklega nefna myndaröð,
eða röð mynda skylds þema; nr. 7.
„Grænt lauf“, 10. „Blátt lauf“, 11.
„Haustruð sól“, 13 og 14. „Haust“
og nr. 21. „Náttfugl". I öllum
þessum myndum birtast bestu
eðliskostir listakonunnar en allar
eiga myndir hennar á sýningunni
það sameiginlegt að vera i hæsta
máta eftirtektarverðar.
1 heild er þetta skemmtileg
sýning og fólk staldrar hér lengi
við, enda eru vinnustofusýningar
stórum „intimari" sýningum í
opinberum sölum. Eins sakna ég
þó á sýningunni og það er eitt-
hvað í likingu módelskart-
gripanna, sem prýddu fyrstu
sýningu listahjónanna að
Laugarásvegi 7, en hér gefur
postulínstæknin mikla og
skemmtilega möguleika.
Bragi Asgeirsson.
Þessi mynd er frá rallinu, sem fram fór 12. júní
Næsta rall F.Í.B.:
Hringvegurinn
EINS OG flestum mun kunnugt
er nýlokið rall-keppni F.I.B. og er
hún önnur í röðinni. Keppnin í ár
var mun erfiðari en sú í fyrra,
leiðin, sem ekin var, var 250 km
en 145 í fyrra. Að sögn Árna
Árnasonar framkvæmdastjóra
keppninnar var hún höfð svo ró-
leg síðast til að þjálfa starfsfólk.
Nú hefðf það fengið nokkra
reynslu og þvi hefðu þeir viljað
ráðast i þessa erfiðu leið. Sagði
Árni að nokkrir keppendanna
hefðu sagt að þetta væri það
skemmtilegasta sem þeir hefðu
komizt i. Næst á dagskrá í rall-
málum er að halda jeppa-rall og
e.t.v. rall nálægt Akureyri. Fram-
tíðarhugmyndin er sú að hafa síð-
an „Ice-and-Fire-Rally“ eins og
Árni orðaði það og yrði það
tveggja daga keppni kringum
landið með þátttöku erlendra
ökumanna. Sú keppni yrði að
sjálfsögðu enn erfiðari en hin síð-
asta, en leiðin sem þá var ekin frá
Reykjavík um Mosfellsheiði til
Þingvalla og Grafninginn í Þrast-
arlund og sömu leið til baka.
Aðalfundur
SÍR hald-
inn 29. og
30. júní
SAMBAND islenzkra rafveitna
heldur aðalfund sinn að Hótel
Sögu, dagana 29. og 30. júní n.k.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa munu ýmis erindi verða
flutt. Lárus Jónsson, alþingismað-
ur og dr. Kjartan Jóhannsson,
verkfræðingur, munu flytja er-
indi um Norðurlandsvirkjun
Helgi Bergs, bankastjöri, flytur
erindi um raforkumál á Austur-
landi, Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, alþingismaður, heldur
erindi um Orkubú Vestfjarða og
Ingimar Karlsson, deildarstjóri,
talar um almenningstengsl raf-
veitna. Þá munu þeir Aðalsteinn
Guðjohnsen, formaður SlR, og
Glúmur Björnsson, skrifstofu-
sjjóri, flytja skýrslu frá vinnu-
hðpj um fjármál raforkuiðnaðar-
ins.
Fyrir nokkru var haldið alheimsþing Rotary-klúbba i
Flórída í Bandaríkjunum. Á þinginu var Robert A.
Manchester kjörinn forseti Rotary International og sést
hann hér á myndinni heilsa Jóhanni Péturssyni, sem
kjörinn var yfirmaður Rotary-hreyfingarinnar fvrir sitt
heimaland. Jóhann hefur verið meðlimur Rotary-
klúbbsins í Keflavík frá 1947 og sem yfirmaður hrevf-
ingarinnar mun hann heimsækja sérhvern klúbb, sem
undir hann heyrir og koma með tillögur um úrbætur á
ýmsum sviðum.
Ai;(,I.YS[Níi.\SIMlN\ ER:
22480
JB*r0unblabib
Ferðafól k!
Reynið nýja gistiheimilið að Gíslabæ,
Snæfellsnesi, í hinni ósnortnu náttúru
undir Jökli. (Sími um Arnarstapa)