Morgunblaðið - 26.06.1976, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNl 1976
25
fclk í
fréttum
Stultu-
menn í
útistöðum
+ Sá, sem hér leikur
listir sfnar, heitir Helge
Nielsen og er hann for-
maður í Stultusambandi
Mið-Fjóns í Danmörku.
Frá því er sagt í fréttum,
að þeir félagar í Stultu-
sambandinu hafi átt í
nokkrum útistöðum við
bæjarstjórnina f
Ryslinge á Fjóni en þeir
höfðu farið fram á það,
að þeim yrði úthlutað
æfingasvæði. Deilunum
lauk náttúrulega með
yfirburðasigri stultu-
manna, sem hér eftir
geta óhindraðir iðkað
fþrótt sína.
Barbra
skiptir
um sokka
+ Sagt er að Barbra
Streisand hafi nú
endanlega gefizt upp á
öllum mótþróa við eigin-
mann sinn og rauðsokku-
tilburðum. Á dyrunum
að íbúð þeirra stendur
nú aðeins nafn hans,
Peters, og þegar stofu-
stúlkan svarar í símann
segir hún aðeins „hjá
Pétri“.
+ „Augun eru bI6ð-
rauðir pollar og hann
drúpir þessu kunnug-
iega, sköllótta höfði eft-
ir allt nætursvallið.
Hann kemur of seint I
upptökurnar og tafsar á
textanum."
Þessi mannlýsing
birtist ( Lundúnablað-
inu Daily Mail og var
þar verið að lýsa leikar-
anum Telly Savalas,
sem nú er við kvik-
myndagerð í V-Berlfn.
Telly brást að vonum
hinn versti við og höfð-
aði umsvifalaust mál á
hendur blaðinu. Réttur-
inn komst að þeirri nið-
urstöðu, að honum
bæru 60.000 dollarar f
skaðabætur, og Telly,
sem kvæntur er enskri
konu, lýsti þvf yfir, að
hann ætlaði að eyða
peningunum f hinu
langhrjáða Englandi.
„Ég er hinn mesti orð-
hákur“, sagði hann, „en
ég er Ifka mikill Engla-
vinur.“
Mentanarstevna Föroya:
Söngur og mál-
verk frá Islandi
Sérstök dagskrá um Halldór Laxness
FJÓRIR tslendingar munu taka
þátt í listahátíð Færeyinga, sem
mun standa yfir dagana 27.
júní—4. júlí, en F’æreyingar hafa
fengið um 20 aðila frá öllum
Norðurlöndum og fleiri Evrópu-
löndum til að taka þátt í lista-
hátfðinni, sem þeir kalla Mentan-
arstevnu Föroya.
Þeir sem fara frá íslandi eru
Sigríður Ella Magnúsdóttir óperu-
söngkona og undirleikari hennar,
Agnes Baldursdóttir, Veturliði
Gunnarsson listmálari og Arni
Johnsen visnasöngvari. Sérstök
efnisskrá úr verkum Halldórs
Laxness verður á opnunarkvöldi
Mentanarstevnunnar i Þórshöfn
og þar munu Sigríður Elia og
Arni flytja klukkustundardag-
skrá, söng og ljóðaflutning. Einn-
ig verður Laxnessdagskráin flutt
á Eyrarbakka þeirra Færeyinga,
en á Mentanarstevnunni er lögð
áherzla á að listafólkið heimsæki
flestar byggðir í Færeyjum.
Meðal gesta frá Norðurlöndum
er píanóleikarinn Kjell Bække-
lund frá Noregi, óperusöngkonan
Marianne Johansson frá Svíþjóð,
frá Grænlandi koma Aka Höegh
listmálari, Rasmus (UNGAK) Ly-
berth vísnasöngvari og Moses Ol-
sen flytur fyrirlestur, frá Finn-
landi kemur ballettflokkur, frá
Danmörku kemur m.a. Ebbe
Klöverdahl rithöfundur og frá
Færeyjum eru einnig fjölmargir
þátttakendur. Þetta er þriðja
Mentanarstevnan f Færeyjum, en
það er Landsstjórn Færeyja sem
er í forsvari fyrir listavikunni.
Sigríður Ella og Árni hafa bæði
sungið áður í Færeyjum, en Vet-
urliði er þriðji íslenzki málarinn
sem hefur málverkasýningu þar.
Hinir voru Jóhannes Kjarval og
Guðni Hermansen frá Vest-
mannaeyjum. íslenzku þátttak-
endurnir munu ferðast um Fær-
eyjar með öðrum flytjendum á
hátíðinni.
Aukasýning á Undir
suðvesturhimni á sunnudag
VEGNA mikillar aðsóknar að sýningu
Nemendaleikhússins I Lindarbæ á
Undir suðvesturhimni eftir Gunnar
Reyni Sveinsson og Sigurð Pálsson
hefur verið ákveðið að hafa aukasýn-
ingu á sunnudag kl. 17.00, en slð-
asta sýning verður svo eins og ráð-
gert var um kvöldið kl. 21.00. Ekki
er gert ráð fyrir því að sýningar á
verkinu verði teknar upp I haust að
nýju. Miðasalan I Lindarbæ verður
opin frá kl. 14.00 á sunnudag
BARNUM — Lómur (Viðar Eggertsson) og Don Juan (Sigurður Sigurjóns-
son) hafa komið óþægilegum keppinautum fyrir kattarnef og gera sér
dagamun. (Ljósm. Kristj. I. Einarss.)
Grásleppuhrogn
Framleiðendur. Nú er markaðsástand hagstætt
og því óþarfi að selja framleiðsluna á lágmarks-
verðum. Hafið samband við okkur strax, ef þér
vilduð fá sértilboð í óselda framleiðslu yðar.
Góö kjör og hæstu verö
5 ára reynsla í útflutningi
fslenzka
útflutningsmiðstöðin hf.
Eiriksgötu 19, Reykjavík. Telex 2214.
Símar 16260 og 21296