Morgunblaðið - 26.06.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNÍ 1976
29
VEU/AKANDI
0 Yfirvinnu-
bannið
Sigrídur Árnadóttir skrifar:
„Það er nú meira úrræðaleysið
hjá Rikisútvarpinu. Þetta er
þriðji sunnudagurinn í röð sem
ekki eru messur í útvarpi. Þeir
hafa ekki ráð undir rifi hverju
þar, eins og sagt var um forfeður
okkar. Þeir, sem búa úti á lands-
byggðinni svo og sjúklingar og
gamalt fólk, una því illa að fá ekki
sínar messur á sunnudögum. Það
er máske þeirra ‘eina gleðistund
yfir alla vikuna. Prestarnir
kvarta yfir lélegri kirkjusókn, en
vita þeir hvað messurnar ná til
margra sem ekki eru sjáanlegir i
kirkjunum?
Það eru margir sem eru öðrum
háðir og komast ekki í kirkju eða
annað þó þá langi til þess, því
fótur vor er fastur þó fljúga vilji
önd. Ég veit um marga sem hafa
sínar messur heima gegnum út-
varp og taka þátt i þeim og syngja
sálmana með. Það er unaðslegt að
geta haft sínar friðarstundir. Þó
væri æskilegra að geta haft mess-
urnar eftir matinn. Það er ekki
nóg að hlusta og því finnst mér
miður þegar þulirnir hirða ekki
um að tilkynna í hvaða sálmabók
sálmarnir eru svo maður þurfi
ekki að hafa báðar bækurnar við
höndina og leita i hvorri bókinni
þeir eru.
Nú vii ég stinga upp á því að
útvarpið eigi á segulbandi messur
yfir árið, sem væri hægt að gripa
til við svona kringumstæður, sem
nú eru, svo ekki þurfi að fella
niður messurnar. Því messur i
tönlist geta aldrei komið í stað-
inn.
Einnig vil ég stinga upp á þvi að
útvarpið verði lokað í einn mánuð
eins og sjónvarpið t.d. júní eða
ágúst svo útvarpsfólkið geti feng-
ið sumarfrisitlíka. Þáfáum við
allar fréttir í sjónvarpi og blöð-
um. Annars væri það skaðlaust þó
fækkað væri hryllingsfréttunum
sem misþyrma allri hugarró og
sem hamrað er á fimm til sex
sinnum á dag. Eða þetta músik-
garg, sem gerir alla heyrnardaufa
og sljóa fyrir almennilegri músik.
Það mætti aö skaðlausu láta út-
varpið hvíla sig milli kl. 2 og 4, þá
fengu þulirnir kaffihlé eins og
þingmennirnir. Maður hefur
næstum ofnæmi fyrir að vera
mataður á þessu allan daginn, þó
maður loki fyrir þá eru aðrir allt-
af með þennan glymjanda.
Mér finnst ekki hægt að hækka
alltaf gjöld á fólkið með eftir-
vinnu fyrir svona þjónustu. Það
er alveg nóg sem hækkar samt
stiginu — sem ég er fyrir iöngu
kominn af með þessa bók. Þegar
bókin eða þráðurinn er að byrja
að taka á sig fyrstu mynd og býr í
hugskoti minu einu. Ná... nú er
það ekkert nema vinna og aftur
vinna sem gildir.
En væri vinnuhraði hans
stöðugur og óumbreytaniegur
varð hið sama ekki sagt um skap-
iyndí hans. Þeir tfmar komu að
hann var eirðariaus, argur og
ógerlegt var að gera honum til
hæfis og þá ásakaði hann Malin
fyrir að hafa viijandi misskíiið
sig og breytt texta hans af fujl-
kominni illkvittni. En stundum
var hann aftur á móti léttur f
lund, giaður og reifur. Þegar sá
gállinn var á honum, lofaði hann
einkaritara sinn hástöfum, spaug-
aði við fjölskyldu sfna og efndi til
tSnlistarkvölda f bókaherberginu.
Þá léku Jón og Kári saman verk
eftir ýmsa snillinga og stundum
léku þeir smáverk sem Kári hafði
samið. En hversu Ijúf sem stund-
in var brást það ekki að klukkan
ellefu ákvað Andreas að ganga til
náða og vænti þess af öllum við-
stöddum að þeir gerðu slfkt hið
sama.
I tvær vikur fór Malin Skog
meðan matvaran hækkar viku-
lega, alltaf þrjár tegundir af mat-
vöru i hverri viku. Það eru ekki
allir sem hafa kaup eins og stjórn-
málamenn eða þingmenn.
Sigríður Arnadóttir"
Skólavegi 32,
Keflavík."
Það er rétt að messur ná til
margra, sem heíma eru bundnir
og því eru þeir sviptir miklu
þegar útvarpsmcssur
falla niður. í þessu ástandi
sem nú ríkir verða þeir
þvi að reyna að hafa sínar helgi-
stundir sjálfir, sem það geta
heima við. Það er að sumu leyti
góð hugmynd að eiga messur á
segulbandi tilbúnar til flutnings,
en vmsir annmarkar eru senni-
lega á því þar sem það er öllu
meira fyrirtæki að taka upp mess-
ur en senda þær beint út. Það
væri frekar möguleiki á að fá
einhverja til að hafa einfalda
helgistund í beinni útsendingu, ef
það brýtur ekki í bága við marg-
nefnt yfirvinnubann.
Sennilega væri ha-gt að spara
einhverja fjármuni með því að
loka útvarpinu í mánuð eins og
gert er með sjónvarpið. Varlayrði
þó um stórar upphæðir að ræða
því ekki er mjög margt sumarfólk
ráðið til útvarpsins. Sjónvarpið er
þvi líka meira afþreyíngartæki en
útvarpið. Utvarpið veitir ýmiss
konar þjónustu sem tr nauðsyn-
leg og má ekki falla niður. Hin
hugmyndin, sem fram kom í bréf-
inu, um að stytta útsendingartim-
ann, fengi e.t.v. frekari hljóm-
grunn hjá sumum. Annars eru
aðrir að tala um að lengja útsend-
ingartimann t.d. hafa næturút-
varp eða hafa alveg aðra stöð með
sér dagskrá. Það má teija hluta að
þjónustu þeirri, sem útvarpið ætti
að veita t.d. þeim, sem vinna um
nætur, og fleirum. Veðurfregnir
eru líka dæmi um hlut sem marg-
ir geta ekki verið án. En hér má
eflaust lengi deila eins og í svo
mörgu öðru.
Nýlega birtist hér í dálkunum
bréf þar sem hvatt er til góðrar
meðferðar á dýrunum og að ung-
börn eða óvitar meðhöndli ekki
dýr eftirlitslaust. Fleiri slík bréf
hafa borizt m.a. frá konum sem
hafa orðið vitni að illri meðferð
lítilla barna á kettlingum. Það er
sjálfsagt að minna fólk á að kenna
börnum að umgangast dýrin. Það
er nauðsynlegt fyrir börnin að
kynnast dýrunnm en það verður
beinlínis að kenna þeim það, ann-
ars er ékki víst að það sé gott fyrir
dýrin.
HÖGNI HREKKVÍSI
c 'W4 ..,J
MeNoughr '
Syndieote, Ine
„Hér hafið þirt þaö“
Fíat viðgerðarverkstæðið
verður lokað.frá 10. júlí til 10. ágúst vegna
sumarleyfa, þó verður reynt að annast skyndi-
viðgerðir.
Davíð Sigurðsson h.f.
Fíat einkaumboð á Islandi.
Veiðileyfi í
Geitabergsvatni
eru komin
Hótel Akranes,
Veitingaskálinn Ferstiklu
við Hvalfjarðarströnd
Nv|a T-bleyjan
MEÐ PLASTUNDIRLAGI FRÁ MÖLNLYCKE ER SÉR
LEGA HENTUG í FERÐALAGIÐ.
SPARIÐ BLEYJUÞVOTTINN OG KAUPIÐ PAKKA
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
KAUPSEL S.F.,
Laugavegi 25.
SÍMI27770.
í dag frumsýnum við verðlaunamyndina
Chinatown
Myndin sem beðið hefur verið eftir
Jjfnatowíi"
JOHN HILLERMAN PERRY LOPEZ BURT Y0UN6,
pioðudion ðesigner issociaie pioðucei - mus,c scoi«d by
RICHARO SYLBERT COERICKSON JERRY GOLOSMIIH
" lí'OWICfö D, Ql'rUTO uy
3WC«1loJ)oríBh5T{píM?oIan8}íi
TECHNICOLOR* PANAVISION* A PARAMOUNT PRESENTATION
RESTRICTEO _.
UW ' ■ 'fdU'tS
p4'tn> 0' M.H GuJ'ð'J'
Heimsfræg amerísk litmynd, tekin í Panavision.
Leikstjóri: Roman Polanski
Aðalhlutverk: Jack Nicholson.
Fay Dunaway
Sýnd kl. 5 og 9.
Islenzkur texti
Bönnuð börnum