Morgunblaðið - 11.07.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULÍ 1976
3
Vísindamenn frá NASA reyna
hér örbylgjutæki í gervihnetti
Thomas Willheit við örbylgjumælitæki sitt, sem mælir útgeislun frá
yfirborði sjávar.
SUÐUR á Keflavfkurflugvelli
stendur þessa vikuna flugvélin
Galileo II, Coarvairflugvél 990 frá
NASA, geimferðastofnun Banda
rfkjanna. Með henni eru milli 30
og 40 manns, vfsindamenn, flug-
menn, og viðgerðarmenn fyrir
flugvél og tæki. Þetta lið er að
reyna mælingatæki, sem nota á í
ómannaða gervihnetti, sem sendir
eru upp til rannsókna, og flogið er
norður yfir heimskautsfsinn.
Ungur bandarfskur eðlisfræð-
ingur, Thomas Willheit, sem starf-
ar hjá NASA og vinnur þar að gerð
örbylgjumælingatækja, varð fyrir
óvæntri ánægju, er hann kom
hingað. Hann hitti fyrir foreldra
sfna, Thomas Willheit eldri og
Jane Eve Willheit, ásamt systur
hans Eve. Þau voru á leið til
Evrópu, en höfðu stanzað hér f
nokkra daga til að hitta fslenzka
stúlku, Helgu Pálmadóttur, sem
hafði verið hjá þeim, er hún var
við nám f Bandarfkjunum, og sjá
fjölskyldu hennar. Sjálfur býr
hann f Maryland, en foreldrarnir
nálægt Atlanta f Georgfufylki.
Thomas Willheit hefur starfað hjá
geimferðastofnun Bandaríkjanna frá
þvi hann lauk námi i MIT háskólan-
um í Boston fyrir hálfu sjöunda ári. í
fyrra hlaut hann gullverðlaun NASA
fyrir vel unnin störf sem þykir mikill
heiður. Fréttamaður Mbl. hitti hann
að máli suður á Keflavíkurflugvelli,
fékk að ganga um vélina þar sem
ótal flókin tæki var að sjá.
Willheit sagði að auk þess sem
leiðangurinn væri að reyna ný mæli-
tæki, þá væri hann að gera örbylgju-
mælingar, sem taka við náttúruleg-
um örbylgju-útgeislunum frá jörð-
inni og andrúmsloftinu við hana
Með því móti er hægt að finna
rekísinn í heimskautshafinu, mæla
regn og hve nálægt jörðu það er,
greina jökulinn og jarðveginn undir
honum, vindhraðann við yfirborð
sjávar, hitastig við sjávarmál, vatns-
innihald loftsins, hitastigið o.fl. Og
það sem er mikilvægast, sagði Will-
heit. með örbylgjum er hægt að
mæla gegn um öll ský og hvort sem
er bjart er eða dimmt Mín tæki taka
ekki myndir, heldur mæla þau út-
geislun frá jörðinni, og það má eins
gera í kolamyrkri, bætti hann við.
Tæki sem hann hefur gert eru nú í
gervihnettinum Nimbus 5 og í
Nimbus 6 , sem báðir eru á ferðinni
um 1 100 km uppi í geimnum og
fara hringrás yfir pólana. En þar sem
jörðin snýst undir þeim, fara þeir
yfir allan hnöttinn, sagði hann til
útskýringar. Nimbus 5 var settur á
loft 1 1 desember 197 5 og Nimbus
6. 11. júní 1975. Tækin í báðum
virka Ijómandi vel. T.d. sýndi annar í
heimskautaísnum við Suðurpólinn
auðan blett í sjónum, sem menn
vildu ekki almennilega trúa á, þar til
rússneskt skip staðfesti að svo væri.
Þeir höfðu fundið það Og kom í Ijós
að hvalfangarar höfðu áður fyrri
þekkt þessa vök, sem hlýtur að hafa
verið mikilvægt fyrir þá, sagði Will-
heit, því þangað hafa hvalirnir auð-
vitað leitað. Og þá skipti engu hvort
þeir lokuðust inni í 3 mánuði, þegar
leiðangurinn tók 3 ár.
En hvaða tæki er hann nú að
útbúa. —Ég er eiginlega að lesa
lexíurnar mínar og undirbúa tækin
mín i gervihnött, sem á að setja á
flot 1978 með miklu fullkomnari
örbylgjuútbúnaði en hingað til hefur
verið til. Við erum að reyoa nýju
tækin, og með þvi að fljúga yfir þau
svæði, sem þau koma til með að
mæla, að læra hvernig eigi að túlka
upplýsingarnar frá þeim. Sjálfur er
ég nú aðallega með örbylgjutæki,
sem skoða sjávarborðið. En aðrir hér
eru með tæki, sem taka fyrir jökul-
inn og rekisinn. Hér verðum við i
viku, förum svo til Þýzkalands Kom-
um síðar við hér aftur í næstu viku á
leið til Thule Við vildum gjarnan
geta fengið tvær slíkar reynsluferðir
áður en gervihnötturinn verður sett-
ur á loft 1978 En í sumar ætlum
við að fara til Miami, til að beita
tækjunum o.kkar á hvirfilvind Við
höfðum vonað að hægt yrði að fá
prófun á þau með mælingum á
vindum yfir Norðursjó, en þar hefur
veriðalltof kyrrt.
— I stöðvum geimferðastofnunar-
innar í Maryland reynum viðað þróa
tæknina fyrir mælitækin í mann-
lausu vísindagervihnettina, og síðan
getum við komið þeim fyrir í veður-
hnöttum og öðrum mælingahnött-
um, ef þær stofnanir vilja og hafa
bolmagn til. Spurður að þvi hvort
tæknin á þessu sviði hetði ekki
breytzt mikið, svaraði Willheit
— Alveg gífurlega Þegar ég byrjaði
hjá NASA árið 1 9 70 var ekki byrjað
að nýta örbylgjur við rannsóknir úr
gervihnöttum. Fyrstu mælitækin
voru min tæki, sem fóru á loft
1972.
í samtalinu kemur fram, að Thom-
as Willheit hefur víðar farið vegna
rannsóknarstarfa. Hann var t d i
Senegal vegna alþjóðlega veður
fræðiársins og rannsókna í sam-
bandi við það Oft hefur hann komið
til Alaska og Grænlands Og fyrir ári
var hann við rannsóknir vfir Norður-
Willheit fjölskyldan hittist á is-
landi. Thomas og Jane Eve Will-
heit voru á leið til Evrópu með
dóttur sína, með viðkomu hjá vin-
um á íslandi, en sonur þeirra,
Thomas, í vísindaleiðangri frá
NASA. Hér fara þau að borða sam-
an á Sögu.
pólnum o'g suður-pólnum. Og hann
við fór ásamt nokkrum öðrum vís-
indamönnum frá geimferðastofnun-
inni til Leningrad til að hitta rúss-
neska starfsbræður sína Á árinu
1973 komu nokkrir geimvísinda-
menn rússneskir til höfuðstöðva
NASA í Maryland, og 1974 fóru
svo nokkrir ameriskir til Leningrad
og skiptust þeir á skoðunum og
upplýsingum.
Fréttamaður Mbl gekk um flug-
vélina, þar sem menn bjástruðu við
flókin tæki Eina sem hann botnaði í
voru tölvurnar tvær — og raunar
ekki — Við reiknum út upplýsing-
arnar jafnóðum í tölvu og sannpróf-
un svo útreikningana i hinni, út-
skýrði Willheit En tækjakosturinn i
þessari flugvél er vist nokkuð dýr
Það kom líka i jjós i samtalmu, að
flugvélin flýgur ekki alltaf eins og
slíkar gera að jafnaði —Við höfum
sérþarfir, sagði Willheit. Þessi mæli-
tæki eru t.d föst og í 10 km hæð
verður að halla flugvélmni æði mik
ið. svo þau fái rétt sjónarhorn við
jörðu Við þurfum lika að fljúga i
hringi yfir sjónum i 200 m hæð og
fara allt niður að 50 metra hæð við
mælingar á vindum við sjávarborð
Það er fróðlegt að lita i kring um
sig i svona miklu tækniapparati, en
ekki treystir blaðamaðurinn sér til að
reyna að skilja, hvað þá útskýra
tækjaútbúnaðinn
— E Pá
Rannsóknarflugvélin frá NASA.