Morgunblaðið - 26.06.1976, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.06.1976, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1976 Georg Viðar: fremst trú á þann Guð er gefur örlátlega og átölulaust þeim, er biðja hann. Rekstrargrundvöii- ur var enginn. Ekkert stofnfé, enginn sjóður, enginn kassi, hvorki ríkis né borgar aö dýfa hendi í. Nú að tveim árum liðnum renni ég huga yfir farna slóð, og brosi. Fyrst að þeim ein- feldningum er álitu að þeir gætu glímt við sjálfan Guð, og drepið niður þá stofnun, sem Hann hafði af miskunn sinni gefið. I öðru lagi verð ég glaður yfir því stórkostlega átaki er unnist hefur, fyrir bæn og trú. í þriðja lagi verð ég undrandi á því furðulega fyrirbæri er hef- ur verið að gerast rokkar bind- indismálum og ég verð jafn- framt dálítið hryggur um leið, er ég skoða þá hluti í ljósi þess, að sá flokkur, sem ég kýs og tel mér heiður af að tilheyra, skuli styðja svo stórkostlegar ráða- venda, hefði atvinnu, verið vinnufær, en að öðrum kosti látið kerfið góða taka við, því að slíkum eiga allir að bjarga og hjálpa, í stað þess að ausa fé i þá, er ekki þurfa þess með, — og ef á reynir skal ég standa við þessi orð mín og nefna viðkom- andi með nöfnum, en ég vona að þess þurfi ekki. Mér varð á að brosa, og það breitt, er ég las grein i Visi, sem hafði yfir- skrift eitthvað á þessa leið: TÝNDI HLEKKURINN FUND- INN . . . Eg fór að lesa og datt þá helst í hug að til væru jafn- vel sprenglærðir og hámenntað- ir læknar, sem halda því fram að þeir séu komnir af öpum, — og nú hefðu þeir ef til vill fund- íð forföður sinn, týnda hlekk- inn milli þeirra og apans. En greinin í þessu ágæta blaði fjallaði um það, að nú hefði Reykjavíkurborg keypt hús fyr- ir starfsemi, einstaka I sinni röð þannig að menn yrðu ekki út- skrifaóir, fyrr en atvinna og húsnæði væri i boði. Þess var jafnframt getið, að hér væri um nýjung að ræða og yrði Jóhann- es Bérgsveinsson þar aðallækn- ir. Ég gleðst yfir sérhverju nýju átaki sem unnið er í þessum málum. En mér leiðist allur Tveggja ára afmæli stór- merkrar stofnunar þessum málum, og það er hræðilegt i landi þar sem rikir sjálfstæði. Er það meining sparnaðarsér- fræðinga þjóðarinnar að spara með því að selja meira áfengi, og lækka á sama tíma dagvist- unargjöld til þeirra stofnana er vinna ötullega að því að hjálpa þeim er orðið hafa undir i líf- inu af þessu eitri. En f staðinn eru reistir svo stórir og veiga- miklir kastalar fyrir drykkju- menn, að engir peningar eru til þess að reka þá. Vitið þér skatt- borgari, hvað það kostar að reisa hin nýju og glæsilegu hæli sem ríkið lætur reisa fyrir þá sem orðnir eru sjúklingar af að drekka þann vökva er var keyptur hjá sjálfu ríkinu, með einkarétt á sölu þess konar eit- urs. Hefur sparnaðarsérfræðing- um okkar ekki dottið í hug, hvers vegna talað hefur verið um að hafa 29 starfandi menn að hinu nýja bákni á Vifilsstöð- um, sem kemur ekki til með að hýsa nema 23 sjúklinga. Veit þá skattgreiðandinn hve hann þarf að borga mikið með stofn- unum sem leggja inn mann, áfengissjúkling, s.s. Landspít- ala, Borgarspítala og bákninu á Vífilsstaðavöllum. Ef ekki þá lífs fyrir kraft Jesú. Það er hið raunhæfasta, en jafnframt ódýrasta í heimi. En ég horfi ekki fyrst og fremst á þá tölu að hér hafi dvalið um tvö hundruð manns, og halda áfram að koma, heldur það sem er veigamest en alltaf er sett til hliðar í umræðum um 'svona mál. ÞAÐ ER ÁRANG- URINN. Fyrsta árið dvöldu hér 55 menn með 1355 vistdaga. Að- alatriðið er að 31 af þeim, er héðan fóru þá, höfðu i fast hús- næði að fara, höfðu fengið at- vinnu og það sem veigamest er, þeir höfðu eignast þá trú að það væri aðeins Drottinn Jesús sem gæti bjargað þeim. Gæsluvistar- sjóður hefur verið uppurinn í fleiri en eitt ár, og Samhjálp varð að fá synjun vegna þess að Vífilsstaðakastalinn sá um að tæma, en stóð svo auður og ónotaður á sama tíma og fjöldi manns gekk um húsnæðislaus. Samhjálp fékk einnig neitun um hjálp til ákveðinna húsa- kaupa til að færa út starfsem- ina. En það einræði sem ég hef áður talað um, þurfti ekki meir en að benda á ákveðið hús í borginni og var þá umrætt hús keypt. Að lokum þetta. Sam- hjálp byrjaði í bílskúr við Soga- veg, nú er aðstaðan 500 fer- Dagurinn tiundi júni verður ætíð fyrir mér stórmerkur dag- ur, og ég tel að þá sé merkilegt afmæli meðal hinnar íslensku þjóðar. Hvað þá gerðist muna kannski ekki svo margir lengur en það ættu margir að gera, ég segi margir, en ætti að skrifa allir því sá dagur markar merkilegt spor í sögu islenskrar bindindishreyfingar. Þann dag gerðist það merkilega fyrirbæri að Samhjálparheimilið að Hlað- gerðarkoti í Mosfellssveit tók á móti sínum fyrsta skjólstæð- íngi. Eg ætla að segja þér í dag, lesandi minn, að þá var þeirri stofnun spáð bráðum dauða. Reyndar skal það dregið fram að hið margslungna, saman- tvinnaða kerfi okkar, ásamt fé- lagasamtökum, sveitarfélagi og jafnvel læknum og ráðuneytis- stjórum gerði það besta er í þess valdi stóð til að stuöla að því að þessi stofnun myndi deyja í fæðingu, en morð mis- takast líka oft. Guði sé lof. Er ég lít yfir gengna slóð og læt hugann renna frá upphafi til dagsins í dag, er ekki því að neita, að margt merkilegt hefur gerst, sumt dásamlegt, já flest, en margt miður gott. Já, margt furðulegt hefur gerst og ég ætla að segja dálítið frá því i því blaði sem mér finnst ég hafa leyfi til að setja skoðanir og athugasemdir á framfæri í. Ég hef aldrei þurft að skamm- ast mín fyrir að vera sjálfstæð- ismaður, og því nota ég það málgagn, sem flytur þann mál- stað, sem er í anda sjálfstæðis. Þegar Samhjálp keypti hús- eignina Hlaðgerðarkot í Mos- fellssveit til að reka heimili fyr- ir þá, er hvergi áttu heima, fyr- ir þá, er voru að koma af hælum og stofnunum ríkisins, svo og aðra útigangsmenn, er óhætt að segja að þar hafi ríkt stórkost- leg bjartsýni og þó fyrst og Hver vill spara 14.500 kr. á dag? Hlaðgerðarkot í Mosfellssveit. gerðir, sem unnar eru í algjör- um blóra við allt sjálfstæði og myndu, ef þær skoðanir og ráðagerðir kæmu frá einræðis- ríkjum, Rússlandi, Kína o.fl. vera taldar algjört einræði, og bæri alls ekki að líða né leyfa í ríki þar sem flokkur sjálfstæð- is, og frjálsræði í orði, prenti og trú ríkja. Hvað er ég nú að fara?, spyr þú og þú hefur leyfi til að spyrja og átt heimtingu á svari. Nú er það ekki tilgangur minn, þótt ég nefni pistil minn afmæl- isgrein, að fara að mæla með og hrósa þeirri stofnun er Hlað-. gerðarkot heitir, og Guð gaf þér og mér. Ég nefnilega veit að sú stofnun mælir með sér sjálf, vegna þeirra er þar hafa dvalið og áttu erfitt með að komast á hinar rándýru, stórkostlega dýru ríkisstofnanir, og mun ég koma að því síðar. Ég ætla þó að geta þess, að samkvæmt bókum mínum hafa dvalið þar um tvö hundruð vistmenn um lengri eða skemmri tíma. Þetta hafa verið menn er hafa verið að útskrifast af hinum ágætu rík- isstofnunum, og ríkisfangels- um, svo og aðrir sem hafa i lífinu orðið að lúta í lægra haldi fyrir þessu seigdrepandi eitri, sem á alþjóðamáli heitir alcohol (áfengi) og er dreift út af einkaaðila, sem er ríkisstofnun, Á.T.V.R. Samhjálp hefur lagt kapp á að útskrifa engan nema hann hefði í öruggt húsaskjól að leikaraskapur í jafnalvarlegu máli, máli, sem varðar hag bág- staddra manna. Sjálfur hef ég í mörg ár neytt þessa seigdrep- andi vökva, og þess vegna hef ég af hugsjón haft köllun til að hýsa þá er hafa orðið þrælar hans. En svo var kannski ekki til fyrir matarögn, né húsa- skjól, og þá var það gatan er beið, nema kannski ef betur blés, fangageymsla lögreglunn- ar, en sú gisting er ekki gefin, þótt ekki séu þægindi í sam- ræmi við kostnað. I afmælisgrein á það ekki illa heima að geta þess að nýlega var lagt fram fyrir þjóðina gríð- armikið sparnaðarfrumvarp. Sjálfur er ég meðmæltur sparn- aði, og sannfærður um að ís- lenska þjóðin þarf að spara. En um leið og talað er um sparnað, vil ég ekki að viss klíka í skjóli sinna embætta geti bruðlað með milljónir milljóna en látið kveða við sparnaðartóna fyrir öðrum. Það er ekki óalgengt að hér að Hlaðgerðarkoti hafi dvalið 19 menn á mánuði. Fyrir þá hefur það verið gert sem Vfsir átti við þegar hann talaði um týnda hlekkinn en ég ætla að fræða þjóðina á því, að er við byrjuðum starfsemi okkar hérna tók okkur marga mánuði að fá viðurkennd dagvistunar- gjöld vegna skjólstæðinga okk- ar, en það er ef til vili vegna þess að við beittum ekki fyrir okkur sérlega útvöldum lækni sem orðinn er einræðisherra í get ég sagt þér það. 14.500 kr. kostar hvert rúm á slíkum stöð- um. En veistu að hérna í Hlað- gerðarkoti hafa að mestu starf- að ein hjón, og dagvistargjaldið var eitt sinn komið upp í 2.400 kr. en svo hefur kerfinu þótt það of mikið bruðl og við feng- um lækkun niður í kr. 2.100 pr. dag. Hvers vegna er hægt að reka heimili fyrir 16 manns með tveim manneskjum, með 2.100 pr. dag, en þurfa svo að hafa 29 manns fyrir 23 vist- menn og kostnaðurinn er kr. 14.500 pr. dag. Ég get sannað að fyrir kraft hins upprisna frelsara hafa margir farið héðan með nýtt líf framundan. Leystir fyrir fullt og allt frá áfengi, og eru orðnir vinnandi skattgreiðendur í dag. Það er ekki vegna minna verð- leika. Heldur vegna þess að sá sami Jesús er mig leysti frá áfengi, er enn í dag að gera hið sama hér í Hlaðgerðarkoti, fyr- ir boðun Hans orðs. Ég veit að einræðisherrann í áfengismál- um nær aldrei áfengissýkli upp á röntgenmynd. Ég veit líka að sýkillinn sjálfur mun aldrei finnast í blóðinu, aðeins alkó- hólið. Þess vegna veit ég að hópur lækna, hjúkrunarkvenna og alls kyns fræðinga mun aldrei geta gert neitt fyrir áfengissjúklinga. Enda er það sannað um allan heim að ríkis- rekin hæli hafa aldrei komið út með sambærilegan árangur og þau er hafa boðun heilbrigðs metra hús og enn bætum við við okkur, því enginn maður fær brotið það niður sem reist er í nafni Krists. Hann er okkar raunverulegi forstöðumaður, þótt ég sé skráður það. Að lok- um þessi blákaldi sannleikur. Það er óheilbrigt að láta einn mann, í skjóli síns embættis, fara með milljónir I súginn og tilraunastarfsemi, og flestir vita um árangurinn, hann hef- ur aldrei verið neinn. Auk þess hefur sá sami neitað í margra votta viðurvist að til sé önnur lækning en hann las um í doð- röntum fyrir áratugum síðan, og allir vita að eru löngu úreltir og hvergi viðurkenndir meðal þeirra sem fylgjast með fram- vindu slíkra mála. En á sama tima er til stofnun sem rekin er á margfalt ódýrari hátt, og kem- ur út með margfalt sannanlega betri árangur. Þvi er verið að hefta og binda slíka starfsemi? Og ég spyr: Hvar eru sparnað- arsérfræðingar vorir núna? Guð blessi sérhvern er lagt hefur Samhjálp lið og gert það að verkum að það hefur fengið að dafna og blómgast, það er ekki kerfinu að þakka að svo er, heldur þeim mörgu sem Guð hefur lagt á hjarta að styðja það starf sem unnið er í nafni hins miskunnsama Samverja. Það eru enn margir er liggja særðir við veginn. Það þacf að hjálpa þeim. Sæll er sá er gefur gaum bág- stöddum segir heilög ritning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.