Morgunblaðið - 26.06.1976, Page 15

Morgunblaðið - 26.06.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNÍ 1976 15 Tito forseti á ráðstefnu evrópskra kommúnista Moskva: 2 börn flutt úr sendiráði USA IMoskva 25. iúní AP. Fegurðardrottning isra- els Rena Messinger og fegurðardrottning ís- iands, Guðmunda Jóhannsdóttir, skála hér fyrir góðu gengi beggja í keppninni um titilinn Miss Universe sem fram fer í Hong Kong. Verða úrslitin birt þann 11. júlí. Víetnam: Nýttnafn Singapore 25. júnf. Reuter. SUÐUR- og Norður-Víetnam munu f framtfðinni heita „Sðsfal- íska lýðveldið Vfetnam" og verð- ur Hanoi höfuðborg landsins, að þvf er skýrt var frá f dag, en f gær Idi Amin ævi- langt forseti Nairobi 25. júnf Reuter. IDI Amin, forseti tJganda, hefur verið lýstur forseti ævilangt og helztu ráðgjafar hans hafa ákveð- ið að beita sér fyrir þvf að auka öryggisráðstafanir um forsetann vegna tilræðis við hann fyrir skemmstu. Það var varnarmálaráð Uganda sem greindi frá æviskipun Amins í dag og haft var siðan eftir Amin að hann væri hrærður og glaður að heyra um þessa ákvörðun. 1 tilkynningu varnarmálaráðs- ins sagði að þessi skipan hefði verið ákveðin vegna þeirra gífur- legu framfara sem orðið hefðu i landinu undir stjórn Amins og hefði hann helgað sig þvi verki af heilum hug að bæta hag allra þegna sinna. Belgrad 25. júní Ntb. Reuter. TITO forseti Júgóslavfu mun verða f forystu júgóslavnesku sendinefndarinnar á fundi evrópskra kommúnistaflokka - nýr þjóð- var formlega gengið frá samein- ingu landanna. 1 útvarpi var tekið fram að þjóð- þingið sem skipað er 492 fulltrú- um muni nú koma saman og vinna að þvi að semja stjórnar- skrá fyrir hið nýja lýðveldi. Þing- ið situr í Hanoi og mun það einnig velja landinu fána og þjóðsöng. Er búizt við að fáninn verði rauð- ur með gulri stjörnu en það var sá fáni sem Þjóðfrelsishreyfingin notaði í báráttu sinni við Banda- ríkjamenn og Suður-Vietnama. Þá er gert ráð fyrir að þjóð- söngurinn verði Tien Qua Ca, sem mun þýða „Hermennirnir ganga fram“ og er það byltingarsöngur frá því í baráttu Viet Minh við frönsku nýlendustjórnina i Indókína. Brezka utanríkisráðuneytið sagði í dag að ríkisstjórnin myndi að lfkindum viðurkenna hið nýja riki á næstunni og mun þaðgerast á þann máta að brezki sendiherr- ann í Hanoi mun taka að sér allar opinberar skyldur Bretlands í öllu landinu, einnig þeim hluta sem áður hét Suður-Vietnam. sem hefst f Austur-Berlfn eftir helgina, að þvf er tilkynnt var opinberlega f Belgrad f dag. Þetta er f fyrsta skipti á sfðustu tuttugu árum, að Júgóslavar taka þátt f slíkri ráðstefnu. Til fundarins koma fulltrúar 28 kommúnistaflokka og þar á meðal eru fulltrúar frá Rúmeníu, Frakk- landi, Spáni og Italiu, en þessir flokkar hafa allir vísað á bug hug- myndum og kenningum um for^ gang og umframyfirráð sovézkra kommúnista umfram aðra. Búizt er við að Leonid Breznev verði formaður sovézku sendinefndar- innar. Hin mikla þátttaka kommún- istaflokka er talinn sigur fyrir Austur-Þjóðverja og litið svo á, að hlutverk þeirra innan alþjóða- samtaka kommúnista sé nú meira en áður. 126 ára Grikki látinn Aþenu 25. júnf NTB. ELZTI borgari Grikklands, Jann- is Wouloubaakis, sem fram á sfð- ustu ár hefur fengizt við smfðar, lézt í dag f bænum Rethvmnon á Krft. Hann var 126 ára. Hann lætur eftir sig sex börn — það yngsta aðeins 39 ára gamalt, og mikinn hóp barnabarna, barnabarnabarna og barnabarna- barnabarna. Wouloubaakis hélt andlegum kröftum og líkamlegri heilsu fram til þess siðasta. Hann var alla tíð grænmetisæta en leyfði sér þann munað á jólum og pásk- um að snæða kjöt. TVÖ bandarfsk börn, sem hafa húið í bandarfska sendiráðinu í Moskvu, hafa verið flutt á burt og send til Bandarfkjanna eftir að f Ijós kom að þau þjáðust af tor- kennilegum blóðsjúkdómi, að því Vegir á Mars? Pasadena Kaliforníu 25. júní AP. BANDARlSKIR vfsindamenn, sem vinna nú að rannsóknum á myndum af Marz frá geim- farinu Víkingi I, segja að engu líkara sé en að veeir séu um plánetuna þvera og endilanga. Harold Masursky, yfirmaður Jet Propulsion vísindastöðvar- innar í Pasasena, sagði í dag að þetta fyrirbæri væri mjög ein- kennilegt. Vísindamenn, sem skoðað hefðu myndirnar væru sammála um að það eina, sem rendurnar á myndum minntu á, væru vegir á loftmyndum af jörðu. Masursky sagði að vís- indamenn hefðu ekki minnstu hugmynd um hvað hér væri um að ræða, þvi að harla ólík- legt væri að vegir fyndust á Marz. Geimfarið á að lenda á Marz 4. júlí og bíða vísinda- menn með mikilli eftirvænt- ingu eftir myndum og jarð- vegsrannsóknum, sem þá verða framkvæmdar. DÖNSK blöð greina frá þvf að Hilmar Baunsgaard, leiðtogi Radikale Venstre, ætli að draga sig í hlé á næsta kjörtímabili og gefa ekki kost á sér. Þá mun einn- ig vera afráðið að á flokksþingi Radikale venstre 10. ágúst verði Niels Helveg Petersen kjörinn er áreiðanlegar heimildir AP- fréttastofunnar greindu frá sfð- degis. Voru börnin flutt á braut fyrr í þessari viku eftir að rannsókn var fram haldið á hugsanlegum af- leiðingum af örbylgjugeislum sem sagt hefur verið að beint hafi verið að bandaríska sendiráðinu í nokkra mánuði. Ákvörðunin um að börnin yrðu send til Bandaríkjanna var tekin meðan á dvöl dr. Williams Watson og dr. Herberts Pollaeks, starfsmanna utanríkisráðuneytis- ins í Washington stóð, en þeir voru sendir til Moskvu til að kanna niðurstöður blóðrannsókna og blóðsýna á starfsliði sendiráðs- ins og fjölskyldna þeirra. Banda- rískar heimildir staðhæfa þó enn að engar sannanir hafi enn feng- izt sem gætu tengzt geislakasti þessu, en að rannsókninni verði fram haldið. Enn ein gengis- lækkun í Chile Santiago 25. júnf AP. GENGI pesosins, gjaldmiðils Chile, var f dag lækkað í sau- tjánda sinn á þessu ári. Var gengi hans breytt úr 13.70 pesosum mið- að við dollar f 13.90 pesosa. Með ráðstöfun þessari vakir fyrir stjórn landsins að örva útflutning á chileönskum vörum, segir í til- kynningu aðalbanka Chile. arftaki Baunsgaards. Þetta kem- ur ekki með öllu á óvart. þar sem vitað var að Baunsgaard hafði hug á því að draga sig í hlé og fyrir nokkrum dögum mun hann hafa skýrt stjórn flokksins form- lega frá ákvörðun sinni. Bar hann fram tillögu um eftir- mann sinn, Niels Helveg, en hann hefur að undanförnu verið full- trúi Dana hjá B'fnahagsbandalag- inu i Briissel. Var einróma sam- þykkt að fara þess á leit við Niels Helveg Petersen að hann gæfi kost á sér til formanns og mun hann hafa fallizt á það. Hilmar Baunsgaard hefur verið farsæll leiðtogi Radikale Venstre og fylgi flokksins hefur aukizt mjög undir hans leiðsögn. I síð- ustu þingkosningum tvöfaldaði flokkurinn fylgi sitt og fékk um 27% atkvæða. Baunsgaard hefur setið á þingi síðan 1957 og auk þess að gegna embætti forsætis- ráðherra hefur hann verið við- skiptaráðhcrra. Niels Helveg Petersen er 37 ára og var fyrst kosinn á þing 1966. llann er sonur K. Helveg Peter- sen fyrrverandi ráðherra og Lilly llelveg Petersen borgarstjóra i Kaupmannahöfn. CASTRO VARÐ Á UNDAN AÐ DREPA EN KENNEDY Sjónvarpsmaður í USA segir frá uppljóstrun Lyndons Johnson Washington 25. júní Reuter. ÞEKKTUR bandarfskur sjón- varpsmaður, Howard Smith, sagði f útsendingu ABC sjón- varpsstöðvarinnar f gærkvöldi að Lyndon Johnson, fyrr- verandi Bandarfkjaforseti, hefði einhverju sinni sagt sér að Fidel Castro, forsætisráð- herra Kúbu hefði á einhvern hátt verið viðriðinn morðið á John Kennedy forseta Bandarfkjanna árið 1963. Vitnaði hann ohðrétt í hvað Johnson hafði sagt í einka- samtafi „Ég skal segja yður dálftið um Kennedymorðið sem mun koma yður f opna skjöldu. Kenndy var að reyna að losa sig við Castro, en hann varð þá fyrri til.“ Smith sagði að samtal þetta hefði verið í trúnaði en hann teldi ekki stætt á öðru en skýra frá þessu nú. Ekki hvað sízt með hliðsjón af þvi að rannsóknarnefnd þingsins hefði málið með höndum og hefur þegar birt þá skoðun sina að frammistaða bæði FBI og CIA hafi verið með endemum í málinu og var þar ýfað að þvi að starfsmenn FBI og CIA hafi leynt mikilvægum upplýsing- um, þar á meðal upplýsingum um mann sem flúði frá Bandaríkjunum til Mexíkóborgar og siðan til Kúbu rétt eftir að morðið var framið. Smith segist hafa beðið John- son margsinnis að segja sér nánar frá þessu, en hann hafi neitað og sagt: „Einn góðan veðurdag mun þetta allt koma i ljós.“ söngur - nýtt þing Niels Helveg Petersen og Hilmar Baunsgaard f danska þinghúsinu. Niels Helveg Petersen tekur við af Baunsgaard

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.